Þjóðviljinn - 10.10.1981, Blaðsíða 7
Helgin október 1981 ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 7
Rœtt við Garðar Sigurðsson um íslenska þingmannaför til Kúbu
„Castro bauð aðstoð sína
við að koma hernum burt”
„Ég var svo heppinn að
hitta á Fidel Castro prívat í
nokkrar mínútur og hann
spurði dálítið um ísland en
vissi greinilega ekki mikið.
Síðar hittum við aftur á
hann og þá bar það á góma
að bandarísk herstöð væri
á íslandi. Castro sagði þá í
gamni að hann gæti aðstoð-
að okkur við að koma hon-
um snarlega í burtu." Það
er Garðar Sigurðsson al-
þingismaður sem hefur
orðið. Hann er nýkominn
af fundi Alþjóðaþing-
mannasambandsins sem
nýlega er lokið í Havana á
Kúbu en auk hans sóttu
þingmennirnir Jóhanna
Sigurðardóttir, Þórarinn
Sigurjónsson og Friðrik
Sóphusson þingið af ís-
lands hálfu.
Svipað og Sameinuðu þjóð-
irnar
— Hvaö er Alþjóöaþingmanna-
sambandiö, Garöar?
— Þaö hefur starfaö mjög lengi
sem má marka af þvi aö þetta er
68. þing þess. Um 100 þjóöir eru
aöilar aö þvi og vilja sumir likja
þvi viö þing Sameinuöu þjóöanna
nema hér eru einstakir þingmenn
aöilar og greiöa atkvæöi hver fyr- *
ir sig en ekki rikisstjórnirnar eins
og hjá Sameinuöu þjóöunum.
Tveir fundir eru haldnir árlega,
vorfundur og haustfundur en sá
fyrrnefndi er eins konar undir-
búningsfundur aö þeim slöari. Viö
tslendingar höfum yfirleitt látiö
okkur nægja aö sækja haustfund-
inn.
— Og hvaö er svo rætt á þessum
fundum?
— Fyrst og fremst um alþjóöa-
mál. Dagskrármálin eru yfirleitt
þau sömu og hjá Sameinuöu þjóö-
unum. Ég tók t.d. þátt i nefndar-
störfum um þjóöarbrot og mál-
efni þeirra landa, sem ekki hafa ■
hlotiö fullt sjálfstæöi t.d. Nami-
biumáliö. Annars hafa tslend-
ingar yfirleitt veriö frekar ,,pass-
Ifir” á þessum fundum. Viö gæt-
um látiö taka miklu meira til okk-
ar um mikilvæg mál t.d. orkumál,
menntunarmál og visindi sem viö
getum lagt okkar skerf til.
Viðurkenning fyrir Kúbu
— Setti þaö ekki sitt mark á
þennan fund aö hann var haldinn
á Kúbu?
— Jú, ansi mikiö. Þessi þing
hafa oftast veriö haldin I Evrópu-
löndum en nú upp á siökastiö hafa
þau veriö færö meira til þróunar-
landanna enda eru þau I miklum
meirihluta á þinginu ásamt aust-
urblokkinni. t fyrra var haust-
fundurinn haldinn 1 A-Berlin en
vorfundurinn á Filippseyjum.
Þaö var töluverö viöurkenning
fyrir Kúbu aö hann skyldi haldinn
þar aö þessu sinni þvi aö meöal
fulltrúa voru t.d. bandariskir
þingmenn. Bandarikin og Kúba
hafa ekki venjulegt diplómatlskt
samband heldur er þaö svissneska
sendiráöiö i Havana sem fer meö
þaö fyrir hönd Bandarikjamanna.
Samt sem áöur eru Bandarikin j
meö stóra byggingu á Havana
sem heyrir formlega undir Sviss,
en er eingöngu meö bandarisku
starfsliöi og gegnir I raun hlut-
verki sendiráös.
— Og þaö þarf náttúrulega aö
fljúga krókaleiöir til aö komast til
Kúbu?
