Þjóðviljinn - 10.10.1981, Blaðsíða 27
Helgin 10.— 11. október 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 27
um helgina
Kór Langholtskirkju:
Kristni-
boðshátíð
að Esju-
bergi
Um helgina er þess minnst i
Mosfellssveit að 1000 ár eru frá
upphafi kristniboðs i landinu.
Kjalarnesprófastsdæmi, sem
efnir til hátiðarinnar, er annað
fjölmennasta prófastsdæmi
landsins og nær frá Vestmanna-
eyjum um Gullbringu og Kjós-
arsýslu. Hátiðahöldin hefjast kl.
8.30 á sunnudagsmorgni að
Esjubergi á Kjalarnesi en þar
er talið að fyrsta islenska kirkj-
an hafi risið.
Kl. 13.30 hefst hátiðarsam-
koma i íþróttahúsinu að Varmá
i Mosfellssveit. Þar koma sam-
an kirkjukórar úr prófastsdæm-
inu öllu og mynda 200 manna
samkór sem syngur undir stjórn
Smára Ólafssonar, organista i
Lágafellssókn. Flutt verða
ávörp, sýndur helgileikur og
hlýtt á strengjasveit og við lok
samkomunnar flytur nýskipað-
ur biskup, Pétur Sigurgeirsson
ávarp og blessunarorð. Er þetta
fyrsta embættisverk hans.
Að loknu kaffihléi verður
guðsþjónustuhald i sveitinni og
nágrenni og lýkur hátiðinni
laust eftir kl. 18. Þennan sama
dagerdagur fatlaðra og verður
merkjasala á kristniboðshátið-
inni.
Myndlistarnámskeið
Sigurðar Eyþórssonar
Sigurður Eyþórsson er nú
með myndlistarnámskeið fyrir
almenning og standa þau yfir i 2
mánuði og er kennt á laugar-
dögum kl. 14 — 18.30 og mánu-
dögum kl. 17.50 — 19.50 og 20 —
22. Námskeiðinu sem nú stendur
yfir lýkur 30. nóvember n.k.
Aðallega er kennd tækni gömlu
meistaranna, meðferð oliu og
eggtempara og eru litirnir not-
aðir saman. Þetta er um 2000
ára gömul aðferð og hefur ekki
verið kennd hér á landi fyrr en
Sigurður er sérmenntaður i
henni. Þeir sem hafa áhuga geta
leitað til Sigurðar i vinnustofu
hans að Borgartúni 19, 3. hæð kl.
Sigurður Eyþórsson kennir
tækni gömlu meistaranna.
14 — 19 i dag laugardag og á
mánudag kl. 18 — 22.
Pétur Jónasson leikur á sunnudagskvöld á veitingastaðn-
um Hliðarenda og hefst leikur hans kl. 21.30. Pétur leikur
<verk eftir Heitor Villa, tsaac Albénig, islcnskt þjóðlag I út-
setningu Eyþórs Þorlákssonar og Recuerdos de la Alhambra
eftir Fransisco Tarrega.
Djass í Djúpinu
Að undanförnu hefur verið
leikinn jazz i Djúpinu á hverju
fimmtudagskvöldi. Þar sem
þetta hefur mælst mjög vel fyr-
ir, og aðsókn verið góð, hefur nú
verið ákveðið að einnig skuli
leikinn jazz i Djúpinu á laugar-
dagskvöldum.
Kvartett Kristjáns Magnús-
sonar mun sjá um sveifiuna n.k.
laugardagskvöld, 10. október,
frá kl. 9 -12, og er gestum gefinn
kostur á léttum veitingum.
Djúpið er rekið i tengslum við
veitingastaðinn Hornið, sem
býður upp á fjölbreyttan mat-
seðil.
— mhg
Tónahátíð á laugardag
í dag, laugardag kl. 14, heldur
Kór Langholtskirkju „Tónahá-
tið” i Háskólabíói og er dag-
skráin fjölbreytt: þjóðlög, bitla-
lög og allt þar á milli. Kórinn er
sem kunnugt er skipaður mörg-
um góðum söngvurum, en söng-
stjóri er Jón Stefánsson og
raddþjálfari ólöf Kolbrún Harð-
ardóttir.
Á Tónahátíðinni mun kórinn
m.a. flytja þjóðlög i útsetningu
Jóns Asgeirssonar en þau voru
flutt i Kanadaferð kórsins i
sumar. Þá flytur kórinn bitla-
syrpu með aðstoð kammer-
sveitar. Á efnisskránni er fjöl-
breyttur ein- og tvísöngur að
ógleymdum „Stjúpbræðrum”
og „Stjúpmæðrum” en það eru
karla- og kvennaraddir kórsins.
