Þjóðviljinn - 29.04.1979, Page 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 29. apríl 1979
Óttinn viö „óamerískt athœfi”
McCarthyisminn
The Great Fear. The Anti-Communist Purge Under Truman and Eis-
enhower. David Caute. Secker & Warburg 1978.
Höfundurinn starfaði við háskólann i Oxford,
einnig sem gestaprófessor við bandariska háskóla
ög hefur undanfarinn áratug stundað samantekt
bóka. Bækur eftir hannm.a. „Fellow Travellers”,
,,Cuba, Yes” og „Fanon”. Auk þessa hefur hann
skrifað skáldsögur, leikrit og gagnrýni.
t þessari bók fjallar hann um iskyggilegustu
afleiðingar „kalda striðsins” og McCartyismann og
tilkomu og fóðrun þeirrar hýsteriu sem grasseraði i
Bandarikjunum á forsetaárum Trumans og Eisen-
howers, „óttans við kommúnismann”.
hófst og Monroe var grafinn fyrir
fullt og allt.
Eigingæfusmiöirnir
Einnig gerðist það um sömu
mundir að örla tók á nýjum
mönnum i bandariskum
stjórnmálum, austur-
strandar-patriciarnir sátu ekki
einir lengur aö mótun banda-
riskrar utanrikisstefnu, „eigin-
gæfusmiðirnir” skriðu nú upp á
yfirborð, hvattir af harðasta
plútokratii Bandarlkjanna, sem
heimtaði gróða og aftur gróða og
algjöran stuðning bandariskrar
utanrikisstefnu við útþenslu-
Siglaugur Brynleifsson skrifar
Það hefuroftgerst, þegar hags-
munum einhverra aðila er ógnað
eða hætta er á að valdahlutfall
raskist, með þeim afleiöingum að
vissir voldugir aðilar eöa hópar
telja hættu á þvi að afstaða þeirra
til gróða eða áframhaldandi
valda raskist, að þeir gripi til
þess sem löngum hefur reynst
hentug aðferö: að hræða fólk eða
þjóðir meðutanaökomandi ógnun
eöa með samsærum og mold-
vörpustarfsemi innan rikja eða
lands.
Þetta getur eins gerst innan
flokks eða hóps i baráttu um völd
yfir hópnum eða flokknum. Ef
hrekja á frá völdum aðila, sem
viss klika innan hópsins telur sér
andsnúna, þá er reynt aö gera þá
sömu aðila tortryggilega og þeim
eru eignuð stefnumörk eða ein-
kenni, sem almennt eru talin
hættuleg.
Með kjarnorku-
sprengjuna sem
tryggingu
Cautelýsir þeim aöferðum sem
vissir hópar manna i Banda-
rikjunum notuðu til þess að
magna óttann við njósnir og sam-
særi kommúnista um og eftir
1950. Eftir styrjöldina var svo
komið, að eina rikið, sem gat
miðlaðöðrum af gnægösinni voru
Bandarikin, og auk þess voru þau
hernaðarlega sterkust allra rikja
meðan þau sátu ein að þeirri
þekkingu sem varö nýtt til beit-
ingar kjarnorku til hernaðar. Hið
þýöingarmikla „valdajafnvægi
stórveldanna” raskaðist, og af
þessu hlutust þær breytingar aö
Evrópa skiptist i tvennt og áhrif
stórveldanna jukustsitt i hvorum
helming. „Pax Americana” átti
nú að tryggja frið i heiminum,
með kjarnorkusprengjuna sem
tryggingu. Þegar frá leiö náðu
Rússar þvi forskoti, sem Banda-
rikjamenn höfðu haft um
hernaðaryfirburði með kjarna-
sprengjunni. Meöan þetta kapp-
hlaup um þá yfirburöi stóð og þar
til Rússar uröu kjarnorkuveldi,
var reynt að gæta „kjamorku-
leyndarmálsins” eins og fjör-
eggs, og þá brast á njósna-
hýsterian.
Njósnir höföu vitaskuld alltaf
átt sér stað og eiga sér alltaf staö,
en óttinn við njósnara Rússa og
kommúnismann var blásinn upp
einmitt á þessum árum vegna
sérstakra aðstæðna. Breska
heimsveldið tók að liöast i
sundur, Frakkland var ekki leng-
ur nýlenduveldiog Þýskaland var
gjörsigrað. Hin fomu stórveldi
Evrópu stóöust Rússum engan
veginn snúning, nema meöaðstoð
Bandarikjamanna, ognú var svo
komiöað mesta stórveldi heims-
ins voru þessir „bandarisku
uppstartar” og þeir sáu sig sem
nokkurs konar Rómverja 20.
aldar, bandarisk útþenslustefna
stefnu sina. „New Deal”-menn-
irnir voru litnir hornauga og
meira en það, þeir voru álitnir
hálfgerðir kommar, það þurfti aö
gera þá sem hneigðust til frjáls-
lyndis óskaðlega. Þessi togstreita
átti mikinn þátt i þvi aö magna
hýsteriuna og kommahræðsluna.
