Þjóðviljinn - 20.12.1975, Qupperneq 9
Laugardagur 20. desember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐÁ 9
Hólmfriður Jónsdóttir formaður Fósturfélagsins:
Iskyggileg þróun
Eins og Þjóðviljinn hefur sagt
frá hyggst rikisstjórnin afnema
rikisstyrk til rekstrarkostnaðar
dagvistunarstofnana en hann var
lögbundinn i april 1973. Sam-
kvæmt gildandi lögum er rikis-
vaidið skuldbundið til að greiða
allt að 20% af rekstrarkostnaði
leikskóla og 30% þegar dagheim-
ili eiga i hlut.
Þessi rikisstyrkur hefur bætt
mjög rekstrargrundvöll dag-
heimilanna og orðið til þess að
foreldrahópar og ibúar sambýlis-
hiísa hafa lagt út i rekstur dag-
heimila. Með afnámi hans blasir
það við að einkaheimilin leggi
upp laupana þvi foreldrar ráða
ekki við aukinn kostnað við gæslu
barna sinna.
Þjóðviljinn hafði tal af Hólm-
friði Jónsdóttur formanni Fóstru-
félagsins og bað hana að segja
álit sitt á þessum áformum rikis-
valdsins.
— Mér finnst þetta iskyggilegt,
einkum vegna þess að hvergi
kemur fram hver á að afla þessa
fjár sem af er tekið. Það litur þvi
út fyrir að foreldrarnir eigi að
greiða þennan mismun. Það geta
þeir i mörgum tilvikum ekki. Þeir
sem hafa aðgang fyrir börn sin að
dagheimilunum hér i Reykjavk
eru eingöngu svonefndir for-
gangshópar, þe. einstæðir for-
eldrar og námsmenn. Þessir hóp-
ar geta ekki greitt meira en þeir
gera og þvi blasir við að færri
börn fái að njóta þess að dvelja á
þessum stofnunum.
Þessi ákvörðun rikisvaldsins
gerir það að verkum að enn
lengra verður i land hvað snertir
almenna notkun dagheimilanna.
Það kom mikill kippur I dagvist-
unarmálin þegar lög um rikis-
styrk voru sett og mér finnst það
bölvanlegt að vera að hreyfa við
þessu áður en reglugerðir um
þessi mál ganga i gildi til fulls,
sagði Hólmfriður.
Þess má geta að daggjöld á
dagheimilum og skólaheimilum
eru nú 9 þúsund krónur á mánuði.
Er sú upphæð miðuð við upphæð
þeirra gjalda sem einstæðir for-
eldrar fá greidd vegna barna
sinna hjá Tryggingastofnun rikis-
ins. Daggjöld á leikskólum eru
hins vegar 4.500 krónur á mánuði.
—ÞH
Jólasteikin
Aligæsir
Rjúpur
Svínasteikur
Og að sjálfsögðu hangiketið
að norðan
Sendum heim
Matvöruverslunin
Kjötbær
Þórsgötu/Baldursgötu Sími 13828
HRÓP í MYRKRINU
Þetta er saga um Sigga Flod
og félaga. I þessari sögu
vinna þeir félagar hvert af-
rekið af öðru sem leynilög-
reglumenn. Þó oft sé teflt á
tæpasta vað. Þessi saga er
bráðskemmtileg og gott
lestrarefni fyrir unglinga.
Verð kr. 1920.
FARINN VEGUR
Ævibrol úr llfl Ounnhlldor Ryel
°B Vladlsar KrIsi|dnBdðliur
FARINN VEGUR
Ævibrot úr lifi Gunnhildar
Ityel og Vigdisar Kristjáns-
dóttur.
Gunnhildur Ryel ekkja
Balduins Ryel, kaupmanns
og ræðismanns á Akureyri
veitti um áratuga bil for-
stöðu einu mesta myndar- og
menningarheimili á Akur-
eyri. Hún segir frá uppvaxt-
arárum sinum og gömlu
Akureyri viðburðum, mönn-
um og málefnum, sem hún
hafði kynni af á langri ævi og
miklu og fórnfúsu félags-
starfi, einkum i þágu liknar-
og mannúðarmála.
Vigdis Kristjánsdóttir lista-
konan þjóðkunna rekur hér
þræði langrar sögu sinnar
við listnám og listiðkun, seg-
ir frá ferðum til lista- og
menningarstöðva stórborg-
anna, samvistum við ýmsa
samferðamenn og frá ævi-
kjörum sinum og farsælu og
hamingjusömu hjónabandi.
Hugrún skráði bókina.
Verð kr. 840.
