Þjóðviljinn - 17.04.1977, Blaðsíða 24
mmi/m
Sunnudagur 17. apríl 1977
Aðalsfmi Þjóðviljans er 81333 ki. 9-21 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tima er hægt að ná i blaðamenn og aöra
starfsmenn blaðsins t þessum simuml Ritstjórn 81382,
81527, 81257 og 81285, útbreiðsla 81482 og Blaöaprent81348.
@81333
Einnig skal bent á
heimasíma starfsmanna
undir nafni Þjóðviljans i
simaskrá.
Ekki cr hægt að benda á neitt hús á tslandi sem er eldra en Tjöruhúsið. Það er nú 243
ára gamalt og notað sem vclahús fyrir ishúsiðbak við.
Hugmyndin er sú að Byggöasafn tsafjarðar fái Turnhúsið til afnota og þar verði
geymdir stærri munir og ennfremur verði veitingastofa i þvi.
NEÐSTIKAUPSTAÐUR
á ísafirði
Isafjörður er eitt af
þessum gömlu# rótgrónu
bæjarfélögum á islandi
sem hefur á sér hefð-
bundinn virðuleikablæ.
Ekki hefur verið rótað
um of við eldra bæjar-
kjarnanum þannig að
hann hefur á sér heil-
legan svip. Þar kennir
margra grasa og má
sennilega finna þar allar
tegundir byggingarstíls í
næstum250ár. isafjörður
er ævaforn verslunar-
staður og stóð verslunin
frá alda öðli neðst á hinni
löngu eyri sem myndar
náttúrulega höfn í
Skutulsfirði. Og einmitt á
þeim stað, í Neskaupstað
eins og hann er nú nefnd-
ur eða bara í Neðsta,
stendur elsta þyrping
húsa sem til er á islandi.
Það eru fjögur hús frá
timum einokunarversl-
unarinnar og reist af
jafnmörgum aðilum sem
með hana fóru. Þetta er
einsdæmi á íslandi að heil
húsaþyrping frá þessum
tíma standi enn.
Elsta hús á islandi.
Elsta húsið i Neðstakaupstað
er svokallað Tjöruhús eða
Beykishús og var það reist árið
1734 af Det Islandsk-Finmarske
Kompagni sem danskir lausa-
kaupmenn mynduðu um versl-
unina á Islandi. Húsið er þvi
hvorki meira né minna en 243
ára gamalt og er ekki hægt að
benda með vissu á eldra hús hér
á landi. Þaö hefur nú um árabil
verið notað sem vélahús fyrir
samstætt íshús og oft á tiðum
hefur snjóað og rignt inn i það.
Ekki mun þó fúi vera i þvi.
Sigurður Breiðfjörö skáld var
beykir i nokkur ár á Isafirði og
hefur þá vafalaust starfað i
þessu húsi.
Ekki ber heimildum saman
um hvenær svonefnd Krambúð
var reist. 1 uppboðsauglýsingu
frá 1794 er það talið reist árið
1757 og þá af hinu alræmda
Hörmangarafélagi en I virö-
ingargerð frá 1774 er það talið
smiðað 1761 en þá fór Konungs-
verslunin fyrri með verslun á
Islandi. Sú er eldri heimildin og
þvi liklegri. Er þá húsið 216 ára
gamalt. Nú er Krambúðin
ibúðarhús Valdimars Jónssonar
skólastjóra Verkmenntaskólans
á ísafirði og konu hans Asdisar
Ragnarsdóttur kennara. Þvi er
vel við haldið.
Faktorshúsið stendur nú
autt og óupphitað
Faktorshúsið, sem er planka-
byggt og súðað, var reist árið
1765 af Almenna verslunar-
félaginu sem hafði einokun á Is-
landsverslun i 20 ár. Það stend-
ur nú autt og óupphitað og neglt
fyrir glugga og er mikil þörf á
að forða þvi undan frekari
skemmdum. Húsið er 212 ára
gamalt. Fyrir og um aldamót
bjó þar hinn frægi Arni Jónsson
faktor.
