Þjóðviljinn - 28.06.1980, Side 3
Helgin 28.-29. júnl 1980. WÓÐVILJINN — SÍÐA 3
6-7000 manns hafa kosiö utankjörfundar í
Reykjavík:
Svipaður fjöldi
og árið 1978
„Þetta er óvanalega rólegt og
liklega hefur aldrei veriö jafn Iftil
örtröf) hér á föstudegi fyrir kjör-
dag og nú”, sagði Jónas
Gústavsson, borgarfógeti, I
gær, en hann hefur yfirumsjón
SÍB átelur
seinagang
Framkvæmdastjórn,
samninganefnd og baknefnd
Sambands byggingamanna átaldi
á fundi sinum i sl. viku seinagang
i samningaviðræðunum og hvatti
aðildarfélög til að afla verkfalls-
heimildar. „Ef samningar drag-
ast enn á langinn eru verkalýös-
samtökin neydd til að gripa til
þeirra aögerða sem knýja á um
lausn sem launafólk getur sætt
sig við,” segir I ályktun
fundarins.
Hrapaði við
Fnjóská
Laxveiðimaöur á sjötugs aldri
fannst látinn við Fnjóská i fyrra-
dag. Að sögn lögreglunnar á
Húsavík hafði maöurinn hrapað I
gili við ána og voru áverkar á
likinu er að var komið. Ekki er þó
fullvfst hver dánarorsökin var.
Nafn mannsins er Gunnar Arni
Sigþórsson til heimilis að Norður-
götu 41 á Akureyri. Hann var að
veiðum með syni sinum en leiöir
þeirra höfðu skilist um stund.
með utankjörfundarkosningunni I
Reykjavik.
brátt fyrir rólegheitin i gær
hafa álika margir kosið utankjör-
fundar og i þingkosningunum 1978
eða ríflega 6000 manns. I dag er
utankjörfundarkosningin I
Miðbæjarskólanum opin frá kl.
10-18 og 20-22 og á morgun,
kjördag, geta utanbæjarmenn
kosið þar frá kl. 14-18.
1 forsetakosningunum 1968 vari
kjörsóknin óvenjumikil eða 91%,
og ekki ætti hún aö minnka við
það aö tala frambjóðenda nú er
tvöföld. Jónas Gústavsson sagði
aðómögulegt væri að bera saman
utankjörfundarkosninguna nú og
i siðustu forsetakosningum, þar
sem mikil aukning hefur orðið á
kjorskránni vegna lækkunar
kosningaaldurs. Um 144.000
manns eru á kjörskrá á landinu
öllu. — Ai
Til varnar
frelsinu
Ct er komin bókin Til varnar
frelsinu eftir Birgi Kjaran hag-
fræöing, sem var lengi einn
áhrifamesti stjórnmálaforingi
stærsta flokksins, Sjálfstæðis-
flokksins, og skýrði stefnu hans I
ræðu og riti. Bókin er greinasafn
eftir hann og gefin út I tilefni
fimmtíu ára afmælis Sambands
ungra Sjálfstæðismanna, Jón
Magnússon lögfræðingur, for-
maður Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna, skrifar formála
hennar, en Hannes Hólmsteinn
Gissurarson sagnfræðingur sá
um útgáfuna!
Höföabakkanum þrýst gegnum bygginganefnd
Kratar og íhald
samþykkja brúna
Ódýrari valkostum hafnað með skömmum og
ásökunum um skemmdarstarfsemi
Fulltrúi Alþýðuflokksins I
by gginganefnd myndaði s.l.
fimmtudag meirihluta I nefndinni
með fulltrúum Sjálfstæðisflokks-
ins og samþykkti gegn atkvæðum
Alþýðubandaiagsins og Fram-
sóknarflokksins byggingaleyfi
fyrir hina umdeildu Höfðabakka-
brú. Má þvl búast við aö verkið
verði boöið út innan skamms. 1
endaniegri gerð verður brúin
svipuð og borgarstjórn sam-
þykkti I vor, tvær akreinar aö við-
bættri eins metra breikkun fyrir
göngu- og hjólreiðastig.
