Þjóðviljinn - 10.10.1981, Síða 13
Helgin 10,— 11. október 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
harðbýlasta staðnum, efst I fjöll-
unum og varðveita leifar af
fornri menningu sem fræg var
fyrir gullgerðar- og byggingar-
list. Kúabóla hefur lagt mikinn
hluta þeirra að velli. I hæðunum
fyrir neðan rækta sigurvegararn-
ir „gull Kolimbiu” i tonnatali,
það er marijuana fyrir banda-
riskan markað.
Iðnvæðing
Iðnvæðing Þriðja heimsins eyk-
ur enn á vanda ættflokkanna.
Fjölþjóðafyrirtækið Rio Tinto
Zink sem hefur höfuðstöövar i
London hefur ákveðiö að leggja
sem svarar 2.2 miljörðum dollara
i stærstu koparvinnslu I heimi i
Rauðu fjöllum i Panama. Þús-
undir Guayami-indjána munu
missa bæði land og vatn vegna
þessara framkvæmda án þess að
fá nokkrar skaðabætur. Hinum
megin við heiminn I hálöndum
Filipseyja mun vatn flæða yfir
land þar sem um 100 þúsund
bændur af ættbálkum Bontoc og
Kaiinka hafa búið I 7000 ár. Þetta
er vegna stiflugerðar sem Al-
þjóöabankinn fjármagnar og
kosta mun um 1 miljarð dollara.
Bændur segja að töluvert af þessu
fé muni renna i vasa vildarvina
Ferdinands Marcos forseta.
Fjölmargar svipaðar áætlanir
eru á döfinni allt frá Nýju Guineu
til Guyana, ýmist vegna þróunar-
aðstoöar eða fjölþjóðafyrirtækj-
anna. Um þetta segir Otto
Kimminich, lagaprófessor við
Háskólann i Regensborg i V-
Þýskalandi: „Það er verið að
flæma þjóðflokka um allan heim
frá þeirra fyrri heimkynnum og
það i þeim stil að þjóöflutningarn-
ir miklu á 5. og 6. öld eru smá-
vægilegir i samanburði við það.
Tiivera allra þessara þjóðflokka
er nú algerlega undir tvennu
komin, annars vegar heimsmark-
aðsverði á framleiðslu hitabletis-
landa og hins vegar spurningunni
um stríð eða frið milli heimsveld-
anna”, segir fyrrnefndur Ribeiro.
Strið
I Afriku er stærsta ógnunin viö
þjóðflokkana strið, fremur en iðn-
væðing. A stóru svæði i NA-Afríku
hafa striðsátök eyðilagt lifsmögu-
leika fjölmargra hjarðflokka.
Byssuglaðir málaliðar Idi Amins,
fyrrverandi einræðisherra I
Uganda, hafa t.d. gert mikinn
skaða. Þeir hafa farið með báli og
brandi og flæmt flesta hjarðmenn
á þessum slóðum inn i flótta-
mannabúðir. Atökin milli Eþiópiu
og Sómaliu um Ogaden eyði-
mörkina hafa einnig orðið til að
rifa upp með rótum hundruð þús-
unda hjarðflokka. Skæruliða-
striðið milli þjóöfrelsishreyfingar
SV-Afriku og S-Afrikuhersins við
Kalaharieyðimörkina er langt
komið með að ganga að siöustu
Búskmönnum dauöum. Þeir voru
á slnum tima flæmdir inn i eyðu-
mörkina bæði af hvítum mönnum
og svörtum og er nú talið að að-
eins hluti hinna 55 þúsund Búsk-
manna, eða Sanfólksins eins og
þeir eru lika kallaðir, lifi enn skv.
fornum siðvenjum þjóðflokksins.
Striðsátök hafa iika farið illa
með þjóðflokka i Asiu. I fjöllum
Laos gera vietnemskar hersveitir
af og til árásir á hinn aðþrengda
Montagnard-þjóðflokk.
