Þjóðviljinn - 20.12.1975, Síða 5
Laugardagur 20. desember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Sjónvarpsefni
frá tékkum, ítölum,
finnum og þjóðverj.
meðal efnis 1976
Dagskrárstjóri kominn úr efnissöfnunarferðalagi
Jón Þórarinsson, dag-
skrárstjóri sjónvarpsins,
er nýkominn heim úr
ferðalagi til Finnlands,
Tékkóslóvakíu og Þýska-
lands, þar sem hann skoð-
aði sjónvarpsefni af ýmsu
tagi, festi kaup á sumu, en
fær af öðru sýnishorn til að
leggja fyrir útvarpsráð.
Ekki er óliklegt að á komandi
ári muni meira en fyrr sjást af
efni frá t.d. tékkum, sem nú
standa framarlega i kvikmynda-
gerð, framhaldsmyndagerð og
tilbúningi hvers kyns sjónvarps-
efnis. Um leið mun væntanlega
fækka nokkuð breskum og banda-
riskum þáttum og búast má við
að framhaldsþættir þaðan fái að
hvilast að einhverju leyti um
sinn. 1 staðinn kæmi þá efni frá
þeim löndum sem Jón sótti heim.
— Ég fór fyrst til Helsinki á
fund þar með fulltrúum leiklist-
ardeilda sjónvarpsstöðva Norð-
urlandaþjóða. Slikir fundir eru
haldnir á þriggja mánaða fresti
og þar er skipst á leikritum. Eitt
leikrit frá hverju landi kemur
venjulega hingað til lands eftir
hvern fund og á jóladag byrjum
við að sýna norskan framhalds-
myndaflokk, byggðan á skáldsög-
unni um Benónl og Hósu eftir
Hamsun, sem ég álit úrvalsefni,
sagði Jón i samtali við Þjóðvilj-
ann.
Norðurlandaþjóðirnar að okkur
undanskildum skiptast á um að
búa til slika framhaldsþætti og að
jafnaði eru búnir til tveir á ári
sem siðan ferðast á milli land-
anna. Ég skoðaði einnig i Hels-
inki töluvert af finnskum bió-
myndum og ég reikna með þvi að
þrjár eða fjórar komi hingað til
lands. Þær eru að visu ekki nýjar,
en allar i þessum klassiska
finnska biómyndastil.
Þá á eg von á þvi að sýndur
verði hér finnskur flokkur sem
heitir Undir pólstjörnunni. Hann
er upphaflega gerður sem þrjár
biómundir en hefur verið skipt i
sex þætti fyrir sjónvarp.
Tékkar standa
framarlega
Frá Helsinki fór ég til Prag.
Þar gekk ég frá kaupum á nokkr-
um stökum tékkneskum þáttum,
biómyndum eða sjónvarpsleikrit-
um og þar leit ég ennfremur á tvo
myndaflokka sem mér leist nokk-
uð vel á. Það er glænýtt efni og
enn ekki fullgert. Verður þvi ein-
hver bið á sýningu þess auk þess
sem útvarpsráð á eftir að lita á
sýnishorn af þessum framhalds-
þáttum eins og öllum öðrum, sem
teknir eru til sýninga.
t Þýskalandi fór ég á mikla
sýningu á efni frá öllum stöðvum,
sem heyra undir ARD-samsteyp-
una, en þær eru að ég held um tiu
alls. Dreifingarfyrirtæki þeirra
eru aðallega fjögur og strax kom i
ljós að ekki var auðvelt um vik
við samninga nema við tvo aðila.
Ég skoðaði þarna mikið efni og
mun gera tillögur um kaup á
tveimur þýskum framhalds-
myndaflokkum. Einnig keypti ég
nokkra þætti með alþjóðlegum
skemmtikröftunven allt efni sem
þarna var sýnt var þýskt.
— Mér finnst þetta vissul. til-
raun til að leita fanga viðar en til
Framhald á bls. 2 6.
Hugvekjur
Hallbjarnar
Halldórssonar
með inngangsorðum eftir
Halldór Laxness
Upplag bókarinnar er mjög takmarkað.
Er nú til sölu i Bókabúð Máls og menning-
ar, Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar
og skrifstofu HÍP
Sölubörn óskast til að selja
ÍSLENSK FYNDNI
Komið á Smiðjustig 4 i dag og næstu daga.
— Góð sölulaun.
íslensk fyndni.
Jóla-
bækur
fí
JónTmusti
MITTLAND
Jón Trausti var
mikill ferSa- og
göngugarpur. — (
ferSasögum hans
opnast nýir og nýir
heimar ð hverri
blaðsiðu.
Fjöldi mynda prýSii
bókina.
VerS kr. 2-640.—
með söluskatti.
NORÐURA
FEGURST ÁA
Rafael Sabatmi
f)
BjörnXBlöndal
Sagan um laxðna
miklu i Borgar-
firði, mestu veiði-
mennina og
stœrstu laxana.
f bókinni er fjöldi
mynda, auk korta
yfir öll veiði-
svæðin. Itarlegur
bókarauki um
veiSi, veiðistaði
og flugutegundir.
VerS kr.
3.480.— meS
söluskatti
Hrifandi
skðldsaga eftir
einhvern
vinsælasta
höfund fyrr og
stSar.
VALENTINA er
spennandi og ör-
lagarik skðldsaga
og fjallarum
ættardeilur og af-
brýSi. SABATINI
skapar hér enn
eina meistaralega
skðldsögu um
rómantik og
ævintýri.
VerS kr.
1.980.— með
söluskatti.
Sígildar bækur
sem allir vilja eignast
KYNSLOÐ
KALDA STRÍÐSINS
0'::
Segir frð lifi skðlda
og listamanna t
Reykjavik og deil-
unum um ný við-
horf til skðldskapar
ð 5. og 6. ðratugn-
um.
Ýmsir þekktustu
bókmennta- og
listamenn þjóSar-
innar koma hér
mjög viS sögu.
VerS kr. 2.820.—
meS söluskatti.
M, 1777IIAS JÓII, \.X\hSSl X
Hér birtast ð einum
staS ðtta leikrit
eins umdeildasta
höfundar okkar. Fð
leikrit hafa valdið
öðru eins fjaSrafoki
og einmitt þau.
sem hér birtast i
fyrsta skipti ð
prenti.
Þetta er bók, sem
enginn leiklistar-
og bókmenntaunn-
andi mð Iðta fram
hjð sjér fara.
VerS kr. 2.640.—
með söluskatti.
FJAÐRAFOK
og önnur
f (■ U J MsntortN vm IH $kiM*
‘ oj Hítnnurm* f *cyií*Ýfl<
CLHúfONO