Þjóðviljinn - 20.06.1981, Qupperneq 22
22 -StÐA — ÞJ ÓÐVILJIN N Helgin .20.-21. júni 1981
sunnudagskrossgátan
Nr. 276
í
B
D
Ð
E
É
F
G
H
I
í
J
K
L
M
N
0
Ó
P
R
S
T
u
u
V
X
?
Þ
Æ
Ö
/ z 3 ¥■ V S l? 55 7 V 8 5? 9 w u >2 13 H
fS' s w H I? 18 11 /? /9 20 10 ;? 52 j"? 2/ 3 ¥
Zl r í? 2Z 22 10 V 8 /7 23 )¥ 5? 18 ;/ )¥ 13 13 W~
;? )Z zv- T 22 18 w /b 23 23 Z 3 ;? 26' Up 13 w?
n 20 /9 ¥ /f <2 b \8 10 /9 V n 22 !¥■ V )# lt> h
V W /7 W V 5~ 23 23 V 1? iT 22 23 2¥ 3 10 5?
IZ IT II 23 5T b ie )¥■ /? V /9 ¥ V 18 10 er V- "K |
W~ f zz 22 17 /? /9 23 23 5? 22 W )b 17 W 52
ie ¥ b IS 21 1? n 20 )9 52 2b T~ d ¥ /9 23
V 3 )te 22 22 5? 23 n 20 n 52 8 $ 27 28
ie )0 IV- 13 V 23 24 52 52 3 o zd 10 ;? 52 £T /9 17
Stafirnir mynda islensk orö
eða mjög kunnugleg erlend heiti
hvort sem lesið er lá-eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer
og galdurinn við lausn gátunnar
er sá aö finna staflykilinn. Eitt
orð er gefiö og á það að vera
næg hjálp, þvi að með þvi eru
gefnir stafir i allmörgum orð-
um. bað eru þvi eðlilegustu
vinnubrögöin að setja þessa
stafi hvern i sinn reit eftir þvi
sem tölurnar segja til um. Einn-
ig er rétt að taka fram, að i
þessari krossgátu er gerður
skýr greinarmunur á grönnum
sérhljóða og breiðum, t.d. getur
a aldrei komið i staö á og öfugt.
Setjið rétta stafi i reitina hér til
hliðar. beir mynda þá nafn á
fuglategund sem kemur hingaö
stundum sem flækingsfugl.
Sendið þetta nafn sem lausn á
krossgátunni merkt: „Kross-
gáta nr. 276” til bjóðviljans,
Siðumúla 6, Reykjavik, skila-
frestur er þrjár vikur. Verð-
launin verða send til vinnings-
hafa.
Verðlaun fyrir krossgátu 272
hlaut Magnús A. Sigurðsson,
Felli Mosfellssveit.— Verðlaun-
in eru Endurminningar séra
Magnúsar Bl. Jónssonar.
Lausnarorðiö er GÆSAVÖTN.
Verðlaunin
Krossgátuverðlaunin að
þessu sinni eru bókin
,, Eyðimerkurstríðið" eftir
Richard Collier í þýðingu
Ornólfs Thorlacius. Al-
menna bókafélagið gefur
bókina út.
15 2 22 23 5 2*Á JS Jf
Aðalfundur SÍS:
Samstarf um tök
á tölvuvæðingu
Meðal þeirra mála sem rædd
voru á nýafstönum aðalfundi SIS
var tölvuvæðingin, sem nú ryður
sér til rúms á æ fleiri sviðum at-
vinnulífsins. Leiddu umræður til
þess, að samþykkt var eftir-
farandi áiyktun:
„Hin sífellda og öra tækniþróun
á sviði sjálfvirkni og tölvumála,
sem sumir hafa nefnt „örtölvu-
byltinguna” og likt við iðn-
byltinguna miklu hvað varðar á-'
hrif á mannlifið, mun á komandi
árum hafa veruleg áhrif á daglegt
lif þjóðarinnar og störf. A öllum
helstu sviðum atvinnulifsins, og
jafnvel á heimilum, skapast
möguleikar til aö beita nýrri
tækni við sifellt flóknari og um-
fangsmeiri verkefni, sem aftur
mun setja mark sittbæöi á starfs-
hætti fólksins svo og nýtingu fri-
tima.
Aðalfundurinn telur nauðsyn-
legt að samvinnuhreyfingin verði
ifararbroddi hvað varðar nýtingu
þessarar tækni til framþróunar I
hinum fjölmörgu greinum at-
vinnulifsins sem hún er þátt-
takandi i hér á landi. Jafnframt
leggur fundurinn áherslu á nauð-
syn þess, að með aukinni fræðslu
um þessi mál almennt, menntun
starfsfólks til nýtingar þeirra
möguleika er skapast, og ekki sist
með samráöi samvinnu-
hreyfingarinnar við verkalýðs-
hreyfinguna, verði leitast við að
tryggja að nýting þessarar tækni
megi verða félagsmönnum,
starfsmönnum og almenningi til
góðs”.