— Já, þó aö aöeins sé hálftima
flug frá Florida i Bandarikjunum
til Kúbu þarf aö fljúga annaö-
hvort gegnum Spán, Mexikó eöa
Kanada. Annars er þaö vlst svo
aö þótt ekkert áætlunarflug sé frá
Florida er daglegt leiguflug þaö-
an og litill vandi aö komast á
þann hátt til Kúbu.
Engin kurteisisopnunar-
ræða
— Castro hcfur sett sinn svip á
samkomuna?
— Hann opnaöi hana meö mik-
illi ræöu sem stóö hátt á annan
klukkutima og skiptist i tvo hluta.
Fyrsti klukkutiminn fór i lýsingu
á ástandinu i þróunarlöndunum
og geröi hann þar grein fyrir mis-
skiptingu auösins, sultinum, arö-
ráninu, skorti á heilsugæslu og
menntun. Varö honum einkum
tiörætt um þau riki sem standa
utan hernaöarblokka stórveld-
anna. Ræöa hans var harðorö og
ekkertskoriö undan. I seinni hlut-
anum réöist hann beint gegn
Bandarikjunum af mikilli hörku
og tók þau i karphúsiö fyrir aö
blokkera Kúbu efnahagslega og
beita skemmdarverkum i land-
búnaöi landsins. Ræöan var þvi
ekki nein kurteisis-opnunarræöa
enda var hann óspart gagnrýndur
fyrir þaö daginn eftir af ýmsum
fulltrúum aö misnota aöstööu
sina. Hann tók sjálfur þessa
gagnrýni vel upp og sagöist sjálf-
ur skilja vel afstööu gagnrýnend-
anna en hann yröi aö koma sjón-
armiöum slnum á framfæri, ekki
sist viö eigiö fólk. Ég fékk þesssa
ræöu prentaöa i hendur og hef siö-
an lesiö hana tvisvar yfir og get i
raun og veru ekki séö aö hann hafi
farið meö annaö en rétt mál i
flestu sem hann sagöi og ég hef
aöstööu til aö meta.
— Menn hafa samt ekki gengið
út undir ræðunni?
— Nei, hann fékk fullkomna at-
hygli enda afar glæsilegur ræöu-
maöur, bæöi i máli og látbragöi.
I „partýi" með Castro
— Ég frétti aö þiö Islendingarn-
ir heföuö lent meö honum i
„partý”. Er þaö rétt?
— Ja, sumir vist i fleiru en einu.
Sænski sendiherrann á Kúbu bauö
fulltrúum Noröurlandaþjóöanna i
smásamkvæmi eitt kvöldið og
skyndilega bankaöi Fidel Castro
upp á ásamt friöu föruneyti, sett-
ist upp og sat langt fram á nótt.
Hann var aö sjálfsögöu ákaflega
umsetinn og þar gátu allir spurt
hann um hvaöeina sem þeir vildu
og var ekkert veriö aö hlifa honum
enda er honum ekki gjarnt á aö
vefjast tunga um tönn. Karlinn
sat þarna I sóffa og svaraöi skot-
hriö úr öllum áttum.
— Hefur hann ekki llfvörð?
— Jú, það er mjög öflugur lif-
vöröur i kringum hann og virtist
þaö fara heldur i taugarnar á
honum hvaö þeir fylgdu honum
fast eftir. Þaö er greinilegt að
þeir eru mjög hræddir um hann.
Nýtískulegur sjávarútveg-
ur
— Svo aö viö vikjum að ööru.
Gast þú kynnt þér eitthvað þjóö-
félagsmál á Kúbu?
