Þjóðviljinn - 31.12.1980, Page 11

Þjóðviljinn - 31.12.1980, Page 11
Miðvikudagur 31. desember 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11. reglunni var óðar sigað á þá og siðan hófst bylting á staðnum og var verbiíðin svo gott sem lögð i rúst. Þótti blaðamönnum Þjóð- viljans þetta vel af sér vikið. Með hnifinn í bakinu I mars og april fóru sjómenn á Vestfjörðum i verkfall og varð það til þess að frystihiisum vár lokað og hundruð verkafólks þar með atvinnulaus. KarvelPálma- sonlékeinleik i verkfallinu — eins og honum er lagið — og samdi I Bolungarvik. Þann samning kallaði Gunnar Þórðarson for- maður Sjómannafélags ísa- fjarðar rytingsstungu i bakið á þeim sem staðið höfðu i verkfalli vikum saman til að knýja fram viðunandi samninga. Pétur Sigurðsson forseti Alþýðusam- bands Vestfjarða tók i sama streng. Liklega hafa þeir sem stóðu með hnifinn i bakinu ekki greitt Karvel atkvæði á ASt- þinginu siðar á árinu. Allra kerlinga elst Hinn 15. april sló Halldóra Bjarnadóttir á Blönduósi öil is- lensk aldursmet er hún varð 106 ára, tveggja mánaða og 13 daga gömul og þar með eldri en Maria heitin Andrésdóttir i Stykkis- hólmi er hún dó. Svo magnaður er aldur Halidóru orðinn að tölv- urnar ráða engan veginn við hana. Þær halda nefnilega að hún sé fædd árið 1973 en ekki 1873 og vilja ólmar kenna henni að li'ta til hægri og vinstri áður en hún gengur yfir götu. Hún hefur nefni- lega verið tekin i Umferðarskól- ann og liklega hefur hún nú verið boðuð i 7 ára bekk. Framkvæmdastjóri varð uppvís Kjamorkuvopnamálið á Mið- nesheiði og Jan Mayenmálið voru heit deilumál á vormánuðum. Ekkert sló þó forsetakosning- amar Ut i' hugum manna. Voru þar mörg myrkraverk framin og komu sum fram i dagsljósið eins og stuldur framkvæmdastjóra Vikunnar á myndum af Alberti Guðmundssyni. Fór allt i háaloft á þvisa blaði. Eftir að fram- kvæmdastjórinn varð uppvfs greip hann fyrst til þess ráðs að reka ljósmyndarann, en flæma siðan ritstjórann úr starfi. En allt kom fyrir ekki. Albert var ekki kjörinn. Eitt laufblað I byrjun júni' hófst Listahátið með miklu fjöri og áttu spænsku listamennirnir Els Comediants ekki minnstan þátt i þvi þar sem þeir fóru með pipuleik, trumbu- slætti og trúðslátum um borg og bý. Umdeildasta atriðið var hins vegar dans Japanans Tanaka, sem iklæddist einungis einu lauf- blaði sem sivafið var um ónefnt liffæri. Dauði prinsessu Flugleiðir voru sifellt i fréttum — með vafasömum hætti. Þeir komu m.a. i veg fyrir að Pavar- otti, tenórsöngvarinn frægi, kæmist á Listahátið meö vélum félagsins með þvi að fella niður flug sem hann átti pantaö. Varð aö panta einkaþotu undir söngv- arann. Um svipað leyti i júni komust Flugleiðir inn á gafl i út- varpsráði og tókst að koma til leiðar banni viö sýningu kvik- myndarinnar Dauði Prinsessu sem forráðamenn félagsins töldu að gæti skaðað viðskiptahags- muni vegna pilagrimaflugs. Hver er þessi kona? Sunnudaginn 29. júni var nýr forseti lslands kjörinn og var sá einstæð móðir og friöarsinni. Kosningamar vöktu athygli um allan heim og m.a. spurðu Kin- verjar hver annan: Hver er þessi kona: þar af gosi. Gosiði Heklu tæmdist lika fljotlega og hafði þá valdið töluverðum usla