Þjóðviljinn - 07.10.1979, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 7. október 1979
Sunnudagur 7. október 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13
Jonathan Wotzfeldt,
formaður grœnlensku
landstjórnarinnar
i einkaviðtali
við Sunnudagsblaðið
VIRÐING"
okkar ganga mörgum skrefum of
langt. Þeim finnst vondur sjálf-
stæöiskeimur af mörgum stefnu-
málum okkar og leggja mun meir
upp úr 250 ára samskiptum okkar
við Dani. Þeir Atassut-menn álita
auk þess aðildina að Efnahags-
bandalaginu æskilega og eru
ginnkeyptari en viö fyrir tafar-
lausri nýtingu náttúruauðlind-
anna.
— Er hægt að setja þessa flokka
I hefðbundið hægri-vinstri sam-
hengi?
— Það álit ég að hluta til. Þess
ber að gæta að grænlenskar að-
stæður eru afar frábrugðnar
þeim, sem þekkjast i Evrópu.
Hver þjóð elur af sér sina flokka
og Siumut er fyrst og fremst
grænlenskur flokkur. Til er nokk-
uð, sem kallað hefur verið afrisk-
ur sósialismi, kannski er til
HHHBHHHHHHHflHBHi im iwfiiiiiiii iia n nmi i'ii
islenskur sósialismi, altént leyfi
ég mér að halda þvi fram, að Si-
umut sé i leit að grænlenskum só-
sialisma.
— Hver eru markmið litlu
Heimastjórn Græn-
lendinga tók gíldi þ. 1. maí
í ár, en áður hafði heima-
stjórnarfrumvarpið verið
samþykkt af danska þing-
inu og af grænlensku þjóð-
inni á almennum kosning-
um í janúarmánuði.
Halldór Stefánsson, sem
leggur stund á mannfræði í
París, var nýlega staddur
á Grænlandi og tók eftir-
farandi viðtal við séra Jon-
athan Motzfeldt, formann
grænlensku landsstjórnar-
innar, á skrifstofunni í
Nuuk (Godtháb).
— Hver var aðdragandi græn-
lensku heimastjórnarinnar?
— Hér er um að ræða hluta af
langri sögu grænlenskra stjórn-
mála þar sem eitt leiðir af öðru.
Það var um haustið 1972, eftir
hinar sögulegu kosningar um að-
ildina að Efnahagsbandalagi
Evrópu, að ég lagði fram i Græn-
landsráðinu tillögu um að lögð
yrðu drög að grænlenskri heima-
stjórn. Tillagan hlaut einróma
stuðning grænlenskra stjórn-
málamanna og blessunarlega
þótti dönskum yfirvöldum krafan
eðlileg. 1 janúar 1973 var svo
skipuð nefnd grænlenskra stjórn-
málamanna til að skýra forsend-
ur grænlenskrar heimastjórnar
og sérstöðu Grænlands innan rik
isbeildarinna. Sú nefnd skilað
áliti i febrúar 1975, sem siðan
markaði starfsvið nýrrar nefnd-
ar sjálfrar heimastjórnarnefndar
innar, sem tók til starfa i október
1975.1 henni voru sjö grænlenskir
og sjö fulltrúar danskir, ásamt
formanninum, Isi Foighel laga-
prófessor. Avöxturinn af starfi
þessarar nefndar var heima-
stjórnarfrumvarpiö, sem
samþykkt var af danska þinginu
og siðan af grænlensku þjóðinni i
almennum kosningum i janúar á
þessu ári. Þessi nýja skipan mála
gekk svo i gildi 1. mai s.l..
Þótt hart hafi verið deilt um
ýmis atriði i þessari löngu
samningsgerð, á ég þá einkum
við eignarréttinn á grænlenskum
náttúruauðlindum og aðildina að
Efnahagsbandalaginu, þá ein-
kenndist hún að minu mati og
minna vina af vinsemd.
Siumut stærsti
flokkurinn
— Hvaö merkja svo umskiptin
frá landsráði til þjóðþings og
heimastjórnar?
