Þjóðviljinn - 10.10.1981, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 10 — 11. október 1981
skammlur
Af ólund
Mikið djöf ull er ég búinn að vera í f úlu skapi
uppá síðkastið. Ég veit bara bókstaflega ekki
hvert ég ætla að komast, eins og sagt er.
Þetta byrjaði allt með bankinu. Bankinu í
„bíltikinni" minni — ég kalla bifreiðina mina
alltaf „bíltík", þegar sá gállinn er á henni og
mér.
Semsagt, þetta byrjaði allt á því að ég fór að
heyra ókennileg bank—hljóð í bílnum mínum,
bank sem ég vissi að ekki ætti að vera. Ég fór
með bankandi bílinn til bifvélavirkjans míns,
sem er einn af þessum f áu, sem enn er hægt að
treysta. Hann sagði mér að þetta væri senni-
lega alternatorinn, legur í hjólum, vatns-
dælan, miðstöðin, kúplingin eða viftan.
Ráðlegast væri fyrir mig að fara með bílinn á
rafmagnsverkstæði, láta setja í hann nýjan
alternator. Ef hann héldi áfram að banka eft-
ir það, þá stafaði bankið semsagt ekki frá
alternatornum. Ég gerði þetta, borgaði miljón
gamlar fyrir alternatorinn og bíllinn hélt
áfram að banka. Þetta hafði semsagt ekki
verið alternatorinn.
Nú ákváðum við, ég og bif vélavirkinn minn,
að halda áf ram að beita útilokunaraðferðinni,
gera við hvern hluta vélarinnar f yrir sig og gá
hvort bankið héldi áfram. Auðvitað kom það
sama í Ijós, eins og alltaf, þegar maður er að
leita að einhverju, til dæmis í vösum sínum.
AAaður f innur það sem að er leitað aldrei fyrr
en í síðasta vasanum sem leitað er í.
Það var semsagt ekki fyrr en búið var að
gera við og þar með útiloka alternatorinn, leg-
urnar, vatnsdæluna, miðstöðina og viftuna að
mér var tjáð að nú væri bíllinn hættur að
banka.
Ég tók ökutækið út af verkstæðinu og ók eins
og leið liggur áleiðis niðrí bæ, en viti menn.
Ekki hafði ég keyrt nema tvö-þrjúhundruð
metra, þegar helvítið f er að banka aftur.
Ég til baka og bað bílvirkjann um að aka nú
með mér einn eða tvo hringi til að sannreyna
bankið. Hann gerði það að sjálfsögðu með
glöðu geði, en viti menn: Ekki bankvottur.
AAeira að segja reyndi ég að láta bílinn banka
fyrir hann, en allt kom fyrir ekki. Og enn
bankar bíllinn, þegar bílvirkinn er ekki með.
I gær var ég hérumbil búinn að-hengja mig í
sætisóiunum. Vel á minnst, ég verð víst að
fara að læra að festa þeim rétt utanum mig.
Ég hef verið svolitið tregur í beltin, vegna
þeirrar staðhæfingar andbeltunga að háska-
legra sé að aka f yrir björg með beltin á sér, en
án þeirra.
Ekki hef ur það verið til að bæta uppá skaps-
munina að undanförnu að fylgjast — í fjöl-
miðlum — með vangaveltum kvenna um sér-
stakt kvennaf ramboð.
Alveg getur nú kvenfólk gert mann
gráhærðan á nótæm. Eins og þær eru þó
nauðsynlegar og ómissandi til síns brúks.
Ég var einmitt að virða veikara kynið fyrir
mér niðrí bæ í gærdag og ég get að sjálfsögðu
ekki neitað þvi að alltaf hlýnar manni um
hjartarætur þegar maður sér þær, þessar
elskur. En hvernig í ósköpunum geta þær
ætlast til þess að nokkur maður f ari að treysta
þeim f yrir málef num lands og þjóðar.
