Þjóðviljinn - 13.02.1982, Blaðsíða 13
Helgin 13 — 14. febrúar 1982. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Paul Greenfield skiptir um bleyju á dóttur sinni Holiy einn sunnudagsmorgun i félagsheim ili i New
York. Þar er hann I hópi 10 annarra pabba sem ræfta sameiginleg vandamál i sambandi vift barnaupp-
eldi milli þess sem þeir leika viö og sinna börnunum.
Föðurhlutverkið breytist í Bandaríkjunum:
„Fá tækifæri til
að sýna blíðu”
Aukið hlutverk föður í
uppeldi og umönnun barna
er smám saman að verða
að veruleika í Bandaríkj-
unum og eru þar einkum
tveir áhrifavaldar að
verki, annars vegar kven-
frelsishreyfingin og hins
vegar kvikmyndin Kramer
gegn Kramer. Um 60%
kvenna, sem eiga börn
innan 18 ára aldurs, vinna
nú úti og það gefur auga
leið að karlmenn verða því
að taka meiri þátt i heim-
ilisstörfum og barnaupp-
eldi en áður.
Þó aö konur fái oftast umráöa-
réttinn yfir börnum viö hjóna-
skilnaö eru þó um 1 miljón ein-
stæöra feðra i Bandarikjunum
eöa um 65% fleiri en fyrir 10 árum
siöar.
Bandariskir karlmenn hafa
fengiö nýja viömiöun til aö likja
eftir, þaö eru hvorki hörkukarlar
af John Wayne-geröinni né is-
kaldir framagosar. Nú er þaö
Dustin Hoffman sem gildir.
Karlmenn hafa alltaf haft
mikla þörf fyrir aö sýna bliöu,
faöma, vernda og stjana viö og nú
loksins fá þeir aö fá tækifæri til
þess, segir James Levine en hann
er forstjóri fyrir stofnun i New
York sem nefnist Fatherhood
Project.
Tilgangur þessarar stofnunar
er aö safna upplýsingum um
hvaöa möguleika ameriskir karl-
menn hafa nú til dags til aö taka
meiri þátt i uppeldi barna og
þróun, eins konar upplýsinga-
banki fyrir þá menn sem vilja
breyta fööurhlutverki sinu.
baö eru deildar meiningar um
hvernig jafnréttisþróunin innan
heimilanna veröi fullnuö. Sumir
segja aö það sé einkamál hvers
heimilis, persónulegt uppgjör
veröi aö fara fram milli hverra
hjóna en aðrir telja aö breyting á
hlutverki foreldra hljóta aö vera i
tengslum viö viötækar þjóö-
félagsbreytingar. Þaö þurfi full-
komna félags- og efnahags-
byltingu til.
James Levine, forstjóri
Fatherhood Project, telur aö
lausnin sé einhvers staöar mitt á
milli þessara tveggja sjónarmiöa
og bendir á þróun sem þegar sé
oröin t.d. eru nú viö lýði margs-
konar stofnanir sem miöast viö
hina nýju fjölskyldugerö og nýtt
fööurhlutverk.
Lög um skilnaö hafa breyst og
æ algengara veröur aö deilur um
umráöarétt yfir börnum séu
leystar með sáttum. Réttur
fööur til barna sinna fer vaxandi
og sums staöar hafa feöur
myndaö félög meö sér til aö verja
hagsmuni sina.
Vinnumarkaöurinn aölagar sig
og býöur t.d. upp á auknar fri-
stundir feöra, hálfsdagsvinnu
o.fl.
Skólarnir eru byrjaðir aö kenna
barnauppeldi og njóta bæöi
stelpur og strákar þeirrar
kennslu. Kennslugögn miöast viö
nýtt hlutverk karlmannsins.
Nú er karlmönnum leyft aö
vera viöstaddir fæöingu en fram
til 1970 var það nær ómögulegt.
Þeir eru nú hvattir til þess og
fæðingardeildir sjúkrahúsa
skipuleggja námskeið fyrir verö-
andi feöur.
Félagsmálastofnanir, bæöi á
vegum hins opinbera og einka-
aöila, skipuleggja nú samtals- og
leikhópa fyrir feður og börn
þeirra.
Sex bækur um fööurhlutverkiö
koma út næstu mánuöi i Banda-
rikjunum.
James Levine telur aö næstu
10—20 ár veröi breyting á hlut-
verki fööur innan fjölskyldunnar
almennt viöurkennt.
En nú kunna ýmsir aö spyrja
hvernig þaö megi veröa i hinum
ihaldssömu Bandarikjum meö
Ronald Reagan i forsetastól aö
sMkar breytingar geti gerst. For-
setinn og hans „móralski meiri-
hluti” (sem er ekki neinn meiri-
hluti) prédika um hina „heilögu”
fjölskyldu þar sem mamman er
heima hjá börnunum. Hefur nýtt
föðurhlutverk möguleika undir
slikum kringumstæöum?
