Þjóðviljinn - 20.06.1981, Side 4
f/i4t . »'■/*; i;'/-.?/ I.<. *.* •• » i
4 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Helgin 20.-21. júní 1981
st jórnmál á sunnudegi
r
Arni Bergmann
skrifar
//Ég tel að kjarnorku-
sprengjan sé gagnslaus-
asta vopn sem til er. Það er
ekki hægt að nota hana í
neinum skynsamlegum til-
gangi. Hún er ekki einu
sinni virk vörn gegn sjálfri
sér". Svo mælti George
Kennan í ræðu sem hann
flutti þegar honum voru
veitt í mai friðarverðlaun
Viö ætluðum ekki i þessa göngu...
kennd við Albert Einstein.
Kennan var m.a. sendi-
herra Bandarík janna í
Moskvu og hefur viða
komið við sögu í stjórn-
málafræðum alþjóðlegum.
Hann er svo sannarlega ekki
einn um aö taka til máls um þess-
ar mundir. Viö lifum á timum
kappræöu um vopn.
/
I stórum sveiflum
Sú ræöa fer i stórum sveiflum.
Skömmu eftir striö voru ferskar i
minni skelfingarmyndir frá Hiro-
shima, sem fréttir um geisla-
dauöann i þeim japönsku borgum
sem uröu fyrir atómsprengjum
skerptu og mögnuöu, sem og vitn-
eskja um geislavirkniháskann i
lofti og vatni. Siöan skall á hlé.
Nokkrir þættir sameinuöust um
aö draga niöur baráttu gegn
kjarnorkudauöanum. Vopna-
birgöirnar uröu þaö miklar, aö
hvorugur kjarnorkurisinn gat
lengur tortimt hinum: þaö kom
upp ný kenning um öryggi sem
kölluö var jafnvægi óttans. Bar-
áttan dofnaöi og sumpart vegna
þess að viss árangur náðist: það
tókst aö mestu aö taka fyrir til-
raunir með kjarnorkuvopn i um-
hverfi mannsins. Hún dofnaöi lika
vegna þess að jafnvægi óttans
svokallað sýndist einnig sá vita-
hringur sem dæmdi venjulega
borgara til áhrifaleysis: það væri
ekkert hægt aö gera.
Ný hreyfing
Og nú höfum viö um nokkur
misseri lifaö þaö, aö ný friöar-
hreyfing veröur til og fjallar
fyrst og fremst um kjarnorkuvig-
búnaöinn. Gamlir friöarsinnar
vakna af svefni og nýir fara i
gönguskó og mála sér spjald eöa
munda penna . Og baráttan lifn-
ar aftur af jafnmörgum ástæöum
og hún áöur dofnaöi. Menn
treysta ekki lengur á jafnvægi
óttans. Meöal annars vegna sér-
hæfðari og nákvæmari atóm-
vopna og eldflauga, sem gera not-
kun slikra vopna liklegri en áður.
Og vegna þess, aö risarnir tveir
sem höföu meö tvihliöa samning-
um eins og tekiö að sér aö kveöa
niöur atómdrauginn, þeir hafa
ekki náö neinum árangri sem
haldgóöur hefur oröið. beir geys-
ast áfram i einhverju blindu æöi
og kunna ekki önnur svör en
svara eldflaug meö öörum tveim,
sprengju með öörum fimm.
Hver er sekur?
Hver ber ábyrgðina? Hver er
sekur?
Það er talsveröri orku variö i aö
ræöa þau mál. Sovétmenn vilja
gjarna firra sig allri ábyrgð, og
visa á það, að Bandarikin hafi
haft frumkvæöi um svo til allar
nýjar geröir vopnabúnaöar á
undanförnum árum. Fleiri eða
færri taka undir þennan skilning.
En það er vitaskuld ástæöulaust
aö láta sovéska ráðamenn sleppa
viö ábyrgö af þeirri „stigmögnun
misskilnings og rangra útreikn-
inga” sem sýnast stjórna vigbún-
aðarkapphlaupi, ef nokkuð gerir
þaö. Hver sá sem eykur verulega
á firnalega offramleiöslu á vopn-
um i eldfimum heimi er margsek-
ur, þaö ætti að vera augljóst mál.
