Þjóðviljinn - 14.03.1981, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 14.03.1981, Blaðsíða 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 14.-15. mars 1981. DIOBVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýds- hreyfingar og þjódfrelsis Ótgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann. Kitstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. Auglvsingastjóri: Þorgeir Ölafsson. úmsjónarmaður sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson. Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson lllaðamenn: Alíheiöur Ingadóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Kristin Astgeirsdottir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórs- son. íþróttafréttamaður: Ingólfur Hannesson. Þingfréttaritari: Þorsteinn Magnússon. útlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Sævar Gúðbjörnsson. I.jósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Eliasson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Auglýsingar: Svanhildur Bjarnadóttir. Skrifstofa: Guörún Guövarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Afgrciðsla: Kristin Pétursdóttir, Bára Sigurðardóttir. Símavarsla: olöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir. Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns- dóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Sföumúla 6, Reykjavlk, simi 8 13 33. Prentun: Blaðaprent hf.. Jafnrétti • Jafnréttisráð hefur f jallað um nýlega veitingu lyf- söluleyfis á Dalvík og birt niðurstöður sínar. Þar er Svavar Gestsson, heilbrigðis- og tryggingaráðherra átal- inn fyrir veitingu þessa lyfsöluleyf is, en hins vegar kem- ur fram í greinargerð Jaf nréttisráðs, að ráðið telur vart mögulegt að færa sönnur á að um brot á jaf nréttislögun- um haf i verið að ræða. • Þann 29. janúar s.l. veitti Svavar Gestsson, ráð- herra, Öla Þ. Ragnarssyni lyfsöluleyfið á Dalvík, en umsagnaraðilar höfðu sett Öla númer tvö við röðun um- sækjenda, en Freyju V.M. Frisbæk Kristensen númer eitt. • I greinargerð Svavars Gestssonar, heilbrigðis- og tryggingarráðherra, um þetta mál, sem send var Jafnréttisráði, kemur fram að samkvæmt lyfsölulögun- um eru ráðuneytisstörf alls ekki metin til jafns við störf i lyfjabúð eða við lyfjagerð við veitingu lyfsöluleyfa. Ráðherra er að sjálfsögðu bundinn af þessum lögum. • Við mat á umsóknum lá Ijóst fyrir, að lögskilin starfsreynsla óla í lyfjabúð og að lyfjaframleiðslu var fengin meðóára samfelldu starfi, en Freyja hafði unnið sambærileg störf aðeins í rúm 2 ár. Með tilliti til sér- stakra ákvæða í lyfsölulögum þar sem mælt er fyrir um að litið skuli á starfsreynslu umsækjenda í lyf jabúð eða við lyfjagerð, þá réði þessi munur úrslitum um niður- stöður ráðherra við veitingu lyfsöluleyfisins, enda þótt honum væri fullkunnugt um störf Freyju í danska innan- rikisráðuneytinu. • Hér skiptir minna máli, að við veitingu lyfsöluleyfa á undanförnúm árum hafa ráðherrar margoft vikið frá niðurstöðum umsagnaraðila eins og fram kemur í gréinargerð Svavars Gestssonar. • Ýmsir hafa orðið til þess að bera þær sakir á ráð- herrann, að hann hafi við veitingu þessa lyfsöluleyfis mismunað umsækjendum vegna kynferðis, — valið karlmanninn vegna þess að hann væri karlmaður. • Hér skal þó tekið sérstaklega fram að f niðurstöðum Jafnréttisráðs, sem birtar voru í dagblöðunum í gær kemur alls engin ásökun af þessu tagi fram í garð ráðherra. Þar er hvergi látið að því liggja að Freyja V.M. Frisbæk Kristensen hafi goldið kynferðis síns. • i þessu sambandi er lika rétt að minna á, að fyrir fáum mánuðum veitti Svavar Gestsson tvö embætti heilsugæslulækna við heilsugæslustöð í Fossvogshverfi í Reykjavík. Þar voru umsækjendur sjö. Embættin voru veitt þeim sem umsagnaraðilar höfðu raðað númer eitt og númer sjö. Sá læknir sem raðað var í sjöunda sætið, en ráðherra veitti embættið engu að síður, var kona. — Enginn hefur samt orðið til þess að kæra embættisveit- ingu til Jafnréttisráðs. Full þörf er á að breyta ýmsum lagaákvæðum í því skyni að auðvelda baráttuna fyrir jafnrétti kynjanna. • Guðríður Þorsteinsdóttir, formaður Jafnréttisráðs segir í viðtali við Þjóðviljann í gær að rætt haf i verið um tímabundin