Þjóðviljinn - 07.10.1979, Qupperneq 21
Sunnudagur 7. október 1979 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 21
Olia
Framhald af bls. 6.
nægjanlega oliu né á betra verði
en nú er i náinni framtið,og breyt-
ingará oliumarkaðinum gera það
að verkum að nauðsynlegt er að
islenska rikið og heildsölufyrir-
tæki á þess vegum geri samninga
um oliukaup Islands á næstu ár-
um.
Þá stendur eitt eftir það hlut-
verk islensku oliufélaganna
þriggja „að annast dreifingu á
þeim oliuvörum sem keyptar
hafa verið hingað til lands á veg-
um islenska ríkisins.” Sá sem
getur fundið rök fyrir þvi að slik
dreifing þurfi að vera þreföld til
þess að þreföld yfirbygging
einkaaðila geti grætt á henni mun
skrá nafn sitt á spjöld veraldar-
sögunnar. Olia hefur ekki verið
samkeppnisvara hér á landi og
verður ekki i framtiðinni. Hún
mun seljastán auglýsingar vegna
þess að allir þurfa á henni að
halda. Oliuheildverslun rikisins
og einfalt oliudreifingarkerfi er
það sem koma skal. Timinn mun
hinsvegar leiða það i ljós hvort
þjóðarhagsmunir i þessum efnum
verða settir ofar einkahagsmun-
um og sterkum flokksitökum
þeirra i Framsóknarflokki og
Sjálfstæðisflokki.
—ekh
8 tíma vinna
Framhald af 2
þurfi að vinna nema dagvinnu.
Það er grundvallarskilyrði fyrir
góðu lifi. Ég skil ekki ástæðurnar
fyrir þvi að viö á Islandi skulum
þurfa að vinna margfalt meira
en frændur okkar á Norðurlönd-
um. Þar nægir verkamönnum
dagvinnukaupið. Kannski er
raunhæfast að bera okkur saman
við Færeyinga, þeir selja afurðir
sinar á sömu markaði og við og
þar nægir dagvinnukaupið lika.
Það er eitthvað meira en litið
bogið við launapólitikina á
íslandi, úr þvi að ennþá skuli 8
stunda vinnudagur vera óra-
fjarri.
— Þessi óskaplega fjárfesting á
skömmum tima hefur heldur ekki
orðið til góðs, a.m.k. ekki fyrir
láglaunafólk. Og tæknifram-
farirnar virðast ekki koma okkur
til góða. Það er alltaf jafndýrt að
byggja sér hús eða ibúö. Ég held
það sé alveg jafnerfitt og dýrt
fyrir verkamann að koma sér upp
húsnæði nú og fyrir 30-40 árum.
Mér finnst þetta einkennilegt.
Myndiröu velja verkamanns-
starfið aftur mættirðu velja upp á
nýtt?
— Ég valdi nú aldrei þetta
starf. Ég átti ekki um neitt annað
að velja. Ég vildi verða sjómaður
og sú ósk min er óbreytt ennþá.
Ég var nokkrar vertlðir á sjó en
ég varð að fara i land eftir að ég
lenti I tveimur svo erfiðum ver-
tiöum að ég hafði varla i mig þeg-
ar gertvarupp. Þá fór ég iverka-
mannavinnu i landi. Þaö var ekk-
ert val. — hs
ISS
Framhald af 17. siðu.
Fyrir þær konur sem fengið
hafa bata er það eins og að endur-
fæðast. „Það bókstaflega bylti al-
gjörlega lifi minu,” sagði Janet
Townsend, en henni var gefiö pro-
gestogen. „Það urðu ekki fleiri
rifrildi, vegna þessa, ekki fleiri
árásir. En ég er sko heppin. Ef
eiginmanni minum hefði ekki þótt
neitt vænt um mig, hefði hann á-
rieðanlega yfirgefið mig fyrir lif-
andislöngu.”
Erfitt reynist að komast að á
þessum fáu sérdeildum sem
starfa I Bretlandi (þrem) og
nokkurra ára biðlisti. Það sem
við getum gert i staðinn er að
senda læknum nýjar upplýsingar
um leið og rannsókn er fullgerð.
En vandinn er bara, þvi miöur, að
læknar eru svo uppteknir oftast,
að þeir lesa ekki allt sem sent er
til þeirra, og fara þvi ekki eftir
þvi, og konum þvi haldiö áfram
að gefa róandi lyf við þessu.
Besta lausnin væri sú, að hin al-
menni læknir tæki þessar konur
til meðferðar á stofum slnum á
þann hátt sem rannsóknir sýna
réttar, en varla llður sá dagur að
ekki komi kona til þeirra með
Heimilisiönadarfélag
íslands
kynnir
Heimilisiönaðarskólann
Dagana 8. — 12. október 1979 verður sýn-
ing og kynning i versluninni íslenskur
Heimilisiðnaður, Hafnarstræti 3, R.
Eftirfarandi námsefni verður kynnt:
TÓVINNA og HALASNÆLDUSPUNI,
mánudaginn 8 október kl. 2-4 e.h.
KNIPL.; þriðjudaginn 9. október kl. 2-4
e.h.
VATTTEPPAGERÐ, miðvikudaginn 10.
október kl. 10-12 f.h.
MYNDVEFNAÐUR, fimmtudaginn 11.
október kl. 2-4 e.h.
KROSSVEFNAÐUR, föstudaginn 12.
október kl. 2-4 e.h.
Auk þessa eru fyrirhuguð námskeið I
eftirfarandi námsefni veturinn ’79-’80.