En svo eru þeir, bandariskir
forystumenn og jábræöur þeirra,
sem kasta allri skuld á Sovét-
menn: Þá er dæmið séö
frá þvi sjónarhorni, aö þeir sem
ógni ákveönu „jafnvægi” (sem
hefur i 35 ár þýtt meiri eöa minni
tæknilega yfirburði Bandarikj-
anna) með þvi að krækja sér i
betri stööu en þeir höföu i fyrra
eöa hitteðfyrra — þeir hljóti að
bera höfuöábyrgö á vfgbúnaöar-
æöi."Til aö trúa þessari kenningu
þurfa menn aö telja Bandarikin
sjálfsagöan vörö réttlætis og
friöar. Af sjálfu leiöir aö i heimi
sem þekkir t.a.m. samhengið
milli bandariskra hagsmuna og
kúgunar á alþýöu i Rómönsku
Ameriku veröur ekkert sam-
komulag um slíkan skilning. En
látum reyndan bandarískan
diplómat eins og George Kennan
fá orðiö um sekt risaveldanna. I
Einsteinræöu sinni i Washington
kvaðst hann veröa siöastur
manna til aö neita þvi aö Sovét-
mennættu sinn hluta af sektinni.
En hann bætir viö:
„ Viö vorum
fyrstir”
,, Við verðum að muna, að við
næstum þvi hvert skref á þessari
braut erum þaö viö Amerikanar
sem hafa tekið forystu um þróun
þessara tegunda vopna (kjarn-
orkuvopna). Þaö vorum viö sem
fyrstir framleiddum og prófuðum
slik vopn, viö vorum fyrstir til aö
margfalda eyöingarmátt þess
með vetnissprengjunni, viö fund-
um upp eldflaugar meö mörgum
kjarnaoddum, þaö erum viö sem
höfum visað á bug hverri tillögu
um að riki afsali sér rétti til „aö
verða fyrstur til”, og viö erum
einir um þaö, svo hjálpi okkur
guö, aö hafa i reiöi notað þessi
vopn gegn öörum, og meira aö
segja gegn tugum þúsunda
hjálparvana óbreyttra borgara”.
Þetta vill Kennan minna landa
sina á til aö þeir gleymi þvi ekki i
„sjálfumgleöi og hræsni” hve
rækilega þeir eru samsekir þvi
ástandi sem skapast hefur.
Talning út í hött
Ræöa Kennans var annars fróö-
leg um ýmislegt fleira enda hefur
viöa verið vitnað til hennar
undanfarnar vikur. Hann reynir
að benda á einhverja leið út úr
kjarnorkumartröðinni sem hann
kallarsvo. Og hann byrjar á staö-
hæfingu sem kemur vafalaust
flatt upp á marga þá talninga-
meistara eldflauga og flugvéla,
sem Nató hefur komiö sér upp,
meöal annars hér á landi. Þessi
fyrrverandi sendimaöur Banda-
rikjanna i Moskvu heldur þvi
blákalt fram, aö samanburöur á
kjarnorkuvopnabirgöum hafi
enga raunverulega þýöingu ein-
faldlega vegna þess aö um fárán-
legt ,, overkill” sé að ræöa — en
þaö orö er haft yfir möguleikann
á aö margdrepa hvert mannsbarn
á jöröunni. Hann segir, að þeir
sem ekki skilja, að þaö er sjálf of-
gnótt kjarnorkuvopna sem er
háskinn, en ekki þaö aö einhver
annar gæti átt meira af tilteknum
drápsskeytum en -,,viö” — þeir
muni aldrei geta visaö veginn út
úr þvi myrkviði sem viö „höfum
öll ráfað inn i”.
