Þjóðviljinn - 14.03.1981, Síða 5
Helgin 14.-15. mars 1981. þJóÐVILJINN — SÍÐA 5
Frá austurvígstöðvun-
um til Afríku og Italíu
Jón Thor Haraldsson
skrifar um bækur
A siðastliðnu ári komu út tvær
bækur i heimsstyrjaldarsögu
þeirrisem AB gefur út, „Innrás i
Sovétrikin” og ,,Eyðumerkur-
striðið’ ’ nefnast þær; nú hefur svo
„ttaliustriðið” bæst i hópinn.
Hrikalegust eru átökin sem frá
segir i Rússlandsárásinni. Það
hefur á árunum eftir strið gætt
augljósrar viðleitni til þeirrar
sögufölsunar að reyna að láta lita
svoútsem þýski herinnhafi verið
prúðmennskan allt að þvi upp-
máluð, það hafi bara verið bölv-
aöir nasistarnir sem ódæðisverk-
in unnu. Þegar slikt er borið á
borð er hoilt að minnast orða
enska sagnfræðingsins A.J.P.
Taylors, sem ritað hefur aðgengi-
lega en raunar einkar persónu-
lega sögu siðari heimsstyrjaldar:
„Alla pólitiska kommissara og
kommúnistaforingja skyldi taka
af lifi án dóms og laga, og herfor-
ingjarnir samþykktu þessa fyrir-
skipun eftir gufuleg mótmæli.
Þeim var einnig sagt að Sovét-
rússland væri ekki aðili að Genfar
sáttmálanum, það væri engin
þörf á að fara að hernaðarregl-
um. Á þetta féilust herforingjarn-
irlika. Fyrir þeim, eins og Hitler,
voru Slavarnir óæðri kynflokkur,
einberar skepnur. Drengskapur
gleymdist og þýskir hermenn,
sem fylgdu fyrirskipunum for-
ingja sinna, myrtu tvær miljónir
rússneskra striðsfanga og meira
en tiu miljónir óbreyttra rússn-
eskra borgara meðan á striðinu
stóð. Attila var aftur snúinn.”
Af sliku segir fátt i „Innrásinni
iSovétrikin” sem lýkur vorið 1942
þegar gagnsókn Rússa fjaraði út
og Hitler hafði enn að sögn Tayl-
ors „allra þokkalegustu mögu-
leika” á þvi að vinna Rússlands-
striðið sitt. Bókarhöfundur forð-
ast allar vangaveltur, það er t.d.
ekkert rætt um margumdeildar
orsakir þess að þýska sóknin
stöðvaðist við úthverf Moskvu i
desemberbyrjun 1941. Sem heim-
ild um innanrikisástand i Ráð-
stjórnarrikjunum á þessum tima
er bókin einskis virði, til þess er
allt of auðsær sá vilji höfundar að
litillækka kommúnistaflokkinn,
svo ekki sé nú minnst á höfuð-
fjandann Stalin, nú á hann að
hafa „bruggað Kirov banaráð”
ofan á þetta gamla.
„Fyrir Alamein lifðum við af;
eftir Alamein sigruðum við”,
sagði Churchill. Það hefur viða
komið fram, m.a. hjá Liddell
Hart, einum þekktasta hernaðar-
sajnfræðingi Breta i „The New
Cambridge Modern History”, að
Churchill var um tima nánast
með Rommel á heilanum. Sjálf-
sagt hefur Churchill lika freistast
til að ýkja fyrir sjálfum sér og
breskum almenningi langþráðan
sigur i „Eyðimerkurstriðinu”
sem raunar var barnaleikur einn
miðað við austurvigstöðvarnar
þar sem „örlög Þýskalands og
endalok striðsins voru ráðin”, svo
að enn sé vitnað i Taylor. Eins og
eölilegt má teljast er flest allt i
„Eyðimerkurstriðinu”’ séð frá
breskum sjónarhóli, þegar Bretar
þröngvuðu hernaðaraðstoð upp á
Grikki er það kallað „drengilegt
boð Churchills” svo að eitthvað sé
talið.
Italíuherferöin hefur vist löng-
um verið umdeild, og eftir á aö
minnsta kosti er erfitt að sjá i
henni vitið. Óviða hefur fáránleg-
ur rigur og hégómagirnd hers-
höfðingjanna komið betur i ljós.
Þóermérminnisstæðustúr þeirri
bókþessiklausa,sem óneitanlega
vekur mann til umhugsunar:
„Við fall Rómar hafði gamall
skoðanamunur Breta og Banda-
rikjamanna skotiö upp kollinum.
