Þjóðviljinn - 07.10.1979, Blaðsíða 23
Sunnudagur 7. október 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 23
Umsjón:
Vilborg
Dagbjartsdóttir
Stelpurnar
eru duglegar
að skrifa
Tvær stelpur fá kort
frá Kompunni í þessari
viku. Lilja Sigurðardótt-
ir, Högnastöðum í Hruna-
mannahreppi, sendi rétt
lausnarorð við síðustu
krossgátu og teikningu af
Pétri postula. Ennfremur
sendi hún fallega mynd
af Jesú á krossinum.
Undir krossinum krýpur
María móðir hans grát-
andi. María er í bláum
kjól. Hún spennir greipar
og tárin hrynja yfir hend-
ur hennar. Margir lista-
menn haf a valið sér þetta
þema í myndlist, tónlist
eða skáldskap. Slík upp-
stilling er þá nefnd Mater
dolorosa eða Hin harm-
þrungna móðir.
Guðrún Jóhanna Jóns-
dóttir, 13 ára, Flókagötu
56, Reykjavík sendi rétta
ráðningu á Talnaleik í
siðasta blaði. Guðrún Jó-
hanna hefur í mörg ár
haft samband við Komp-
una og hefur birst eftir
hana margvíslegt efni.
Nú er Guðrún Jóhanna
byrjuð í Hagaskóla, og
vonast Kompan eftir að
fá frá henni fréttir úr
skólanum.
Sagan af
SENOL
„Ertu hamingjusam-
ur?" „Nei, það er éq
ekki."
Senol Barkirkesen, 12
ára gamall tyrkneskur
drengur, svaraði
spurningu blaðamanns
viðdagblaðið Cumhuriet í
Istanbul. Samkeppnin
var haldin í júní 1978. Það
var mikið fjallað um
hana í f jölmiðlum og dag-
blöð og listatímarit birtu
myndir af veggmynd
Senols. Verðlaunin sem
hann fékk voru bók.
Sögu Senols Barkirke-
sen hefði ekki verið veitt
nein athygli ef blaða-
manni frá Cumhuriet,
Aykup Toturoglu, hefði
ekki dottið í hug að for-
vitnast um hann.
„Um hvað var bókin
sem þú fékkst?" spurði
blaðamaðurinn Senol.
„Það veit ég ekki."
„Hvað þá, hefur þú
ekki litið í hana?"
„Ég var aldrei nema 15
daga í skólanum þegar
ég var sjö ára. Svo ég
kann hvorki að lesa né
skrifa."
„Hvers vegna varstu
ekki lengur í skólanum?"
„Ég var nýkominn
hingað úr þorpinu með
pabba og mömmu og
fimm systkinum. Fyrst
létu þau innrita mig í
skólann, en svo tóku þau
mig úr honum, af því að
kennarinn sagði að ég
þyrfti að hafa skólatösku,
stílabók, blýant, reglu-
stiku og strokleður. Við
áttum enga peninga. Það
var þess vegna. Mamma
grét í marga daga, en við
höfðum engin ráð. Pabbi
hefur unnið á götunum í
fimm ár með gamlan
kerruræfil. Ég læri hjá
honum."
„Og núna, hvernig
vegnarþér núna?" spurði
blaðamaðurinn til að fá
meira fram.
„Pabbi er ofsalega
skapillur. Sérstaklega
þegar hann er fullur.
Hann lúber okkur öll.
Mömmu líka. Sjáðu á mér
hausinn, hann er allur í
örum, hann lemur mig
alltaf í hausinn. Ég er svo
hræddur við hann að
stundum þori ég ekki
heim. Ég sting líka af f rá
söluborðinu okkar. Ég
flækist um göturnar. Ég
fer í bíó. Þegar ég er
þreyttur fer ég til ömmu.
Ég reyki pakka á dag og
fæ peninga fyrir sígarett-
um hjá mömmu,
sem vinnur á veitinga-
húsi."
Hann lýsti samkeppn-
inni þannig:
„Einu sinni þegar ég
var að rangla á götunni
kom ung kona til mín í
mannþrönginni. Hún
spurði mig hvort ég kynni
að teikna. Ég svaraði
ekki. Hún fór með mig að
vegg og fékk mér máln-
ingu og pensil. Ég byrjaði
að mála kerruna hans
pabba. í fyrsta skipti á
ævinni teiknaði ég það
sem mér bjó í brjósti. Ég
varð steinhissa þegar þau
sögðu mér að mín mynd
væri sú besta."
Myndin hans Senols var
kvikmynduð af kunnáttu-
fólki og var sýnd upp-
eldisf römuðum og hún
varð umræðuef ni í hópum
menningarvitanna, en
engum datt í hug að
kynna sér aðstæður og
kjör drengsins eða það
hvort hann kynni að lesa
og skrifa. Og meðan
haldið er upp á alþjóðlegt
barnaár, heldur þessi
gáfaði drengur áfram á
braut sem leiðir til af-
brota. Engin tilraun er
gerðtil að hjálpa honum.
Skrítlur
Kennarinn: Hvaða'
tennur taka menn síðast?
Nemandinn: Fölsku
tennurnar.
Kennarinn: Hvað er
það á manninum sem
samsvarar klaufunum á
nautinu?
Nemandinn: Skó-
hlífarnar
Það var einu sinni
kóngur sem átti páfa-
gauk. Kóngurinn ætlaði
að halda veislu og eldhús-
stúlkan gerði búðing en
þá kom páfagaukurinn og
skeit í búðinginn. Þá varð
eldhússtúlkan svo reið að
hún kastaði hníf á hann
svohann varð sköllóttur.
Þegar veislan byrjaði
kom sköllóttur maður í
veisluna. Þá sagði páfa-
gaukurinn: „SkeisJ þú
líka í búðinginn?"
Pétur poduii.
Yærafcwpa. L^mrorL ho*-
qáiunm var Hetbur. Eq
Serér /r|a t«yn<i sf lesú S kossinum
éo^ vona þú /£>frc <r n&nd.
/ær
Siýur^áré.
ffopfíá ú öérum.
flrnes&slu