-mhg
Samræma
þarf gerð
gróðurhúsa
Fyrir nokkru var haldinn aðal-
fundur Félags garðyrkjubænda.
Voru þar rædd helstu málefni er
varða hag og framtíðarhorfur is-
lenskrar garðyrkju.
Meðal þeirra voru m.a. trygg-
ingamál og á hvern hátt þeim yrði
best fyrir komið. 1 ljósi reynsl-
unnar frá sl. vetri var talið nauð-
synlegt að koma þessum málum i
{að horf, að tryggja garðyrkju-
bændur fyrir stóráföllum, bæði
hvað snertir tjón á húsum og
gróðri. Einnig var rættum sivax-
andi innflutning afskorinna
blóma og pottaplantna og áhrif
hans á markaðinn svo og þá hættu
á meindýrum og sveppum, sem
fylgir innflutningi á plöntum . Enn
var rætt um gróðurhúsabygging-
ar og nauðsyn á samræmdum
kröfum um gerð húsa með tilliti
til veöurhæfni en þau mál hafa
verið mjög á reiki til þessa.
Fjárhagur Sambandsins er
veikur. Rætt var um leiðir til að
styrkja hann þannig, að starf geti
gengið með eðlilegum hætti. Var
hvatt til aukins átaks til að kynna
málefni og stöðu islenskra garð-
yrkjubænda. Gerð var grein fyrir
helstu tilraunum sem á döfinni
eru á sviði garðyrkjunnar og
hvernig þau mál horfa við.
Kjörin var ný stjórn og skipa
hana þessir: Kristján Benedikts-
son, Viðigerði i Reykholtsdal,
formaður en aðrir: Erlingur
Ólafsson, Reykjadal, Mosfells-
sveif, G-uðmundur Einarsson,
Hveragerði, Guðmundur Sigurðs-
son, Flúðum, Hrunamanna-
hreppi. —- mhg
Ódýr skip en traust
Aoaltundur Félags dráttar-
brauta og skipasmiöja var
haldinn í Keykjavík laugardagiun
23. mai s.l. A fundinum var á-
lyktað um fjölmörg atriði varð-
andi hagsmunamál Islensks
skipaiðnaðar.
1 fréttatilkynningu frá aðal-
fundinum er visað á bug full-
yrðingum ýmissa aðila um að
innlendar skipasmiðastöðvar
standist ekki samkeppni við
erlendar skipasmiðastöðvar bæði
hvað varðar nýsmiði og við-
gerðir. Hins vegar er bent á
nauðsyn þess fyrir útvegsmenn
að eignast ódýr skip sem þó séu
hagkvæm i rekstri og standist
itrustukröfur um öryggi, vélar og
tæki.
Stjórn Félags dráttarbrauta og
skipasmiðja var endurkjörin, en
hana skipa Jón Sveinsson for-
maður, Gunnar Ragnars vara-
formaður og meðstjórnendur þeir
Guðmundu r Marseliusson,
bórarinn Sveinsson og borgeir
Jósepsson.
Sorpstöö Suðurlands
hefur tekið til starfa
Sorpstöð Suðurlands hefur nú
tekið til starfa á Selfossi en 7
sveitarfélög hafa, að tilhlutan
Samtaka sunnlenskra sveitarfé-
laga, gert með sér samning um
sameiginlega móttöku, eyðingu
og frágang á sorpi. Eru það Sel-
fossbær, Hveragerðishreppur,
Sandvikurhrcppur, Eyrarbakka-
hreppur, Stokkseyrarhreppur,
Rangárvallahreppur og Hvol-
hreppur.
Keyptur hefur verið troðari til
þjöppunar og frágangs á sorpinu,
28 tonna þungur og sérstaklega
gerður fyrir svona starfsemi.
Vélin hefur verið þrautreynd i
býskalandi og gefist ágætlega.
GUstaf Sigurjónsson flutti hana
inn fyrir tveimur árum. Sumarið
1979 var hún prófuð i nokkrar
vikur en sfðan lagt og kom tvennt
til: Erfiö fjárhagsstaða eigend-
ans og á skorti um samstöðu
sveitarfélaganna.
NU er verið að giröa svæöið og
ræsa fram grunnvatnið. Fokhefti-
giröing verður á svæðinu þar sem
losun fer fram. Eiga þessi vinnu-
brögð að koma i veg fyrir allt fok,
alla brennslu og reyk, rottuplágu
og fuglager. Siðar má nota svæðið
áýmsan hátt: sem vegarstæði, til
byggingar, ræktunar, útivistar,
eftir þvi sem ákveðið verður af
skipulagsyfirvöldum. Allir þeir,
sem að þessu máli hafa unnið,
vonast nú til að blað hafi verið
brotið i sorpeyðingarmálum
Suöurlands.
Umsjónarmaður stöðvarinnar
er Amar Arnason. Er hUn opin
virka daga kl. 10-12 og 13-18 og á
laugardögum frá kl. 13-15. Lokað
er á sunnudögum og almennum
fri- og helgidögum. mhg