Caute fjallar nokkuö um þetta
atriöi, en gerir e.t.v. ekki nóg úr
þvi. Þessi togstreita átti sér
einnig staðá dögum Kennedys, og
nú bendir margt til þess að ein-
hver botn finnist I morðmáli
Johns Kennedys og þær ástæður
sem voru hvati þess, en þar af
virðist þefurinn ekki ósvipaöur
þeim sem gaus upp með McCarty
og þeim pöpli sem fylgdi honum
fastast.
Að gera fólk
tortryggilegt
Caute lýsir á greinargóðan hátt
aöferðunum við aö gera fólk tor-
tryggilegt og þeirri herferð sem
hófst um öll Bandarikin innan
stofnana rikisvaldsins, I hernum,
i háskólum og blaðaheiminum,
gegn áhrifum og einkum
Imynduöum áhrifum og mold-
vörpustarfsemi kommúnista.
Lögregla og leyniþjónusta stóðu
fremst I þessari baráttu, beitt var
hinum lævislegustu aðferöum til
þess að gera fólk tortryggilegt,
Joseph McCarthy: Samnefnari
fyrir undirferli, svik og rógburð
og falskan vitnisburð.
einkum það sem hafði orð á sér
fyrir frjálslyndi og það sem stakk
eitthvað I stúf við viöteknar
skoöanir um „bandariska lifs-
hætti” og samlöguðust ekki
algjörlega einfeldingslegum hug-
myndum um „ameriskt frelsi”.
Njósnarar voru á sveimi,
nágrannar njósnuðu um ná-
granna og bréfhelgi var freklega
brotin, einkum ef bréfin bárust
erlendis frá. Siðan komu
ameriskú nefndirnar, svardag-
arnir, tilvitnanir I stjórnarskrána
og útlistun Hæstaréttar á vissum
atriðum stjórnarskrárinnar, sem
Caute segir að hafi I rauninni
gengið þvert á skilning þeirra
sem hana settu i upphafi. Undir-
ferli ogsvik, rógburður og falskur
vitnisburður voru höfuðeinkenni
þessarar baráttu „sannra Banda-
rikjamanna”.
Fórnarlömbin og
millistéttin
Fórnarlömb þessarar her-
ferðar urðu f jölmörg. Caute segir
að um 15 þúsund rikisstarfsmenn
hafi sagt upp störfum meðan
rannsókn I málum þeirra fór
fram, á lOnda þúsund var sagt
upp störfum, auk þess var grisjaö
vlðar I starfsmannakerfinu, og
má svo lengi telja, auk þeirra
sem urðu að þola alvarlegri dóm.
Listamenn urðu margir fyrir
barðinu á „óamerlsku nefnd-
inni”, og voru forsendur nefndar-
manna fýrir ásökunum á einstaka
Baráttuhátíð
Samelningar 1. maí gegn kjaraskerðingu
DAGSKRÁ:
Kl. 14 Kröfuganga
Safnast saman á Hlemmi
gengið niður Laugaveg
Kl. 15 Útifundur á
„Hallærisplani”
1. ræða Pétur Pétursson
þulur
2. ræða Sigurður Jón
Ólafsson iðnverkamaður
3. Upplestur
Rútur flytja
útifundarfólk á
innifund í Sigtúni.
Kl. 16 Innifundur
í Sigtúni
Skemmtiatriði:
1. Sönghópurúr Kennara-
háskólanum
2. Kjarabót syngur
3. Hjördis Bergs syngur
um Palestinu
4. Kristinn Einarsson
flytur frumort ljóð
5. Fjöldasöngur
Ræða:
Edda Atladóttir iðn-
verkakona
Ávarp:
Elias Daviðsson kerfis-
fræðingur
Barnadagskrá
í efri sal:
Söngur, dans og kvik-
myndir.
Leikþættir leiknir af
börnum
Leiktæki, spil og bækur á
staðnum.
Malað og skapað
Kl. 20-24 kvöld-
fundur í Hreyfilshúsinu
1. Söngleikurinn Dægur-
lagabrot samið og flutt af
nemendum i Kennarahá-
skólanum.
