Þjóðviljinn - 04.03.1979, Síða 22
22 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. mars 1979
íslensk
áhöfn
með
Tíuna
islensk áhöfn flaug DC-10 þotu
Flugleiða i fyrsta sinn milli landa
á föstudagsmorgun. Flugstjóri
var Smári Karlsson, flugmaöur
Gunnbjörn Valdimarsson og flug-
vélstjóri Gerhard Olsen.
Flugvélín kom snemma
morguns til Keflavikur og tók
Alfreð Eliasson forstjóri á móti
henni ásamt fleiri starfsmönnum
Flugleiða. Kristjana Milla
Thorsteinsson færði flugstjóran-
um blóm við komuna. Þotan hélt
siðan áfram til Luxemborgar og
var flugstjóri á þeirri leið
Jóhannes Markússon. Ljósm. —
Kristinn Benediktsson.
t
Eg verð
Framhald af bls. 24.
minum. Ég mundi orða það svo,
að ég tek myndir minar I
framandi landslagi, fremur en i
útlöndum. Brecht samdi mikið af
verkum sinum i útlegö, og þaö
breytir engu um þá staðreynd að
hann var þýskur listamaður.
Leikrit hans um Galileo er þýskt
leikrit, þótt það gerist ekki i
Þýskalandi.
Annars er rétt aö taka það fram
að mini menning er ekki þýsk,
heldur er ég frá Bæjaralandi, sem
er allt annar handleggur. Það er
svona álika rétt að segja að ég sé
þýskur einsog aö bera það upp á
Skota að hann sé Englendingur.
Fassbinder er lika Bæjari.
Pólitík
Nú barst taliö að póli-
tiskum kvikmyndum. Herzog
var spurður hvað honum fyndist
um pólitiska kvikmyndastjóra
einsog Schlöndorff og Syberberg.
— Þeir eru ekki pólitiskir. Þótt
Schlöndorff hafi gert myndina um
Katrinu Blum er hann ekki póli-
tiskur. Hann gengst svolitið upp i
þvi aö vera þaö, en myndir hans
eru ekki pólitiskar. Það er fólk i
Berlin sem er aö gera pólitiskar
myndir — heimildarmyndir og
þessháttar. En mér finnst aö vilji
maður vera.pólitiskur sé ekki um
annað að ræða en veröa stjórn-
málamaöur. Maður gerir enga
byltingu með kvikmyndavélinni,
til þess er hljóöneminn miklu
betra tæki. Stjórnmálamenn eiga
að tala yfir fjöldanum einsog
Lenin gerði — ekki gera kvik-
myndir.
Hitt er svo annað mál, aö I kvik-
myndum, og þá einnig i minum
kvikmyndum, eru hlutir sem geta
talist póiitískir, en þá er um að
ræða grundvallarhugmyndir og
afstööu, ekki dægurpólitfk. Ég er
aö vinna að þvi aö skapa nýtt
myndmál. Ailt I kringum okkur
fer fram mikil sóun á myndum —
allar auglýsingarnar, t.d. Min
skoðun er sú, að okkar menningu
hafi ekki enn tekist að finna
myndmál sem hæfir henni. Og
takist henni það ekki mun
siðmenning okkar líða undir lok,
deyja út einsog risaeðlurnar.
Þetta er pólitik, þvi aö þarna er
um aö ræöa eina mögu-
leika okkar til að lifa af i þessum
heimi.
Langleitir
áheyrendur
Frá þessum hugleiðingum var
stutt yfir I hina eiginlegu pólitik.
Og þá gat ekki hjá þvi fariö að
Herzog yröi spurður um afstöðu
hans til atvinnuofsóknanna i V-
Þýskalandi, þess fyrirbæris sem
nefnt er Berufsverbot.
— Þaö er auövelt að ráðast á
Þjóðverja fyrir atvinnuofsóknir
— þeir liggja vel við höggi vegna
sögu sinnar, — sagði hann. — En
ég held að það sé ekki réttlátt. Ég
held að það sé ekki i nánd nýtt
nasistaskeið i Þýskalandi, vegna
þess að Þýskaland er eitt af 5-6
lýðræðisrikjum heimsins þar sem
mestur stöðugleiki rikir. Astandið
er miklu verra i flestum öörum
rikjum heims.
Þegar hér var komið sögu
gerðust menn nokkuö langleitir —
og ekki laust við að sumir misstu
andiitiö. Og ekki batnaði það.
— Berufsverbot er til komið
vegna þrýstings frá öfgahópum
til vinstriog hægri. Það er i sjálfu
sér eðlilegt, aö rikiö vilji ekki
hafa þá menn i störfum sem hafa
það á stefnuskrá sinni að koll-
varpa þessu rlki. Mér finnst samt
aö það ætti að leyfa t.d. kennurum
að vinna viö kennslu, nema þeir
séu staðnir að þvi aö innræta
börnum andstöðu við stjórnar-
skrána, þá ætti að láta þá fara.
