Þjóðviljinn - 31.12.1980, Blaðsíða 3
Miövikudagur 31. desember 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Patrick Gervasoni situr nú i
Vesterfangelsinu i Kaupmanna-
höfn og biður þess sem verða
vill. Þegar flugvélin sem flutti
hann utan var lent, tók við hon-
um hópur danskra lögreglu-
þjóna og flutti hann til yfir-
heyrslu h já útlendingae ftirlitinu.
Þjóðviljinn náði i gær taii af
lögmanni Gervasoni i Dan-
mörku, Ebbe Holm. Hann var
þá nýkominn frá yfirheyrslun-
um og hafði eftirfarandi að
segja:
„Við komuna til Kastrup
flugvallar var Patrick Gerva-
soni afhentur dönskum yfirvöld-
um og fluttur til yfirheyrslu hjá
útlendingaeftirlitinu, þar sem
hann hafði ekki tilskilin skilriki.
Eftir yfirheyrsluna yfir Gerva-
soni, sem farið hafði fram á
dvalarleyfi i Danmörku, ákváðu
yfirvöld að setja hann i gæslu-
varðhald i þrjá sólarhringa, en
eftir þann tima verður hann
Gervasoni var settur beint inn i bfl ásamt fulltrúum islenska útlendingaeftirlitsins. Eftir yfirheyrslur var hann dæmdur I gæsiuvaröhald, og
biður þar þess sem verða vill. Ljósm: —gel.
r
Obliöar móttökur í Kaupmannahöfn:
Gervasoni í Vesterfangelsinu
leiddur fyrir dómara sem
ákveður hvort varðhaldið
verður framlengt í samræmi við
lög þau sem gilda um útlend-
inga, gr. 8. Gervasoni hefur nú
verið fluttur í Vesterfangelsið
(sem er eitt hið rammgerðasta i
allri Danmörku og hýsir helstu
stórglæpamenn Danaveldis.
Meðan á gæsluvarðhaldinu
stendur má hann fá heimsóknir
án nokkurra skilyrða.
Gervasoni hefur rökstutt um-
sókn sina um hæli með þvi, að
pólitiskar og mannúðlegar
ástæður valdi þvi að hann geti
Gervasoni við komuna til Kaupmannahafnar. Þar beiö hans hópur lög-
regluþjóna sem fluttu hann beint til yfirheyrslu. Ljósm: gel.
ekki snúið aftur til Frakklands,
þvi eigi að lita á hann sem póli-
tiskan flóttamann.”
Lögmaðurinn Ebbe Holm
bætti þvi við að hann hefði
gengið á fund starfsmanna
dómsmálaráðuneytisins danska
til að kanna hvorteitthvert sam-
komulag hefði verið gert milli
islenskra og danskra yfirvalda.
Ráðuneytismenn neituðu þvi
alveg að nokkuð. slikt væri til
staðar.
Ebbe Holm sagði einnig að
þær viðtökur, sem Gervasoni
hefði fengið i Kaupmannahöfn
væru ekkert óvenjulegar, hið
eina óvenjulega væri að honum
hefði ekki verið visað úr landi
þegar i stað eins og lög gera ráð
fyrir.
Það sem næst gerist er það að
lögregluyfirvöld og dómsmála-
ráðuneytið danska munu fjalla
um mál Gervasoni, en á föstu-
dag verður svo sem áður segir
tekin ákvörðun um frekari fang-
elsisvist, m.a. með tillitit til
þess hvort hætta sé á að hann
flýji til annarra landa eins og
lögmaðurinn komst að orði.
— ká
Sendum landsmönnum
bestu óskir um
komandi
ár
meö þökk fyrir þaö liöna
Alla leið með
EIMSKIP
SIMI 27100
*
A