Þjóðviljinn - 20.06.1981, Side 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 20.-21. júnl 1981
daegurtónlist
Ein hinna mörgu
hljómsveita sem skotiö
hafa upp kollinum á
þessu ári er Taugadeild-
in. Þrátt fyrir ungan ald-
ur hefur hljómsveítínni
tekist að ná töluverðri
hylli. Og fljótlega mun
fyrsta afkvæmi Tauga-
uei Idarinnar Iftadagsins
Ijos.
i tilefni af væntanlegri
plötu þótti tilhlýðilegt að
bregða undir sig betri
fætinum og ná tali af
þeim sveinum.
Erfið fæðing.
Sp. Hvenær var hljómsveit-
inni hleypt af stokkunum?
Sv.Það var i september á sið-
asta ári sem fyrsta útgáfa af
Taugadeildinni fór af stað. Sú
útgáfa starfaði saman tvær æf-
ingar og gaf þá upp öndina sök-
um tónlistarlegs ágreinings.
Núverandi útgáfa kom fyrst
saman um áramótin og hélt sina
fyrstu tónleika i Menntaskólan-
um við Sund i febrúar
t leikgarðinum
Taugadeild tekin tali
siðastliðnum. Alls hefur
hljómsveitin haldið um tiu
hljómleika og hefur tæpur helm-
ingur farið fram á Hótel Borg.
Það var töluvert erfitt að
fullmanna Taugadeildina, sér-
staklega að finna menn á hljóm-
borð, gitar og trommur. En það
tókst að lokum.
Sp. Upp úr hvaða hljómsveit-
um er Taugadeildin sprottin.?
Sv.Allar þessarhljómsveitir,
Fræbbblarnir, Taugadeildin,
Utangarðsmenn, Purrkur Pill-
nikk og Q-4-U,eru úreinum stór-
um hóp.
Taugadeildin er sprottin upp
úr þessum hóp. Óskar var i
Fræbblunum og æfði meö Utan-
garðsmönnum. Þorsteinn,
hljómborðsleikarinn, er fyrsti
bassaleikari Fræbbblanna.
Hinir voru misjafnlega tengdir
þessum hóp.
Sp. Lék ekki nýi gitarleikari
Fræbbblanna með ykkur um
tima?
Sv. Jú, Assi byrjaði upphaf-
lega með okkur en gekk siðan til
liös við Fræbbblana. Engu að
siður lék hann með okkur þar til
við fundum Óðin.
Sp. Hvernig gekk að finna
nýjan gitarleikara?
Sv.Það gekk nú hálf brösótt.
Við lentum á alls konar fyrir-
bærum allt frá bárujárnsrokk-
urum yfir i diskó-aðdáendur og
öllu þar á milli.
ÓBin fundum við i rusla-
kompu heima hjá einum kunn-
ingja okkar.
Tveir framlínumenn.
Sp. Hvað gerið þið utan þess
að leika tónlist?
Sv.Taugadeildin er af mörg-
um og merkilegum sauðahús-
um. Einn er golfidjót. Annar er
að leita að þaki yfir höfuðiö.
Þriöji er verðandi faöir. Fjórði
aumingi sem hætti i skóla.
Fimmti er kvikmyndaleikstjóri
og sá sjötti er i vinnumennsku á
Hellu.
Sp.Nú hefur það vakið athygli
að þið eruð með tvo framlinu-
menn (frontmenn). Hvað
kemur til?
Sv. Okkur fannst það mjög
sniðug hugmynd aö hafa tvo
framlinumenn, það gefur
hljómsveitinni aukna mögu-
leika. Svo erum við miklu lif-
legri á sviöi með „dansara”.
Þannig að þetta hangir allt
saman á sömu spýtunni.
Að öllum likindum mun Egill
leika á saxafón i framtiðinni,
þannig að þá verðum við nokkuð
vel settir hvað varöar breidd i
hljóðfæraskipan.
Sp. Hvernig hefur ykkur
gengið að fá æfingapláss?
Þorsteinn, Kommi, Arni Davið, Óskar, Egill og Óðinn. Talið frá vinstri til hægri.
ekta Fræbbbli og verður ekki
annað sagt en samstarfið hafi
tekist eins og best verður á
kosið.