Loft gerðist lævi blandiö i bóka-
safninu undir þessari þulu. Var
Ragnhildur Helgadóttir farin að
tala I gegnum manninn? Undir-
ritaðri datt i hug það sem sagt
hefur verið um annan merkilegan
þýskan kvikmyndastjóra, Fritz
Lang, að hann hafi verið furðu-
lega mikið barn á stjórnmála-
sviðinu. Margt benti til þess að
það sama væri hægt að segja um
Herzog: hann var t.d. nýbúinn aö
lýsa þvi yfir að blóðsugumyndir
einsog Nosferatu væru alltaf
hættumerki. Þegar Murnau gerði
sina mynd áriö 1923 var nann
ómeðvitað aö boöa komu nasism-
ans. Og nú er Herzog búinn að
gera sina Nosferatu-mynd. Hvað
boðar hún? Þarna er greinileg
þversögn I málflutningi hans,
sem sýnir kannski ekki annaö en
samskonar barnaskap og hjá
Fritz Lang. Þegar Lang komst aö
raun um að mynd hans Metro-
polis hefði fallið i góöan jaröveg
hjá þeim Hitier og Göbbels og
þeir vildu endilega fá hann til að
gera áróðursmyndir flúði hann
iand, skelkaður.
Tvœr myndir í
undirbúningi
Nú þótti ýmsum vissara að taka
upp léttara hjal. Herzog var þá
m.a. spuröur hvaða áform hann
hefði á prjónunum, og sagöist
hann vera að undirbúa tvær kvik-
myndir, aðra i Ástraliu og hina i
Perú. Báðar krefjast þær mikils
undirbúnings. I Astraliu ætlar
hann að gera mynd um árekstra
sem verða milli frumbyggja og
aðkominna námumanna — það er
mikill harmleikur, sagði hann.
Perú-myndin verður gerð Iangt
inni I frumskógi og það tekur
a.m.k. ár að undirbúa hana.
Hér gefst ekki tóm til aö rekja
allar umræöurnar, enda voru þær
bæði langar og fjörugar. Herzog
talaði m.a. af litilli hrifningu um
sjónvarp og gagnrýnendur. Sjón-
varpið drepur hugmyndaflugið,
sagði hann — þaö er ekkert eins
dapurlegt og aö sjá börn sem hafa
horft of mikið á sjónvarp. Þau
verða einmana og döpur.
Flestum gagnrýnendum er illa
við kvikmyndir, en ég myndi þó
ekki ganga svo langt að vilja þá
' feiga — leyfum þeim að lifa, —
sagði hann. — Konan min er að
minu áliti besti kvikmyndagagn-
rýnandi i Þýskalandi um þessar
mundir. Hún skrifar aöeins um
myndir sem hún er hrifin af — en
auövitað getur hún ekki lifað af
þvi. Maöur sér ekki góða mynd
um hverja helgi.
Sjálfs er
höndin hollust
Aðspuröur hvort hann gæti ekki
gefið islenskum kvikmynda-
gerðarmönnum holl ráð, sagði
Herzog aö það gæti hann ekki
— þeir yröu að finna leiðina
sjálfir. — Ef þiö viljið gera kvik-
myndir, þá geriö þið það. Enginn
getur komiö I veg fyrir það.
Ekkert nema trúin getur flutt
fjöll. Þiö veröiö að vera sann-
færöir um aö þiö viljið gera kvik-
myndir. Þegar örvæntingin er
orðin nógu djúp verður kvik-
myndin til.
Kvikmyndagerð er erfiður
klettur aö kiifa — þessvegna
finnst mér hún áhugaverð. En
hún eyöileggur fólk. Þaö er
dapurlegt að sjá marga þeirra
sem kvikmyndin hefur eyðilagt
og gert aö hirðfiflum — litið bara
á Orson Welles. Eða jafnvel
Truffaut. Mestu vonbrigöi ævi
minnar þegar ég sá Chaplin
á kvikmyndahátiðinni i' Cannes.
Hann var oröinn elliær, og lét
einsog kjáni. Það var pinlegt. Ég
held að þessi endalok séu óum-
flýjanleg, en ég hætti ekki að
gera kvikmyndir þótt ég sjái
fram á dapurleg endalok.
Kannski er ég nú þegar orðinn að
hirðfifli.
Viðstöddum fannst ekkert
benda til að svo væri. Hinsvegar
var Herzog greinilega orðinn
þreyttur, enda krækti hann sér i
einhverja skuggalega veiru i
Perú og gengur ekki heill til
skógar. Var þvi fundi slitið þótt
margir hefðu eflaust viljað fá
meira aö heyra.
