Þjóðviljinn - 07.10.1979, Qupperneq 5
Sunnudagur 7. október 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Þýskur
rithöfundur
í heimsókn
Matrin Walser, einn þekktasti
rithöfundur V.-Þýskalands nú á
dögum, er væntanlegur til lands-
ins n.k. miðvikudag, 10. október.
Walser er fæddur árið 1927,
eftir striðið tók hann upp nám við
háskólann i Tubingen og lauk þvi
með doktorsprófi i þýsku, ensku
og heimspeki. Hann hefur m.a.
starfað sem fréttamaður og rit-
stjóri við þekkta útvarpsstöð i
Þýskalandi. Fyrsta bókin eftir
hann — smásagnasafn — kom út
1955 og fékk hann strax verðlaun
frá „Gruppe 47”, en siðan hefur
hann viðsvegar hlotið viður-
kenningu sem rithöfundur i formi
margra verðlauna. Hann er sjálf-
ur meðlimur „Gruppe 47”, sem
voru ein mikilvægustu samtök
rithöfunda i Þýskalandi eftir
striðið og höfðu sérstök áhrif á
þróun þýskra bókmennta siðast-
liöin 30 ár. Þorri verka Walsers
Martin Walser, þýski rit-
höfundurinn sem kemur til ís-
lands á miðvikudaginn.
eru skáldsögur og smásögur, en
einnig hefur hann fengist við leik-
rit og útvarpsleikrit. Walser er
þekktur fyrir harða félagslega
gagnrýni á nútímann, en ekki má
heldur gleyma hinum háðska stil,
sem setur sinn sérkennilega svip
á verk hans.
Walser les úr eigin verkum
miðvikudaginn 10. október i stofu
201 i Arnagarði, kl. 20.30.
Útflutningsmiðstöð iðnaðarins:
Upplýsingar gáfu ekki
tilefni til hækkunar
Útflutningsmiðstöð iðnaðarins
hefur sent frá sér eftirfarandi at-
hugasemd:
„Að gefnu tilefni vegna um-
mæla i fjölmiðlum óskar stjórn
Útflutningsmiðstöðvar iðnaðar-
ins að leiðretta þann misksilning
að upplýsingar frá Útflutnings-
miðstöðinni hafi gefið ástæðu til
þeirrar miklu hækkunnar, sem 6
manna nefnd hefur nú ákveðið á
gæruverði.
Um þetta vitnar best bréfið
sjálft með verðupplýsingunum til
Framleiðsluráðs landbúnaðarins,
dagsett 7. sept. s.l. en þar koma
fram verðhækkanir fyrir ýmsar
erlendar gærur á bilinu 16,7 til
31% i erlendum gjaldeyri milli
ára. Hækkun sú sem 6 manna
nefnd ákveður á islenskum gær-
um, nemur hinsvegar 51 til 66% i
erlendum gjaldeyri milli ára eftir
þvi við hvaða gjaldeyri er miðað.
Um leið lýsir stjórn Út-
flutningsmiðstöðvarinnar yfir
áhyggjum sinum við þessa verð-
ákvörðun, sem muni valda sútun-
inni og skinnaiðnaðinum i landinu
miklum erfiðleikum og koma i
veg fyrir þróun hans, nema aðrar
ráðstafanir verði gerðar.”
NÝJAR BÆKUR
frá Lystræningjanum
Thor Vilhjálmsson:
FALDAFEYKIR
ólafur Ormsson: STÚTUNGSPUNGAR/ skáldsaga.
Jón frá Pálmholti: FERÐIN TIL SÆDÝRASAFNSINS, skáldsaga.
Vita Andersen: TRYGHEDS NARKOMANER, Ijóð i þýðingu Nínu Bjarkar
Árnadóttur.
Hans Hansen: VIL DU SE MIN SMUKKE NAVLE, skáldsaga í þýðingu
Vernharðar Linnet og Margrétar Aðalsteinsdóttur.
L YSTRÆNINGINN
simar 71060 og 35713.
Guömundur
Steinsson:
STUNDARFRIÐUR
LEIKRIT.
Vœntanlegar bœkur:
GREINASAFN.Pappírskilja.
Einnig til örfá innbundin
eintök, aðeins afgreidd gegn
staðgreiðslu.
THOR
VU-HJAIMSSON
FALDAFEYKIR
berklavamadagurinn, sunnudag 7 október
Merkja- og blaðasala til ágóða fyrir starf sem styður sjúka til sjálfs-
bjargar, starfsemina að Reykjalundi og Múlalundi.
Sölubörn óskast kl. 10 árdegis, sunnudag. Góð sölulaun.
Foreldrar -hvetjið börnin til að leggja góðu málefni lið.
Merkin eru númeruð og gilda sem happdrættismiði.
Vinningur er litsjónvarpstæki.
Merkin kosta 300 kr. og blaðið Reykjalundur 700 kr.
Afgreiðslustaðir í Reykjavík og nágrenni:
S. í. B. S., Suðurgötu 10, s. 22150
Mýrarhúsaskóli, Seltjarnarnesi
Melaskóli
Austurbæjarskóli
Hlíðaskóli
Hr(sateigur43, sími 32777
Vogaskóli
Álftamýrarskóli
Hvassaleitisskóli
Breiðagerðisskóli
Skriðustekkur 11, sími 74384
Árbæjarskóli
Fellaskóli
Hólabrekkuskóli
ölduselsskóli
Kópavogur:
Kársnesskóli
Kópavogsskóli
Digranesskóli
Garðabær:
Flataskóli
Hafnarfjörður:
Lækjarkinn 14
Reykjavíkurvegur34
Þúfubarð 11