Þjóðviljinn - 20.06.1981, Side 5
Helgin 20.-21. júnl 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 5
notad 09 nýtt
Viðtalsþjónusta
Þjóðviljans:
Fátt helur vakiö meiri og
veröskuldaöri athygli aö undan-
förnu en tilkoma allra hinna
nyju verktakafélaga. Er
skemmst aö minnast stofnunar
verktakafélags öskukalla,
veöurfræölnga, ættfræölnga,
iækna og nú siöast löggæslu-
manna. t tilefni af stofnun
verktakafélagsins Armur lag-
anna s/f þótti okkur hjá Viötals-
þjónustu Þjóöviljans rétt aö
leita svara hjá talsmanni
félagsins Einaröi Einharössyni
rannsóknarlögreglumanni.
— Einarður, sumir vilja halda
þvi fram, að það orki tvimælis,
aö félag ykkar Armur laganna
s/f sé lögmætt félag?
— Já, þaö eru alltaf einhverjir
sem vilja ákveða fyrir almenn-
tng hvaö eru lög i þessu landi.
Viö látum það sem vind um eyru
þjtíta.
— Sjáið þið enga aðra leiö til
þess að bæta kjör ykkar lög-
gæslumanna?
— Alls ekki. Rikisvaldið
hefur hundsað kaupkröfur
okkar það lengi, að við sjáum
enga leið færa aðra en.aö taka
Verktaka-
félagið
Armur laganna sf.
lögin i okkar hendur, ef svo má
segja, og það höfum við gert
með stofnun verktakafélagsins
Armur laganna s/f. Ég sé
ekkert ólöglegt við stofnun
verktakafélags á þessu sviöi
fremuren öðrum.
— NU hafið þið auglýst verð-
skrá Einarður, er gerlegt að
verðleggja löggæslustörf einsog
til dæmis málningarvinnu?
— Já, þvi ekki? Það má
flokka okkar störf nákvæmlega
einog önnur störf iþjóðfélaginu.
Við setjum upp ákveöið gjald
fyrir handtöku, fyrir stöðvun
bifreiðar, fyrir að láta blása i
blööru, fyrir að sitja i lögreglu-
bilnum, fyrir að taka skýrsluaf
drukknum ökumanni, fyrir að
læsa fángaklefanum, svo ég
nefni nd bara af handahófi örfá
dæmi.
— Einarður, hvernig munduð
þið hjá Armi iaganna s/f bregð-
ast við, ef einhver hringdi og
segðist vera i yfirvofandi hættu,
það væri t.d. verið að ráöa við-
komandi af dögum?
— Við mundum einfaldlega
reyna að tjá viökomandi hvað
þaö kostaði að láta brjóta upp
hjá sér dyrnar og annaðhvort
fjarlægja likið eða afvopna til-
ræðismanninn. Hafi viðkom-
andi ekki fé handbært til að
greiða fyrir þjónustuna gefst
honum kostur á að skrifa uppá
viðskiptavíxil með venjulegum
víxilkostnaði. En þaö er deg-
inum ljósara aö við getum ekki
fremur en aðrir i þessu þjóð-
félagi, veitt þjónustu nema gegn
öruggri greiðslu.
— NU hefur fjármálaráðherra
lýst yfir því, að hann álíti aö-
ferðir ykkar varða við lög.
Hverju viltu svara þeim ásök-
unum?
— Ráðherrar koma og fara,
en löggæslan blivur. Mér finnst
að ráðherrar ættu að hugsa sig
um tvisvar, áðuren þeir
gagnrýna löggæsluna opinber-
lega.
— Einaröur, teljið þiö aö al-
menni'ngur muni möglunarlaust
sætta sig viö aö löggæslan færist
i hendur verktakafélagi?
— Við erum reyndar með
sérstaka þjónustu við þá sem
ekki sætta sig við þjónustu okk-
ar.
erlendar bækur
Heinrich Heine:
Sakularausgabe
—Werke, Briefwechel, Lebens-
zaugnisse. Herausgegeben von
den Nationalen Forschungs und
Gedenkstatten der klassischen
deutschen Literatur in Weimar
und dem Centre National de la
Itecherche Scientifique in
Faris. Band 13: Potfmes et Lé-
gcndes. Bearbeiter Pierre
Grappin. Band 27. Briefe an
Heine 1852—1856. Kommcntar.
Bcarbeiter Christa Stöcker.
Akademie-Verlag Berlin — Edi-
tions du CNRS Paris 1978—1980.
Alls mun bindafjöldi Heine*út-
gáfunnar verða um 30. Nokkur
eru útkomin og eru þessi bindi
þau siöustu. Þessi útgáfa er ein-
staklega vel unnin, nákvæm og
vönduð. 27. bindið eru athuga-
greinar við bréf til Heines
1852—56 og er allt tint til sem
snertir bréfin og ekki er að finna
i þeim sjálfum. PoSms et Lé-
gendes par Henri Heine kom út i
Paris 1855, ári áður en hann lést.
