Þjóðviljinn - 12.03.1978, Page 13
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. mars 1978
A Norðureyri við
Súgandafjörð falla oft
snjóflóð og á sióustu
öld varð manntjón i
flóði þar. Kristján Sig-
urðsson bóndi reisti
þetta ibúðarhús fyrr á
þessari öld með kljúf
móti fjallshliðinni og
hafði síðan útihúsin
fyrir neöan.
Hér á landi eru snjó-
flóð mjög tið. Valda þau
bæði manntjónum og
eyðileggingu mann-
virkja. Þess er skemmst
að minnast að i vetur
hafa snjóflóð þrisvar
fallið á fólk og einn
drengur beðið bana. Þá
féll snjóflóð fyrir
skemmstu á Siglufirði
og olli tjóni á hitaveitu-
mannvirkjum, snjóflóð
féll i Bitrufirði á Strönd-
um og tók simalinu og
eru þá ekki talin öll þau
flóð sem fallið hafa á
vegi og á óbyggðum
svæðum. Ætla má að
10-15 þéttbýlisstaðir á
íslandi séu nú i meiri
Islensk
sér-
þekking
á
eða minni snjóflóða-
hættu og gæti þar i raun
og veru dregið til tiðinda
hvenær sem er. Eftir
snjóflóðin miklu i Nes-
kaupstað i desember
1974 tóku menn nokkuð
við sér i þessum efnum
og Rauði kross Islands,
Hjálparstofnun kirkj-
unnar og Norðfirðinga-
félagið i Reykjavik
ákváðu að verja vöxtum
af þvi fé, sem safnaðist
vegna snjóflóðanna til
að styrkja menn til
náms i snjóflóðavörn-
um. Þrir styrkir voru
auglýstir og þá hlutu
Helgi Björnsson jökla-
fræðingur, Magnús
Hallgrimsson verkfræð-
ingur og Þórarinn
Magnússon verkfræð-
ingur. Þeir hafa siðan
farið i kynnisferðir til
Sviss, Noregs, Banda-
rikjanna og Kanada og
aflað sér menntunar á
þessu sviði. Mynda þeir
með sér starfshóp og eru
reiðubúnir að leggja
fram starfskrafta sina
til þeirra aðila sem óska
eftir. Þjóðviljinn hitti þá
þremenninga að máli
um daginn og innti þá
eftir rannsóknum á
snjóflóðum, vörnum
gegn þeim og björg-
unaraðferðum.
SNJÓFLÓÐAVÖRNUM
Afl þaö sem býr í snjó-
flóðum getur veriö
gifurlegt eða allt aö 110
t/ ferm.
Vióa erlendis eru sett
upp grindverk efst i
f jallshliöar til að koma
i veg fyrir aö snjóflóö
Fer frásögn þeirra hér á eftir:
Skipta má aðgerðum gegn snjó-
flóðum i tvo flokka. Annars vegar
skammtimaaðgerðir, hins vegar
aðgerðir til frambúðar.
Til skammtimaaðgerða má
nefna snjóflóðaspár og aðvaranir
og er eðlilegast að Veðurstofan
hafi þær með höndum. Reyndar
er lagt til i álitsgerð og tillögum
svokallaðrar snjóflóðanefndar
sem Rannsóknarráð rikisins
skipaði eftir snjóflóðin i Neskaup-
stað að höfuðstöðvar snjóflóða-
rannsókna verði hjá Veöurstófu
rikisins. Ekki hefur þetta þó verið
ákveðið ennþá en Veðurstofan er
þó nýlega farin að athuga tengsl
veðurfars og snjóflóða og telja
má til merkra tiðinda nú um dag-
inn að tilkynnt var i veðurspá i Ut-
varpinu að hætta væri á snjóflóð-
um á Vestfjörðum. Slikar aðvar-
anir hafa ekki tiðkast hérlendis
fyrr en eru algengar viða erlend-
is.
Til skammtimaaðgerða má lika
telja varnir gegn snjóflóðum svo
sem lokun vega, rýmingu byggð-
ar, aðsnjó.þekjum sé hleypt niður
og björgunarstarf. Slikar varnir
verða að vera i höndum heima-
manna sjálfra á hverjum stað en
til grundvallar verður að sjálf-
sögðu að liggja ákveðin þekking.
