Þjóðviljinn - 20.09.1980, Síða 29
ttelgin 20.— 21. september 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 29
Lágmyndir í tré og málm
Jónas Guðvaröarson opnar I
dag sýningu i Norræna húsinu og
sýnir 72 myndverk, sem unnin er
á s.l. tveimur árum. Flest eru þau
lágmyndir, unnar í tré og málm.
Listaverkinu eru til sölu.
Jónas er fæddur á Sauðárkróki
1932, en hefur verið búsettur f
Hafnarfirði lengstaf. Hann stund
aði nám i Myndlistaskólanum I
Reykjavik 1963-68 og á Spáni 1968-
70. Hann hefur áður haldiö fjórar
einkasýningar, þaraf eina á
Mallorca, og tekið þátt i sam-
sýningum bæði hér heima og á
Spáni. —ih
—I----—...........
Jóhanna Bogadóttir með eina af myndum sinum.
List á Landspítala
Jóhanna Bogadóttir sýnir um Myndirnar eru allar til sölu.
þessar mundir 14 grafikmyndir Sýningin verður opin til 5. októ-
og 10 oliumálverk á göngum ber.
Landspitalans. _ih
Matur er mannsins böl
Nú um helgina hefjast i Nýja
biói sýningar á bandarísku kvik-
myndinni Matargat (Fatso) eftir
Anne Bancroft. Fjallar hún um
mann sem kann sér ekki hóf I áti,
og er sögð vera allt I senn:
gamanmynd, drama og ástar-
saga.
Anne Bancroft er i hópi þekkt-
ustu kvikmyndaleikara Banda-
rikjanna, en þetta mun vera
fyrsta myndin sem hún stjórnar.
Hún er einnig höfundur handrits
og leikur eitt hlutverkið, systur
matargatsins, sem leikið er af
Dom deLuise.
Myndin gerist i itölsku hverfi I
New York, þar sem Anne Ban-
croft er fædd og uppalin. óvenju
margar konur komu við sögu i
gerö þessarar myndar, t.d. er
kvikmyndatökumaöurinn kona,
Brianne Murphy, og mun þetta
vera i fyrsta sinn sem kona fær aö
stjórna kvikmyndatöku hjá stóru
Hollywood-fyrirtæki. —ih
Bob Magnússon gestur
Jassvakningar
Bob Magnússon heitir rúmlega
þritugur bassaleikari, bandarisk-
ur en af Islenskum ættum. Hann
veröur gestur Jazzvakningar á 5
ára afmæli félagsins og leikur
með íslenskum jazzmönnum á
klúbbkvöldum Jazzvakningar
23.—25. september. Veröa þessi
jazzkvöld haldin i Glæsibæ
þriðjudaginn 23., og á Hótel Loft-
leiðum miðvikudaginn 24. og
fimmtudaginn 25. september.
Foreldrar Bobs og systkin eru
tónlistarfólk og sjálfur hefur hann
leikiö á hljóðfæri frá blautu
barnsbeini. Hann hefur leikið
meö mörgum frægum jazz-
mönnum, m.a. söngkonunni Söru
Vaugham. Hann sendi nýlega frá
sér sina fyrstu sólóplötu og vinnur
að undirbúningi þeirrar næstu.
Þeir sem leika með Bob á
tónleikunum er: Guðmundur
Ingólfsson (pianó), Guömundur
Steingrimsson (trommur), Viðar
Alfreösson (trompet), og Rúnar
Georgsson (saxófónn). A efnis-
skránni veröa lög eftir Bob
Mzgnússon auk Islenskra þjóö-
laga I útsetningu Gunnars Reynis
Sveinssonar. Ætlunin er að hljóð-
rita tónleikana fyrir útvarp og
gera sjónvarpsþátt, auk þess sem
gefin verður út plata til minja um
komu Bobs Magnússonar á þessa
5 ára afmælishátið Jazzvakning-
ar. — ih
Bassaleikarinn Bob Magnússon
Lionskaffi
í Kópaseli
Á sunnudaginn veröur réttaö i
Lækjarbotnarétt og þá mun
Lionsklúbbur Kópavogs að venju
gangast fyrirkaffisölu I Kópaseli,
bamaheimilinu I Lækjarbotnum.