Paris og Frakkland urðu annaö
föðurland Heine frá 1831. Þýð-
ingarnarhefjastmeð Atta Troll,
satiriskum kvæðabálki þar sem
efnið er Þýskaland og hin ömur-
legu örlög þess, sem Heine sá
fyrir og gat aldrei sætt sig við.
Heine mótaði þá mynd Þýska-
lands, sem átti eftir að ráða
hugmyndum Frakka um langan
aldur, eins og hann mótaði hug-
Heinrich Heine
myndir Þjóðverja um Frakk-
land. Þessar hugleiðingar hans
komu fram i greinum sem hann
skrifaði i Revue des deux Mond-
es á árunum 1832—35, en þær
voru siöar gefnar út i Die
romantische Schule og i Zur Ge-
schichte der Religion und Philo-
sophie in Deutschland. Þótt
Heine segði skiliö við Þýska-
land, mótaðist afstaða hans til
fööurlands sins af ást og hatri og
einmitt þessvegna varð honum
þemað Þýskaland stöðugt ihug-
unarefni, stöðug kveikja til at-
hugana og uppgjörs. Frakkar
kunnu að meta Heine og hann
naut þar opinbers rithöfunda-
styrks. Þvi fór fjarri að Heine
dáði allt það sem franskt var.
Fáir menn hafa haft meiri ömun
á frönskum smáborgurum en
hann og þá einkum konungi
þeirra, borgarakóngnum Lúð-
vik Filip.
Marcus Clarke:
His Natural Life.
Edited with an lntroduction by
Stephen Murray-Smith. Peng-
uin Books 1980.
Marcus Clarke fluttist frá
London til Astraliu 1863. Hann
stundaði blaðamennsku og ým-
iss konar skriftir, og höfuð-
árangurinn varð þessi bók. I
henni dregur hann upp mynd
þeirra, sem enskt réttlæti taldi
heppilegast að flytja úr landi i
refsingarskyni. Fjöldi manna
var dæmdur til þess að flytjast i
fanganýlendurnar, þ.á m.
Astraliu. Lýsingar Clarke, á
örlögum þeira sem þangað
lentu eru ekki sérlega glæsileg-
ar. Margir komust þangað
aldrei, þeim þótti skárra að
stytta sér aldur, áður en kæmi
til nauöungarflutninganna.
Bókin er hér prentuö óstytt og
gefin út i Penguin English Libr-
ary.
Skólastjóra vantar
við Tónlistarskólann i Ólafsvik frá 1. sept.
n.k.
Upplýsingar um stöðuna gefa: Sveitar-
stjóri i sima 93-6153 og formaður skóla-
nefndar i sima 93-6293.
Skólanefnd.
Skrásetning stúdenta
til náms á 1. námsári
í Háskóla Islands
fer fram frá l. til 15. júli 1981. Umsókn um
skrásetningu skal fylgja staðfest ljósrit
eða eftirrit af stúdentaprófsskirteini,
skrásetningargjald kr. 320.- og tvær litlar
ljósmyndir af umsækjenda. Skrásetningin
fer fram i skrifstofu háskólans og þar fást
umsóknarey ðublöð.
Athugið: Ekki verður tekið við umsóknum
eftir 15. júli.
Organisti —
Ólafsvíkurhreppur
Organista vantar yið ólafsvikurkirkju nú
þegar eða frá 1. sept. n.k..
Æskilegt er að viðkomandi geti tekið að
sér kennslu við Tónlistarskólann. Upplýs-
ingar hjá formanni sóknarnefndar i sima
93-6233 og formanni skólanefndar tónlist-
arskólans i sima 93-6293.
Sóknarnefnd.
Frá Garðaskóla
Laus er til umsóknar ein staða kennara i
liffræði og eðlisfræði á grunnskóla- og
framhaldsskólastigi.
Nánari uppl. gefur skólafulltrúi Garða-
bæjar i sima 42311.
Skólanefnd.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR óskast á
næturvaktir á öldrunarlækningadeild
Landspitalans frá og með 1. júli. Áætluð
vinna 9 nætur i mánuði. Upplýsingar veitir
hjúkrunarforstjóri Landspitalans i sima
29000.
LÆKNARITARAR óskast til frambúðar á
ýmsar deildir. Stúdentspróf eða hliðstæð
menntun áskilin, ásamt góðri vélritunar-
kunnáttu. Umsóknir er greini menntun og
fyrri störf sendist Skrifstofu rikisspital-
anna fyrir 6. júli n.k. Upplýsingar veitir
starfsmannastjóri i sima 29000.
STARFSMAÐUR óskast sem fyrst i heila-
rit Landspitalans. Stúdentspróf eða sam-
bærileg menntun æskileg. Um framtiðar-
starf er að ræða. Upplýsingar veitir
deildarstjóri heilarits i sima 29000 milli
10—12.
KLEPPSSPíTALI
FÉLAGSRÁÐGJAFI óskast við Klepps-
spitalann. Umsóknir er greini menntun og
fyrri störf sendist Stjórnarnefnd rikis-
spitalanna fyrir 29. júli n.k. Upplýsingar
veitir yfirfélagsráðgjafi i sima 29000.
Reykjavik, 21. júni 1981
Skrifstofa rikisspitalanna,
Eiriksgötu 5, simi 29000.