Þjóðviljinn - 17.06.1978, Page 15
Laugardagur 17. júnl 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Allir töluðu um
mannkosti — en
hugsuðu fleira
Þegar úrslit voru kunn þann fyrsta júll þyrptist mannfjöldi aö Þjóöminjasafni til aö hylla hin nýju for-
setahjón.
Og eitthvaö haföi gerst: Fólk haföi ekki gert eins og þvi var sagt.
Af hverju var þetta hús oröiö svo merkilegt?
tekur ritstjóri svo djúpt i árinni
að tala um aö þessir menn séu nú
„dauöir sem leiðtogar”. Magnús
Kjartansson segir i Þjóöviljanum
3. júll, aö meö þvi aö styöja
Gunnar Thoroddsen heföi Bjarni
Benediktsson forsætisráðherra
einvörðungu stjórnast af pólitisk-
um sjónarmiöum, „hann taldi
þaö miklu máli skipta fyrir gengi
Sjálfstæöisflokksins og framtlð
rikisstjórnarinnar aö Gunnar
hreppti sigur. A þennan hátt
geröi Bjarni Benediktsson úrslit
forsetakosninganna aö miklum
ósigri fyrir sig og rikisstjórnina.”
Alþýöubláöið og Morgiinblaöiö
svara þvi til I leiðurum slnum, aö
þetta sé fáránleg túlkun; hvor-
ugur frambjóðandinn var á veg-
um flokks og þvi beiö enginn ein-
stakur flokkur ósigur (Mbl. 6.
júli). öll áhersla er á þaö lögö, aö
baráttan heföi staöiö „um menn
en ekki málefni” (Mbl. 2. júll).
Það er greinilegt, aö kosningarn-
ar eru hálfgert feimnismál i
stjórnarblööunum. Til dæmis má
Bjarni Benediktsson ekki um þær
mæla I næsta Reykjavikurbréfi,
þar sem hann fjallar einkum um
sjóefnaverksmiöju, og er þaö ekki
fyrr en hálfum mánuði siðar (14.
júli), aö hann fær málið um þessa
segja aö úrslit forsetakosning-
anna endurspegli óánægju
þjóöarinnar meö stjórnmála-
flokka”. Blööin tengja þessa
sömu óánægju viö heita voriö i
Paris, uppreisn æskunnar, en allt
er þaö i miög hikandi tón. 1 fyrr-
nefndum leiðara segir Alþýöu-
blaöiö til dæmis, aö ef fóik sé
oröiö leitt á stjórnmálaflokkum
þá veröi þeir aö bregöast viö,
m.a. meö þvi aö sýna æskunni
meiri trúnaö. En Alþýöublaöiö
telur reyndar aö þessi flokkur
fiafi þegar gert þaö: „Alþýöu-
ilokkurinn getur státaö af aö hafa
gengiö á undan hinum flokk-
unum< I:þessú efni. Alþýöu-
flokkurinn á yngsta ráðherrann
og á þingi sitja fyrir flokkinn
margir ungir menn” —þótt betur
megi. — Meö öörum oröum:
Þegar fyrir tíu árum var Alþýöu-
flokkurinn oröinn „nýr og ungur
flokkur á gömlum grunni.”
Allt í lagi með
okkur
Sami spurnartónninn I bland
viö sjálfsánægju lýsir sér I
vangaveltum Morgunblaösins.
Þann 11. júll er fjallaö um kröfur
eskufólks um heim allan, og fýlg-
ir meö þaö sérstæöa kompliment,
aö islensk æska hafi ábyrgöartil-
finningu sem æskan i ööru lönd-
um hefur ekki. Samt segir svo
„Mundu ekki úrslit forsetakosn-
inganna gefa til kynna nokkra
óánægju æskunnar meö hiö
pólitiska kerfi eins og J>að er nú”.
Ekki er hægt aö segja, aö haldiö
séáfram meö þetta þema af nein-
um þrótti. 1 Reykjavlkurbréfinu
14. júli er talaö viö æskuna á þess-
um nótum hér: „Sjálfstæöisflokk-
urinn hefur á undanförnum
áratugum haft forystu um
uppbyggingu hins Islenska
þjóðfélags. Arangurinn af þvl
uppbyggingarstarfi hefur gengiö
kraftaverki næst. Engu aö siöur
er margt ógert” ...o.s.frv. — og
siöan: „Sjálfstæöismenn hlusta á
rödd æskunnar og réttmætar
kröfur hennar um breytingar eins
og jafnan áöur”.
Með öörum oröum: hvorugur
þessara flokka vildi horfast I al-
vöru viö þá lærdóma sem unnt
var aö draga af hinum fróðlegu
forsetakosningum — og átti sá
strútsháttur eftir að gera þeim
miklar skráveifur siöan.
Fyrirmenn
hluti, sem og i ræöu i Varðarferö
sama dag.