forréttindi kvenna eða „jákvæða mismun- un" eins og það haf i verið kallað, þótt hvorki hún sjálf né Jaf nréttisráð haf i gert upp hug sinn í þeim ef num. • Um slíka „jákvæða mismunun" um takmarkaðan tíma eru að sjálfsögðu skiptar skoðanir meðal jafnréttissinna, en í þeim efnum þarf að komast að niðurstöðu. • Það skal sagt hér að Þjóðviljinn telur það enga f jar- stæðu, að konum væri með lögum veitt ákveðin forrétt- indi, t.d. um fimm ára skeið, við opinberar stöðuveit- ingar, máskéá ákveðnum sviðum. Þessu yrði þó væntan- lega að haga þannig, að þegar karl og kona teldust standa jafnfætis, hvað hæfni og aðrar almennar for- sendur varðar, þá væri veitingavaldinu gert skylt að skipa konuná í starfið. • Meðan engin slík lagaákvæði eru hins vegar tii, getur enginn ráðherra látiö eins og þau séu til. • Rökin fyrir slíkum lagabreytingum eru auðvitað umdeilanleg og ekki einhlít, en þó má ætla að seint sækist róðurinn gegn aldagömlum kynferðisfordómum, nema til komi djarfar og óvenjulegar aðferðir. • Svavar Gestsson, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, hef ur ákveðið að beita sér fyrir endurskoðun jaf nréttis- laganna hiðallra fyrsta og má vænta nefndarskipunar í því skyni nú alveg á næstunni. Jafnréttisráð og allir aðrir, sem um eiga að f jalla,þurfa því sem fyrst að móta afstöðu sína í þessum efnum. —k. • úr aimanakinu Það hefur líklega ekki farið fram hjá lesendum Þjóðviljans að bundinn var endir á 9 ára samfelldan valdaferil vinstri- samfylkingarinnar i Stúdenta- ráði Háskóla Islands s.l. mið- vikudag. t niu ár hafði Vaka, félag hægrisinnaðra stúdenta, reynt að hnekkja ofurvaldi vinstrimanna, en án árangurs. Það dugði ekki minna en klofn- ingurivinstrihreyfingunni til að Nýir straumar í Háskólanum fella þennan meirihluta. Listi umbótasinnaðra stúd- enta,er nú bauð fram i fyrsta sinn og fékk 29% atkvæða, er ótviræður sigurvegari Stúd- entaráöskosninganna. Fylgi sitt tók listinn bæði frá Vöku og Félagi vinstrimanna, en þó nokkuð meira frá þvi síðar- nefnda. Þetta er það góður árangur að liklegt er að Listi umbótasinna festist i sessi sem varanlegt pólitiskt afl i Há- skólanum. Þó að Listi umbóta- sinna hafi fengið minna fylgi en Félag vinstrimanna er fékk 39% atkvæða og Vaka er fékk 31% atkvæða, þá hefur listinn engu að siður oddaaðstöðu hvað varð- ar myndun starfshæfs meiri hluta i Stúdentaráði. Af 30 fulltrúum i ráðinu hefur Félag vinstrimanna nú 14 (hafði 16), Vaka hefur 12 (hafði 14) og Listi umbótasinna hefur 4 fulltrúa (til skýringar er þess að geta að bæði Félag vinstrimanna og Vaka hafa fulltrúa fyrir i ráðinu þvi aöeins helmingur ráðsliða er kosinn árlega). A sama hátt og Listi umbóta- sinna er sigurvegari kosning- anna þá eru Vökumenn ótvirætt þeir sem töpuðu þessum kosn- ingum. Þrátt fyrir alla þá kosti sem fyigja þvi að vera i stjórn- arandstööu og geta stööugt ver- ið með gagnrýni, þá töpuðu Vökumenn rúmlega 14% fylgi og hafa aðeins 2% meira fylgi en Listi umbótasinna. Fylgistap Félags vinstrimanna (töpuöu nær 16% fylgi) er hins vegar öllu eðlilegra þvi þeir stóöu frammi fyrir klofningi i sinum röðum og óhjákvæmilegt að þeir misstu eitthvert fylgi.Engu að siður er félagiö enn ótvirætt sterkasta pólitiska aflið innan Háskólans. Úrslit þessara Stúdentaráðs- kosninga tákna vissulega tima- mót. Með þeim er lokið þvi nána samstarfi er tókst með vinstri- stúdentum þegar stjórnmála- félög vinstrimanna, þ.e. Félag róttækra stúdenta, Stúdenta- félag jafnaðarmanna og Félag frjálslyndra stúdenta voru lögö- niður og vinstrimenn sameinuð- ust i félaginu Verðandi i lok 7. áratugsins, eöa fyrir um 12 árum. Stofnun Verðandi varð upphafiö að 9 ára valdaferli vinstrimanna i Stúdentaráði er hófst 1972. Akveðnar þjóðfélagslegar að- stæöur uppúr 1968 utan lands og innan sköpuðu grundvöll fyrir sameiningu allra vinstrimanna i Verðandi. Með árunum urðu þó hin róttækari öfl áhrifamest innan félagsins og hlutverk þess varð það eitt að bjóða fram til hátíðanefndar stúdenta 1. desember ár hvert. Vinstriöflin störfuðu þó áfram náið saman á breiðum grundvelli á vettvangi Stúdentaráðs, og eftir að lista- kosningar voru teknar upp að nýju 1974 stóðu þessir aðilar saman undir nafninu Listi