— Þau hafa i för með sér stór-
felldar breytingar á stjórnkerfi
landsins. í grófum dráttum verð-
ur þeim best lýst með saman-
burði á landsráðinu, sem áður
tiðkaðist og var ráðgefandi þing,
geröi athugasemdir við ákvarö-
anir, sem teknar voru i Kaup-
mannahöfn, og hins vegar á nú-
verandi þjóðþingi okkar, sem er
löggjafarsamkunda þjóðkjörinna
fulltrúa meö afmörkuð lögboðin
verksvið. Þau eru sjálf stjórn-
sýsla landsins, mennta- og
menningarmál, atvinnumál,
félagsmál og kirkjumál. Ráðgert
er að aörir þættir landsmála, s.s.
verslunarmál, komist aö fullu i
grænlenskar hendur innan fárra
ára.
Þingmenn eru 21 aö tölu, kosnir
til fjögurra ára I senn, þeir kjósa
svo fimm manna landsstjórn i
meirihlutakosningu. Hún fer með
framkvæmdavaldið.
— Hvaða mál verða áfram und-
ir danskri stjórn?
— Þau eru mörg og þýðingar-
mikil, en hæst ber utanrikis- og
varnarmál, ásamt þvi samkomu-
lagi sem viö gerðum um nýtingu
grænlenskra náttúruauðlinda.
Þar féllumst viö á aö sett yröi á
laggirnar sérstök nefnd skipuð
fimm Grænlendingum og fimm
Dönum auk formanns, en þvi
hlutverki mun ég gegna. Mestu
varðar um þessa nefnd, sem skal
stjórna og taka ákvaröanir um
nýtingu og eftirlit náttúruauð-
lindanna, að báöir aðilar hafa
neitunarvald ieinstökum málum.
— Raunverulegir stjórnmála-
flokkar hafa fyrst nú, slöastliðin
þrú ár, séð dagsins ljós á
Grænlandi. Hvað veldur þvl?
— Afstaða manna til aðildar-
innar að Efnahagsbandalaginu og
skiptar skoðanir um æskilegt inn-
tak heimastjórnarinnar drógu
menn blessunarlega I dilka og lin-
ur skýrðust. Þó var það ekki fyrr
en 1977 að ok.kar flokkur, Siumut
(1), var stofnaður, en hann er
stærstur stjórnmálafiokka á
Grænlandi og ber að langmestu
leyti ábyrgð á núverandi heima-
stjórn. Hana munum við verja
með kjafti og klóm og sjá til þess
að hún beri ávöxt.
Grænlenskur
sósíalismi
— Hvernig skýrir þú muninn
milli tveggja stærstu stjórnmála-
flokkanna: Siumut og Atassut
(1)?
— Þar er óliku saman að jafna.
Það er t.d. ekkert launungarmál,
að ákveönum öflum innan Atas
sut-flokksins þótti heimastjórn
flokkanna tveggja: Inuit Ataqati-
giit og Sulissartut Partiat (1)?
— Þvi ætti nú þetta fólk sjálft aö
svara. En af skrifum þeirra má
læra, að Inuit Ataqatigiit vinnur
að hefðbundinn marx-leninlskri
flokksvél og að Sulissartut Parti-
at er verkalýðsflokkur að
skandinaviskri fyrirmynd, i
sterkum tenglum við Grænlenska
Verkalýðssambandið (ICK).
Þéttbýlisstefnan
danska ófarsæl
— Slðan um miðja þessa öid
hafa Danir leitast við af miklu
kappi að byggja upp hér á Græn-
landi vestrænt nútimasamfélag I
eigin mynd, — mörgum virðist sú
uppbygging ærið gloppótt, en hve
langt var hún (eða er hún) kom-
in?
— Á árunum milli 1950-1960
gengu Danir harðast fram i um-
byltingu samfélagsins hér á
Grænlandi. Þá var gert stórátak
til aö búa til grænlenska verka-
lýðsstétt. Með ýmsum stjórnar-
aðgerðum var séð til þess, að fólk
flyttist úr dreifbýlinu, frá þorpum
og veiöistöðvum til stærri bæja,
þar sem unnið var að hafnargerð
og verksmiðjubyggingum. A
þessum timum fór einnig fram
fordönskun alls skólakerfisins.
Kennslan fór að langmestu leyti
fram á dönsku, kennararnir voru
danskir og nemendur tóku öll próf
á dönsku. Nám i móðurmálinu,
grænlensku, hófst ekki fyrr en á
þriðja skólaári.