Ef hætta er á snjóflóðum er
hægt að sprengja eða skjóta þau
niður en slikt er þó yfirleitt ekki
hægt yfir byggð en er algengt er-
lendis þar sem vegir eru eða Uti-
vistarsvæði.
Um björgunaraðgerðir þegar
slys hefur orðið er það að segja að
aðalatriðið er að vera nógu fljótur
á staðinn og þvi er höfuðnauðsyn
að á hverjum stað séu þjálfaðar
björgunarsveitir. Reynslan af
snjóflóöum erlendis sýnir að lik-
urnar á að lifa snjóflóðið sjálft af
eru 80% en klukkutima eftir að
flóðið hefur fallið eru likurnar á
að halda lifi aðeins 55%. Siðan
helmingast tala lifenda á hverri
Þrír menn hafa aflað sér menntunar eftir
snjóflóðin í Neskaupstaö
Þremenningarnir Magnús Hallgrimsson verkfræðingur, Þórarinn Magnússon verkfræðingur og Helgi
Björnsson jöklafræðingur eru reiðubúnir að leggja fram starfskrafta sina til þeirra aðila sem þess óska.
(Ljósm.: eik)
klukkustund sem líður og þvi er
afar mikilvægt að hjálp berist
strax. Þess skal getið að Flug-
björgunarsveitin hefur i 15 ár
þjálfað menn bæði heima og er-
lendis i slikum björgunarstörfum
ogbýr yfir hæfilegum tækjum til
þeirra. Einnig má nefna fleiri
sveitir svo sem Hjálparsveit
skáta.
Helstu aðferðir til björgunar
eru að hlusta eftir fólki og leita að
sýnilegum ummerkjum, nota
snjóflóðastangir og snjóflóða-
hunda. Menn ganga hlið við hlið
upp eftir snjóskriðunni með mjó-
ar álstangir sem þeir stinga niður
enhundarnir eru sérþjálfaðir i að
finna fólk undir snjó og krafsa þar
sem þaðeraðfinna. Viða erlendis
hafa sjálfboðaliðartekið að sér að
þjálf.a slíka hunda og eru þeir
taldir mjög mikilvægir.
Þá er komið að aðgerðum til
frambúðar. Þar má fyrst nefna
mat á hugsanlegum snjóflóðum
og skipting lands i hættusvæði.
Verulegar heimildir eru til um
skriðuföll á fyrri öldum og er hið
mikla sjálfboðaverk Olafs Jóns-
sonar Skriðuföll og snjóflóð
grundvallarheimildarit i þeim
efnum. Eftir að það verk kom út
hefur bæði Ólafur og Sigurjón
Risthaldiðáfram aðskrá snjóflóð
Þar sem ekki eru til heimildir
um snjóflóð á fyrri timum verður
að meta likur á þeim út frá land-
fræðilegum aðstæðum og þar gæti
komið til kasta Raunvisinda-
stofnunar Háskólans en hefur sótt
um fé til að sinna rannsóknum á
snjóflóðum . Reikna má út likur á
flóðum með tilliti til veðurfars,
halla og annarra landshátta og
ennfremur hugsanlegan hraða
þeirra og hversu langt þau geta
náð.
Þá þarf að fara fram grunn-
kortagerð á einstökum stöðum
þar sem merkt eru inn á kort öll
snjóflóð sem falla .
A grundvelli þessara
rannsókna mætti svo skipta svæð-
um t.d. i rauð, blá, gul og hvit,
eins og Norðmenn og Svisslend-
ingar hafa gert, eftir þvi hversu
hættuleg þau eru með tilliti til
snjóflóða og gera tillögur um
varnarmannvirki i samræmi við
MHHHH
Svona keilum er
komiö upp til aö
sundra og s.tööva
snjóf lóð.
Aigeng aöferö viö
björgun. Flokkur
manna gengur upp
snjóskriöu meö ál-
stangir sem þeir
stinga niður til aö
finna þá sem undir
hafa oröiö.
Sunnudagur 12. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
það eða tillögur um flutning
byggðar.