i afréttum. Fárið byrjaði í Grundaifirði Þegar liða tök að hausti gekk faraldur i grunnskólum viöa um land. Sums staðar vildu foreldrar og nemendur sverja af sér kennara og skólastjóra. en annars staðar vildu skólastjórar reka kennara gegn mótmælum nem- enda og foreldra. Fárið byrjaði i Grundarfirði, breiddist svo til Grindavikur, hljðp þaðan i Bolungarvik,og Guð veit hvar það endaði, en fáir botnuðu i þessum ósköpum. Krummi visaði veginn 31. ágúst veitti Hlynur Halldórsson bóndi i Miðhúsum við Egilsstaðakauptún þvi athygli aö krummi var aö góna eitthvað niður i gangstéttargrunn sem bóndi hafði verið að grafa. Þar sem hrafnar eru tildurrófur miklar fór Hlynur aö athuga málið og kom þá i ljós silfursjóður vænn frá vikingaöld, sá stærsti sem fundist hefur. Segið svo að krummi sé til einskis gagns (hér er ekki átt við Hrafn Gunn- laugsson). Fyrirtæki ársins Fyrirtæki ársins var örugglega Flugleiðir. Þær voru stöðugt i fréttum og gekk á ýmsu. Var málið að lokum orðið svo flækt og marghliða og yfirlýsingar ráða- manna orðnar svo sundurleitar og ósamhljóða, aö venjulegur Jón út í bæ gafst upp að fylgjast með. Hitt var þó vist öllum ljóst að fyrirtækið var á hvinandi kúp- unni. Tréhestar í dóms- málaráðuneytinu 1 byrjun september kom til landsins Patrick Gervasoni og bað um hæli sem pólitiskur flótta- maður. Hafði hann neitað að gegna herþjónustu i Frakklandi. Datt engum annað i hug en að hann fengi hér fúslega hæli hjá „vopnlausum” stafkörlum og kotungalýð svo langt norður i Dumbshöfum. Minntust menn ýmissa hrakningsmanna, allt frá Ingólfi Arnarsyni, sem hingað hafði ýmist rekið upp eða höfðu flúið hingað. 1 dómsmálaráðu- neytinu vildi hins vegar svo illa til að sat lítill maður með tréhesta- stóð sitt og var hann eineygur og heyrnarlaus. Varð ekki máli við hann komið vegna stóðláta og rann mikið óhreint vatn til sjávar i þessu máli áður en árið var allt. Maður tekinn af lifi 1 septembermánuði varhaldini Reykjavik samkoma sem nefnd- ist Rokk gegn her. Það vakti einkum athygli að herflokkur með alvæpni fór um götur borgarinnarnokkra daga á undan til að vekja athygli á tilvist her- mennskunnar og þessari sam- komu. A Skólavöröuholti var maður tekinn af lifi. Úti á þekju Mánudaginn 29. september bar óvenjulegan gest að garði tslendinga. Þá kom þýski bila- salinn Wagner til landsins og stóð á þaki flugvélar sinnar. Hugðist hann fljúga svona úti á þekju yfir Atlantshafið og verða frægur fyrirbragðið. Ekki er vitað hvort honum tókst að verða frægur, en til Ameriku komst hann. Valhöll á nauð- ungaruppboði Valdataflið vakti mikla athygli á árinu og er þar átt við baráttuna llábókmenntalegar umræður fóru fram um söngtexta Bubba Morthens. (Ljósm.: Ella) milli Gunnarsmanna og Geirs- manna í Sjálfstæöisflokknum, en um þau kom út heil bók sem fletti ofan af allskonar ráðabruggi innan þessa stærsta flokks þjóðarinnar á undanförnum árum. Svo var dregið af ihaldinu við klofninginn að sjálf Valhóll við Bolholt var auglýst á nauðungaruppboöi vegna ógreiddra fasteignagjalda. Ekki er hún þó enn farin undir hamarinrven menn biða spenntir næsta árs. Eigi skal gráta Miklar sviptingar urðu á flokksþingi Alþýðuflokksins um mánaðamótin