Þjóðviljinn - 20.12.1975, Síða 26

Þjóðviljinn - 20.12.1975, Síða 26
26 StÐA — ÞJÓÐVILJINPLaugardagur 20. desember 1975. Sport Framhald af bls. 20 mönnum liösins má telja: Steve Sutherland (nr. 41), 196 cn., Pan Weber (nr. 33) 201 cm., og Terrv Maddux (nr. 53). Aðal miðherji liðsins er hinn 198 cm. hái Roger Edelbrock (nr. 31), en Dave Weber leikur einnig miðherja. Aðrir leikmenn eru: Doug Weber (nr. 43) 193 cm., Mark Hodson (nr. 21) 191 cm., Greg Wehr (nr. 45) 193 cm., Jeff Justus (nr. 23) 183 cm., Randy Wingerter (nr. 55) 198 cm., Rick Wilson (nr. 13) 191cm., Harvey Wallman (nr. 51) 188 cm., Jeff Kramer (nr. 11) 180 cm., James Boerger (nr. 35) 201 cm., og Dave Spear (nr. 10) 185 cm. Af þessari upptalningu sést að ekki er um neina smá- karla að ræða og munu þeir ef- laust reynast úrvaldsliðinu erfið- ir. íslenzka úrvalsliðið er þannig skipað: A síðasta borgarstjornarfundi var samþykkt fundargerð frá félagsmálaráði, þar sem gerð er grein fyrir þvl, hvernig hátta skuli niðurgreiðslum borgarinnar á dagvistunarkostnaði vegna dagvistunar á einkaheimilum, og eiga þær að hefjast 1. janúar. 1 fundargerð félagsmálaráðs, sem borgarstjörn samþykkti segir svo: 1. Samkvæmt ákvörðun borgar- stjörnar skal, frá n.k. áramót- um, greiða niður gjald vegna barna einstæðra foreldra i dagvistun á einkaheimilum. 2. Umsóknareyðublöð um niður- greiðslu gjalda skulu liggja frammi hjá Félagsmálastofn- un Reykjavikurborgar. Umsóknir skulu lagðar fyrir félagsmálaráð eftir að kann- aðar hafa verið aðstæöur umsækjenda. 3. Niðurgreiðslur eru bundnar þvi skilyrði að viðkomandi dagvistarheimili hafi leyfi Barnaverndarnefndar Reykjavikur. 4. Niðurgreiðslur skulu greiddar foreldrum samkvæmt fram- lögðum reikningi. 5. Niðurgreiðsla skal vera mis- munur á gjaldi Barnavina- félagsins Sumargjafar og þvi gjaldi, sem er greitt fyrir dag- vistun barns, þó aldrei yfir kr. 6.000.- á mánuði.” Kristinn Jörundsson 1R, fyrir- liði, Jón Sigurðsson Armanni, Kolbeinn Pálsson KR, Kolbeinn Kristinsson tR, Gunnar Þorvarðarson, Stefán Bjarkason og Kári Mariasson allir frá UMFN, Torfi Magnússon, Val, Bjarni Jóhannsson KR, Björn Magnússon Armanni og blökku- mennirnir tveir, Jimmy Rogers Armanni og Curtis Carter KR. Eins og áður sagði hefst leikur- inn kl. 14 og fer hann fram i Laugardalshöllinni. G.Jóh. Guðmundur Framhald af 1 . siðu. skattahækkana af hálfu rikis- stjórnarinnar. Þær hækkanir sem hér er um að ræða eru: Söluskattshækkun um 2 pró- sentustig sem gefur 2.500 miljónir króna. Framlenging vörugjaldsins um 2.200 milj. kr. 1000 milj. kr. i hækkuðu vöru- verði vegna aukinnar álagning- ar út af söluskattslíækkuninni og vörugjaldinu. Ilækkun landbúnaðarafurða um áramótin með skerðingu niðurgreiðslum um 700 milj. kr. Hækkun á útsvari um 1200 milj. kr. Hækkun á greiðslum sjúkl- inga fyrir sérfræðiþjónustu á sjúkrahúsum um 500 milj. kr. — Verkalýðshreyfingin hefur, sagði Guðmundur J. Guðmunds- son, lýst þvi yfir að hún muni meta kjarabætur, enda þótt þær væru ekki endiíega fólgnar i kauphækkunum, aðeins ef ákveð- inn kaupmáttur