Varnarmannvirki geta verið
með ýmsum hætti. Sums staðar
erlendis eru reistar grindur i hlið-
um til að varna þvi að snjóflóð
fari af stað. Einnig er rutt upp
keilum eða hólum til að kljúfa og
sundra snjóflóðum og beinir
varnargarðar eru reistir. Það
hefði t.d. verið ódýrtog einfalt að
verja dælustöðina, sem fór á
Siglufirði um daginn, þannig að
hún hefði verið örugg fyrir snjó-
flóðum. Hana hefði mátt reisa
neðanjarðar eða a.m.k. inn i hlið-
ina þannig að flóðið hefði farið yf-
ir hana eða setja kljúf eða keilu
ofan við úl að sundra þvi.
Ekki þykir rétt að sérfræðingar
taki ákvarðanir um hvar má
byggjaog hvar ekki. Þeir geta bent
á hættusvæðin en siðan kemur
til kasta stjórnmálamanna að
taka ákvarðanir um reglugerðir.
Aðalatriðið er að tekið verði tillit
til snjóflóða- og skriðuhættu i
skipulagningu þéttbýlis og þannig
hefur það til dæmis verið i Nes-
kaupstað að undanförnu. Skipu-
lagsvinna þar eftir snjóflóðin hef-
ur fullkomlega tekið mið af til-
lögum norskra sérfræðinga um
snjóflóðavarnir sem fengnir voru
þangað. 1 norskum lögum er
kveðið á um að ekki megi ráðast i
stórframkvæmdir nema áður hafi
veriðgerð könnun á hugsanlegum
náttúruhamförum. Hér á landi er
hvergi getið um snjóflóð i bygg-
ingasamþykktum eða reglugerð-
um.
Segja má að það sé góð f járfest-
ing að koma upp snjóflóðavörnum
og mun ódýrara en að öðru hverju
verði stórfellt tjón af völdum
slikraflóða. 1 Noregi starfarsjóð-
ur sem nefnist Statens Natur-
skadefond sem svarar nokkurn
veginn til Viðlagatryggingar hér.
Sjóðurinn starfar á svipaðan hátt
að þvi er varðar bætur i tjónum
en auk þess fjármagnar hann fyr-
irbyggjandi aðgerðir. Hann kost-
ar að fullu alla undirbún-
ingsvinnu og gagnasöfnun, hönn-
unoþh. vegna varnarmannvirkja
á byggðum svæðum og hann
greiðir 75-90% af kostnaði við
gerð mannvirkjanna sjálfra.
Svipaðar reglur gilda i Sviss.
Eina dæmið um fyrirbyggjandi
aðgerð sem Viðlagatrygging hef-
ur gengist fyrir er varnargarður i
Mývatnssveit vegna hugsanlegs
hraunrennslis.
Snjóflóðastofnunin i Noregi, en
við hana starfa 5 menn, tekur að
sér verkefni fyrir Viðlagatrygg-
ingu þar og hefur hún gengist fyr-
ir kortagerð snjóflóða og skriðu-
falla á einstökum svæðum og ná-
kvæmri skýrslugerð og tillögum
um framtiðarskipulag á þessum
svæðum með tilliti til þeirra.
Þetta er talið hagkvæmt frá
tryggingasjóðnarmiði vegna
þess að tjónum fækkar.
Við þrir i þessum starfehópi
höfum nú orðið nægilega þekk-
ingu til að gangast fyrir slikum
úttektum og erum reiðubúnir til
þess, segja þeir þremenningar.
Enn skortir f jármagn til þeirra en
segja má að áhugi sé að vakna.
Þó eru menn dálitið feimnir við
að ræða þessa hættu umbúða-
laust. Forráðamenn sveitarfél-
aga eru hræddir um að slikt tal
fæli fólk frá stöðunum og einstak-
lingar eru hræddir um að eignir
falli i verði ef þær lenda á hættu-
svæðum. Slikt er auðvitað mann-
legt en fyrri ástæðan er tæplega á
rökum reist. Fólki er almennt vel
ljóst þessi hætta. Almannavarnir
hafa tjáð okkur að þær muni veita
nokkru fé til kynningarstarfeemi
á þeim stöðum sem hætta er fyrir
hendi. Og Rannsóknarstofnun
byggingariðnaðarins hefur
ákveðið að gefa út kynningarrit
um snjóflóðavarnir. Það má
reyndar taka fram að stofnanir
eins og Vegagerðin, Póstur og
simi, og Rafmagnsveitur ríkisins
hafa tekið nokkuð við sér að
fylgjast með snjóflóðum og verj-
ast þeim.