Helmings
niðurskurður
Og Kennan slær fram i fullri al-
vöru mjög róttækri tillögu, ein-
mitt i framhaldi af þessum skiln-
ingi: Hann leggur það til, að
bandariska þingiðstingiupp á þvi
við Sovétmenn að allar tegundir
kjarnorkuvigbúnaðar og flugvéla
og flugskeyta sem þau bera —
allt verði þetta skorið niöur
um helming. Umsvifalaust! An
langdreginna sérfræðingavið-
ræöna þar sem hver tegund er
röguö og vigtuö endalaust. Kenn-
an telur aö rikin tvö eigi nógsam-
lega öflugt eftirlitskerfi til aö
fylgjast meö þessu. Og aö þótt
þetta væri gert væri samt eftir
meira ennóg af „overkill”. Hann
telur höfuökost slikrar hugmynd-
ar þann, aö þetta skref sé nóg-
samlega stórt til aö breyta hugar-
fari, breyta andrúmslofti, rjúfa
sjálfskaparviti.brjótast útúrvita-
hring — tast svo af sjálfstrausti
viö þau fjölmörgu vandamál sem
enn mundu óleyst þegar þetta
heföi veriö gert.
Kennan gerir sér grein fyrir
þvi, aö slikum svo róttækum aö-
geröum mundi fylgja viss áhætta
— en, segir hann: þaö er alltaf
mun minni háski en sá visi háski
sem blasir viö á þeirri leiö sem
allir skeiöa nú.
Hlutverk
hreyfingar
Kennan mun, eins og allir þeir,
sem i stærri eða smærri stil vilja
beita sér fyrir friöarfrumkvæði,
fá yfir sig aö hann sé „nytsamur
sakleysingi”, eða þjóni Sovétrikj-
unum „i reynd”, enda vitni þeir i
hann. Hann verður, eins og þeir
sem nú ganga friöargöngu frá
Kaupmannahöfn til Parisar, eöa
frá Keflavik til Reykjavikur,
verða spuröur að þvi, hvaöa
ástand eigi að koma i staöinn
fyrir óbreytt ástand, hvernig
menn eigi að komast hjá þvi aö
gera risanum i austri greiöa,
meöan hann getur kæft opna um-
ræöu um málin á sinu valdasvæði.
Þetta eru vissulega allt spurn-
ingar, sem menn geta ekki visaö
frá sér sem ómerkum.
En þær nýju friðarhreyfingar
sem eru að þróast i Evrópu,
Bandarikjamönnum og ýmisleg-
um Morgunblaösvinum þeirra
til sárrar gremju, eru svo marg-
litar og svo skammt á veg komn-
ar, að þær munu ekki gefa þau
samræmdu svör, sem menn geta
t.d. krafist af tölvukerfi eöa póli-
tiskum flokki. Hlutverk hreyfing-
ar er aö koma endurmati af stað.
Hinar nýju friöarhreyfingar hafa
ýmsa jákvæða þætti fram yfir
fyrirrennara sina. Þær eru miklu
óbundnari af þeirri tviskiptingu i
með -mér móti- mér, sem risa-
veldunum hefur alltof lengi tekist
aö halda viö lýöi. Þær fá miklu
sterkari liðsauka sérfróöari
manna en áöur, meðal annars
„afturbata,” herfræðinga, sem
hafa stigið niður marga „hringi”
vigbúnaðarvitis og komið upp
meö dýrmæta þekkingu. Þær eiga
sér þungamiöju einmitt i þeirri
Vestur-Evrópu sem er i mestri
hættu sem fyrsti vigvöllur, sem
vettvangur þeirra stórslysa sem
blindingsleikur risanna getur leitt
til. Meö öðrum orðum: við getum
vænt þess, aö i nýrri friöarbar-
áttu sé minna um tiskuhrifningu
þeirra sem eru uppiskroppa með
málstaö, meiraum alvöru þeirra
sem eldurinn á brennur, en var
um ýmsar hliöstæðar hreyfingar
hér áður fyrr.
Það er mörgum spurningum
ósvarað um þaö með hvaða hætti
afvopnun getur tekiö viö af vig-
búnaðaræöi. En svariö við þeim
er fyrst af öllu fólgið i eina styrk
hreyfingar: i þeim stuöningi viö
hana sem dugir til aö skapa
nauösynlegan þrýsting á athafnir
ráöamanna. Sá hluti þess svars
sem að okkur snýr er aö sjálf-
sögöu fólginn i þvi aö ganga meö
frá Keflavik i dag. Eöa frá Stapa.
Eöa frá Kúageröi...