Þjóðviljinn - 05.08.1979, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 5. ágúst 1979.
Að leggjast íferðalög
Það þótti hið versta mál hér
áður fyrr að leggjast i ferðalög.
Engir nema ónytjungar og
auðnuleysingjar tóku uppá þess-
um fjanda og jafngilti 1 raun
flakki. Menn fóru helst ekki aö
heiman nema i brýnum erindum
eða nauður ræki til. Þjóðfélagið
var i kyrrstööu, hvermaður sat á
sinni þúfu og ræktaði sinn garð.
Nú er öldin önnur. Menn þeys-
ast um allar þorpagrundir i leit að
sól, friðsæld, félagsskap, óspilltri
náttúru og jafnvel fegurö. Hefði
margur gildur bóndinn einhvern-
tima fussað og sveiaö duglega
yfir sliku og þviliku háttalagi og
heiðvirðar sómakonur slegið sér
á lær.
Fridagur verslunarmanna á
miðju sumri verður mörgum
kærkomin átylla til flandurs um
byggðir og óbyggðir.
Sumir sa*ja þau fyrirbæri sem
kölluð eru útihátlöir. Þær hafa
veriö fjölsóttar viða um land á
undanförnum árum. Island er
reyndar flestum löndum verr
fallið til útiskemmtana, en land-
inn er aftur á móti orðinn svo
vanur vondum veörum á svona
samkomum, aö hann lætur ekki
sjá sig þegar svo furöulega vill til
að þær fara fram i góðu veöri.
Þetta kom I ljós á hátið sem átti
að vera við Kolviðarhól um eina
albestu góðviðrishelgi sumarsins.
Fáir sýndusig þar og skemmtun-
in fór á hausinn, enda langt frá
þvi aö vera kolvitlaust veður á
Kol 79 við Kolviöarhól.
Flestar þessara sumarhátlða
eru hver annarri likar, enda ekki
löng hefð að baki sllku sam-
komuhaldi. Þjóöhátlðin i Vest-
mannaeyjum hefur þó sérstöðu.
HUn mun vera haldin I hundrað-
asta sinn þessa dagana, en 105 ár
eru frá fyrstu þjóöhátlð. Nokkr-
um sinnum féll þjóðhátíöarhald
eyjarskeggja niöur vegna styrj-
alda og óárans i henni verslu.
í Eyjum hafa myndast ýmsar
skemmtilegar þjóðhátiðarhefðir
á áranna rás. Stebbi pól var
kynnir áratugum saman og Skúli
Theodórs seig með tilþrifum úr
Fiskhellanefi. Siggi Reim er
brennukóngur enn sem fyrr, þótt
alltaf sé hann jafn harðákveðinn
að hætta. Hann veröur léttfættari
með hver ju árinu og hleypur eins-
og ekkert sé uppá Fjósaklett að
kveikja i brennunni. Menningar-
bragurinn á þjóðhátið hefur verið
svo mikill, að jafnvel kamraverð-
irhafagengið ummeðforláta
kaskeiti með hvitum kolli og WC
skýrum stöfum yfir derinu.
Knattspyrnufélagiö Týr sér um
þjóðhátiðina I ár, og þá á aö vera
gott veöur, en slæmt hitt árið,
þegar Þórstendur fyrir hátiðinni.
Eða var þaö öfugt? Kannski fer
það eftir því með hvoru félaginu
maður heldur.
Einar örn.
■■ : . . ■
' ■■.■■'■'■
Hundur
Alberts Guðmundssonar heild-
sala, alþingismanns og borgar-
fulltrúa er sagður á góðri leiö meö
að verða einn valdamesti aöili I
flugmálum hér. Hann á þaö nefni-
lega til að vakna af værum blundi
þegar flugvélar lenda eða fara á
loft frá Reykjavikurflugvelli um
nætur og vekur blessuð skepnan
þá jafnan alla Ibúa hússins við
Laufásveg með ógurlegu span-
góli. Þykir þeim að vonum illt
undir þessu aö búa. Svo vel vill þó
til, að húsráöandi á sæti i flug-
ráði. Hefur hann þar að sögn bar-
Ég verð
alveg óð..
ef enginn
stingur upp á
mér sem forseta
ist mjög fyrir þvi hagsmunamáli
sinu að öll flugumferð um
Reykjavikurflugvöll verði bönnuð
eftir klukkan hálftólf á kvöldin...
Flugleiða-
sparnaður
I nýútkomnu fréttabréfi Flug-
virkjafélags Islands má m.a. lesa
eftirfarandi:
„Heyrst hefur að viðgerðir á
kössum, barskápum o.fl., úr flug-
vélum Flugleiða, kosti 900 franka
á klst. hjá Cargolux. Þessi upp-
hæð jafngildir kr. 11.585 — (5/7).
Um 80% af eftirliti og viðhaldi er i
höndum erlendra. Heitir þetta að
spara?
Þann 29/6 flaug B — 727 frá
Flugleiðum beint á haf út frá KF,
i lágflugi, til þess aö prufa nýisett
GPWS tæki. Sú athöfn heyrir
tæplega undir orkusparnað.”
Smekkur
hverra?
Það er með ólikindum hvernig
dyraveröir samkomuhúsanna
haga sér gagnvart gestum, sem
ekki eru klæddir eftir þeirra
höfði. I viðtali i útvarpi einn laug-
ardagseftirmiðdaginn kom fram
hjá nokkrum veitingahúsaeig-
endum, að þeir telja að það sé
vilji fólksins sem „stundar” þessi
hús, að gestir séu klæddir sam-
kvæmt ákveðnum formúlum.
Gaman væri aö vita hvort þessir
menn myndu taka mark á þeim
gestum, sem hafa annan smekk
og kjósa frekar gallabuxur en t.d.
nælonskyrtur. Nýi matstaðurinn
„Hornið” er að minnsta kosti ekki
aö sækjast sérstaklega eftir gest-
um sem eru á móti gallabuxum,
þvl þar er megnið af afgreiöslu-
fólkinu Iklætt gallabuxum við
framleiðsluna og hefur nóg að
gera. Og starfsfólk „Hótel
Sögu”, sem er ótrúlega fastheld-
ið á hálstau, sagði ekkert við út-
lendingana sem komu á kynningu
á islenskum vörum íklæddir
gallabuxum og vinnuskyrtum.
Þarf fólk aö skipta um þjóöerni til
aö njóta þeirra sjálfsögðu mann-
réttinda að klæða sig eftir eigin
smekk rn ekki ann^rra?
Hér vantar góðan
texta handa þessum
ágætu skötuhjúum og
merkið hann: ,,Mynd-
texti óskast”, Sunnu-
dagsblað Þjóðviljans,
Siðumúla 6, Reykjavik.
Og munið að senda text-
ana nógu snemma.
Besta textann fékk beri maðurinn
okkar frá Gisla Sigurtryggva-
syni, sem lætur sig ekki muna um
að senda okkur stöku þegar við á:
Inn um annan, út um hinn
endann, gengur maturinn.
Og það verður svo um sinn,
segir einkahreinsir þinn.
Og Jóhanna Kristin sendir
þennan: „Sástu ekki kaktusinn,
elskan.”