Hefst kaffisalan klukkan 14 á
sunnudaginn.
Allur ágóði af kaffisölunni
rennur til Minningasjóðs Brynj-
úlfs Dagssonar læknis, en hann
styrkir böm til sumardvalar.
Breiðabliks-
dagur
Vatnslitamyndir
í Ásmundarsal
Hinn árlegi Breiöabliksdagur
verður haldinn á Kópavogsvelli i
dag, laugardag, og hefst kl. 13.00.
Keppt verður I handknattleik,
knattspyrnu, frjálsum Iþróttum
ogblaki. Kl. 14 leikur Hornaflokk-
ur Kópavogs undir stjórn Björns
Guðjónssonar, og kl. 14.15 hefst
knattspyrnuleikur bæjarstjórnar
Kópavogs gegn stjórn Breiða-
bliks. Kaffi verður selt á Blika-
stöðum frá kl. 15.
Kristján Jón Guönason opnar I
dag kl. 2. sýningu á 37 vatnslita-
myndum I Asmundarsal við
Freyjugötu.
Kristján er fæddur 1943 og nam
viö Myndlista-og handiðaskólann
á árunum 1961-64. Siöan fór hann
til Osló og stundaði nám viö
Listiðnaöarskólann þar 1965-67.
Hann hefur sýnt á Ungdoms-
biennalen i Osló 1970 og nokkrum
sinnum á haustsýningum FIM.
Einnig sýndi hann á Mokka 1978.
Myndirnar sem hann sýnir
núna eru figúrativar og með
ýmiskonar „mótiv” — báta, hús
ofl. Myndirnar eru til sölu.
Sýningin veröur opin til 28. sept.,
kl.2-10umhelgar og kl. 4-10 virka
daga. —ih
KINVERSKIR
TÓNLEIKAR
Hljóðfæraleikarar úr,,Hinni
þjóðlegu kínversku hljómsveit”
eru komnir hingað til lands ásamt
þjóölagasöngkonu, á vegum
Karlakórs Reykjavikur og Kfn-
versk-fslenska menningarfélags-
ins, og halda fyrstu tónleika sfna
á morgun, sunnudag, f Selfossbfói
kl. 20.30. t næstu viku halda þeir
svo tvenna tónleika I Reykjavfk: I
Austurbæjarbfói þriðjudag 23.
sept. kl. 19, og f Bústaöakirkju
fimmtudag kl. 20.30.
„Hin þjóðlega kinverska hljóm-
sveit” fæst einkum viö túlkun á
kinverskri og erlendri tónlist á
heföbundin, kinversk hljóðfæri.
Er þetta i fyrsta sinn sem islensk-
um tónlistarunnendum gefst
tækifæri til aö hlusta á tónlist
leikna á kinversk þjóðarhljóö-
færi, sem sum eiga sér meira en
3500 ára sögu.
Hljómsveitin hefur hlotið
margvislega viöurkenningu á er-
lendum tónlistarhátiðum, og sl.
ár vann hún fyrstu verðlaun i tón-
listarkeppni, sem haldin var i til-
efni 30 ára afmælis Kinverska al-
þýðulýðveldisins. _ih
Hér er einn hljómsveitarmanna,
Liu Fengshan, að leika á Dizi -
flautu.
KOBENHAVNS
STR Y GEK V ARTET
heldur tónleika i Norræna húsinu
mánudaginn 22. september kl. 20.30.
Á efnisskrá verða verk eftir W.A. Mozart (K. 590), Niels W.
Gade og L. v. Beethoven („Heiliger Dankgesang”, op. 132). Að-
göngumiðar seldir i kaffistofu hússins og við innganginn.
Verið velkomin NORRÆNA HUSID