Ólöf Kolbrún Harðardóttir mun
koma fram með kórnum ásamt
Alfred Wolfgang Gunnarssyni
og Sverri Guöjónssyni en þeir
voru einsöngvarar með kórnum
þegar hann flutti „Misa Cri-
olla”.
Aðgangseyrir að Tónahátið-
inni er 100 krónur og verður
ágóðanum varið til kaupa á
gleri fyrir Langholtskirkju.
Vona menn að glerið verði kom-
ið i fyrir jól, en þá ætlar kórinn
að halda jólatónleika i kirkju-
skipinu.
Kór Langholtskirkju. Myndin er tekin i Amerikuferð kórsins sl.
sumar.
FÍM-sýningin
á Kjarvalsstööum:
Síðasta
helgin
Haustsýningu Félags is-
lenskra myndlistarmanna að
Kjarvalsstöðum lýkur nú um
helgina. Sýningin er opin laug-
ardag og sunnudag frá kl. 14 - 22
en hún hefur vakið mikla at-
hygli og hlotið lof gagnrýnenda.
A fimmta tug myndlistar-
manna eiga verk á haustsýning-
unni, en gestir sýningarinnar
eru Björg Þorteinsdóttir, Hildur
Hákonardóttir, Hrólfur Sigurðs-
son og Ragnar Kjartansson.
Annað
vísna-
kvöldið
Visnavinir eru með skemmti-
kvöld I Þjóðleikhúskjallaranum
nk. mánudagskvöld kl. 20.30.
Eins og alltaf hjá Visnavinum
verður um vandaða dagskrá að
ræða. Gestir kvöldsins verða
þau Bryndis Júliusdóttir og
Þorsteinn frá Hamri.
Þá verður að venju opin dag-
skrá, þeas. hverjum þeim, sem
hefur eitthvað fram að færa til
skemmtunar, er velkomið að
troða upp.
Sunnudags-
sýningar
MÍR .
I vetur verða vikulegar kvik-
myndasýningar i MÍR-salnum,
Lindargötu 48 á sunnudögum kl.
16 e.h. Fyrsta sýning vetrarins
verður ll._j)któber og verða þá
sýndar tvær klukkustundar-
langar myndir (nr. 3 og 4) úr
sovéska heimildarmynda-
flokknum „Það sem okkur er
kærast” sem lokið var við á
þessu ári. Fjallar myndaflokk-
urinn um fyrstu eftirstriðsárin,
endurreisnina og uppbygging-
arstarfið i Sovétrikjunum eftir
siðari heimsstyrjöldina og al-
þjóðleg viðhorf á þessum tima.
Aðgangur að MÍR-salnum er
ókeypis og öllum heimill meðan
húsrúm leyfir.
Mezzoforte í Nefs
Mezzoforte mun flytja bland-
að efni á tónleikum i Félags-
stofnun stúdenta, laugardaginn
10. október kl. 21 - 23.
Hljómsveitin er nú nýkomin
frá London, þar sem hún vann
viö upptökur á þriðju plötu
sinni.
Undanfarna daga hafa strák-
arnir I Mezzoforte verið við æf-
ingarfyrir tónleikadagskrá sem
þeirtlvtja i tyrsta sinn á laugar-
daginn i NEFS-klúbbnum, en
siðan hyggjast þeir leggja land
undir fót og heimsækja m.a.
framhaldsskólana viðs vegar
um landið. Ekki er enn að fullu
ákveðið hvar þeir koma fram,
en unnið er að skipulagningu á
þvi, og þess má geta að umboðs-
maður þeirra er Eirikur Ing-
ólfsson, og hægt er að ná i hann i
sima 28445.
FUadelfia:
Orgeltón-
leikar
í dag
Antonio Corveiras hefur verið
búsettur hér á landi allmörg
undanfarin ár og hefur lengst af
starfað sem organleikari og
kennari en hann hefur einnig
gefið út bækur, m.a. ljósmynda-
bækur frá heimahéraði sinu
Asturias á Norður-Spáni.
Antonio Corveiras, organleik-
ari Hallgrimskirkju heldur org-
eltónleika i Filadelfiukirkjunni i
dag, laugardaginn 10. október
og hefjast þeir kl. 17. A efnis-
Kvartett Kristjáns Magnússonar i Djúpinu: frá v.: Sveinn Óli Jóns-
son, trommur, Þorleifur Gislason, tenór sax., Jón Sigurðsson, bassi,
Kristján Magnússon, pianó.
Þau þrjú skipa heiðurssess á
FÍM sýningunni ásamt Hrólfi
Sigurðssyni. Frá vinstri: Hildur
Hákonardóttir, Ragnar Kjart-
ansson og Björg Þorsteinsdótt-
ir, Ljósm.: — eik.
skránni eru m.a. verk eftir
Palstrina, Couperin, Pergolesi,
Corrette og Cabena.