Þjóðviljinn - 05.08.1979, Síða 4

Þjóðviljinn - 05.08.1979, Síða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 5. ágúst 1979. MOWIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis (Jtgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Fréttastjóri: Vilborg Haröardóttir (Jmsjónarmaöur Sunnudagsblaös: Ingólfur Margeirsson. Rekstrarstjóri: Úlfar Þormóösson Auglýsingastjóri: Rúnar Skarphéöinsson Afgreiöslustjóri: Filip W. Franksson Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Guöjón Friöriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson. Erlendar fréttir: Halldór Guömundsson. Iþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Þingfréttamaöur: Siguröur G. Tómasson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson. útlit og hönnun: GuÖjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Safnvöröur: Eyjólfur Arnason Auglýsingar: Sigriöur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir ólafsson. Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jón Asgeir Sigurösson. Afgreiösla: Guömundur Steinsson, Hermann P. Jónasson, Kristin Pét- ursdóttir. Simavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigrlöur Kristjánsdóttir. Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir HúsmóÖir: Jóna Siguröardóttir Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn GuBmundsson. Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Siöumúla 6, Reykjavfk, sfmi 8 1333. Prentun: Blaöaprent hf. Kratisminn og hœgri kratar • Fjörugar umræðureru nú í gangi á síðum Þjóðviljans um eðli og stefnu Alþýðubandalagsins. Er kveikjan að þessari umræðu ýmis þau vandkvæði sem slíkur f lokkur á viðað etja í borgaralegri stjórn, þótt hún punti sig með „vinstri titilinum. Sumir hafa orðið til þess að gagnrýna kratisma flokksins,en aðrir talið að flokkurinn ætti að viðurkenna það fullum fetum að hann sé krataflokkur. • Samkvæmt stefnuskrá sinni er Alþýðubandalagið bæði umbótasinnaður, þ.e. kratiskur, og byltingarsinn- aður flokkur. Hann varar við einhliða trú á „velferðar- þjóðfélagið" og bendir á að jafnvel áratuga meirihluta- stjórn jafnaðarmanna í löndum á borð við Svíþjóð hef ur ekki breytt grundvallarvaldahlutföllum stétta. Þar tróna Wallenbergar voldugir sem fyrr. • En jaf nf ramt er það viðurkennt að um mjög margt á flokkurinn samleið með jafnaðarmönnum, og enn er þróunin ekki komin svo langt í vinstri átt hér á landi að möguleikar umbótastefnu í anda jafnaðarmennsku séu tæmdir. Langt þvi frá. AAá þar vísa til fjölmargra fé- lagslegra réttindamála sem náðst hafa fram i krata- löndum á borð við Norðurlönd„en hafa enn ekki náðst fram hérlendis. • En þegar talað er um samleið sósíalísks f lokks, eins og Alþýðubandalagið telur sig vera, og jaf naðarmanna, þá verðum við að leggja áherslu á að þar sé um jafnað- armenn að ræða, sem fá sæmilega risið undir nafni. Og þá beinast spjótin að hinum makalausa Alþýðuflokki. Útlendir kratar, og þá öðrum fremur skandinavfskir, eiga vart orð til að lýsa undrun sinni á þeirri samkundu íhaldsmanna sem hér á landi kalla sig jafnaðarmenn. Hafa sumir haftá orði að slíkan f lokk bæri að reka úr Al- þjóðasambandi jaf naðarmanna, því menn sem væru enn hægrisinnaðri en Helmut Schmidt ættu þar ekkert erindi. • En sökum þess hve Alþýðuflokkurinn hefur verið hægrisinnaður og máttlaus til félagslegra verka allar götur síðan hann villtist inn í björg Nató í kalda stríðinu, þá hefur Alþýðubandalagið yfirleitt ekki átt samleið með hinum opinbera jafnaðarmannaf lokki þjóðarinnar, heldur hefur það orðið að hafa forgöngu um að koma fram ýmsum helstu baráttumálum jafnaðarmanna og það oft í andstöðu við Alþýðuflokkinn. Og