I Afghanistan hefur þúsundum
þjóðflokka verið útrýmt eða þeir
flæmdir burt af löndum sinum i
kjölfar sovéskrar innrásar.
Sovétmenn réttlæta þetta með þvi
aö þeir séu að færa framfarir til
frumstæðs fólks — röksemd sem
Bretar og Frakkar notuðu iðulega
i nýlendurstefnu sinni á siðustu
öld. Þeir töluðu fjálglega um
„skyldur hvita mannsins”.
Alkóhólismi
og skortur
Þegar þjóðflokkar missa hef-
bundin heimalönd leiðir það oft til
mikilla sálrænna erfiðleika. „Við
höfum tilhneygingu til þess að lita
á ný heimkynni þessa fólks á
svipaöan hátt og við sjálf þyrftum
að byrja að versla við nýja kaup-
menn, segir Martha Baker á
skrifstofu Survival International I
Washington. „Við gerum okkur
ekki grein fyrir þvi að oft leiöir
slik herleiðing i ný heimkynni til
þess að þjóðflokkarnir deyja út.”
Kimminich prófessor segir að
þeir missi fótfestuna, þegar þeir
eru reknir af landi sinu, og þar
með oft þjóðareinkennin. Ein-
kennin eru viöast þau sömu hvort
sem um er að ræða skitugar götur
Porto Velho i Amazon i Brasiliu
eða frumstæð úthverfi Alice
Springs i' Astralíu: Alkóhólismi
og skortur. Mjög gjarnan getur
þetta fólk stundaö aðra atvinnu
heldur betl og vændi og lifir fyrir
utan eða i' útjaðri borga og bæja.
Þeir skammast sin segir italskur
prestur sem starfar meðal
indjána i jaðarborgum Brasiliu.
„Þeir vita að þeir eru indjánar en
örvænting þeirra er svo mikil að
þeir afneita uppruna sinum. Það
er meiri harmleikur en tárum
taki.”
Að draga sig inn I skel eru
skiljanleg viðbrögð við hinni
hróplegu mismunun sem flestir
umræddir þjóðflokkar verða fyrir
hvar sem er I heiminum. Eins og
t.d. er áberandi I samskiptasögu
indjána og hvitra manna i Banda-
rikjunum virðist rikjandi meiri-
hluti landa ala með sér gifurlega
fordóma gagnvart innfæddum
þjóðflokkum. Fyrst i stað er bor-
inn ótti og viröing fyrir þeim en
eftir þvi sem landnemunum vex
ásmegin sem þjóð þróast með
þeim sú hugmynd að innfæddir
séu réttdræp úrhrök. I Suður-
-Ameriku hefur indjánum verið
slátrað með þvi að sprengja
bústaði þeirra I loft upp eða
skjóta á þá. Sumir þróunarsinnar
hafa varið slik verk með þeirri
röksemd að indjánar séu einfald-
lega ekki mannverur.
Ný og forn menning I Nýju
Guineu
Mannfræðingar
og trúboðar
Jafnvel aðgerðir sem hafa
verið hugsaðar til stuðnings þjóð-
flokkunum hafa stundum snúist
upp i andstöðu sina. Bæöi mann-
fræðingar og trúboðar, sem nú
berjast einna harðast fyrir þvi að
þjóðflokkarnir séu studdir til
sjálfshjálpar, voru á sinum tima
fyrsti hlekkurinn i kynnum hvitra
manna viö þetta fólk sem siöar
leiddi svo til þess að landið var
tekiö af þvi. Trúboöar hafa sér-
staklega verið gagnrýndir fyrir
að eyðileggja forna trú fólksins og
stuðla að þvi að þjóðflokkarnir
verði „passifir” og missti sjálfs-
traustið og plægi þannig akurinn
fyrir landræningja. Trúboðar
segja hins vegar sér til varnar að
þeir séu fyrstu boðberar læknis-
hjálpar og menntunar til þessa
fólks. Þar að auki geri þeir fólkið
hæfara til að aðlagast heiminum
með þvi að boða þvi kristna trú,
þeir vilji brúa bilið milli ólrikra
menningarheima.