næðist. Þessum yfirlýsingum hafa stjórnarblöðin fagnað. En prentsvertan er ekki þornuð á leiðarasiðum stjórnar- blaðanna þegar ráðist er gegn hagsmunum verkafólks með nýj- um álögum upp á miljarða króna. Og þessar álögur eru allar teknar með þeim ranglátustu aðferðum sem fyrirfinnast, — eins og út- svarshækkunin og álögurnar á sjúklinga bera greinilegast vitni um. Með þessum aðgerðum er rikis- stjórnin að kynda og trylla verð- bólgudansinn i þjóðfélaginu. Allt er þetta i æpandi þversögn við yfirlýsta stefnu verkalýðssam- takanna og þessar árásir rikis- stjórnarinnar eru nokkurn veginn jafnþungt högg á stefnu alþýðu- samtakanna og frekast getur orð- ið. En, sagði Guðmundur að lok- um, ég minni á að verkalýðs- hreyfingin lýsti þvi einnig yfir, að yrði ekkert tillit tekið til krafna hennar um aðrar ráðstafanir i efnahagsmálum ætti hún ekki annars úrkosti en að knýja fram enn meiri kauphækkun. Káta ekkjan Framhald af 21. siðu. Það mætti auðvitað benda á nokkrar veilur i verkinu. Helst er það i málfarinu, þar sem t.d. hið tröllriðna orð „allavega” veður uppi og nokkrar fleiri misfellur. Eigi að siður er heildarstillinn þokkalegur og fellur vel að efn- inu, og þess vegna hefur sagan styrkan heildarsvip. Að öllu samanlögðu verður Útrás að teljast gott byrjanda- verk, og hlýtur að gefa okkur fyrirheit um enn betri verk frá þessum höfundi. Ey Þ Álögur Framhald af 1 . siðu. Engin mótatkvæði komu fram i efri deild gegn frumvarpi rikis- stjórnarinnar um heimild til er- lendrar lántöku, og var það sam- þykkt sem lög með 16 samhljóða atkvæðum. Ragnar Arnalds tók ómakið af rikisstjórninni og birti i nefndar- áliti sinu sundurliðun á þvi, hvað fyrirhugað væri að gera við þetta lánsfé, en þvi verður fyrst og fremst varið til Kröfluvirkjunar (4,3 miljarðar) og Framkvæmda- sjóðs (2 miljarðar). — Sjá 6. siðu. Þjóðviljinn mun eftir helgi greina frá þriðju umræðu fjár- laga og endanlegri afgreiðslu þeirra, og segja nánar frá um- ræðum á alþingi siðustu daga. Gísli Framhald af 2. siðu. jafnaði haldnir tvisvar á ári. Klemenz Jónsson hefur verið for- maður ráðsins i sl. tvö ár, en baðst undan endurkjöri. For- maður ráðsins var kjörinn Finn Kvalem frá Osló, og verður næsti fundur ráðsins haldinn þar að vori. 16. þing Alþjóða leikhúsmála- stofnunarinnar varhaldið í Berlin á liðnu vori. Þing þessieru haldin á tveggja ára fresti. Fulltrúar is- lenskra leikara á þinginu voru leikararnir Margrét Ólafsdottir og Steindór Hjörleifsson. Þá urðu miklar umræður á fundinum um Þjóðleikhúslaga- frumvarpið. En eins og kunnugt er, hefur frumvarp til laga um Þjóðleikhús lengi verið i undir- búningi og þrivegis verið lagt fram á Alþingi. Fundurinn fól stjórninni að skrifa menntamála- ráðherra bréf og skora á hann að leggja þetta frumvarp fram á þvi þingi, sem nú situr. A fundinum var Klemenzi Jóns- syni þakkað fyrir hans mikla og langa starf fyrir félagið, en hann hefur setið i stjórn þess i sl. 19 ár og hefur verið formaður þess i sl. 8 ár. Þessir voru kjörnir i stjórn fé- lagsins: Formaður var kjörinn Gisli Alfreðsson, ritari