/
Oánægja og leiði
Alþýöublaöiö, Vlsir, Morgun-
blaöiö geta þess öll, aö kosn-
ingarúrslitin sýni vissa óánægju
meö stjórnmálamenn. Bjarni
Benediktsson segir i Varöarræð-
unni aö það sé „eöli máisins” að
„þessi ófriður sem unkringir þá
(stjórnmálamennina) snýst ööru
hverju i allsherjar óánægju, leiöa
og vantraust á stjórnmálamönn-
um i heild”. Alþýöublaðiö segir i
leiðara þann 4. júll m.a. „sumir
Eins og fyrr segir var túlkun
Timans og Þjóöviljans nokkuö
meö öörum hætti. í „Menn og
málefni” Timans þann 7. júll
segir á þá leið, aö úrslit kosning-
anna hafi „lyft þjóökjöri I nýtt
veldi, gefiö þvi nýtt inntak og
þýöingu i augum þjóöarinnar og
hún hefur með nokkrum hætti
fundiö hjá sér nýtt vald og nýjan
mátt I þessum kosningum”, Þar
er lögð sérstök áhersla á, að
Gunnar Thoroddsen hafi reynt aö
„fylkja i forystusveit sina sem
allra flestum fólksforingjum og
fyrirmönnum i landinu, einkum
pólitiskum og treysta þvi siðan
að þetta gamla kerfi dygöi á þann
veg aö fólkiö kysi eins og þeir
segöu þvl”. En eins og margir
geröu sér tiörætt um þá og siðar:
fólk geröi ekki eins og þvi var
sagt.ekki eins og'fimm ráöherrar
og sjálft Morgunblaöiö sagöi, —
og — nota bene — ekki heldur eins
og ýmsir „fyrirmenn” úr rööum
Framsóknar sögöu.
Uppreisn í miðri
skák
Um þetta segir Magnús
Kjartansson i leiöara i Þjóövilj-
anum annan júli: „1 kosning-
unum var ekki aöeins valiö milli
tveggja manna, heldur og tveggja
viðhorfa i islenskum þjóömálum.
Eins og kosningabaráttan þróaö-
ist varö hún uppreisn þjóöarinnar
gegn valdastofnunum og forustu-
mönnum sem vilja sitja yfir hlut
almennings. I upphafi var gert
um það drengskaparsamkomulag
aö stjórnmálaflokkar og málgögn
þeirra heföu ekki afskipti af kosn-
ingabaráttunni, en viö þaö sam-
komulag var ekki staöið af ýms-
um helstu ráöamönnum Sjálf-
stæöisflokksins undir forustu
Bjarna Benediktssonar. Þeir létu
Morgunblaöiö taka afstööu viku
fvrir kosningar og beittu hvar-
vetna kosningavél sinni og þjóö-
félagsaöstööu. Ráöherrar og aör-
ir leiötogar stjórnarflokkanna
höföu sig mjög i frammi, og I
slöasta tölublaöi stuöningsmanna
Gunnars Thoroddsens var sér-
staklega skirskotaö til Sjálf-
stæöisflokksins og þannig reynt
aö draga menn I dilka eftir
flokkatengslum. Einnig opinber-
uöust I kosningabaráttunni ýmis
fróöleg þjóöfélagsleg sambönd
sem hversdagslega eru dulin
almenningi, til aö mynda i
afstööu ýmissa Framsóknar-
leiötoga og annarra svokallaöra
vinstri manna sem hafa komið
sér vel fyrir I þjóöfélaginu meö
aöstoö þeirra sem fara meö völd.
A þennan hátt reyndu hinir „æföu
stjórnmáiamenn” aö ráöa af-
stöðu þjóöarinnar og gera for-
setakosningarnar aö leik I vald-
skák sinni.
Gegn þessu reis þjóöin á svo al-
geran hátt að naumast veröur
jafnaö viöannaöenskriöuna 1908.
Almenningur rauf fiokksmúra og
hafnaöi öllum fyrri fordómum;
vinstrimenn og hægrimenn unnu
saman af fullum heilindum og
létu ekki neina valdamenn skipa
sér fyrir verkum. Sagt hefur ver-
iö aö þessi uppreisn sýni andúö
þjóöarinnar á stjórnmálabaráttu
en þaö er aö sjálfsögöu misskiln-
ingur; hún er sjálf stjórnmála-
barátta, ný fersk og áhrifarik.
Stjórnmálaaöstaöan á Isiandi er
gerbreytt eftir þessa kosninga-
baráttu; áhrifa hennar mun gæta
lengi og viða.”
Undan nauðhyggju
Tveim dögum siöar skrifar
Magnús annan leiöara þar sem
hann segir aö „þjóöleg vakning
var ákaflega veigamikill þáttur”
i hinum mikla sigri Kristjáns
Eldjárns. „Menn fylktu sér um
Kristján Eldjárn vegna þess að
hann birtist sem sannur fulltrúi
fyrir islenska þjóðarvitund, þau
sögulegu og menningarlegu sér-
kenni sem gera tslendinga aö
sjálfstæöri þjóö”. I framhaldi af
þvi er látin i ljós von um að þessi
þróun verði til þess, aö þjóðleg af-
staöa veröi ekki lengur talin
„eitthvert sérstakt einkenni
vinstrimanna” i stjórnmálabar-
áttunni, aö um þau geti skapast
viötækari samstaöa.
Mörg fleiri dæmi mætti nefna
um aö kosningabaráttan og úr-
slitin uröu aö þvi leyti fagnaöar-
efni, aö mönnum þótti sem þeir
væru sloppnir úr pólitiskri nauö-
hyggju, að frelsi þeirra væri
meira en fyrr og tilefni til bjart-
sýni miklu fleiri. Aö visu uröu
áhrif þessara maidaga á íslandi
ekki eins róttæk og langvinn og
margir heföu viljaö. En þau voru
meö sérstæöum hætti hluti af
þeim frisklega gusti sem þá fór
um löndin. Þau voru tilræði viö
ryögaöar pólitiskar venjur og
umgengnishætti/þau voru hvati á
farsæla pólitiska óhlýöni. Og
þegar allt kemur til alls: kannski
eru þessi áhrif ekki öll komin til
skila enn þann dag i dag — hver
veit?
Arni Bergmann tók saman.