Af þeim gögnum sem lögð voru
fram á bygginganefndarfundin-
um á fimmtudag er ljóst að ýmis-
legthefur gengið á i kerfinu und-
anfama mánuði, þótt ekki hafi
það fariö hátt. 1 bókun saka tveir
bygginganefndarmenn Alþýðu-
bandalagsins borgarverkfræðing,
gatnamálastjóra og yfirverk-
fræðing gatnadeildar um að hafa
reynt aö stinga gögnum undir stól
og leyna nýjum tillögum verk-
fræöistofunnar Hönnunar hf fyrir
bygginganefnd.
Sem kunnugt er samþykkti
borgarstjórn I vor að brúin skyldi
byggð I samræmi við gamla
skipulagiö en þó skyldi hún verða
mjórri og vegurinn norðan henn-
ar hannaöur upp á nýtt. Verk-
fræöifyrirtækið Hönnun hf sem
faliö var verkið, kynnti I april-
mánuði tvo nýja og ódýrari val-
kosti fyrir gatnadeild borgarinn-
ar, — valkosti sem upp komu
vegna breyttra forsendna varð-
andi, umferðarmagn, aksturs-
Magnús Skúlason, form. bygginganefndar:
Brúin metnaðarmál
verkfræðinganna
„Málið bar undariega að bygg-
inganefnd þar sem borgarstjórn
var búin að samþykkja brúna áð-
ur en nefndin fjallaöi um það,”
sagði Magnús Skúlason, formað-
ur bygginganefndar i gær. „Það
stafaöi af þvl að borgarverkfræö-
ingur þráaðist við að viöurkenna
að brýr heyri undir bygginga-
nefnd og þvi fékk nefndin ekki
málið til umfjöllunar fyrr en aö
undangengnum úrskurði félags-
málaráðuneytis.”
„Þegar málið kemur siðan til
nefndarinnar hlýtur hún aö taka
þaö upp aö nýju eins og öll mál og
skoða það ofan I kjölinn. Þá ber
það hins vegar til að verkfræöing-
ar borgarinnar ætla sér greini-
lega að stinga nýjum upplýsing-
um og tillögum hönnunarfyrir-
tækisins undir stól. Það er engu
likara en það sé þessum sömu
mönnum eitthvað ómetanlegt
metnaöarmál að Höföabakkabrú-
in verði byggð I upprunalegri
mynd þrátt fyrir að bent hafi ver-
ið á að brúna megi laga og tillög-
ur komi fram um nýjar lausnir
sem bjóða upp á gifurlegan
sparnað. öllu sliku er hafnaö.
Brúin skal byggð hvað sem það
kostar.”
„Þaö er ljóst að fyrstu hug-
myndir Hönnunar hf voru litt
unnar” sagöi Magnús ennfremur,
„en verkfræðingar borgarinnar
finreiknuðu þær og dæmdu óhæf-
ar án þess að gefa kost á frekari
úrvinnslu og án þess að vilja taka
við nýjum gögnum frá Hönnun hf.
Það er furöulegt að ætla sér að
leyna hlutum sem þessum fyrir
opinberri nefnd eins og bygginga-
nefnd og sé það rétt sem þeir
halda fram aö tillögur Hönnunar
séu óhæfar þá hlýtur að mega
hafna þeim fyrir opnum tjöldum
á þeim forsendum. Eg hef hins
vegar ekki trú á þvi aö fyrirtæki á
borð við Hönnunn hf. bjóði upp á
blindbeygju á blindhæð ög þekki
ekkert til verkfræðihönnunar.”
—AI.
Reykjavík kaupir
þrjá Ikarusvagna
Borgarráð samþykkti s.l.
þriðjudag að kaupa þrjá Ikarus-
strætisvagna enda verði greiðslu-
skilmáiar hinir sömu og greindi I
tilboði Ungverjanna I 20 vagna,
sem Reykjavlkurborg bauö út á
sinum tlma. Voru kaupin sam-
þykkt með þremur atkvæðum
fulltrúa meirihlutans en tveir
fulltrúar Sjálfstæöisflokksins I
borgarráði greiddi atkvæði gegn
þeim.