Nú eru þær f lestar komnar í reiðbuxur. Eða
ekki fæ ég betur séð, og í reiðstígvélum eða
jafnvel vassstígvélum. AAargar hverjar eru
með fjólublátt hárið túberað uppj reiði og
skelf ingarfrísúru fresskattar, sem á líf sitt að
verja fyrir óðum hundi. Ófáar eru með
sikkrisnælu gegnum nefn og eyru og með
glóðaraugu á báðum.
Ég sé þessar sömu konur í anda á Alþingi ís-
lendinga. Ég held að það sé óhugsandi að þær
geti læknað nokkra bólgu og síst af öllu
verðbólguna. Konur eru alltof uppteknar við
að ganga í augun á okkur köllunum til þess að
hægt sé að ætlast til þess að þær geti einbeitt
sér að málef num ríkisins.
AAér er, til dæmis, sem ég sæi Geir
Hallgnmsson afla sér trausts og virðingar
flokks og þjóðar með fjólublátt hárið, fjólu-
blátt gióðarauga á báðum og sikkrisnælu í
gegnum f jólublátt nef ið.
Þessi ástsæli leiðtogi myndi jafnvel glata
trausti síns eigin flokks, þó hann væri bara
með næluna í nef inu.
Nei, dæmin sanna að ef einhver f lokkur ætli
sér að ná brautargengi, þá ríður á að hafa
enga konu í f ramboði. Þetta kom berlega í Ijós
i síðustu kosningum, en þar bar Framsóknar-
flokkurinn sigurorð af öllum hinum. Trikkið
var bara að hafa enga konu í framboði. Því
sannleikurinn er sá að ef það er einhver sem
ekki treystir konum fyrir opinberum umsvif-
um, þá eru það konur.
Flestir muna það enn, að þegar Rannveig
Þorsteinsdóttir var kosin á Alþingi, gaf hún
þessa yfirlýsingu: „Ég segi allri fjárplógs-
starfsemi stríð á hendur". AAeira sagði hún
ekki á þingi, en Framsóknarkonur sendu henni
þessa vísu:
Það á að stríkja stelpulíng
styngenni oní kolabíng
lokana úti í landsynníng
og látana ekki fara á þing.
Og þá sá Rannveig þann kost vænstan að
hætta á þingi og f ara að praktisera.
skráargatið
Kristinn: Neitaöi
aö leggja fram
Gunnar:
Langvinsælastur.
Geir: Fékk enga
tilnefningu i
vinsældakönnunni.
ólafur: Fór aö
gá aö bombunni.
Jón Ármann:
Viörar sig upp
viö Framsókn.
bókhaidiö.
Nokkrar
umræöur fóru nýlega fram milli
Arnarflugs og tscargó um
hugsanlega sameiningu þessara
flugfélaga. Sagt er aö Kristinn
Finnbogason hafi boöiö Arnar-
flugi Iscargó til sölu fyrir
800—1000 miljónir. Þaö fylgir
sögunni aö Arnarflugsmenn hafi
fariö fram á aö lita á bókhald
Iscargó til aö átta sig á stööu
félagsins en þvi hafi Kristinn
haröneitaö og þar meö umræö-
urnar fariö í strand.
Sigurður
Hafstein, formaöur fulltrúaráös
Sjálfstæöisfélaganna i Reykja-
vík, mætti til fundar þess á
fimmtudagskvöld meö skrifaöa
ræöu þar sem hann mælti gegn
nýgeröri samþykkt stjórnar
fulltrúaráösins og þar meö
sjálfs sin um opiö prófkjör. 1
ræöu sinni þar sem hann mælti
fyrir lokuöu prófkjöri voru
helstu rök hans þau aö meö
opnum prófkjörum réöu
„óvinir” flokksins þvi hverjir
tækju sæti á listanum. Þess skal
getið aöiSjálfstæöisfélögunum I
Reykjavik eru 3—4000 manns en
um 12 þúsund manns hafa tekiö
þátt i prófkjörum undanfarinna
ára. Ergo: 8000 „óvinir” flokks-
ins stilltu Geir Hallgrimssyni i
efsta sæti lista Sjálfstæöis-
flokksins f siöustu alþingiskosn-
ingum.