október / nóvem- ber enda þar samankomið mikið skitapakk svo að vitnað sé i orð Vilmundar Gylfasonar. Benedikt Gröndal vár hrakinn frá völdum oglétsér það lynd^ Vilmundur vildi vera varaformaður en féll með glans fyrir Magnúsi Magnússyni. Nokkrum dögum siðar heyrðist hann tauta fyrir munni sér á förnum vegi: Eigi skal gráta, heldur leita hefnda... Davið sprellikarl Nóvembermánuður var mánuður hinna miklu manna- skipta. Þá t.d. var Davið sprelli- karl Oddsson skipaður oddviti minnihlutans i borgarstjórn Reykjavikur i stað Birgis ísl. Gunnarssonr fallkandidats, og Ronald sápuauglýsingamaður Reagan kjörinn forseti Guðs eigin lands. Einróma og mót- atkvæðalaust Svavar Gestsson var hins vegar kosinn formaður Alþýðubanda- lagsins i staö Lúðviks Jóseps- sonar og eins og vera ber I góðum kommaflokki var hann kjörinn einróma og mótatkvæðalaust. Farvel Karvel Sama var hins vegar ekki uppi i Alþýðusambandinu nokkrum dögum siðar, enda það ekki orðið kommúnfskt ennþá. Ásmundur Stefánsson var kjörinn forseti með miklum atkvæðamun, en kratar með Karvel Pálmason i broddi fylkingar guldu mikiö afhroð. Skrifuðu flestir á at- kvæðaseðla sina Farvel Karvel. 30 miljarðar týndust í hafi Næststærsta bomba ársins féll 16. desember. Þá upplýsti Hjör- leifur iðnaöarráðherra að 30 milj- arðar króna hefðu týnst i hafi i formi súráls á vegum álverk- smiðjunnar i Straumsvik. Af þessu varð mikill hvellur og lýsti Ragnar álskalli því þegar yfir að hér væri á ferðinni kommúnist- iskt samsæri gegn erlendri at- vinnuuppbyggingu i landinu. Sagði hann að skýringu á þessu væri að finna á fjármagns- kostnaði og vöxtum — i hafi. Fer vel á þvi að láta þá skýringu hringja út hringavitleysu ársins. —GFr Wagner bflasali var úti á þekju alla leiö yfir Atlantshafið.tLjósm.: eik) A Skóiavörðuholti var maður tekinn af lifi. Keppinautar um forsetasæti á ASI-þingi. Þingheimur sagði Farvel Karvel. Valdatafl Gunnars og Geirs var leikiö allt árið meö þeim afleiðingum að Valhöll var auglýst á nauðungaruppboði. (Ljósm.: eik) r Ox honum ásmegin Hinn 11. júli varð eldgos við Kröflu sem þótti engum tiðindum sæta nema þá helst vegna þess að þar lágu Danir I þvi — þ.e.a.s. einnDani.Sá hafðiálpast út i mitt Gjástykki og var þar staddur er jörðinopnaðistundir fótum hans. Sá í iljar honum og óx honum ás- megin— eins og Þór forðum — og fór hann mikinn um þver fjöll. Þorskflakasmygl og svefnpokavist Jóhanna nokkur Tryggvadóttir komst mjög i fréttir á úthallandi ári, fyrir að segja gjörvallri fisk- framíeiðendastéttlandsins strið á hendur. Viidihún fá að selja salt- fisk á eigin spýtur i Portúgal og taldi sig fá þannig mun hærra verð fyrir hann, heldur en að selja hann i gegnum einokunarsamtök SIF. Margt dularfullt henti, svo sem dularfullt þorskflakasmygl i Portúgal, svefnpokavist i við- skiptaráðuneytinu o.fl. Jóhönnu var synjað um leyfið, en fróðir segja að henni hafi viö það aðeins vaxið fiskur um hrygg. Gos og ekki gos Sunnudaginn 17. ágúst kom Hekla gamla öllum að óvörum og byrjaöi aögjósa sem ákafast. Þar sem þetta var á fridegi fóru allir i sunnudagsbiltúrinn austur i sveitir og tæmdu allar sjoppur

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.