Að sögn Siguröar Magnús-
sonar, stjórnarformanns Sam-
afls, sem flytur vagnana inn, eru
þeir væntanlegir á öðrum árs-
fjóröungi 1981 ásamt þremur
vögnum sem Kópavogsbær hefur
ákveðið að kaupa. Þá munu
Ikaruskaup vera til skoðunar hjá
Akureyrarbæ, sem hefur sam-
þykkt að endurnýja vagnakostinn
nyrðra.
t júlimánuði koma til landsins
tvær rútur af lkarusgerð, sem
Vestfjaröarleið og aðili i Hóp-
ferðamiðstöðinni hafa fest kaup
á.
—AI
hraöa og breidd brúarinnar. Ann-
ars vegar bendir fyrirtækiö á að
leggja megi veginn á fyllingu yfir
daiinn I staö brúar og gæti slik
fylling á sinum tima tekiö viö
hlutverki Arbæjarstlflu. Hins
vegar aö hafa megi vegarstæöiö á
lágri fyllingu rétt neöan við stlfl-
una, sem sé mun ódýrari lausn en
brúin.
Þegar bygginganefnd fjallaði
um málið I fyrsta skipti I mal-
mánuði aö undangengnum úr-
skuröi félagsmálaráðuneytisins
voru henni ekki kynntar þessar
hugmyndir Höimunar hf og ekki
heldur á fundi nefndarinnar 12.
júní. Þá var umfjöllun um brúna
frestaö að beiðni borgarstjóra til
þess að allir aðilar gætu kynnt sér
tillögumar og þær útfæröar frek-
ar fyrir næsta fund nefndarinnar
26. júni.
23. júnl höfnuöu gatnamála-
stjöri og yfirverkfræðingur hans
hins vegar tillögum Hönnunar hf
án þess að hafa kynnt þær bygg-
inganefnd. A fundinum á fimmtu-
dag lágu þær þó fyrir enda hafði
formaður bygginganefndar neit-
að að afgreiða málið nema svo
væri. Þá fylgdi þeim rætið
skammarbréf frá gatnamála-
stjdra og yfirverkfræðingi gatna-
deildar þar sem verkfræðiskrif-
stofan Hönnun hf er sökuð um
hreina skemmdarstarfsemi. Seg-
ir I bréfinu að tillögurnar séu
stórhættulegar út frá umferöar-
sjónarmiði, lega vegarins óhæf
frá náttúruverndarsjónarmiði og
furðuleg frá verktæknisjónarmið-
um.
1 bókun Magnúsar Skúlasonar
og Gunnars H. Gunnarssonar
segir að þaö veki furðu að nýjar
og ódýrari hugmyndir aö gerð
brúarinnar eigi ekki greiöan að-
gang að bygginganefnd og aö
ámælisvert sé að saka verkfræð-
inga Hönnunar hf. um skemmd-
arstarfsemi. Fyrirtækið hafi að-
eins gert skyldu sina með þvi að
benda borgaryfirvöldum á at-
hyglisverðar og mun ódýrari
lausnir. _ai.
Framkvœmdastjóri
Hönnunar hf:
Hlutverkiö
að benda
á leiðir til
sparnaðar
„Þetta er ekki fallegur lestur,”
sagði Finnur Jónsson, verk-
fræðingur, framkvæmdastjóri
Hönnunar hf. þegar Þjóðviljinn
bar bréf gatnadeildar undir hann
i gær. Hann haföi ekki séð bréfið
og vildi ekki tjá sig um efni þess
að svo búnu.
„Við höfum ekki haldið fram
neinum skoðunum I þessu máli,”
sagöi Finnur. „Við erum ráðgjaf-
ar viö brúar- og vegargerðina og
viö höfum einungis bent á leið
sem við teljum þess viröi aö
skoða nánar. Það er hlutverk ráö-
gjafarfyrirtækja að vaka yfir
verkinu I heild og benda á leiðir
sem betur mættu fara og þaö
gerum við, einkum ef viö teljum
aö með þvl megi spara fé. Þaö er
hins vegar eiganda mannviritis-
ins að taka ákvöröun um hvort
sllkir hlutir eru skoðaðir nánar
eöa ekki, og ákveða hvort hann
vill borga meira fyrir mannvirki
sem hann telur henta sér betur.”
—AI