Þjóðviljinn - 14.03.1981, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 14.03.1981, Blaðsíða 12
12 StÐA — ÞJÓDVILJINN Helgin 14.-15. mars 1981. Ums|on: Leif ur Þorarinsson tónbálkur A næstu sinfóníutón- leikum verður flutt óperan Otello eftir Verdi og í fyrsta sinn (en vonandi ekki síðasta) á (slandi. Stjórnandi verð- ur Gilbert Levine, sem stjórnaði Strauss og Dvorák á fimmtudaginn var. I aðalhlutverkið/ eða amk. titilhlutverkið, Otello, verður fenginn tenór frá Mexico, Pedro Lavirgen að nafni, en ekki veit ég nein deili á honum önnur. Sieglinde Kahlman mun syngja Desdemónu og Guðmundur Jónsson ein- hverja erfiðustu og sér- kennilegustu baritónrullu óperusögunnar, sjálfan Jago. Þessir tónleikar verða á fimmtudagskvöldið kemur, kl. 8 (ekki hálf 9 einsog venjulega) og verða endurteknir á laugar- daginn. Siðustu óperur Verdis, Otello, sem hann samdi sjötiu og þriggja ára gamall,og Falstaff, sem var frumsýnd þegar hann stóð á áttræðu, eru án efa hans mögnuðustu og fullkomnustu verk. Ekki aðeins sem leikhús- verk, heldur einnig og kannski fyrst og fremst sem tónverk. Mönnum finnst þetta auðvitaö ótrúlegt; hvernig á svona gam- all maður til kraft að dugi til að skapa músikdramatisk meist- araverk? Enda er þetta einsdæmi; ekki veit ég íþm. annað. Auðvitað eru Rigoletto, La Verdi með hundunum slnum eftir að hann lauk við Falstaff. Óperuv iðburður: Otello hjá sinfóníunni Traviata, II Trovatore, að ekki sé talað um La Forza del Dest- ino, óperur, sem aldrei gleym- ast, munu alltaf hafa sterk áhrif á þá, sem sjá og heyra. En það eru þessar tvær siðust óperur, sem byggðar eru á leikritum Shakespeares, Othello og Kátu konunum frá Windsor, sem eru hápunkturinn i óperugerð ttala á nitjándu öld. Ekkert sem gæti jafnast við þær hafði verið samið þar suðurfrá (og varla annarsstaðar?) siðan Monte- verdi bjó til Krýningu Poppeu og Orfeus. Nú hefur mikið verið sett saman af bulli um stöðu Verdis i músíkheiminum. Mest var (og er) lagt upp úr að draga hann inn i deilur um þýska nitjándualdarmúsik, hvort eigi að stilla honum i raðir Brahms Verdi á Rigolettodögunum. eða Wagneriana. Hvilik fásinna. Verdi var og er algjörlega sér á parti, þó vitaskuld byggði hann á itölskum óperuhefðum og tæki sér marga eldri meist- ara til fyrirmyndar I tækni kúnstarinnar. Hann lærði mikið af Donnizetti og Bellini i með- ferö mannsradda og Rossini I að skrifa áhrifamikla hljóm- sveitarþætti. En þessir ágætu meistarar standast engan samanburð við Verdi, hvernig sem á málin er litið. Til þess voru þeir einfaldlega of veikir og tækifærissinnaðir listamenn. Þetta finnst áreiðanlega mörgum ljótt aö segja, ekki sist um höfund Rakarans frá Sevilla. En við þvi er ekkert að gera að svo stöddu. En einhver sagði lika einu sinni, að leir- skáldin væru kannski dýr- mætust, þvi þau plægðu akurinn fyrir meistarana,- án þeirra kæmu aldrei nein stórskáld. Einsog ég sagði áðan er Otello byggð á leikriti (Othello) Shakespeares. Verdi var svo heppinn aö fá, fyrir milligöngu útgefandans Ricordis, ungan textahöfund (librettista, Boito til samstarfs siðustu árin. Boito var lfka tónskáld, ópera hans Mefistofeles heyrist meira segja endrum og eins, iþm. þættir úr henni. En samstarf hans við Verdi, að gerð Otellos og Falstaffs, mun þó, að ég held, halda nafni hans lengst á lofti. Umskriftir hans og styttingar á textum Shakespeares eru sann kölluö snilld (ekki vera samt reiðir elsku Shakespeareaödá- endur, athugið heldur málið frá óperusjónarmiði og andiö rólega). Þegar Otello var frumsýnd á Scala 1887, ætlaði allt um koll að keyra af hrifningu. Verdi var nú orðinn sliku löngu vel vanur; löngu orðinn mest dáður tón- skálda á Italiu, og það er nú ekkert smávegis. En þetta var samt kallinum mikil hvatning að hætta ekki að kompónera, og hann hófst þegar handa að undirbúa Falstaff. Hún var frumsýnd sex árum seinna. Eftir þaö samdi Verdi enga óperu. Þó var hann að búa til músik til siðasta dags, mest kirkjumúsik, eða músik trúar- legs eðlis á einhvern hátt. Sumt af þvi er ótrúlega sterkt og fal- legt, td. Stabat Mater, sem er meistaraverk. En nú er þaö Otello hjá sinfóniunni á fimmtudaginn, og keppist nú hver sem betur getur við að ná sér i miða. 1Þ Lúðrasveit verkalýðsins í Háskólabíói 1 dag, laugardaginn 14. mars kl. 14.00, heldur Lúörasveit Verkalýðsins sina árlegu tón- ieika I Háskólabiói. Á efnisskrá eru bæði innlend og erlend lög. Stjórnandi er Ellert Karlsson. öllum er heimiil aðgangur meðan húsrúm ieyfir. Lúðrasveit verkalýðsins var stofnuð 8. mars 1953. Fyrsti for- maður var Bárður Jóhannesson og fyrsti stjórnandi Haraldur Guðmundsson. Lúðrasveit Verkalýðsins kom fyrst fram opinberlega á skemmtun i Mjólkurstöðinni við Laugaveg i aprilmánuði 1953,og siðan hefur hún leikið við öll möguleg tæki- færi á hverju ári. A næsta ári er fyrirhuguö för Lúðrasveitarinnar til Finnlands, þar sem haldiö verður norrænt tónlistarmót lúðrasveita og kóra er starfa á vegum eða i tensglum við verkalýöshreyf- inguna á Noröurlöndum. Lagið er tileinkað Lúðrasveit verkalýðsins í tilefni tónleikanna í dag. (Það er stundum sungið í Hafnarbíói þegar Alþýðuleikhúsið sýnir Stjórnleysingi ferst af slysförum eftir Dario Fo. y~ h / & ^ .f /LW=^=| / t l L t+x'cTva j u 'í^'r P&r hcj f m St>* ¥■ j y l Jtn. 0-4T loó J Ots * r-.--------- nr $ b > ea P r rJ jl L L j í : fl~ 7>.c Nú svífur út um veröld víða, vængjuð hugsjón sem er oss svo kær. Og það er engin þörf að kvíða þegar uppreisn í hjörtunum slær. Allur heimur er eina föðurland vort og vor stjórnarskrá er frelsið eitt. Allur heimur er eina föðurland vort og vor stjórnarskrá hún er frelsið eitt. Þeir finna aftur (talíu allt hið nauðuga herkvadda lið. Þeir munu halda heim að nýju heim með boðskap um réttlæti og frið. Allur heimur er o.s.frv.. Lag: Leifur Þórarinsson Ljóð: Þórarinn Eldjárn

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.