Þessi
samþykkt fulltrúaráösins um
lokaö prófkjör þýöir einfaldlega
þaö að Albert Guömundsson,
sem á fylgi sitt meöal almennra
kjósenda en ekki flokksbund-
inna Sjálfstæöismanna, stendur
frammi fyrir þvi aö hætta
annaðhvort viö þátttöku I próf-
kjöri og setja fram eigin lista
eöa fá 4-5000 manns til þess aö
skrifa á inntökubeiöni 1 flokkinn
áöur en prófkjör veröur haldiö.
I
vinsældakönnun Dagblaösins,
sem birt veröur á mánudag, er
Gunnar Thoroddsen áberandi
vinsælastur stjórnmálaleiötoga
en formaöur Sjálfstæöisflokks-
ins, Geir Hallgrimsson, fékk
enga tilnefningu meöal þeirra
600 sem spuröir voru. Þaö er
von aö þeir vilji reka Gunnar úr
flokknum.
Vísir
hefur tapaö miljónum króna á
undanförnum árum, en eigend-
urnir hins vegar grætt miljónir
á sama tima sem sést af þvi aö
þeir sigla hraöbyri út úr sam-
starfi i Blaðaprenti, ætla að
býggja yfir sig miljónahöll, hafa
fest kaup á pressu sem er á
leiðinni til landsins, og eru aö
semja viö fyrirtækiö Prisma i
Hafnarfiröi um setningu og
plötuvinnslu. Aö sjálfsögöu hafa
þeir ekki sagt samstarfs-
mönnum sinum i Blaöaprenti
frá þessum athöfnum sinum.
Langt
viötal var viö þá félaga Eiö
Guönason og Indriöa G. Þor-
steinsson i Morgunvöku Páls
Heiöars i vikunni um Banda-
rikjareisu þeirra. Stjórnanda
þáttarins láöist hins vegar alveg
aö spyrja hver bauð þeim
kumpánum. Velta menn nú
fyrir sér hvort þaö hafi veriö
herráö NATÓ, Menningarstofn-
un Bandarikjanna eöa CIA.
r
A
opnum fundi um utanrikismál á
Hótel Heklu á fimmtudags-
kvöldiö sa^öi Ólafur Jóhannes-
son utanrikisráöherra m.a. aö
kjarnorkuvopn væru ekki og
yröu ekki á Islandi nema meö
samykki stjórnvalda á hvérjum
tima. tsland er sem sagt ekki
bannsvæöi fyrir atómvopn
hvernig sem á stendur. Utan-
rikisráöherra sagöi ennfremur
aö hann heföi fariö ásamt
nefndarmönnum i utanrlkis-
málanefnd til þess aö kanna
hvort nokkrar ölöglegar
sprengjur væru á Vellinum. Og
ekkertséð. Til áréttingar á mál,
sinu kvaöst ráöherra hafa i
sinum fórum bréf upp á þaö aö
hér væru ekki kjarnorkuvopn,
og var helst aö skilja aö þaö
væri frá þáverandi utanrikis-
ráöherra Bandarikjanna. Sjálf-
sagt hafa stjórnir Danmerkur
og Spánar haft svipað loömollu-
bréf upp á vasann, enda kom
ekki fram aö Bandarikjamenn
heföu atómvopn I þessum
rikjum fyrr en flugvélar þeirra
hröpuöu á Grænlandi og á
Spáni.
Heldur
var Framsóknarfundurinn
daufur, en þaö eina er kom
verulega á óvart var aö Jón Ar-
mann Héöinsson fyrrverandi
þingmaður krata hélt heilmikla
lofræöu um núverandi utan-
rikisráöherra og taldi honum
allt til hróss nema aö hafa ekki
sendiherra i Nigeriu aö selja
skreiö. Ekki kæmi á óvart aö
Jón Ármann ætlaði sér frama
innan Framsóknar, ef dæma
ætti af málflutningi hans. Hins
vegar kom ekki á óvart aö félagi
úr Kommúnistaflokki Islands,
væntaniegum samstarfsaöila
Jóns Baldvins og Vilmundar
skyldi lýsa ánægju meö varnir
landsins og að ööru leyti en þvi
aö þaö vantaöi fleiri loftvarnar-
byrgi.