Þjóðviljinn - 07.10.1979, Qupperneq 9
Sunnudagur 7. október 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Robert Jacobsen frá Danmörku: ,,Lego” (1974-76). Stál
Unnið viö samsetningu „Instalation” eftir Viggo Andersen (1979) frá Noregi.
OLAFUR LARUSSON:
15. Skúlptúr-
Biennalinn
í Antwerpen
170 skúlptúrar eftir 70
listamenn frá Norður-
löndunum eru nú til sýnis
i AAiddelheim-garðinum.
Yfirskrift Biennalsins að
þessu sinni er að gefa
sem gieggsta mynd af því
sem er að gerast i skúlp-
túr á Norðurlöndunum.
Rétt er aB lýsa litiö eitt safn-
inu i Middleheim en það var
stofnað 1950 af þáverandi
borgarstjóra Antwerpen og þvi
fundinn staður á herrasetri sem
reist hafði verið á siðari hluta
18. aldar. Skúlptúreign safnsins
er komið fyrir i garðinum sem
sem er 18 hektarar (þar af 6
hektarar fyrir Biennalinn). Nú
er eign safnsins 270 skúlptúrar
110 teikningar auk 28 skúlp-
túra sem safnið hefur i vörslu
i eign annarra.Við safnið bæbast
svo jafnt og þétt ný verk, þvi
keypt er á hverjum Biennal
nokkur verk. Tilgangur safnsins
er að safna skúlptúr frá Rodin
til þessa dags. Ætla má að þetta
sé eitt stærsta safn sinnar teg-
undar i heiminum i dag.
Bienalinn
1951 er fyrsta alþjóðlega sýn-
ingin haldin i Middelheim og
þótti hann takast það vel að
ákveðið var að gera alþjóölegan
Biennal að föstum liö. A þeim
sýningum sem haldnar hafa
verið siðan hefur verið sýnt
frá nær öllum löndum Evrópu,
Norður- og Suður Ameriku og
nokkrum löndum Asiu. Allt
fyrirkomulag er mjög athyglis-
vert, og virðist miklu fé varið
bæði i safnið og Biennalinn.
Sýningin
Af þeim sem sýna er rétt fyrst
frægan að telja Danann
Robert Jacobsen sem sýnir
miklar stálmyndir. og er óþarfi
að skýra hans verk svo þekktur
sem hann er. Tveir aðrir Danir
vöktu sérstaklega athygli fyrir
verk sin, þeir Björn Nögárd og
Per Neble. Verk Björns,
„Draumakastalinn” er einskon-
ar hof sem gert er úr blönduöu
efni og tekst honum að skapa
mjög sérstæða tilfinningu
(Björn Nörgárd sýndi 1978 á
Kjarvalsstöðum). Verk Per
Neble samanstóð af 30 raf-
magnsklukkum sem hann kom
fyrir á við og dreif um sýningar-
svæðið og hét Project fyrir
Middelheim.
Af Finnunum bar Mauno
Hartman af með verk sin sem
eru gerð úr trédrumbum úr
gömlum mannvirkjum voru
verk hans i senn stilhrein og
gáfu góða tilfinningu fyrir efn-
inu sem hann notar.
Mesta breiddin virtist vera hja
Norðmönnum, og vakti verk Siri
Aurdals, „Enviroment, kveðja
til Lukasar” athygli en það er
gert úr miklum plaströrum, og
verk Viggos Andersens,
„Instalation” var gert úr þrem
gróðurhúsum sem dreift var i
fyllstu merkingu um stórt
svæði. (Viggó sýndi á Kjarvals-
stöðum 1978.)
Erfiðast er að gera sérstaka
grein fyrir þætti Svia sem voru
með nokkuð jafnt lið, þó er rétt
að geta Per Olof Uttvedt, sem
var með þrjár trévélar.
Þá er röðin komin að Islend-
ingunum en þeir voru aðeins
fimm Jón Gunnar Arnason,
Niels Hafstein, Jóhann Eyfells,
Ólafur Lárusson og Hallsteinn
Sigurðsson. Verki Jóns Gunnars
„Fljótandi sólspeglar” sem eru
nokkurskonar baujur kom hann
fyrir i tjörn garðsins og mynd-
uðu þeir linu þvert yfir hana;
annað verk hans „Sólvagn” var
hinsvegar staðsettur á flöt þar
sem sýningargestir gátu dregið
hann til að vild. Jóhann var með
útblásinn skúlptúr gerðan úr
slöngum og hét Marathon Totem
Kom hann sinu verki einnig
fyrir i tjörninni.
Níels var með verk sem hann
kallar „Sex hlutir með sögum”
og voru það sex trédrumbar
raðað upp i beina linu og sögum
komið fyrir á mismunandi vegu
i enda þeirra. Ólafur var með
verk sem heitir „Nafnlaust I og
II” og voru bæði verkin gerð úr
speglum og var þeim báðum
komið fyrir inni i skóginum.
Hallsteinn hafði þvi miður lent i
farmannaverkfallinu með verk
sin og voru þau ekki komin á
staðinn þegar undirritaður var
staddur á staðnunven þau kom-
ust þó upp stuttu siðar. Taka
skal fram að Norræni menn-
ingarmálasjóðurinn styrkti sýn-
inguna og ef svo hefði ekki verið
hefðum við Islendingarnir ekki
getað tekið þátt i þessari sýn-
ingu, en kostnaður okkar við
feröir, efni, uppihald og tækni-
lega aðstoð var allur greiddur af
þeim og stökk það á fleirri
hundruðum þúsunda. Vart þarf
að taka fram að ekki var um
neinn styrk héöan að heiman að
ræða.
Jón Gunnar Arnason við sóispegla sina. (1979).
Ólafur Lárusson kemur fyrir verki sinu „Nafnlaus II” (1978-
1979) gerðu úr speglum og tré.
Björn Nörgárd: Draumakastali (1979). Blandað efni.
Jóhann Eyfells við samsetningu Marathon Totem.