þau eru enn mörg framundan erindin sem Alþýðubandalagið mun reka í nafni umbótastefnu af vinstra taginu. Þar má nefna hin stóru mál atvinnulýðræði og efnahagslýðræði. • Um nokkurt árabil hefur farið fram mikil umræða um það meðal vinstri manna hvernig standa skuli að auknum áhrifum vinnandi fólks á fyrirtækin. Þar hefur verið rætt um hluti allt frá þjóðnýtingu til svonefnds at- vinnulýðræðis, sem fólgið er í þátttöku starfsfólks í stjórn viðkomandi fyrirtækis. • Þær hugmyndir sem athyglin hef ur beinst mest að hin síðari ár eru hugmyndirnar um efnahagslýðræði, sem gengur verulega lengra en atvinnulýðræðið að því leyti, að þar er farið að hrófla við eignarétti atvinnurekenda yfir fyrirtækjunum. Þessar hugmyndir byggja meðal annars á heldur biturri reynslujnanna af atvinnulýðræð- inu, því þegar á reyndi voru áhrif starfsfólks á rekstur fyrirtækjanna heldur lítil gagnvart „eigendum" þeirra. • Þarna er um stórt mál að ræða og Alþýðubandalagið hlýtur að fara að móta endanlega afstöðu sína til mögu- leikanna á breyttum eignaformum innan núverandi þjóðskipulags. Frá Alþýðuf lokknum er einskis góðs að vænta í þeim efnum. — eng. * úr aimanakinu / Spilling og ÍJiJ gölluð steypa Steypuskemmdir i islenskum húsum komust i hámæli s.l. vet- ur þegar Rannsóknastofnun byggingariönaðarins birti niöur stööu af rannsókn á ástandi steyptra Utveggja hUsa. Komu I ljós aö miklar skemmdir voru þá orönar á hUsum m.a. vegna svokallaörar alkalivirkni i steypuefni. Ytri einkenni skemmdanna eru Utbreiddar netsprungur á veggjum. Astæöur eru taldar þær aö eftir 1958 var fariö aö nota felenskt háalkalisement svokallaö hérlendis og I ööru lagi var áriö 1962 fariö aö nota sjávarefni sem fylliefni I steypu en þau hafa reynst alkalivirk. Saltiö i þessum efnum hækkar lika alkalimagn steypunnar. Notkun sjávarefnanna hefur aukfet stööugt og veriö nær alls- ráöandi á Reykjavikursvæöinu slöustu árin. Viöbrögö við þessum válegu tiöindum uröu þau aö i bygg- ingarreglugeröir voru teknar inn reglur um alkalivirk efni, borgarverkfræðingurinn i Reykjavik setti reglur um þvott á sjávarefni sem tekiö er úr sjó og Sementsverksmiöju rikisins hóf framleiðslu á efnum sem draga blandaö er efnum sem draga eiga úr alkalivirkni. Þess skal hér getiö aö vitaö hafði veriö um langan tima aö hætta væri á alkaliskemmdum og voru þvi gerðar strangar varúöarráöstafanir meö tilliti til sements og fylliefna þegar um var aö ræöa opinber mann- virki eins og stíflur, hafnir og brýr. Má þar nefna stórvirkjan- ir á Þjórsár- og Tungnársvæö- inu. Annaö var upp á teningnum gagnvart almennum húsbyggj- endum I Reykjavik. Þrjú fjár- sterk fyrirtæki á Reykjavikur- svæöinu afla fylliefna og steypu fyrir allan almennan markaö þar. Þau eru Björgun h.f. sem dælir sjávarefninu af sjávar- botni og flytur þaö til lands og steypustöðvarnar tvær BM. Vallá og Steypustööin. Þessum stóru fyrirtækjum hraus hugur viö þeim mikiu breytingum og kostnaöarauka sem samfara yröi þvi aö breyta um aöferöir og útvega öruggt steypuef ni. Þau kusu þvi aö nota áfram alkalivirkt sjávarefni meöan stætt væri og þegar hiö slæma Hvalfjaröarefni haföi endanlega veriö bannaö fóru þau aö notast viö sjávarefni sem dælt var upp úr Saltvik á Kjalar- nesi þó aö engar rannsóknir lægju fyrir um alkalivirkni þess. Eftirlit meö þessari steypuframleiöslu hefur þvi miöur veriö i algjöru lágmarki m.a. vegna þess aö borgaryfir- völd í Reykjavik hafa ekki veitt fé til að ráöa sérstakan steypu- eftirlitsmann eins og geröar hafa verið tillögur um og i ööru lagi vegna þess aö ýmsir em- bættfemenn létu undan kvein- stöfum steypustöövanna um aö veita undanþágur fyrir mjög