Churchill hafði löngum gert sér
vonir um að ráðast inn á Balkan-
skaga, og þegar rússneskir herir
sóttu nú óhikað inn i Mið-Evrópu
varhonum mikið i mun að koma i
móti þeim — eða standa fyrir
þeim — eins austarlega og kostur
var. Orðið „járntjald” hafði ef til
vill ekki mótast enn i huga hans,
en hann sá hvað verða vildi eftir
striðið. Að hans áliti áttu herir
bandamanna á Italiu að lúskra á
Þjóðverjum en sækja siðan eins
hratt og unnt var um Ljublanka-
lægðina yfir i Júgóslaviu og allt til
Vinarborgar, ef til vill alla leið til
Budapest og Prag, til að verja
Rússum eins mikið landrými og
frekast var unntý.
Svo mörg voru þau orð. Maður
verður undarlega leiður á að lesa
til lengdar eins mikið mynd-
skreyttar bækur og þessa ritröð,
sú er altént min reynsla, en slikt
telst vist smekksatriði. örnólfur
Thorlacius er ritstjóri þessa
bókaflokks og vandar bersýnilega
verk sitt-, frágangur er til fyrir-
myndar og hann hefur fengið
góða þýðendur til liðs við sig;
allar bækurnar hafa verið prýði-
lega þýddar þrátt fyrir einstaka
hnökra. Þeir Jón Guðnason,
Björn Jónsson og Jóhann S.
Hannesson og Sigurður Jóhanns-
son (saman) hafa þýtt áðurnefnd-
ar þrjár bækur. Ein stafsetn-
ingaraðfinnsla þótt seint sé:
Hefði ekki verið rétt að leyfa
Goebbels tetrinu að halda rithætt-
inum á nafninu sinu, svona reit
hann það, ekki Göbbels?
Jón Thor Haraldsson
„Goumier i röndóttum kufli brýnir sveðju slna áður en haldið er til
orrustu. Hermenn þessir voru frá Marokkó og höfðu veriö könnunar- og
ieiðsögumenn i Atlas-fjöllum Norður-Afríku- Þeim voru flestir vegir
færir i hinu torgengasta fjalilendi og fimir að beita sveöjum sinum,
skáru þeir tiðum eyru eða höfuð af óvinunum.” („ttaliustriðið”).
Ferðaskrifstofan selur farmiða
um allan heim, útvegar gistingu og annast yfirleitt
fyrirgreiðslu fyrir ferðamenn á hagkvæmustu kjörum
• Reynið viðskiptin • Við sendum kynningarhæklinga
i pósti hvert sem óskað er • Pantið tímanlega
• Tekið á móti pöntunum
i skrifstofu okkar
alla virka daga
m
Ferðaskrifslofa
KJARTANS
HELGASONAR1
Gnoðavog 44 ■ 104 Reykjavik ■ Sími 86255
Búlgaria
9
AUa mánudaga frá 25. mai til 14. september.
2—3 — 4 vikna ferðir á baðstrendur.
Vikuferð: Sofia — Varna. Skoðunarferðir, Istanbul — Yalta — Odessa með
lystiskipum.
• Auk fjölda annarra á landi.
• íslenskir leiðsögumenn — 50% uppbót á gjaldeyri.
• Flogið með þotu um Kaupmannahöfn.
• Hægt að stoppa þar i bakaleið án aukakostnaðar i flugi.
• Ódýrasta land Evrópu.
• Matarmiðar, 1. fl. hótel.
daga ferðir.
f /nmi/ii<ío/oY>/7 Annan hvern föstudag frá 13.
U/tÖ WrjdldrilX mai _ 21. ágúst. 16-23-30 dag
• Vika i Budapest og um landið.
• Dvalist við Balatonvatn i 1-2-3 vikur. Hótel og smáhýsi.
• Eitt besta ferðamannaland Evrópu.
• Flogið um Kaupmannahöfn og hægt að stoppa þar í bakaleið.
•Góður matur, góð þjónusta, 1. fl. hótel.
• Dvalist i Budapest, fallegustu höfuðborg Evrópu á útleið og heimleið,
góö verslunarborg.
• islenskir fararstjórar. ódýrt ferðamannaland.
Páskaferð 10. april
$)< Lærið knattspyrnu í Englandi
• 6 námskeiö i æfingabúðum Aston Villa i Birmingham:
• 3-2l.april 21. júni-5. júli, 5-19. júli, 19. júli-2. ágúst, 2-16, ágúst og 16-20.
ágúst.
• Gullið tækifæri fyrir einstaklinga og hópa.
Lærið ensku í Englandi
ANGLO-CQNTINENTAL
EDUCATIONAL GROUP
16 skólar i Bournemouth, London, Sherbourne, Wimbledon.
• Starfa allan ársins hring.
• Sérstakar hópferðir skipulagðar á Nova Sehool 31. mai, 21. júni, 12. júli,
2. ágúst og 6. september.
• Lágmarksdvöl 3 vikur, hægt að framlengja.
•Gist á einkaheimilum. Þátttaka takmörkuð.
•ódýrar, skemmtilegar og ny tsamar ferðir fyrir fólk á öllum aldri.