Þjóðviljinn - 20.06.1981, Blaðsíða 3
Helgin 20.-21. jiini 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Aðalverblaun i áskrifendaþraut Þjóftviljans, Kenwood hljómflutnings
tæki.
Þrautin að
þekkja andlit
Þjóðviljinn hefur ákveðið að leggja þraut fyrir lesend-
ur blaðsins. Mun þrautin verða í þrem hlutum# fyrsti
hluti birtist i næsta helgarblaði, næsti helgina 25. - 26. júlí
og að lokum 23. - 24. ágúst. Birtar verða í hvert sinn
myndir af 20 þekktum andlitum, þrautin felst síðan i að
þekkja andlitin. Skrifa þarf rétt nöfn við myndirnar og
senda lausnina til Þjóðviljans fyrir 15. næsta mánaðar.
25. júlí, ágúst og september verður dregið úr réttum
lausnum.
I verölaun veröur m.a. vasi
hannaöur af hinum fræga finnska
arkitekt. Alvar Aalto, 30 hljóm-
plötur frá Steinari h.f. og Hljóm-
deild Karnabæjar og ITT
„stereo” útvarps-segulbands-
tæki.
Aðalverðlaun fyrir réttar
lausnir á öllum þrem þrautunum,
Kenwood sigma-drive magnari,
Kenwood kd-1600 plötuspilari og
Ar-18s hátalarar, verða dregin út
i september.
Svo veröa auövitaö aukaverö-
laun í hverri viku. Vakin er sér-
stök athygli á, að nú gefst tæki-
færi fyrir þá sem gerast áskrif-
endur aö taka þátt i þrautinni og
munu þeir fá blaöið fritt til mán-
aöa:móta.
Skattskrá Reykjaneskjördœmis
Guðbergur í Garðinum
er með hæstu gjöldin
Álögð gjöld samkvæmt
skattskrá Reykjaneskjör-
dæmis fyrir síðasta álagn-
ingarár eru 53,87% hærri
en fyrir árið þar á undan
en alls nema álögð gjöld
kr. 36.629.848.954 gkr.
Einstaklingar greiða rúman 31
Leikur ykkar að þessu sinni er
43...-KdK, og þvi svarar Helgi
meö 44. Bc6, og er þá staðan
þannig:
Þiö eigiö leikinn. Hringiö á
mánudaga, milli kl. 9 og 18, i
sima 81333.
miljarð gkr. en aðrir gjaldendur
og lögaðilar 5.4 miljarða.
Hæstu gjöld einstaklinga greið-
ir Guðbergur Ingólfsson saltfisk-
verkandi i Garði, samtals
38.543.331 gkr. Iicnedikt Sigurös-
son Keflavik greiðir 35.397.348
gkr. og Hreggviður Hermannsson
einnig frá Keflavik greiðir
31.364.440, en alls greiöa 11 aðilar
yfir 20 miljónir gkr. i gjöld.
Mest gjöld félaga i Reykjanes-
kjördæmi greiða íslenskir aðal-
verktakar á Keflavikurflugvelli
samtals 208.804.418 gkr. Þá kem-
ur Varnarliðið með 156.723.824
gkr. og Islenska álfélagiö greiðir
124.945.149 eða rúmum 700 þús.
gkr. meira en Byggingavöru-
verslun Kópavogs sem kemur þar
næst á eftir.
Alls greiða 35.669 framteljend-
ur i kjördæminu skatt samkvæmt
skattskránni, en hæst er meðaltal
álagðra gjalda i kjördæminu i
Garðabæ gkr. 1.140.822. Þá kemur
Grindavik meö 1.070.524, Sel-
tjarnarnes meö 1.057.541 gkr. og
Keflavik meö 1.002.801 gkr.
Guðjón í frí
og Þórunn
tekur við
Guðjón Friðriksson umsjónar
maður Sunnudagsbiaðs er nú far
inn i 3ja mánaða fri, en við um
sjón blaðsins hefur tekið Þórunr
Sigurðardóttir. Þórunn hefur sét
um Sunnudagsblaðið undanfarin
sumur, en hún verður hér fram á
haustið. Eins og fram hefui
komiðf fréttum hlaut hún starfs
laun listamanna og fer hún á þau :
haust.
Alvar Aalto vasi er meöal verðlauna
Bátsstrand
við Flatey
í fyrrinótt, um kl. 1, strandað
170 tonna stálbátur frá Húsavik
Sigþór ÞH 100, við Flatey á
Skjálfanda.
Að sögn Hannesar Hafsteins,
framkvæmdastjóra Slysavarna-
félags Islands, var báturinn á leið
frá Húsavik og hugðust skip-
verjarhalda á veiöar. SU veiðiför
endaði með þvi, að báturinn
strandaði við Flatey.
Orsök þessa óhapps er ekki ljós,
en vist þykir aö veður hafi ekki
blandaö sér i málið, þvi það mun
hafa verið hið bliðasta. Engan
mann sakaði og áhöfnin beið i
rólegheitum i bátnum eftir þvi, að
togarinn Kolbeinsey kæmi og
drægi hann á flot með flóðinu.
— mhg
Vegirnir eru
heilsuspillandi
Heilbrigðismálaráð Vestur
landshéraðs ályktaði á fund
sinum 12. júni sl. að margir vegii
á Vesturlandi séu nú með þeire
hættiað þeir flokkist undir heilsu
spillandi mannvirki.
Þvi skorar ráðið á Vegagerð
rikisins að sinna mun betur nauð-
synlegu viðhaldi vega m.a. til að
draga úr slysahættu og til að
koma i veg fyrir að fólk hljót:
likamlegt og andlegt tjón af
akstri um vegina.
VOLVO .
lestin'SL
er
komintil
Reykjavíkur
í tilefni af því að Volvolestin ‘81
er komin í bæinn, verður Volvo-
dagur hjá Velti á Suðurlands-
braut í dag, laugardaginn 20. júní
frá kl. 10 -18.
Lestin verðurtil sýnis, en í henni eru:
Volvo F616S með álpalli frá Málmtækni hf.
Volvo F7, 6X2, sjálfskiptur með Sörling palli og tölvustýrðri hleðslu-
mælingu.
Volvo F10,6X2, með flutningahúsi frá BTB, Borgarnesi.
Volvo N12,6X4, með upphituðum grjótpalli frá Blidsberg.
Volvo Lapplander torfærubifreið.
Volvo 345 fólksbifreið og
Volvo Penta bátavél.
Starfsmenn sölu-, varahluta- og þjónustudeilda Veltis verða til staðar
og veita upplýsingar um verð, tæknileg atriði og allt það sem fólk
langar að vita um Volvo, Penta, Bröyt, BM, Hiab og Esco.
MISSIÐ EKKI AF LESTINNI
VELTIH HF