Skák
Framhald af bls. 17
((Þessi leikur hefur duldar
meiningar. Sjá 26. leik svarts.)
25. b5-axb5 26. axb5
26. ..He3!!
(Hróksfórn sem við fyrstu sýn
virðist svo einföld en þegar betur
er aö gáö þarf svartur aö halda
vel á spööunum til að sanna rétt-
mæti hróksleiksins, t.d. eftir 27.
Kh2 sem er tvimælalaust besta
svar hvits. En svartur heldur öllu
gangandi meö annarri hróksfórn
nefnilega 27. -H8a3!)
27. Rf3-cxb5 29. Dxb7
28. Dxb5-Rc3!
(29. Dc4 dugar skammt vegna
29. -b5! o.s.frv.)
29. ,.Dxb7 31. Kh2
30. Rxb7-Rxe2+
GANGBRAUT
ER BEZTA LEIÐIN EF AÐGÁT ER HÖFÐ
Junior Chamber Reykjavík
il-WÓflLEIKHUSa
KRUKKUBORG
i dag kl. 15
þriðjudag kl. 17
MATTARSTÖLPAR
ÞJ ÓÐFÉL AGSINS
i kvöld kl.20
Næst slöasta sinn
SONUR SKÓARANS OG
DÓTTIR BAKARANS
miðvikudag kl. 20
LISTDANSSÝNING —
tslenski dansflokkurinn
Tófuskinn — nýr baliett eftir
Marjo Kuusela eftir sögu Guð-
mundar Hagalin og Fávitinn
— gestur Tommi Kitti frá Hel-
sinki.
Frumsýning fimmtudag kl. 20
Litla sviöiö:
FRÖKEN MARGRÉT
þriðjudag kl. 20.30
HEIMS UM BÓL
miðvikudag kl. 20
Tvær sýningar eftir
Miðasala 13.15 — 20. Simi l-
1200.
I.K1KFRI AG 2l2
REYKJAVlKUR " '
SKALD-RÓSA
I kvöld kl. 20.30
föstudag kl. 20,30
LIFSHASKI
miövikudag kl. 20,30
laugardag kl. 20,30
GEGGJAÐA KONAN 1 PARIS
fimmtudag kl. 20,30
næst siðasta sinn
Miöasala I Iönó kl. 14 — 20,30
simi 16620
RUMRUSK
i Austurbæjarbiói
miðvikudag kl. 21,30
Miðasala I Austurbæjarbiói
mánudag kl. 16— 21 simi 11384
03
VIÐ BORGUM EKKI
VIÐ BORGUM EKKI
I Lindarbæ
sunnudag kl. 17 UPPSELT
mánudag kl. 20,30
Miöasala opin daglega frá kl.
17 — 19 og 17 — 20,30 sýningar-
daga, simi 21971.
(Eða 31. Kfl Rxg3+! 32. fxg3-
Bxf3 33. Bxf3-Hxf3+ 34. Kg2 Haa3
35. Hd8+ Kh7 36. Hhl+ Kg6 37.
Hh3 Hfb3 og hvitur ræöur ekki við
bæði máthótunina og erfiða stöðu
riddarans á b7)
31. ..Re4!
(Þaö er alveg stórmerkilegt
hverju hinir fáu menn svarts
koma i verk!)
32. Hc4!
(Reti gefúr ekkert eftir I vörn-
inni. Eftir 32. fxe3 Rxd2 tapar
hvitur óumflýjanlega liöi).
32. ..Rxf2
(Peöiö er bragöbetra en hrók-
urinn. Það gefur eftirfarandi af-
brigöi til kynna: 32. -Rxd2 33.
Rxd2! Hd3 34. Rc5! Hxd2 35. Bxa8
o.s.frv. Þá er 32. -Bxf3 vindhögg
vegna 33. Hxe4! o.s.frv.)
33. Bg2
(Eins og stööumyndin sýnir ber-
lega eru mennirnir furðuiega
klesstir saman og einhver hlýtur
að kremjast undir i allri þvög-
unni.)
33.. ..Be6! 35. Kh3-Re5+
34. Hcc2-Rg4+ 36. Kh2 '
(En ekki 36. Kh4 Ha4+! og hviti
kóngurinn er tortimingunni ofur-
seldur.)
36. ..Hxf3! 39. Kh2-Rxc2
37. Hxe2-Rg4+ 40. Bxf3-Rd4!
38. Kh3-Re3 +
Smiöshöggið. Reti sá nú sitt
óvænna og gafst upp. Eftir 41. He3
Rxf3+ 42. Hxf3 Bd5 43. Hb2 Hb8 á
hrókurinn slðasta oröiö. Hann
hefur ekki hreyft sig alla skákina.