Þjóðviljinn - 12.03.1978, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 12.03.1978, Blaðsíða 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. mars 1978 Háir-fasiski lögregluforinginn Hult (Carl-Axel Heiknert) og Martin Beck (Carl Gustaf Lind- stedt). Bækur þeirra Sjöwall og Wahlöö um leynilögreglu- manninn Martin Beck og starfsbræður hans í Stokk- hólmslögreglunni njóta vaxandi vinsælda hér- lendis sem erlendis. Maðurinn á þakinu var t.d. síðdegissaga rikisút- varpsins nú fyrir skömmu, og önnur bók eftir þau hjón kom út á íslensku fyrir siðustu jól. Fleiri munu væntaniegar, og er það vel. Hér er um að ræða skemmti- legar og spennandi leynilögreglu- sögur sem innihalda talsvert magn af þjóðfélagsádeilu en eru fyrst og fremst vel skrifaðar og fullar af sterkum og sannfærandi persónulýsingum. Eftir að hafa lesið nokkrar af þessum sögum finnst manni þeir félagar Martin Beck.Kollberg, Larsson, Rönn ofl. vera orðnir heimilislegir i betra lagi. Tvær flugur i einu höggi Bo Widerberg er af þeirri kynslóð sænskra kvikmynda- stjóra sem ólst upp undir yfir- þyrmandi verndarvæng Ingmars Bergmans og þurfti að losa sig úr þeirri klipu. Það gerði hann með giæsibrag, og er nú einn viður- kenndasti Sviinn i bransanum. Margar fyrri myndir hans hafa borið það með sér að hann er þjóðfélagslega sinnaður — og má i þvi sambandi minna á verkfalls- myndina Ádalen — 31. Það var áreiðanlega engin tilviljun að einmitt hann skyldi verða fyrstur til að kvikmynda sögu eftir Sjö- wall og Wahlöö. Þau hafa lagt áherslu á að gera þjóðfélags- ádeilu aðlaðandi fyrir fjöldann, og notfært sér i þvi skyni bókmenntagrein sem fyrir þeirra tima ekki hátt skrifuð hjá bókmenntafræðingum, en þvi vin- Á ÞAKINU sælli meðal almennings. Þegar slik saga er kvikmynduð liggur þvi beint við að notfæra sér þessa grein eins og hún hefur þróast innan kvikmyndalistarinnar. Bo Widerberg gerir það óspart. Spennan magnast jafnt og þétt, allt frá fyrsta atriðinu, og reynd- ar má segja að i siðasta hluta myndarinnar æsist leikurinn svo mjög, að boðskapurinn — ádeilan — sélátin sitja á hakanum. En á siðustu sekúndunum kemur hún aftur i ljós, og var þá alltaf þarna á bakvið, þegar að er gætt. Hjá lögreglunni Ádeila þeirra Sjöwall, Wahlöö og Widerbergs beinist gegn Stokkhólmslögreglunni, og er innlegg i umræðu sem staðið hefur árum saman i Sviþjóð, um lögregluvald, lögregluofbeldi, vigbúnað lögreglunnar osfrv. Margir eru þeirrar skoðunar að lögreglan sé að verða aö ein- hverskonar ,,riki i rikinu.” Þessi vandamál eru vissulega ekkert sérstakt sænskt fyrirbrigði. Þvi fer mjög fjarri að þessi ádeila sé það sem mest ber á i mynd Widerbergs. Hann hefur tekið það viturlega ráð að láta sjálfa söguna ætið vera I for- grunni —- andrúmsloftið innan lögreglunnar og ádeilan á hana er sýnt ,,i forbifarten” einsog sagt er. Viða tekst þetta snilldarlega — einsog t.d. i atriðinu á lögreglu- stöðinni, þegar Martin Beck er að leita upplýsinga um lögreglufor- ingjann sem myrtur var i upphafsatriði myndarinnar og allt snýst um. A göngu Martins um stöðina sjáum við og heyrum mótmæli pilts sem tekinn hefur verið fastur og hafður i haldi i 6 tima að ástæðulausu, við finnum bókstaflega kuldann og þjösna- skapinn sem ræður rikjum á þessum stað, þar sem manneskj- ur eru meðhöndlaðar einsog vörur á færibandi. Leikstjörn og leikur Mörg dæmi mætti nefna um hnitmiðaðan frásagnarmáta leik- stjórans: atriðin heima hjá Martin Beck, þar sem heimilis- ástæðum hans er lýst i tveimur „skotum”, andstæða þessara heimilisástæðna er morgun- stundin heima hjá Kollberg, og enn aðra andstæðu fáum við svo þegar Beck heimsækir Hult. í þremur örstuttum atriðum hafa okkur verið gefnar mjög nákvæmar og sannfærandi lýsingará þremurólikum persón- um, sem hver um sig er fulltrúi ákveðins hóps innan lögregl- unnar. Þessi frásagnarmáti gerir miklar kröfur til leikaranna. Þeir þurfa að geta sagt margt með einu augnatilliti, einni hreyfingu. Hér hefur tekist með afbrigðum vel að velja rétta leikara i hlut- verkin. Carl Gustaf Lindstedt er nákvæmlega einsog ég hafði hugsað mér Martin Beck. Hann segir ekki margt, og breytir sjaldan um svip — en hann er Martin Beck. Hlutverkið er hreint ekki auðvelt: Beck er hvort- tveggja i senn, hetja og fórnardýr Úr hinu æsispennandi lokaatriði. kerfis. Auk þess er hann maga- veikur og heimilislif hans er i molum. Uppgötvanir hans, sem gera hann að hetju, eru miklu fremur árangur af hversdagslegu puði, vanabundinni vinnu, en inn- blæstri snillingsins. Hann er þrjóskur og heiðarlegur og hreint ekkert vel liðinn innan lögreglunnar. Um aðra leikara er það að segja að þeir skapa allir trúverð- ugar persónur, mjög i anda Sjö- wall og Wahlöö. Má t.d. nefna Hákan Serner (Einar Rönn), Sven Wollter (Kollberg), Thomas Hellberg (Larsson)nog Carl-Axel Heiknert (Hult). „Krimmi" með meiru Ekki er hægt að minnast á þessa mynd án þess að geta sér- staklega um hlut kvikmynda- tökumannsins, Odd Geir Saether, og klippingamannsins Sylvia Ingemarsson. Myndrænt séð finnst mér Maðurinn á þakinu afbragðs vel unnin og falleg kvik- mynd. Litameðferðin vekur sér- staka athygli, fyrst og fremst vegna vandaðra vinnubragða. Og Framhald á bls. 22 PETUR OG VELMENNIÐ Eftir Kjartan Arnórsson Ne<^3r þeir tóko ap coér nefcící UÖkSu mér sá sleppa 'ddur noiq rSF lceJvJrY)/ S-tuftu semoa en peir Homu 3 (-ÍGi 'b’' Er pet/U íc’ptC' r r~ 1 4 r , j lr yn Y) S ~ V. f ’’ 'Hfk;

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.