Þessu svarar James Levine:
„Vist lifum viö i ihaldssömu
samfélagi og á það bæöi viö um
stjórnmál, efnahagsmál og viö-
horf til kynjanna. Hitt er aftur á
móti staöreynd aö æ fleiri konur
veröa aö leita út á vinnumark-
aöinn af efnahagslegum staö-
reyndum og þaö þýöir fleiri og
fleiri fjölskyldur þar sem bæöi
hjónin vinna úti. Undir þessum
kringumstæöum veröur karlmaö-
urinn aö taka meiri þátt i
heimilisstörfum. Þegar hlut-
verk konunnar breytist er þaö
óhjákvæmilegt aö hlutverk karl-
mannsins breytist um leiö.
Enginn einstakur viöburöur sl.
10 ár hefur haft jafn mikil áhrif á
viðhorf til fööurhlutverksins en
kvikmyndin „Kramer gegn
Kramer” segir Levine. „23
miljónir Bandarikjamanna hafa
séö þessa mynd og Dustin Hoff-
mann er oröin mikilvæg fyrir-
mynd. 1 raunveruleikanum
höfum viö fáar slikar fyrir-
myndir. Mættum viö fá fleiri
slikar kvikmyndir og þá kæmust
kannski enn fleiri karlmenn aö
þvi að einnig þeir geta sýnt
börnum sinum bliöu, hlýju og
traust til jafns viö konuna og
aukiö þannig velliöan fjöl-
skyldunnar i heild.”
Fatherhood Project hefur
skipulagt pabbatima i Félags-
heimili i New York. A sunnudags-
morgnum koma þeir meö börn sin
sem eru innan viö þriggja ára og
erþaöskipti lOmanna hópa. Þeir
leika viö börn sin um leið og þeir
ræöa saman um ýmis vandamál
t.d. bleyjuskipti, slæman nætur-
svefn, fyrstu skrefin. fyrstu tönn-
ina, um leikföng sem hræöa, um
mömmurnar o.s.frv. Þarna fá
þeir tækifæri til aö hittast sem
pabbar og deila sameiginlegri
reynslu. Þessir pabbatimar hafa
reynst mjög vinsælir, og eftir-
sóttir.
Paul Greenfield, 42 ára, er
kaupsýslumaður sem rekur eigið
fyrirtæki og hann er einn af þeim
sem kemur i þessa pabbatima
meö dóttur sina Holly sem er aö
veröa tveggja ára. Hann segir:
„Þaö var konan min sem stakk
upp á að ég færi i þessa tima en
hún er heima meö Holly alla
daga. Ég vildi mjög gjarnan
skipta um hlutverk við hana þvi
aö i raun og veru tel ég aö ég sé aö
mörgu leyti hæfari til að sinna
húsverkum og barni en hún. Ég
bý t.d. til betri mat, mér þykir
gaman aö þvo og strauja og er
þolinmóöari viö dótturina. Ég
yröi hin fullkomna heimavinn-
andi „húsmóöir”. Þvi miöur er
þetta ekki hægt af efnahagslegum
ástæöum. Ég rek mitt fyrirtæki
og hef enga möguleika á aö taka
pabbafritima. Sundum bölva ég i
sand og ösku yfir þessum
örlögum. Þarna þræla ég daginn
út og daginn inn meöan hún situr
heima og hefur þaö skemmtilegt.
Þaö er óréttlátt samfélag sem
lætur konuna vinna heima meðan
maöurinn vinnur úti.
(Byggt á Dagens nyheter — GFr)
KULDAKLÆÐNAÐUR
FYRIR
HETTA
JAKKI
OG
BUXUR
SAMFESTINGAR,
VELSLEÐAGALLAR
VINNU 0G LEIK
Margra ára reynsla hór/endis af kulda-
klæðnaðinum hefur sannað einstaka endingu og
kuldaþol.
Takmarkaðar birgðir
Sendum ípóstkröfu
MÖtWN'1
ÁRNI ÓLAFSSON HF.
Vatnagarðar 14,2 hæð, sími 83188
Utboð — jarðvinna
Stjórn verkamannabústaða i Reykjavik
óskar eítir tilboðum i jarðvinnu við Eiðs-
granda. útboðsgögn verða afhent á skrif-
stofu VB, Suðurlandsbraut 30, frá og með
mánudeginum 15. febr. gegn 500 kr. skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 23.
febr. n.k. kl. 15 á sama stað.
St jórn verkamannabústaða
i Fteykjavik
Rauði kross Islands heldur
Námskeið
i aðhlynningu sjúkra og aldraðra 8—12.
mars næstkomandi i kennslusal Rauða
krossins i Nóatúni 21, R.
Kennsla hefst kl. 18.00 á kvöldin.
Umsóknir sendist skrifstofu Rauða kross
íslands, Nóatúni 21, Reykjavik, fyrir 25.
íebrúar nk. og þar eru veittar frekari
upplýsingar.
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Upprifjunarnámskeið hefjast mánu-
daginn 1. mars. Upplýsingar og innritun i
skrifstoíu skólans.
iðnskólinn i Reykjavik