Vaxandi andóf
Fyrir fáum árum virtist fátt
benda til annars en að þjóð-
flokkar heimsins væru á góðri leiö
með að þurrkast út og þeir áttu
fátt annað sameiginlegt en að
vera ófærir um aö veita viönám.
Gordon Bennett, sem situr i
stjórn Survival International,
telur að vaxandi andófs gæti nú
hjá mörgum þessara þjóðflokka
og sumir hafa jafnvel tekið upp
vopn. Arið 1980 drápu t.d. brasi-
liskir indjánar 30 hvita menn, i
átökunum um land indjánanna.
Raoni, höfðingi Txucarrameætt
bálksins, hefur gefið út yfirlýs-
ingu um að hér eftir veröi hvitir
menn, sem ráðast inn I land
indjána drepnir. Indjánarnir i
Brasiliu eru þó aðeins um 1% af
ibúum svo að tæplega eru þeir
mikil hernaðarleg ógnun við yfir-
völd.
Nefndir til stuönings þjóð-
flokkum hafa smám saman orðið
meira gildandi en flestum þeirra
hefur verið komiö á fót af mann-
fræðingum sem rennur til rifja
ástandið. Survival International i
London var stofnað 1969. I stefnu-
skrá samtakanna segir m.a. að
tilgangur þeirra sé að „afstýra
eyðileggjandi áhrifum hins sið-
menntaða heims...með þvi aö fá
þjóðflokkunum þau tæki I hendur
að þeir geti variö sig og rétt
sinn”. Samtökin voru stofnuð af
fáeinum breskum mannvinum og
hafa nú áhrif um allan heim.
Svipuð samtök hafa siðan verið
stofnuð, bæði i Bandarikjunum og
ýmsum Evrópulöndum. I Boston
eru t.d. sterk samtök sem nefnast
Anthropology Resource Center
and Cultural Survival og eru
nátengd mannfræöideild
Harwardhálskóla. Flestir þeir
sem starfa fyrir slik samtök
reyna eftir bestu getu að safna
upplýsingum og koma þeim á
framfæri, t.d. til Alþjóðabankans
og fjölþjóðafyrirtækja. Með fjár-
stuðningi frá trúarfélögum reyna
þau lika aö koma þjóðflokknum á
beinan hátt til hjálpar til þess að
þeir geti aðlagað sig breyttum að-
stæðum.
Mestu breytingarnar eru samt
þær sem eru að gerast meðal
sjálfra þjóöflokkanna. Þeir eru
farnir að hóa sig saman og stofna
sin eigin samtök. Með mannrétt-
indabaráttu svertingja I Banda-
rikjunum að leiðarijósi hafa t.d.
indjánar i Bandarikjunum og
Kanada og einnig frumbyggjar
Astraliu stofnað sin eigin samtök
til þess að krefjast dómsurskurða
i málum sinum. Samtök þessi
hafa komið til leiðar breytingum
á stórframkvæmdum og fengið
verulegar skaðabætur fyrir
ýmsan miska sem þeim hefur
verið geröur i fortiðinni. 1 Suður-
-Ameriku er veriö að stofna
svipuð samtök. Bættar sam-
göngur greiöa fyrir þvi að þjóð-
flokkar I hinum ýmsu heims-
hornum geti borið saman bækur
sinar.