Platan er hljóðrituð og hljóð-
blönduð i Stemmu á aðeins 16
timum. Við erum mjög ánægðir
með árangurinn, þvi að okkur
tekst að ná fram mjög svipuöum
hljóm og á tónleikum. Samt
hefði ekki sakað að fá nokkra
tima til viðbótar til að snurfusa
nokkra hluti sem heppnuðust
ekki sem skyldi við hljóðritun.
Erfitt að semja.
Sp. Hvernig gengur ykkur að
semja á islensku?
Sv.l upphafi voru allir okkar
textar á ensku, en okkur þótti
það ekki við hæfi, þannig að við
snöruðum þeim vel-flestum yfir
á islensku. Við reynum allir
að semja en eins og gengur og
geristerum við misgóðir. Arni á
sennilega best með að tjá hugs-
anir sinar i bundnu máli.
Sp. Hver semur tónlistina?
Sv. Hún er i lang-iflestum
tilvikum samin i sameiningu á
æfingum. Einn af okkur kemur
þá gjarnan með laglinu og siðan
er unnið út frá henni uns lag er
fullskapað.
Einstaka sinnum kemur það
fy rir að við komum með fullbúin
lög á æfingar en það er ákaflega
sjaldan.
Sp. Hafið þið reynt að skil-
greina tónlist ykkar?
Sv. Við höfum enga skilgrein-
ingu á takteinum fyrir blaða-
menn né aöra. Tveir popp-
spekúlantar kölluðu okkur
„ska” hljómsveit ekki alls fyrir
löngu. Við hlógum i heila viku
yfir þessum stimpli. Ef marka á
okkur tónlistarbás má setja
hann á milli Fræbbblana og
Þeys. Annars er okkur illa við
að láta likja okkur við einhverj-
ar hljómsveitir. Við leikum okk-
ar tónlist.
Áhrif frá Bretlandi.
Sp.Á hvað tónlist hlustið þið?
Sv.Við hlustum á nær allt sem
kemur frá Bretlandi. Hljóm-
sveitir eins og Joy Division,
New Order, Undertones,
,,ska”-hljómsveitir o.fl. o.fl.
Sp. Eruð þiö ekkert hræddir
við að staðna i einhverri einni
tónlistarstefnu?
Sv.Þaöer staðreynd sem vert
er að gefa gaum, að frjóasta
tónlistin hefur komið frá fólki á
aldrinum 16-24. Þannig að við
eigum enn nokkuð langa leið
fyrir höndum.
Annars er alger óþarfi að
staðna i tónlist. Ef menn leggja
það á sig að fylgjast með nýj-
ungum verður uppskeran i sam-
ræmi við það.
Sp.Er einhver stefnubreyting
i vændum hjá ykkur?
Sv. Já og nei, okkur langar til
að standa undir þessum
„ska”-áburði en það er allt
óráðið ennþá.
Sp. Snúum okkur að öðru —
hvernig list ykkur á þróunina i
islensku tónlistarlifi i dag?
Sv. Hún er alveg dásamleg,
allir björtustu draumar okkar
eru að rætast. Samt er eins og
herslumuninn skorti hjá sum-
um. Þeir eru ekki ennþá farnir
að átta sig á tiðarandanum.
Litil plata.
Sp. Hvaöa lög veröa á
væntanlegri plötu ykkar?
Sv.Það verða fjögur lög sem
öll hafa verið á „prógrammi”
okkar að undanförnu. Það eru
lögin „Her longing”, „Tauga-
deildin”, „Guð hins nýja tima”
og „Hvitar grafir”.
„Her longing” er á ensku og
var valiö á samansafnsútgáfu
Rough Trade Records sem
kemur út með haustinu. Auk
okkar verða lög eftir Purrkinn,
Þey, Fræbbblana og Utangarðs-
menn.
Sp. Hver var upptökustjóri
hjá ykkur?
Sv. Valgarður Guðjónsson
Sv. Við vorum mjög lánsamir
og fengum inni hjá einum kunn-
ingja okkar. En erfiðasti hjall-
inn hjá öllum hljómsveitum er
að fá æfingapláss. Þær eru ekki
svo fáar sem orðið hafa úti
sökum húsnæðiseklu.
Sp. Hvað æfið þið oft i viku?
Sv. Að jafnaði eru það þrjú
kvöld i viku, þá 4-5 tima i senn.