— Það var takmarkaö hvaö
hægt var aö gera mikiö af þvi og
okkur tókst ekki aö komast mikiö
út fyrir Havana. Ég notaði þó
tækifæriö til aö kynna mér sjáv-
arútvegsmál þeirra Kúbumanna
dálitiö. Ég fékk viðtal viö 1. vara-
sjávarútvegsráöherra þeirra og
var meö honum i nokkra klukku-
tima. Þeir eru ákaflega hreyknir
af þeim framförum sem hafa orö-
iö hjá þeim i fiskveiöum en þær
hafa tifaldast siöan byltingin varö
áriö 1959. Þá veiddu þeir aöeins
um 20 þúsund tonn á ári en nú er
ársaflinn kominn talsvertá þriöja
hundraö þúsund tonn. Þeir hafa
komiö sér upp nýtiskulegum fisk-
veiöiflota sem veiöir bæöi á
heimamiöum og á Mexikóflóa og
eins eiga þeir oröiö 35 - 40 úthafs-
togara, sem flestir eru smiöaöir á
Spáni. Ég sá einn þeirra og var
hann meö öllum nýjustu tækjum
og á 2. hundraö metra langur. Ég
hitti einnig aö máli Fernandez
sem setiö hefur fyrir hönd Kúbu i
N-Atlantshafsnefndinni og var
hann vel heima i islenskum fisk-
veiöum. Annars eru Kúbumenn
óvanir aö boröa fisk og ársneysl-
Fidel Castro: Hélt þrumuræöu yf-
ir þingfulitrúum, lenti svo i partýi
meö tslendingum.
an er nú aöeins 12 kg. á mann en
var áður fyrr nánast engin.
Gjörbreytt þjóðfélag
— Hvernig leist þér á Havana?
— Þetta er ákafiega stór borg
meö nær 3 miljónir ibúa svo aö
mér tókstekkiaösjá nema brot af
henni. Mikiö er af gömlum húsum
en þó geysilega mikil áhersla lögö
á aö byggja nýtt. Ég sá eitt stórt
hverfi i byggingu og þar smiðar
fólkiö sjálft I skipulögöum hóp-
um. Fyrir byltingu voru viöa á
Kúbu stór slömm en nú skilst mér
aö þau séu úr sögunni. 1 raun og
veru hefur þjóöfélaginu veriö
gerbreytt varöandi menntun og
menningu alla. Ólæsi er úr sög-
unni og góö heilsugæsla fyrir alla.
Konan min skoöaöi bæöi geö-
veikrahæli og fæöingardeild i Ha-
vana og þar var allur útbúnaöur
eins og hann gerist bestur á Vest-
urlöndum.
— En Kúba er nú samt fátækt
land. Er ekki svo?
— Viö skulum ekki gleyma þvi
aö Kúba er þróunarland og þess
vegna veröum viö fyrst og fremst
aö bera landiö saman viö önnur
þróunarlönd. Nærtækast er aö
bera Kúbu saman viö þau tvö riki
sem sluppu undir yfirráöum
Spánverja á sama tíma, rétt fyrir
siöustu aldamót, þ.e.a.s. Filipps-
eyjar og Puerto Rico. Ekki þarf
aö orölengja aö Kúba stendur
þessum rikjum aö flestu leyti
framar. Þó stendur hún verr aö
vigi aö mörgu leyti. Eölilegasta
viöskiptarikiö ætti t.d. aö vera
næsti nágranninn, stórveldiö
Bandarikin, en það er lokaö. Hér
nægir t.d. aö minna á þær stór-
kostlegu baöstrendur sem Kúbu-
menn gætu boöiö Bandariskum
Garöar: t raun og veru hefur
þjóöfélaginu veriö gerbreytt til
hins betra.
túristum upp á ef þaö væri leyft.
Ég lenti i samræðum viö sænskan
sendiráösmann, sem áöur haföi
veriö i Brasillu og hann sagöi aö
þó aö margt vantaöi á Kúbu væri
ekki hægt aö likja ástandinu sam-
an i þessum tveimur iöndum.
— Aö lokum Garöar. Fannst
þér enn fullur kraftur i þjóöfé-
lagsbyltingunni á Kúbu?
— Þaö er mikill kraftur i henni
enn en auðvitaö dregur úr honum
eftir þvi sem lengur liöur frá bylt-
ingunni.
— GFr
AÐSTAÐA
BÚNAÐARBANKINN
Austurstræti
BÚNAÐARBANKINN
Hlemmi