Þess skal að lokum getið að
Helgi Björnsson starfar hjá
Raunvisindastofnun Háskólans,
Magnús Hallgrimsson hjá Hönn-
un h.f. sem er ráðgefandi verk-
fræðistofa sem er reiðubúin að
taka að sér verkefni i þágu snjó-
flóðavarna, en Magnús hefur ár-
um saman starfað með Flug-
björgunarsveitinni og er alvanur
fjallagarpur. Þórarinn Magnús-
son starfar hjá Rannsóknarstofn-
un byggingariðnaðarins en var
áður bæjarverkfræðingur i Nes-
kaupstað.
—GFr
Umsjón
Helgi ólafsson
Eins og drepið var á í
siðasta þætti, stendur nú
yfir i Júgóslaviu geysi-
lega sterkt mót með þátt-
töku 16 stórmeistara.
Skákmót þetta er í 14
styrkleikaflokki en til
samanburðar má geta
þess að 8. Reykjavíkur-
skákmótið var í 12 styrk-
leikaflokki og þótti samt
ýmsum nóg um. Kepp-
endur í Bugojnó, en sú er
borgin sem teflt er í, eru
samkvæmt töfluröð þess-
ir:
Alþjóðlega skákmótið i Bugojnó
Heimsmeistari
tapar
1. B. Ivkov (Júgóslavia)
2. A. Karpov (Sovétr.)
3. Y. Balasjof (Sovétr.)
4. J. Timman (Holland)
5. S. Gligoric (Júgóslavia)
6. R. Húbner (V-Þýskal.)
7^.M. Tal (Sovétr.)
8. B. Spasski (Sovétr.)
9. L. Ljubojevic (Júgóslavia)
10. M. Vukic (Júgóslavia)
11. V. Hort (Tékkóslavakia)
12. R. Byrne (Bandar.)
13. A. Bukic (Júgóslavia)
14. L. Portisch (Ungv. land)
15. B. Larsen (Danmörk)
' 16. A. Miles (England)
Þegar þessar linur eru skrif-
aðar er lokið 8 umferðum af
mótinu og staða efstu manna
þessi: 1—2. Spasski og Ljuboje-
vic 5.5v. 3. Hort 5 v. + 1 biðsk. 4.
Timman 5 v. 5. Tal 4.5 v. 6.-7.
Karpov og Ivkov 4 v. + 1 biðsk.
Þátttaka Karpovs vekur að
sjálfsögðu mesta athygli en
frammistaða hans hefur fram
til þessa verið fremur slöpp,
hverju sem veldur. Hann byrj-
aði mótið vel en i 5. umferð tap-
aði hann fyrir góðvini okkar Is-
lendinga, Jan Timman. Karpov
tapar ekki oft og þvi vekur það
alltaf athygli þegar slikt hendir
hann.
Siðan hann varð heimsmeist-
ari fyrir þremur árum hefur
hann aðeins tapað sex skákum.
Og hér kemur einmitt tap núm-
er sex:
Hvitt Jan Timman.
Svart: Anatoly Karpov
Drottningarbragð
1. c4-e6
2. Rc3-d5
3. d4-Be7
4. cxd5-exd5
5. Bf4-Rf6
6. c3-0-0
7. Dc2-c6
8. Bd3-He8
0. Rf3-Rbd7
10. 0-0-0-RÍ8
11. h3-Be6
(Timman hefur valið mjög
skarpt afbrigði gegn drottning-
arbragði. Meðal áhangenda
þess má nefna ungverska stór-
meistarann Portisch.)
12. Kbl-Hc8 13. Rg5-b5
(Sterklega til greina kom 13.
—c5. Sóknaraðgerðir svarts á
drottningarvængnum komast
aldrei i gang.)
14. Be5
(Hótar 15. Bxf6 ásamt 16.
Rxh7).
14. .. h6 16. g4-Rd7
15. Rxe6-Rxe6 17. h4
(Liklega hefur þessi bráð-
snjalla peðsfórn sett Karpov út
af laginu. Hann hefur ugglaust
búist við 17. Bg3 þvi eftir 17.
—Bh4 heldur svartur vel i horf-
inu.)
17. .. b4
(Svartur getur vart beðið á
meðan sókn hvits ágerist. Þvi
fórnar hann skiptamun.)