Verð kr. 1200.
ORRUSTAN UM
VARSJA
Hitler réði forlögum Þýska-
lands og það voru forlög sem
ekki urðu umflúin. Þetta
sagði Walter von Brauc-
hitsch, yfirhershöfðingi
þjóðverja 1938—1941.
Það var draumur Hitlers um
þúsund ára riki, sem hratt
siðari heimsstyrjöldinni af
stað. Hún var öllum öðrum
styrjöldum ægilegri, mann-
tjónið meira, eyðileggingin
stórkostlegri, grimmdin of-
boðslegri. Þar réð ekki sist
tæknilegar framfarir her-
gagnaiðnaðarins, og há-
marki náði hin nýja tækni,
þegar tveim, kjarnorku-
sprengjum var varpað á
Japan.
BORIST A BANA-
SPJÓTUM
Þetta er spennandi saga um
fjölskyldudeilur vigaferli, er
„ binda endi á vináttu og fóst-
bræðralag Halla og frænda
1 hans, Hrafns og rjúfa festar
35 Halla og heitkonu hans og
2 æskuvinstúlku Disu. Og að
lokum býst hann til siglingar
að leita ókunnra landa.
DÖGG NÆTURINNAR
Þetta er sjöunda bók Ölafar
Jónsdóttur og flytur þrettán
ljóð, balletttextan Alfasöng-
ur og trölla og sex ljóðævin-
týri. Skáldskapur Ólafar ein-
kennist af mikilli vand-
virkni. Ljóðævintýri hennar
eru fjölbreytilegar myndir,
sem virðast ýmist á sviði i-
myndunar eða raunveru-
leika, en þar kemur i ljós
djúpur næmleiki og rik sam-
Verð kr. 1440.
DÖGG NÆTURINNAR
LJÓD
ÓLÖF
JÚNSDÚTTIR
Mpditelkalatir
Sllfii
Hillðórssen
úð. Ljóð Olafar eru og stil-
hrein og minnisstæð.
Sigfús Halldórsson tónskáld
og listmálari hefur teiknað
mjög fallegar myndir i bók-
ina, sem falla vel að efni
ljóðanna, og mun vandfundin
jafn glæsileg myndskreyting
islenskrar ljóðabókar.
GULLSKIPIÐ TÝNDA
Skemmtileg og góð bók fyrir
stráka og stelpur á öllum
aldri.
Þessi bók, Gullskipið týnda
er um þá félaga Namma
mús, Gogga páfagauk, Lalla
þvottabjörn, Fúsa frosk og
Hrabba hreysikött. Þeir
lenda i mörgum ævintýrum i
leit að týnda gullskipinu
hans Kolfinns hólmakonungs
i Skógalandi og Drunu
drottningar hans.
Þröstur Karlsson hefur
skrifað tvær aðrar bækur um
þessa skemmtilegu félaga.
Þær heita Flöskuskeytið og
Náttúlfurinn.
Verðkr. 090.
Verö kr. 1800.
Gullskipiö týnda
DRAUMURINN UM 2
ÁSTINA
er saga ungrar stúlku, sem ~
dreymir um lifið og ástina, — 2
er gáfuð, skapmikil og u
stjórnsöm, sem veldur erfið- ”
leikum i lifshlaupi hennar.
Höfundurinn, Hugrún skáld-
kona, er afkastamikill rit-
höfundur, sem hefur skrifað
tjölda bóka, nokkrar áþekk-
ar og Prauniurinn uin ást-
ina.og má þar nefna úlfhildi,
Agúst i Ási og Fanney á
Furuvöllum, en þá siðast-
töldu las skáldkonan i útvarp
fyrir skömmu og vakti sagan
feikna athygli.
FJALLAFLUG-
MAÐURINN
Það var aðeins eitt sem
Harry Nickel elskaði meira
en hið frjálsa og glaða lif i
fjöllunum — að fljúga. Hann
átti enga peninga, en samt
tókst honum að útvega sér þá
upphæð til að geta keypt
gamla Norseman-flugvél og
skapa sér þar með þá at-
vinnumöguleika, sem hann
hafði dreymt um.
Verð kr. 090.
FflST í ÖLLUM BÖKAVERSLUNUM LANDSINS
BÓKAMIÐSTÖÐIN ° ,
Laugavegi 29 -— simi 26050
Reykjavik ^
Skemmtilegustu og fallegustu og ódýrustu bækurnar í búðunum í ár
Gerið áætlun um bókakaupin áður en þið leggið af stað
Bjóðum gott úrval af bókum fyrir alla meðlimi fjölskyldunnar