Turnhúsið sker sig mjög
úr
Turnhúsið var reist árin 1784-5
af Konungsversluninni siöari og
er þvi 192 ára. Það sker sig mjög
úr að byggingarstll og minnir á
svokallaðan sperrustofustil eins
og tiðkaðist á bændabýlum i
Sviþjóð að fornu. Var þar lagður
bjálki á bjálka sem læstir voru
saman á hornunum á sama hátt
og sperrur.
t Turnhúsinu er þó höggvinn
viður en i fornu, sænsku húsun-
um var óunninn viður. Einkenni
þessara húsa er mjög litil
veggjahæö en ris mikið. Enda er
það svo að Turnhúsið er á gólfi
og siðan þremur loftum. Efsta
loftiðer i turninum sem var not-
að til útsýnis. Býsna ævintýra-
legt er að koma inn i þetta hús
og er þar angan af gamalli sögu.
Þar hefur bærinn nú áhalda-
geymslu en hugmyndin er sú að
fyrst verði stefnt að endurbót-
um á þessu húsi og Byggðasafn-
ið á ísafirði fái það til afnota til
varðveislu og geymslu stærri
muna. Ennfremur verði innrétt-
uð litil veitingastofa á fyrsta
lofti.
Ekki er nóg að f riða hús-
in ef þau eru látín grotna
niður.
Fyrir tveimur árum ákvað
bæjarstjórn tsafjarðar að friða
Neðstakaupstaðarhúsin enda
Slik húsaþyrping frá einokunartimunum á enga sina lika á tslandi. F.v. Turnhúsið frá 1785, Krambúöin
frá 1757 eða 1761, Tjöruhúsiö frá 1734 og Faktorshúsið frá 1765.
mmiíbiibmi ■■ ■■ amfrm1 aa bm' : ;; 1
•; l r* i -1 , HHHh m bh HH8r jöW : |Mi__ [
Hæstikaupstaður. T.v. er pakkhús og verslun sem
er aðcins um 100 ára gamalt, en til hægri sér i
gaflinn á gamla Ibúðarhúsinu sem er nær 200 ára
gamalt.
Ef faktorshúsið veröur gert upp yrði þaö meö
fallegustu húsum.
MYNDIR OG
TEXTI: GFr
eru þau i eigu hennar og hafnar-
sjóðs. En ekki er nóg að friða ef
húsin eru látin grotna niður i
hirðuleysi. Stórfé kostar að láta
gera þau upp og þar sem bæði
bæjarstjórnin og aðrir opinberir
aðilar virðast bæði v§ra mátt-
lausir og viljalausir til að leggja
fram nokkurt fé þyrfti að stofna
áhugamannafélag um þessar
framkvæmdir. Ég er viss um að
öflugt félag gæti gert stórátak i
þeim málum.
Fimmta húsið sem bæjar-
stjórn Isafjarðar friðaði er svo-
kallað Hæstakaupstaðarhús.
Arið 1787 var verslunin gefin
frjáls en þó aðeins þegnum
danakonungs. Þetta varð til
þess að félag eitt i Björgvin i
Noregi hóf að versla á ísafirði i
svonefndum Hæstakaupstað
sem stendur mun ofar en
Neösti-kaupstaður. Árið 1788
hófust byggingaframkvæmdir
og var þá meðal annars reist
ibúðarhús sem enn stendur.
Hefur það raunar verið stækkað
um þriðjung frá þvi sem upp-
haflega var. í þessu 189 ára
gamla húsi, sem bærinn á búa
þau Óskar Brynjólfsson og
Björg Rögnvaldsdóttir. Það er
heldur illa farið og þyrfti mikið
viðhald og endurbætur.
Af þessari upptalningu má sjá
að tsafjörður býr yfir merki-
legri arfleifð sem varðar alla
landsmenn. Neðstakaupstaðar-
húsin eru heilleg mynd af
verslunarhúsum frá hinni al-
ræmdu einokunaröld og getur
enginn annar staður státað af
sliku. Þvi miður viröast margir
isfirðingar ekki skilja þetta til
fulls og sumir telja þessi hús
einskis virði. Það er ekki lengra
en siðan i fyrra að stórum stein-
kumbalda var klesst ofan i og
yfir þessa fornu þyrpingu. Von-
andi verður vakning vestur við
Skutulsfjörö svo að ekki sannist
á isfirðingum að þeir hafi ekki
vitað fyrr en þeir misstu. Þvi að
ef þessi hús hverfa munu is-
firöingar gráta þau. Það er vist.
—GFr
Heil húsaþyrping frá einokunartímum