Sigurður Karlsson, gjaldkeri Bessi Bjarna- son, varaformaður Helgi Skúla- son og meðstjórnandi Briet Héð- insdóttir. Þar sem mjög mörg mál voru á dagskrá fundarins og ekki vannst timi til að ræða þau öll, þá var á- kveðið að halda framhaldsaðal- fund i byrjun næsta árs. Dagskrá Framhald a/ 5- s*öu. þessa, sagði Jón. — Hér er þó alls ekki um neina byltingu að ræða, þetta efni mun væntanlega siast inn i dagskrána smám saman, um leið og aðrir þættir detta út með eðlilegum hraða. — Var eitthvert sérstakt efni sem þér fannst athyglisvert? — Mér eru t.d. ofarlega i huga tvær tékkneskar myndir. Aðal- persónurnar i báðum eru börn og þar er fjallað um aðstöðu þeirra af mikilli nærfærni og skilningi. Það var auðvitað margt annað sem var athyglisvert og ég vona að þe§sari tilraun okkar verði vel tekið. Það má geta þess lika að ég fór til ítaliu fyrir nokkru og efni þaðan verður væntanlega á dag- skránni strax i janúar. Þar var m.a. rætt um kaup á framhalds- myndum svo að fjölbreytnin I efnisvaiinu á að verða mun meiri en áður. —gsp Þeir hringdu Framhald af bls. 11 Fátt fólk var i kirkjunni og hlustendur úr hópi kollega Ragn- ars mátti telja á fingrum annarr- ar handar en það segir i sjálfu sér meira um aðra en hann. Ekki lýk ég svo þessari grein að ég minnist ekki á Dómkirkjuna sem er gamalt hús og erfitt til tónlistarflutnings og orgel henn- ar sem er vont. Sú var tiðin að þetta hús fóstraði dýrasta hljóð- færi landsins og var vagga söng- menningar okkar. Nú eru ný og betri hús miðstöð tónlistarlifsins og er það vel, og eins stóð i upp- hafi til að hafa þak á kirkjunni i Holtinu. Þetta geldurekki að fullu skuld okkar við fortiðina. Ég veit að ég þarf ekki að minna is- lendinga á þá mætu menn sem staðið hafa fyrir tónflutningi i Dómkirkjunni, en mig langar til að segja ykkur að mér er per- sónulega kunnugt um að Ragnar Björnsson hefur lagt I það mikla vinnu og krafta að halda i heiðri fornri hefð og gert það i trássi við straum timans. Viðleitni hans ætti hver maður með einhvern snefil af sjálfsvirðingu að geta metið. Saga nokkur sem allir aust- firðingar þekkja er nú komin i há- mæli meðal tónlistarfólks i Reykjavik siðan menntamála- ráðherra lagði út af henni i hófi hjá Sinfóniuhljómsveit tslands: Fátækur bóndi austur á Héraði pantaði eitt sinn orgel handa dótt- ur sinni Þorbjörgu og lét drösla þvi af skipsfjöl á Seyðisfirði heim til sin i Klúku i Hjaltastaða- þinghá. Menn voru efins i að þetta fyrirtæki mætti blessast, en karl svaraði: „Akkúrat sama alveg hreint, orgelið skal i Klúku. Stefán i Klúku á ekki nema eina dóttur.” Það hefur virst forráðamönn- um menningarlifs á tslandi ofviða að kaupa vandað hljóðfæri i gömlu dómkirkjuna okkar. Þvi geri ég það að tillögu minni að maður verði fenginn frá útlönd- um til að lita á þetta dæmalausa apparat ef fært væri að laga það eitthvað og verði þetta gert áður, en við erum öll, hvert eitt og ein- asta okkar, orðin samdauna þess- ari svivirðu. Grein þessa sendi ég svo Þjóð- viljanum og Morgunblaðinu til birtingar. Reykjavik, 17/12 ’75 Guðrún