Og svo oftast um helgar,en þær
hafa nýst okkur vel.
juii viucir
Sigurðsson
skrifar
->i T
Það er Borgarliðiö, Kópa-
vogsklikan og Jokerklikan sem
staðið sig vel.
Gott dæmi um góðar undir-
tektir við nýrri tónlist er salan á
plötu Purrksins en hún er mjög
góð, farin tæp 900 eintök.
Sp.Viljiö þið þakka einhverj-
um hljómsveitum fyrir þá
hugarfarsbreytingu sem átt
hefur sér stað aö undanförnu?
Sv.Fræbbblarnir eiga stóran
þátt sem frumherjar, svo er
hlutur U tangarðsmanna
ómældur og verður þeim seint
fullþakkað hvað svo sem segja
má um tónlistina.
í kjölfar þessara hljómsveita
hafa sprottið upp hljómsveitir i
hverjum bilskúr sem allar
keppast við að leika frumsamda
tónlist og það er alveg stórkost-
legt.
Sp. Er landinn nýjunga-
gjarn?
Sv. íslendingar hafa verið
furðu lokaðir gagnvart tón-
listarhræringum erlendis, en nú
er eitthvað að rofa til og verður
gaman að sjá hvert framhaldið
verður.
Sp.Gerið þið ykkur vonir um
að plata ykkar seljist eitthvað.
Sv.l það minnsta 5000 eintök!
— Svona án grins, þá erum við
ekkert alltof bjartsýnir, en von-
um samt að hún seljist það vel
að við getum keypt brot af þeim
tækjum sem okkur vanhagar
um.
Sp.Ef sú litla gengur vel er þá
ætlunin að ráðast I gerð breið-
skifu?
Sv. Það fer fyrst og fremst
eftir sölunni á þeirri litlu. Ef
hún gerir það gott þá erum viö
til alls liklegir. Allavega verður
efnisskortur okkur ekki fjötur
um fót.
En það er fyrst og fremst
tækjaskortur sem stendur okkur
fyrir þrifum. Ef til þess kæmi
að gefa út stóra plötu þá yrðum
við að vera með lengra pró-
gramm og eiga okkar eigin
tæki.
I framtiðinni ætlum við að
stefna að þvi að leika sjaldnar
opinberlega en skipta þeim mun
oftar um lög á prógramminu,
meiri endurnýjun, jafnvel
meira „show”.
Sp.Hafið þið haft annað upp
úr þessu en ánægjuna?
Sv.Það er varla orð i þvi haf-
andi. Peninga fyrir einum
mikrafón eöa svo. Það eru litlir
möguleikar til að hafa eitthvaö
upp úr þessu, að minnsta kosti
meðan við erum enn svo til
óþekktir. Vonandi lagast það
þegar litla platan kemur út.
Sp.Hvers vegna leikið þið þá
ekki á dansleikjum?
Sv. Við höfum ekki nægilega
mikið frumsamið efni til þess.
En ef fólk viil dansa við tónlist
okkar þá erum við tilbúnir til að
leika á dansleikjum.
Sp. Hvað verðið þið lengi i
þessu i viðbót?
Sv. Þangað til við hættum!
Ætli við tollum ekki saman eins
lengi og hægt er, allavega
þangað til við erum komnir i
óskalög sjómanna. Toppurinn
er að sjálfsögðu að komast i lög
unga fólksins.
Tvennir
hljómleikar
Styrktarhljómleikar fyrir
MS-félagið (heila- og mænu-
siggssjúklinga) verða haldnir i
Þjóðleikhúsinu 29. og 30. júni. A
dagskrá verða 15 atriði, bæði
rokk og klassik. M.a. mun Ólöf
Harðardóttir syngja og hljóm-
sveitin Náttúra eins og hún var
skipuð 1972 leika og jafnvel
Shady Owens. Hljómleikarnir
verða hljóðritaðir.
Hinn 3. júli verða svo i Laug-
ardalshöll hljómleikar þar sem
fram koma um 10 hljómsveitir.
Þar er fyrst að telja Þey,
Fræbla, Taugadeild, Jurka og
kannski Bara-flokk, Englaryk
og fleiri hljómsveitir sem hafa
verið að skriða út úr bilskúrnum
á siðustu mánuöum. Hugmynd-
in er að hafa aukasvið i anddyri
Hallarinnar þannig að alltaf sé
eitthvað á seyöi.