Þjóðviljinn - 20.12.1975, Side 11

Þjóðviljinn - 20.12.1975, Side 11
Laugardagur 20. desember 1975. ÞJóÐVILJINN — SIÐA H „Þeir hringdu hljómþungum klukkum” Sunnudaginn fjórtánda desem- ber héldu óratóriukór Dómkirkj- unnar og stjórnandi hans, Ragnar Björnsson, tónleika ásamt þeim Gústaf Jóhannessyni organista, Sigurði Snorrasyni kiarinettleik- ara og Manuelu Wiesler flautu- leikara. Það er ekki allajafna hlutskipti mitt að skrifa tónlistar- gagnrýni, og ég bið menn lika að taka þennan pistil minn sem slik- an. Á hinn bóginn var ég einu sinni félagi i Dómkórnum og óratóriukórnum, ég þekki þetta fólk og veit hvernig þvf var innan- brjósts þegar það auglýsti tón- leika og lagði heiður sinn að veði. Þvi er það að ég kveð mér nú hljóðs. Vikjum fyrst að þeim Manuelu Wiesler og Sigurði Snorrasyni, en þau voru gestir tónleikanna. Manuela lék Sónötu i a-moll eftir C. Ph. Em. Bach og Sigurður ann- an þátt úr Konsert i A-dúr eftir Mozart. Saman léku þau Dúett eftir Thelemann. Bæði eru þau músikölsk i besta lagi og listfeng, leikur Manuelu er gáskafullur og áhyggjulaus, leikur Sigurður við- kæmnislegur og kannski ofurlitið varfærinn. En þegar ég ber sam- an þennan hluta efnisskrárinnar, þennan ungæðislega tónlistar- flutning, við hinn sem að heima- mönnum vissi, verður mér á að hugsa sem svo að kannski hafi þau Manuela og Sigurður aldrei orðið fyrir miklu mótlæti, aldrei vogað mannorði sinu, eigi kannski enga óvini. Viðbrögð þeirra við þeirri lifsreynslu sem tónlistarlifið i Reykjavfk er, eiga auðvitað eftir að ráða úrslitum um hvers konar tónlistarfólk þau verða. Og þá er ég komin að hlut Ragnars Björnssonar og óratóriukórsins. Fyrir kemur að maður gengur út af tónleikum með þá tilfinningu að hafa orðið fyrir mikilli lifsreynslu og hefur þá fengið að hlusta á tónlist sem nær hinum eina sanna tilgangi sinum og er raunar hafin yfir það að vera góð eða vond. Svo var mér nú. Þó ætla ég að reyna að lýsa þvi sem ég heyrði með fáein- um orðum. Kórinn er nú fáliðaðri en áður, en ég hef aldrei heyrt hann syngja betur. Hertur i eldi samstöðunnar söng hann fyrst sálmalögin úr tveimur fyrstu þáttum Jólaóra- tóríunnar, en sú uppfærsla féll hjá þeim i fyrravetur. Sálmarriir voru afar vel sungnir, tóngæði kórsins mikil, texti með afbrigð- um góður svo að hvert orð, jafn- vel hvert atkvæði komst til skila, flutningur blæbrigðarikur og formsterkur. Það var þungt yfir þessari túlkun og hvergi sást bros i auga, kórinn söng eins og einn maður og þessi maður var Ragn- ar Björnsson. Gústaf Jóhannesson aðstoðaði við flutning sálmalaganna. Leik- ur hans var lýtalaus og reyndi i sjálfu sér ekki á hann sem tón- listarmann. Enn hef ég ekki minnst á tvö atriði efnisskrárinnar, hið fyrsta Choral nr. 3 i e-moll eftir César Franck sem Ragnar þandi orgel sitt á, og hið siðasta, verk hans sjálfs, Þeir hringdu hljómþung- um klukkum, við texta Jóhanns Jónssonar. Kórinn söng þetta verk undir stjórn Ragnars, en Gústaf lék á orgelið. Þegar hér var komið sögu má segja að kór og stjórnandi hafi verið hams- laus, og var þessi flutningur i minum eyrum svo tilkomumikill að ég treysti mér ekki til að dæma Ragnar Björnsson i smáatriðum um gæði verksins svo að hlutlægt sé. Ég held þó, að þetta sé fallegt verk, og mér þyk- ir einsýnt að Rikisútvarpið láti taka það upp, þó að áhrifin verði vafalaust aldrei þau sömu. Framhald á 26 siðu. Höf um ávallt f yrirligg jandi hverskonar BOKBANDSTÆKIOG EFNI fyrir heimabókband. BORGARFELL SKÓLAVÖRÐUSTÍG 23 SÍMI 11372 Ómissandi á hverju heimili, fyrir unga sem gamla. Sjálfsagður hlutur fyrir íþróttafólk (þjálfunarnudd). Gæðavörur frá Sviss. 2 ára ábyrgð mo PONö ^ ^ m Eigum einnig i badmintonsett frá Kína, mjög ódýr. Borðtennisspaðar, net og kúlur frá Kína. Frábær gæði, með því bezta, sem Kínverjar framleiða og kínversku borðtennissnillingarnir nota. Þeir kalla þennan borðtennisútbún- að: Tvöfalda hamingju! VIBRATERM NUDDPÚÐI Hef ir 3 mismunandi styrkleika á nuddinu og hitastilIingu eða 7 mismunandi nuddstillingar. Eyðir vanastöðuverkjum og þreytu úr vöðvum. ómissandi fyrir bílstjórann og skrifstofustúlkuna. Líkn fyrir þreytta fætur húsmóðurinnar. Gegn kulda í fótum. VANDRÆÐI! IKKI BÚIN AÐ ÁKVEÐA JÓLAGJÖFINA INNÞÁ? VIÐ LEYSUM VANDANN; Aukin vellíðan VIBROSAN NUDDTÆKI Nuddar með örbylgjum Hefir mismunahraða Fimm nuddhlutir fylgja. Ennfremur má fá með tækinu brjóstaklukku.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.