20. Ba6-Be7
21. Bxc8-Dxc8 22. Rg3!
(Timman hirðir ekki um þó
biskupinn lokist inni. Hann hef-
ur engan áhuga á 22. f5 þvi að
hætt er við að staðan „blokker-
ist” svörtum i hag.)
23. Hxh6!
(Rothöggið.)
23. .. Ref8
(23. -gxh6 stoðar litið vegna 24.
Dg6+ Kf8 25. Rf5 ásamt 26.
Rxh6 og máti verður ekki varn-
að)
24. Hh3-c4
25. Rf5-fxe5 27. Hdhl-Rg6
26. fxe5-Dc6 28. Rd6
(Fljótvirkara var 28. Rxg7!, t.d.
28. —Kxg7 29. Hh7+ Kg8 30.
Hh8+! o.s.frv. Karpov var nú i
gifurlegu timaharaki, átti vart
meira en minútu eftir til að ná
tilskildum leikjafjölda.)
28. ..Rdf8 35. bxc3-bxc3
29. Rxe8-Dxe8 36. Hxc3-Dxd5
30. Hh5-Dc6
32. Df5-a5
32. c6!-Dxe6
33. Dxd5-a4
34. Hc l-c3
37. Hxd5-Re6
38. Kc2-Kf7
39. Ha5-Rg5
40. Hc6-Re4
41. Hxa4
(Svo sem nógu gott en 41. Hxg6-
Kxg6 42. He5 vann strax).
41. .. Rf6 44. e4-Rb4 +
42. Ha7-Rd5 45. Kb3-Bf8
43. Hxg6-Kxg6 46. Hb7
Svartur gafst upp.
Forystusauðirnir Spasski og
Ljubojevic mættust i 1. umferð.
Ljubojevic hefur litið getað teflt
að undanförnu þar sem hann
hefur gengt herþjónustu. Ef
marka má eftirfarandi i skák
virðist hann hafa haft gott af
hvildinni:
Hvitt: Boris Spasski
Svart: Lubomir Ljúbojevic
Sikileyjarvörn
1. e4-c5
2. Rc3-Rc6 3. g3-Hb8!?
(óvenjulegur leikur svo
snemma tafls en samt sem áður
einkennandi fyrir Ljubo sem
ætið leggur sig fram við
að
og vandasamar
7. a3-Ða5
8. 0-0-b4
9. Re2-c4
skapa flóknar
stöður.)
4. f4-g6
5. Rf3-Bg7
6. Bg2-b5
(Merkilegur leikur. Það vekui
athygli að svartur leggur engt
áherslu á að koma mönnum sin
um i spilið á kóngsvængnum.
10. d4?
(ónókvæmni. Betra var 10
Tim man
10. ...-cxd3
11. cxd3-Db6+
12. Khl-bxa3
13. Hxa3-Bxb2
14. Bxb2-Dxb2
(Upp úr krafsinu hefur svartur
fengið eitt peð, a-peðið, en þetta
peð á eftir að vega þungt á
metunum i endataflinu.)
15. Dal?
(Spasski leggur greinilega allt
uppúr þvi að endurheimta hið
tapaða lið. Þar sem það tekst
ekki er auðvelt að benda á betri
leiki, s.s. 15. Hal.)
15. ... Rf6
16. Red4-Rxd4
17. Rxd4-a6!
18. Hc 1-0-0
19. Dxb2-Hxb2
20. Hb3-Hxb3
21. Rxb3-Bb7
22. Hc7-Hb8
23. Rc5-Bc6!
(Laglega leikið. Nú strandar 24
Rxa6 á 24. - Hbl - o.s.frv.)
24. h3-a5
25. g4-Re8 27 Rd7-llb7
26. Ha7-d6 28. Hxb7-Bxb7
(Nú er eftirleikurinn auðveldur
A-peðið verður ekki stöðvað
með góðu móti.)
29. Rb6-Ba6
30. d4-Rc7
31. d5-Bb5
32. Bf3-a4
33. Bdl-a3
34. Bb3-Ra6!
35. e5-Rb4
36. Rc8-Ba4
37. Bc4-dxe5
38. fxe5-Kf8
39. Rb6-Bb5
i
i
i
Hvitur gafst upp.