Sigriður Friöbjörnsdóttir. Happdrætti Þjóðviljans 1975 Vegna mikilla fjárhagserfiðleika blaðsins er eindregið skorað á greiðslu Þjóðviljans eða til eftirtalinna umboðsmanna happ- alla sem fengið hafa senda happdrættismiða að greiða andvirði drættisins: þeirra sem fyrst á skrifstofu happdrættisins Grettisgötu 3, af- REYKJANES Kópavogur: Alþýðubandalagið, Álf hólsvegi 11, sími 41746. Hafnarfjörður: Alþýðubandalagið, Þor- björg Samúelsdóttir, sími 51536. Garðahreppur: Hilmar Ingólfsson, sími 43809. Garður, Gerðum: Sigurður Hallmannsson, sími 92-7042. Mosfellssveit: Runólfur Jónsspn, simi 66365. Keflavík, Grindavík, Sandgerði, Njarðvík: Alþýðubandalagið, form. Karl Sigurbergs- son, sími 922180. VESTURLAND Akranes: Sigrún Gunnlaugsdóttir, sími 931656 Borgarnes og Borgarfjörður: Flemmíng Jessen, sími 937438. Hellissandur, Rif: Skúli Alxandersson, sími 936619. Ólafsvík: Kristján Helgason, sími 936198. Grundarf jörður: AAatthildur Guðmunds- dóttir, sími 938715. Stykkishólmur: Rafn Jóhannsson, sími 938278. Dalasýsla, Búðardalur: Kristján Sigurðs- son, sími 952175. VESTFIRÐIR ísaf jöröur og Djúp: Þuríður Pétursdóttir, sími 943057. Hólmavík, Strandir: Sveinn Kristinsson, Klúkuskóla Dýrafjörður: Guðm. Friðgeir AAagnússon, Þingeyri. Súgandafjörður: Gísli Guðmundsson, sími 946118. V-Barðastrandarsýsla: Unnar Þór Böðvarsson, Tungumúla. A-Barðastrandarsýsla: Jón Snæbjörnsson, AAýrartungu. Önundarfjörður, Flateyri: Guðvarður Kjartansson NORÐURLAND VESTRA Skagaströnd: Kristinn Jóhannsson, sími 954668 Blönduós: Sturla Þórðarson, sími 954357. Hvammstangi: Eyjólfur Eyjólfsson, sími 951384. Sauðárkrókur, Skagafjörður: Hulda Sigur- björnsdóttir, sími 955289. Sigluf jörður: Kolbeinn Friðbjarnarson, sími 9671271. Hofsós: Gísli Kristjánsson, sími 956341. NORÐURLAND EYSTRA Akureyri: Haraldur Bogason, sími 96-11079. Dalvtk: Hjörleifur Jóhannsson, sími 96- 61237. ólafsf jörður: Sæmundur Ólafsson, sími 96- 62267. Húsavík: Snær Karlsson, sími 96-41397. S-Þingeyjarsýsla: Þorgrímur Starri, Garði N-Þingeyjarsýsla: Angantýr Einarsson, sími 96-51125. AUSTURLAND Höfn, Hornafirði: Benedikt Þorsteinsson, simi 97-8243. Djúpivogur: Eysteinn Guðjónsson. Breiðdalsvík: Guðjón Sveinsson Fáskrúðsfjörður: Baldur Björnsson Eskifjörður: Alfreð Guðnason Reyðarfjörður: Anna Pálsdóttir, simi 97- 4166. Seyðisf jörður: Jóhann Jóhannsson, sími 97- 2425. Borgarfjörður: Sigríður Eyjólfsdóttir, Ás- byrgi. Egilsstaðir og Hérað: Guðrún Aðalsteins- dóttir, sími 97-1292. Neskaupstaður: Bjarni Þórðarson, sími 97- 7178. SUÐURLAND Eyrarbakki, Stokkseyri: Frímann Sigurðs- son, sími 99-3215. Hveragerði: Sigmundur Guðmundsson, sími 99-4259. Árnessýsla: Sigurður Björgvinsson, Neista- stöðum. Selfoss: Iðunn Gísladóttir, sími 99-1689. Þorlákshöfn: Þorsteinn Sigvaldason, sími 99-3745 Hella, Hvolsvöllur: Guðrún Haraldsdóttir, Hellu. Rangárvallasýsla: Hulda Jónasdóttir, Strandarhöfði. Vík í AAýrdal, V-Skaftafellssýsla: AAagnús Þórðarson, Vík, sími 99-7129. Vestmannaeyjar: Jón Traustason, sími 98- 1363.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.