Vefnaður, vefnaður fyrir börn, hnýtingar,
prjón, baldering, orkering, jólaföndur,
frjáls útsaumur, tuskubrúðugerð, þjóð-
búningasaumur, útskurður.
Skrifstofa Heimilisiðnaðarskólans er að
Laufásvegi 2, simi 15500.
Opin: þriðjudaga kl. 10-12 f.h. og fimmtu-
daga kl. 2-4 e.h.
Skólastjóri
H iiii HHiiin i
Eiginmaður minn og faðir okkar
Jens P. Hallgrímsson
frá Vogi i Skerjafirði
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 9.
október kl. 10.30 fyrir hádegi.
Sigriður (Mafsdóttir Guðbjörn Jensson
Ólafur Jensson Guðfinna Jensdóttir
Ketill Jensson
if-ÞJÓÐLEIKHÚSIB
LEIGUHJALLUR
6. sýning i kvöld kl. 20
Blá aðgangskort gilda
7. sýning miðvikudag kl. 20
STUNDARFRIÐUR
þriðjudag kl. 20
fimmtudag kl. 20
Litla sviðið:
FRÖKEN MARGRÉT
i kvöld kl. 20.30
Næst siðasta sinn.
Miðasala 13.15 — 20. Simi 1-
1200
/@t\ alþýdu-
leikhúsid
Blómarósir
i Lindarbæ
Sunnudag kl. 20.30.
miðvikudag kl. 20.30.
Miðasala kl. 17-19, sýningar-
daga til kl. 20.30. Simi 21971.
sömu kvartanir. Og heimilislækn-
irinn, ef vel er, er sá eini sem get-
ur fylgst með allri fjölskyldunni:
Ef t.d. Jón litli pissar i rúmið
vegna breyttrar hegðunar móö-
urinnar, er þýðingarlitið að senda
hann til sérfræðings, svo tekið sé
dæmi.
Það sem kemur i veg fyrir að
vandamál þetta leysist að fullu,
er sem stendur peningamálin.
Peningaskortur til sérdeilda og til
að senda lækna á námskeið. Staö-
reyndin er sú að með þvi að lækna
þessar konur myndi landið spara
miljónir króna I töpuðum vinnu-
stundum, forða fólki frá slysum,
koma i veg fyrir misþyrmingar á
börnum, og einnig væri i sumum
tilfellum hægt að koma i veg fyrir
skilnaði hjóna, Þetta virðist ekki
vera nægilega ljóst heilbrigöis-
yfirvöldum, sem gjarnan spara á
röngum stöðum, yfirvöldum, þar
sem stór hluti starfsfólks eru
karlmenn.
Að lokum má til gamans (!)
segja frá einni konunni sem
þekkti þetta af eigin raun, og
sagðist vildi óska þess að karl-
menn færu á túr svona einu sinni,
svo þeir myndu skilja I það
minnsta.
— Ætli séu nokkur svona
vandamál á Islandi? —
(Þýtt úr Woman ’79)
81333
DJOÐVIUINN
RIKISSPiTALARNIR
lausar stödur
LANDSSPÍTALINN
Tvær stöður AÐSTOÐARLÆKNA
við Barnaspitala Hringsins eru
lausar til umsóknar. Stöðurnar veit-
ast i 6 mánuði frá 1. desember n.k.
Umsóknir er greini aldur, menntun
og fyrri störf sendist Skrifstofu
rikisspitalanna fyrir 12. nóvember.
Upplýsingar veitir yfirlæknir
Barnaspitala Hringsins i sima 29000.
RÆSTINGASTJÓRI óskast til
starfa við Landspitalann frá 1.
janúar n.k. Æskilegt er að um-
sækjandi hafi húsmæðrakennara-
próf eða sambærilega menntun svo
og reynslu i verkstjórn. Umsóknir
er greini aldur, menntun og fyrri
störf sendist skrifstofu rikis-
spitalanna fyrir 20. nóvember n.k.
Nánari upplýsingar gefur
hjúkrunarforstjóri i síma 29000.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast
nú þegar á skurðdeild Land-
spitalans. Upplýsingar veitir
hjúkrunarforstjóri i sima 29000.
KLEPPSSPÍTALINN
LÆKNARITARI óskast til starfa við
Kleppsspitalann sem fyrst.
Stúdentspróf eða hliðstæð menntun
áskilin ásamt góðri vélritunar-
kunnáttu. Umsóknir er greini aldur,
menntun og fyrri störf sendist Skrif-
stofu rikisspitalanna fyrir 15. októ-
ber. Upplýsingar um starfið gefur
læknafulltrúi i sima 38160.
Reykjavik 7. október 1979.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, SíMl 2900(1
Auglýsið í Þjóðviljanum
’"6 N ■ ■
Norræn meimingarvika 1979
Sunnud. 7. okt. kl. 20:30 Finnski baritónsöngvarinn Jorma
Hynninen syngur lög eftir Vaughn Willi-
ams, Yrjö Kilpinen, Jean Sibelius og Hugo
Wolf. Undirleikari er Ralf Gothóni.
Mánud. 8. okt. kl. 20:30 Birgitte Grimstad skemmtir með visna-
söng (2. tónleikar).
Aðgöngumiðar seldir i Norræna húsinu.
í sýningarsölum: Verk eftir danska listamanninn Carl-Henning
Pedersen. Opið kl. 14:00 til 19:00.
í bókasafni og anddyri: Sýning á myndskreytingum norrænna lista-
manna við ritverk H.C. Andersens.
Verið velkomin
NORRÆNA HÚSIO