Þéttbýlisstefnan danska reynd-
ist aö flestu leyti afar ófar-
sæl og i kjölfar hennar sigldi
heill hafsjór af nýjum samfé-
lagsvandamálum. I ljósi þessa,
skýri ég þá miklu áherslu, sem
við i Siumut-flokknum leggjum á
málefni dreifbýlisins. Við ákváð-
um i trássi við vilja Atassut-
manna, að landsstjórnin skyldi
skipuð fimm mönnum en ekki
fjórum eins og fyrirhugað hafði
veriö I heimastjórnarfrumvarp-
inu. Sá fimmti skal vinna að sér-
stökum málefnum dreifbýlisins,
en þar býr fjórðungur grænlensku
þjóðarinnar. Frá smábyggðar-
kjörnum og veiðistöðvum — svo
sem Upernavik, Umanaq, Thule
og Scorsbysund-svæðunum —
stundar þetta fólk veiðar, einkum
selveiðar. Við viljum allt til
vinna, að þetta fólk fái áfram lif-
að sinu lífi og geti verið stolt af
þvi.
Innan skólakerfisins fer jafn-
framt fram eins hröð afdönskun
og kennaraskorturinn framast
leyfir og grænlenskan er aftur
orðin opinbert skólamál en
danskan aö fyrsta erlenda mál-
inu, sem kennt er.
Almenn
áfengisskömmtun
— Hverjar eru ástæöurnar fyrir
hinum gifurlegu áfengisvanda-
málum, sem þið eigið við að
striða I þessu samfélagi?
— Menn verða að gera sér grein
fyrir, hvað það þýðir fyrir
menningu þjóðar og þá um leið
fyrir lif einstaklinganna, sem
endurspegla hana, að fá yfir sig
holskeflu erlendra áhrifa. Sjálfur
ólst ég upp I 200 manna þorpi, þar
sem allir lifðu af heföbundnum
veiöiskap. Sá heimur stóö á göml-
um grunni. Tæknivæðing hins
grænlenska samfélags hefur hins
vegar kippt fótunum undan
mörgum. En þessi vandamál eru
fjarri þvi að vera óyfirstiganleg
og ég er þvi sannfærður um, að
við vinnum bug á þeim. Almenn
áfengisskömmtun, sem gekk I
gildi 1. ágúst s.l., er liður I þeirri
baráttu.
— Er atvinnuleysi verulegt á
Grænlandi?
— Þvi miður er þar um að ræða
eitt af höfuðvandamálum okkar
nú og miklu alvarlegra en lesa
má úr opinberum tölum dönskum
(2).
— Hefur landsstjórnin uppi
ráðagerðir um að draga úr að-
streymi erlends (dansks) vinnu-
afls með lagasetningu?
— Já, þær aðgerðir eru i bigerð
og verða sennilega mjög óvinsæl-
ar íitávið Við búum þegar við
mikið atvinnuíeysi og stórir ár -
gangar ungs fólks eru i uppsigl
ingu. Við munum gera allt, sem
við megnum, til þess aö tryggja
að þessi æskulýður, þegar þar aö
kemur um miðjan næsta áratug,
hafi starfa. Við getum ekki látið
viðgangast óheft aðstreymi
erlends vinnuafls. Þvi er þörf
þeirrar forsjálni, sem við ætlum
að tryggja með lagasetningu,
vonandi með samþykki dönsku
stjórnarinnar, þótt mál þetta sé
eflaust I óþökk Efnahagsbanda-
lagsins.
Framhald á 14. slðu
Slöllur I berjamó
Tekin I kristinna manna tölu.
Þrjár á sparifötum.
í öllum stærri bæjum Grænlands er oliuknúið raforkuver. „Jarðhitinn
er ekki okkar gull”.
Unnið að pökkun sjólax. Efnahagsbandalagið skammtar Grænlendingum laxveiðikvóta: 1200 tonn. Sá
afli kom inn á tæpúm mánuði og grænlenskir sjómenn þykjast illa hlunnfarnir.
Kennaraskólinn i Nuuk æðsta menntastofnun landsins.
Hans Egede, Grænlandspostulinn.
t kjölfar hans sigldi fagnaðarcrindið
og einokunarverslunin. Hér stendur
hann nú, 250 árum siðar, umlukinn
Carlsbergúrgangi.
Texti og
myndir
Halldór
Stefánsson