2. Bubbi Mortens syngur
3. Pétur Guðlaugsson
syngur
4. Avörp
5. Dans undir hljómfalli
frá Harmoniku, hljóm-
plötum og Kjarabót
listamenn vafasamar og þó oftar
hlægilegar og sýndu úr hvers-
konar umhverfi nefndarmenn
voru sprottnir. Margir tóku það
ráð að flytja úr landi um lengri
eða skemmri tlma, aörir fyrir
fullt og allt.
Hljómgrunnur fyrir þessar of-
sóknir var lengi vel góður I
Bandarikjunum og skipti þar
mestu máli að með forpokun
öreiganna og útþenslu millistétt
anna, þar af leiöandi, var myndað
breittlag, „self made men”, sem
haföi tekist að krafsa saman ein-
hverjum reytum og gekk erfið-
legaað sjá út úr þeim sjónarhring
san reyturnar luktu um og þeir
höföu aflað með þeim hætti, sem
þar þykir við hæfi. Þessi
menningarsnauði hópur, sem er
óbundinn allri hefð eða tengslum
við allt nema peninga, óttaðist
hvað mest að tapa af fé þvi sem
aflað hafði verið og þvi var
auövelt að magna upp skelfingu
og ótta viö allt það sem bent var á
sem „óamerlskt athæfi” og þær
stefnur sem stefndu að öörum
markmiöum en peningakrafsi.
En þó kom að þvl að furðu margir
þreyttust á þessum hæpna leik og
þegar valdajafnvægið I heiminum
var komið á það stig að nokkurt
jafnræði var tekið að myndast
með stórveldunum, þá slaknaöi á
spennunni og sumir hverjir
vöknuðu við vondan draum.
Rússarnir voru þarna ennþá, en
þeir komu ekki og „Ike sagði að
við yrðum að lifa með þeim”
Rússaóttinn og
bandarísk
útþenslustefna
Þessiherferö og skeKing hafði
áhrif iangt út fyrir bandariskt
samfélag, eins og henni var
einnig ætlaö. Rússaóttinn var
nýttur bandarlskri útþenslu-
stefnutil framdráttar. Með hálf-
sannleikogefnahagslegum sposl-
um voru ýmsar persónur og
hópar lokkaðir til samstöðu við
bandariska utanrlkisstefnu, og
þurftu margir ekki að lokkast.
Bandarikin sköpuðu sér á for-
sendum þessa magnaða ótta
bandamenn vitt um heim sem
gengu erinda þeirra oft undir
fögrum nöfnum ýmissra sam-
þjóðlegra stofnana eða bandalaga
til varnar frelsinu. Þannig varð
McCartyisminn Bandarikja-
mönnum „geysihagleg geit”, sem
þeir gátu mjólkað afturgengna
um allan heim, étið og notað að
eigin viló.
Það var auðvelt fyrir slétt-
málga Bandarikja-agenta aö
lokka einfalda tegund stjórn-
málamenna, þá tegund sem enn
telur til aö mynda, að ýmsar
alþjóðlegar stofnanir séu hlut-
lausar og alþjóðlegar, og stefni að
betra heimi, eins og Alþjóða-
bankinn, en fjármagn hans er
komið frá bandarískum
auðhringum og hagsmunir hans
eruþeirra.Ekkigekkþeim miöur
að lokka slika grænjaxla I
hernaöarbandalög og leggja þar
að veði lif þjóða og lönd.
Rís ófreskjan
upp aftur?
Eftirleikur inn hefur verið
stundaður af útsmoginni
kunnáttu með því aö ná tangar-
haldi á auðlindum og starfs-
kröftum heilla þjóða, og enn
koma hlaupatlkurnar flaörandi,
sem hljóta annaöhvortaðverafffl
eða> glæpamenn, þ.e. landráöa-
lýður, nema hvorttveggja sé. Rit
Caute er merkilegt fyrir margra
hluta sakir, þótt Bandarikjamenn
hafi boriö gæfu til þess að hrinda
af sér versta svartnætti McCarty-
ismans, þá hljóta þarlend skárri
öfl aö halda vöku sinni ef ófreskj-
an á ekki að rlsa upp aftur, sem
hún hefur alla tilburði til og hefur
gert svoeftirminnilegt er. Nixon-
arnir eru alltaf til reiðu og bíöa
færis.
Rit Davids Cauteser alls tæpar
700 blaösiöur, þar af eru athuga-
greinar og heimildaritaskrá um
150 siður. Höfundur skrifar um
málefnið af vandlætingu, og ritið
er skemmtilegt aflestrar.
Persónulýsingar sumra þeirra
• sem koma við sögu eru vel
gerðar, og forsendurnar sem
Caute rekur að skoöunum þeirra
eykur skilning á atferli þeirra.