vafasamt steypuefni. Vegna þessa er nú uggur i mönnum vegna bygg- ingaiönaöarins á Stór-Reykja- vikursvæöinu. Flest bendir til aö sú steypa sem nú er þar framleidd geti reynst stórgöll- uö. Björgun h.f. var veitt 6 mán- aða undanþága til aö koma upp fullkominni þvottaaðstöðu til aö þvo saltiö úr hinu vafasama efni. Frestur rann út 30. júni s.l. og haföi þá ekkert verið gert nema klóra i bakkann. Kom i ljós aö þvottaaöstaöan mundi kosta a.m.k. 132 miljónir króna og timdi fyrirtækiö ekki aö leggja út i þann kostnaö þó aö verölagsyfirvöld heföu heimilaö 25% hækkun á steypuefni vegna aukins kostnaöar viö þennan þvott. Svokölluö steinsteypunefnd var á sinum tima skipuö af iön- aöarráöherra til þess aö rann- saka og gera tillögur um með hvaöa ráöum sé unnt aö koma i veg fyrir þenslu og þar af leiö- andi grotnun i steinsteypu hér- lendis. Voru i henni fulltrúar ýmfesa opinberra stofiiana svo og Halldór Jónsson frá Steypu- stööinni hf.»Þessi nefnd sem hef- ur á sér yfirbragö visinda hefur starfaö eftir mjög einkennileg- um reglum svo aö ekki sé fastar aö orði komist. Ýmsir af nefnd- armönnum hafa litt eöa ekki mætt á fúndi hennar en i staö þeir ra hefur hún útvlkkað s jálfa sig og starfa nú meö henni full- trúar allra þriggja fyrirtækj- anna sem mestra hagsmuna eiga aö gæta án þess aö ráö- Guðjón Friðriksson skrifar: herra hafi nokkurn tima skipaö þá. Afskipti Þóröar Þorbjarnar- sonar borgarverkfræðings i Reykjavik af þessu máli eru lika mjög skiYtin. Hann fór fram á þaö á fundi bygginga- nefndar Reykjavikur snemma i júli aö undanþága væri veitt frá reglugerö til þess aö nota fyrr- greint Saitvikurefni. Vitnaöi hann þar I tillögur Bygginga- nefiidar Reykjavikur og stein- steypunefndar. Samþykktu nefndarmenn undanþáguna vegna vlsindastimpilsins sem var á tillögu Þóröar. Seinna kom i ljós aö borgarverkfræö- ingur haföi hreinlega blekkt nefndina. Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins hafði aldrei neinar tillögur gert og afgreiðsla hinnar vafa- sömu steinsteypunefndar er lika áhhuldu. Eftir að undan- þágan var veitt kom i ljós að allt benti til að Saltvikur- efnið væri mjög alkalivirkt og kom þá strax fram til- laga i bygginganefnd aö banna það en borgarverkfræðingur hélt samt fast viö fyrri tillögu sina og var málinu frestaö i nefndinni meö atfylgi hans og fulltrúa Sjálfstæöisflokksins og Framsóknarflokksins. Þess skal hér getið aö fulltrúi Fram- sóknarflokksins er Helgi Hjálm- arsson arkitekt sem er mágur forstjóra Björgunar h.f. og rek- ur teiknistofu með ráögjafar- verkfræöingi Steypustöövarinn- ar. Þó að borgarverkfræöingur hafi þannig misnotaö nafn Rannsóknastofnunar byggingar iönaöarins hefur hvorki heyrst stuna né hósti frá henni. Hér má einnig nefna aö Viglundur Þor- steinsson forstjóri BM. Vallár falsaöi og rangtúlkaöi niöur- stööur af tilraunum Rannsókna- stofnunarinnar f viötali viö Morgunblaðið fyrir rúmum hálfum mánuöi og var þvf látiö ómótmælt af stofnuninni. Hér skal þess getiö aö einn þriggja manna I stjórn Rann- sóknarstofnunnar byggingar- iönaðarins er forstjóri Steypu- stöðvarinnar og veröur það að álítast i meira lagi undarlegt. Vonir eru nú bundnar viö aö kisiliblöndun i sement geti kom- iö i veg fyrir alkalivirkni steyp- unnar en rannsóknir eru svo skammt á veg komnar aö ekk- ert er vitaö meö vissu um hvort svo sé. Allt þetta steypumál lyktar af pólitiskri spillingu í opinberum stofnunum sem til er komin vegna mikilla fjárhagsmuna valdamikilla aöila i steypuiön- aöinum. Fyrir þa spillingu veröa húseigendur á höfuðborg- arsvæðinu aö öllum likindum aö greiöa innan fárra ára.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.