vinstrimanna og hlutu fylgi i kosningum á bilinu 55—58% meðan Vaka fékk 42—45%. Listi vinstrimanna var vita- skuld frekar laustengt bandalag flestra þeirra er töldu sig til vinstri við Sjálfstæðisflokkinn. Þar mátti þvi finna Framsókn- armenn, Alþýðuflokksmenn, Alþýðubandalagsmenn, stúd- enta er töldu sig óháða öllum fjokkum og aðra er voru yst á vinstrikantinum. Til að byrja með voru Alþýðubandalags- menn, Framsóknarmenn og þeir er töldu sig óháöa áhrifa- mestir i þessu samstarfi. Nokk- ur breyting varð á þessum valdahlutföllum upp úr 1976 er áhrifa skipulagðra hópa kreddumarxista fór að gæta (trotskýistar og maóistar). Náðu þessir aðilar um tima meiri áhrifum innan vinstri- samstarfsins en eölilegt var. Öánægja hinna hægfara meö stöðu sina innan vinstri- sa mfylkingarinnar braust greinilega út áriö 1978 er þeir gerðu kröfu um að hiö lauslega bandalag vinstriaflanna yrði skipulagsbundiö með stofnun sérstaks félags vinstrimanna. Jafnframt var gerð krafa um að Verðandi yrði lagt niður. Hinir hægfara töldu að með þessum skipulagsbreytingum gætu þeir styrkt stööu sina. Niðurstaðan varð sú, að vorið 1978 var stofn- að Félag vinstrimanna og Verð-. andi lagt niður. I samþykktum Félags vinstrimanna kom skýrt fram að hér átti að vera breiö samfylking vinstrimanna en ekki sósi'aliskur félagsskapur. Þorsteinn Magnússon skrifar Þrátt fyrir viðleitni til að endurlifga vinstrisamstarfið 1978 með stofnun Félags vinstri- manna fór brátt svo að kreddu- marxistar geröust aðsópsmiklir i félaginu og gætti áhrifa þeirra i öllu starfi þess. Þannig var það sterk tilhneiging að beina les- hringjastarfsemi félagsins inn á þröng áhugasvið marxista, en minni áhersla lögð á að skapa starf er höfðaði til breiðari hóps vinstrimanna. Hinum raunsærri forystumönnum Félags vinstri- manna tókst þó að halda vinstri- samstarfinu áfram saman á vettvangi Stúdentaráðs fram á þetta ár. Uppivöðslusemi draumóramanna og kreddu- marxista, sem i reynd eru i . minnihluta i Félagi vinstri- manna, varð þó endanlega til þess að skapa grundvöll fyrir nýju framboði. Framboðslisti umbótasinn- aðra stúdentaer fyrst og fremst óánægjuframboð, grundvallaö á óánægju með þá þróun er orðið hefur innan Félags vinstri- manna, sem og óánægja með vissa þættií starfi Stúdentaráðs og rekstri Stúdentablaðsins. Með þvi framboði segja hinir hægfara, sem ýmsir vilja flokka sem Framsóknarmenn og Alþýðuflokksmenn, skilið við vinstrisamfylkinguna. Sjálfir hafa forystumenn Lista umbótasinna skilgreint sig sem raunsæja félagshyggjumenn og meginþorri forystunnar viröist frekar til vinstri en hitt. 1 upphafi þessarar greinar var sagt að með kosningunum s.l. miðvikudag hefði hin breiða vinstrisamfylking liðið undir lok. Ef til vill var þar of fast að orði kveðið, þvi samanlagt hafa Félag vinstrimanna og Listi umbótasinna sterkari stöðu en félagshyggjumenn hafa nokkru sinni haft áður eða nálægt 70% atkvæða stúdenta, og fullur grundvöllur ætti að vera fyrir samstarfi þessara að- ila. Að vísu er það freistandi fyrir forystu Félags vinstri- manna að segja við Vöku og Lista umbótasinna: „Takið þið við þessu og reynið að gera bet- ur”. Slik sjónarmið verða að teljast mjög vafasöm, þvi á þann hátt er verið að leiða Vöku til hásætis i Stúdentaráði með öllum þeim afleiðingum sem af sliku getur hlotist. Vinstrimenn eiga hiklaust að leita samstarfs við Lista umbótasinna, þvi i reynd eru það ekki svo veiga- miklir þættir er greina þessa aðila að. Slikt samstarf yrði vonandi til þess að styrkja stöðu þeirra forystumanna Félags vinstrimanna sem bera eitthvert skynbragð á pólitiska strauma i Háskólanum. Reyndar er það svo, aö framtiö Félags vinstri- manna sem sterkasta pólitiska aflsins i' Háskólanum veltur mjög á þvi að hinir jarðbundn- ari forystumenn félagsins geri sér ljóst að kreddumarxismi ákveöins hóps innan félagsins á sér takmarkaðan hljómgrunn meðal vinstristúdenta. Takist samstarf með Félagi vinstrimanna og Lista umbóta- sinna er tryggt að raunsæ fé- lagshyggja verður höfð að leiö- arljósi i hagsmunabaráttu stúd- enta og jafnframt tryggt að Vaka, málsvari markaðshyggj- unnar, verði áfram úti i kuldan- um.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.