Menning þeirra
hefur gildi fyrir
allan heiminn
Fyrir utan lagalegar og sið-
ferðilegar spurningar telja verj-
endur svokallaðra „frumstæðra”
þjóöflokka að þeir geti lagt mikiö
til heimsmenningarinnar, — allt
írá innsýn i uppruna tegundanna
til auðugrar þekkingar á náttúr-
unni, bæöi umhverfinu og læknis-
jurtum. „Útrýming eins
indjánaþjóðflokks er eins og að
eyðileggja heilt heimildabóka-
safn” segir Bentley i Survival
Internationai. „Fjölbreytt menn-
ing auögar allan heiminn og meö
þvi aö eyðileggja menningu þessa
fólks erum við að eyðileggja hluta
af okkur sjálfum.”
Fólkið I þjóðflokkunum veit aö
það verður að breyta llfsvenjum
sinum til að komast af og e.t.v.
hafa þeir mesta þörf á tima til að-
lögunar. „Þjóðflokkarnir þurfa
hvorki aö vera naktir eða villtir
til að halda þjóöareinkennum
sinum”, segir Christopher
Clairis, mannfræðingur við Sor-
bonne, „og þeir verða að læra á
framfarirnar.” Bentley er sam-
mála um að ekki sé hægt að
stöðva framþróunina. „Það væri
fullRomin fjarstæða að ætla að við
getupa búið til ósnortin svæði,
segir hún. Við segjum ekki við
rikisstjórnir: „Enga framþróun”
eða viö fjölþjóðafyrirtæki:
„Engar námur”. Við erum aðeins
að fara fram á að þeir geri sér
grein fyrir skaðanum sem þeir
valda og tekið veröi fullt tillit til
innfæddra I skipulags-
áætlununum.”
GFr—Byggt á Newsweek
Þroskaþjálfi
Starf þroskaþjálfa við dagvistarstofnanir
Akraneskaupstaðar með aðsetri á leik-
skóla við Skarðsbraut er laust til umsókn-
ar.
Skriflegar umsóknir er tilgreini aldur,
menntun og fyrri störf sendist undirrituð-
um fyrir20. okt. n.k.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður i
sima 93-1211.
Félagsmálastjóri
Kirkjubraut 2, Akranesi
Húsnæödsstofnun ríKdsins
Tæknddcdld Laugavegi 77 R Simi28500
Byggingaverkíræðingar,
Byggingatæknifræðingar,
T ækniteiknarar
Húsnæðisstofnun rikisins, tæknideild, ósk-
ar að ráða eftirtalið starfsfólk:
1. Byggingaverkfræðing
2. Byggingatæknifræðing
3. Tækniteiknara.
Upplýsingar um störfin gefur forstöðu-
maður tæknideildar eða staðgengill hans.
Launakjör samkv. ráðningasamningum
rikisins.
Umsóknir sendist til blaðsins fyrir 20. okt.
nr. merkt: 123
Blaðbera vantar strax!
Kársnesbraut, ef ri hluti.
Efstasund— Skipasund.
UOBVIUINN Siðumúla 6 s. 81333.
H j úkrunarf ræðingar
Ákveðið hefur verið að hafa kynningar-
dag á starfsemi Kleppsspítala, Barna-
geðdeild Dalbraut, og Geðdeildum Lands-
spítala, fimmtudaginn 15. október 1981.
Móttaka verður í skrifstofubyggingu
Kleppsspítala fyrst kl. 11.00 f.h. Boðið
verður þá til hádegisverðar, og kl. 15.00
e.h. verður boðið uppá eftirmiðdagskaff i.
Þeir hjúkrunarf ræðingar, sem áhuga
hafa á að kynna sér starfsemi stofnunar-
innar eru vinsamlegast beðnir um að til-
kynna þátttöku sína til ritara hjúkrunar-
forstjóra, í síma 38160. Ritarinn mun
einnig gefa nánari upplýsingar, ef óskað
er.
Kleppsspítalinn.
Iðitskólinn
i Reykjavík
Upprifjunarnámskeið fyrir annan áfanga
hefjast 19. okt.
Upplýsingar og innritun i skrifstofu
skólans.
Iðnskóiinn i Reykjavik