Þjóðviljinn - 31.12.1980, Blaðsíða 5
MiOvikudagur 31. desember 1980 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 5
Helgi Ólafsson tekur viöfarandbikarþeim er fylgir sæmdarheitinu tþróttamaður Kópavogs 1980.
/
Helgi Olafsson íþrótta-
maður Kópavogs 1980
t gær var skákmaðurinn kunni,
Helgi ólafsson, kjörinn tþrótta-
maður Kópavogs 1980. Það er
Rotary-klúbbur Kópavogs sem
stendur að þessu kjöri árlega og
fylgir sæmdarheitinu veglegur
farandbikar.
Helgi er lesendum Þjv. góð-
kunnur fyrir skrif sin i blaðið um
skák og aðrar iþróttir á undan-
förnum misserum. Hann hefurnú
um hrið einnig ritstýrt timaritinu
Skák.
Afrekaferill Helga Ólafssonar i
skákinni nær aftur til ársins 1970
þegar hann varð Unglingaskák-
meistari Islands. Siðan hefur
hver sigurinn rekið annan og nú
siðast keppti hann fyrir tslands
hönd á 'Olympiuskákmótinu, sem
fram fór á Möltu. Hann ku einnig
vera liðtækur golfmaður.
Þjóðviljinn óskar Helga Ólafs-
syni til hamingju með vegsemd-
ina.
Lausráðnir dagskrárgerðarmenn:
Vilja semja við Ríkis-
útvarpið um gjaldskrá
Félag lausráðinna dagskrár-
gerðarmanna hefur óskað
viðræðna við Rikisútvarpið um
gjaldskrá fyrir dagskrárþætti.
Félagið hefur ekki samningsrétt
fyrir félagsmenn sina, en stefnir
að þvi að ná honum i slnar hend-
ur. Hingað tii hefur Rikisútvarpið
einhliða ákveðið laun þeirra sem
sjá um hina ýmsu þætti og hefur
oft þótt gæta misræmis I þeim
ákvörðunum.
„Þeir eru farnir að ræða við
okkur,” sagði Borgþór S.
Kjærnested formaður Félags
lausráðinna dagskrárgerðar-
manna i gær. „I byrjun desember
fengum við bréf frá Rikisútvarp-
inu þar sem fa rið var fram á að fá
vitneskju um þann lögformlega
grundvöll sem við byggðum
okkar félagsskap á, og við höfum
svarað þvi.”
Borgþór sagði að sér fyndist þvi
votta fyrir heldur betri
viðbrögðum af hálfu útvarpsins
en áður. Strax upp Ur áramótum
verður haldinn stjdrnarfundur i
félaginu og þar verður staðan
metin, en félagið hafði miðað við
að gjaldskrá þess tæki einhliða
gildi frá áramótum, ef engin svör
hefðu þá borist frá forráöamönn-
um útvarpsins. Bréf þess efnis
var sent i október. Þar var tekið
fram, að félagið liti svo á að
gjaldskrá þess gilti frá 1. janúar
1981, hafi Rikisútvarpið ekkifarið
fram á viðræöur fyrir áramót.
„Ut af fyrir sig stendur þessi
yfirlýsing ennþá, vegna þess að
þeir hafa ekki beðið um form-
legar Viöræður við okkur,” sagöi
Borgþór. „En mér finnst að þeir
Framhald á bls. 27
Hiö íslenska prentarafélag
mun um þessi áramót sameinast tveimur öðrum
stéttarfélögum oglýkur þar með starfsferli sinumi núverandi
mynd, eftir nær 84 ára baráttu i fylkingarbrjósti
islenskrar verkalýðshreyfingar.
Við þessi tímamót vill stjórn félagsins þakka góða
samvinnu á undangengnum árum og óskar félags-
mönnum og velunnurum þess farsældar á komandi árum.
Stjóm HÍP
tn
REYKJAVÍK, 23. desember 1980
AUGLÝSING
umút-og innflutning
peningaseðla og myntar
Með heimild í 9. gr. laga nr. 63 frá
31. maí 1979 eru hér með settar tæmandi reglur
um útflutning og innflutning peningaseðla og
hvers konar myntar, sem eru eða hafa verið
löglegur gjaldmiðill og látinn í umferð.
r-
Islenskir peningar
Innlendum og erlendum ferðamönnum
er heimilt, við komu eða brottför frá landinu
að taka með sér allt að 500 nýjar krónur eða allt
að 50.000 gamlar krónur, þó ekki í seðlum að
verðgildi yfir 50 nýjar krónur í gjaldmiðli, er
tekur gildi 1. janúar 1981 annars vegar og hins
vegar ekki hærri seðla en 1000 gamlar krónur
að verðgildi í þeim gjaldmiðli, sem nú er í
umferð.
Erlendir peningar
Ferðamenn búsettir hérlendis mega flytja
með sér út úr og inn í landið þann erlenda
gjaldeyri, sem þeir hafa lögleg umráð yfir.
Ferðamenn búsettir erlendis mega
flytja jafnmikla erlenda peninga út úr landinu
og þeir fluttu inn við komu til landsins að frá-
dregnum þeim dvalarkostnaði, sem þeir hafa
haft hér.
Gjaldeyrisbankar, svo og aðrir aðilar,
sem löglegar heimildir hafa, mega flytja
erlenda peninga inn og út úr landinu.
Reglur þessar gilda frá og með 1. janúar
1981, og koma í stað samsvarandi hluta
auglýsingar bankans frá 6. september 1979, er
verður áfram í gildi að öðru leyti.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
V
Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi
Gestur Sveinsson
lést 29. desember.
Útförin auglýst síðar.
Guðrún Valdimarsdóttir
Svavar Gestsson Jónlna Benediktsdóttir
Sveinn Kjartan Gestsson Þóra Stella Guðjónsdóttir
Itelga Margrét Gestsdóttir Hilmar Kristinsson
Málfriður Gestsdóttir Karl Heiðarsson
Valdinxar Gestsson Margrét Sigmundsdóttir
Guðný Dóra Gestsdóttir
Kristln Guðrún Gestsdóttir
Kveðjuathöfn um
Sigurð Tómasson úrsmið
Barónsstíg 51
sem lést 23. des. fer fram i Frikirkjunni i Reykjavik
laugardaginn 3. jan. kl. 10.30. Jarðsett verður frá Gaul-
verjabæjarkirkju kl. 14 sama dag.
F. h. vandamanna
Ingjaldur Tómasson