Þjóðviljinn - 13.02.1982, Síða 23

Þjóðviljinn - 13.02.1982, Síða 23
Helgin 13.— 14. febrúar 1982. ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 23 MINNING_________________ Ólafur Tryggvason Fæddur 1. júní 1911 — Dáinn 6. febrúar 1982 Þlnu jarðvistarlífi er lokið en eilifðin bak við móðuna miklu tekur við í dag verður til moldar borinn frá Staðarfellskirkju, Ólafur Tryggvason. Leiðir okkar Óla lágu fyrst verulega saman vorið 1971, er við hjónin hófum búskap að Staöarfelli. Þá kom hann til okkar að skafa selskinn og að- stoða við selveiði, siðan var hann hjá okkur á hverju vori að skafa selskinn. Þessu starfi hafði hann gegnt hjá fyrri ábúanda hér, þannig að það má segja að hann hafi tilheyrt þessari vertið. Þetta starf sem og öll önnur störf vann hann af natni og samviskusemi. Óli var hljóðlátur maður og ið- inn, ekki gefinn fyrir aö trana sér fram. Hann var minnugur og hafði gaman af að segja frá fyrri timum, kunni margar sögur og sagði mjög vel frá. Þar voru smá- atriðin ekki undanskilin. Óli var alla tið bóndi og bjó viða. Vorið 1975 hóf hann búskap á eyðibýlinu Dagverðarnesi i Klofningshreppi. Þar bjó hann i rúm 5 ár. Ekki tók hann tæknina i sinarhendur, heldur heyjaðifyrir kindum sinum upp á gamla móð- inn með orfi og hrifu. Nútima þægindi voru einnig af skornum skammti i Dagverðarnesi. Þar var oliukynding og steinoliu- lampar. Seint i nóvember 1980 varð Óli fyrir þvi áfalli að missa nærri helminginn af kindum sinum niður um is á vogi skammt frá bænum án þess að geta neittgert þeim til hjálpar. Þetta var mikið áfall fyrireinyrkjabónda. Þá sást best hvað Óli hafði mikla hugarró og viljastyrk að æðrast ekki yfir orðnum hlut. Eftir þetta áfall brá Óli búi i Dagverðarnesi og kom m eö féð sem eftir lifði til okkar að Staðarfelli. Það má segja að upp úr þessi hafi kraftar hans óðum farið að þverra og si'ðastliðið vor kom i ljós að hann gekk með al- varlegan sjúkdóm. Dvaldi hann á sjúkrahúsi Akraness siðastliðið vor og svo aftur nú undir lokin. En þreyttum er þörf á hvild og þvi urðu þáttaskilin honum kærkomin gjof Þetta eru fátækleg orð aö leiðarlokum en örlltill þakklætis- vottur frá okkur hjónunum og börnunum okkar, sem hann var mjög góöur vinurog félagi. Okkar innilegustu samúöarkveðjur til systkina og annarra vandamanna Þóra og Sveinn Staðarfelli ife RÍKISSPÍTALARNIR t!ig lausar stöður SJÚKRALIÐAR óskast til starfa strax eða- eftir samkomulagi. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri i sima 38160 ÞROSKAÞJÁLFAR og SJÚKRALIÐAR óskast til starfa strax eða eftir samkomu- lagi á Kópavogshæli. Upplýsingar veitir forstöðumaður i sima 41500. ÞVOTTAVÉL — tekur allt að 9 kg. og tekur inn á sig heitt og kalt vatn. Stillanlegt vatnsmagn í samræmi við þvottinn hverju sinni. Verð kr. 9.600.- ÞURRKARI — tekur allt að 7 kg. af þurrum þvotti. Meðal þurrktími 60-70 mín. 3 mismunandi hitastillingar. Verð kr. 8.300.- Alþýðubandalagið Svavar Kjartan 14. Almennir stjórnmálafundir i Bolungavik og ísafirði Alþýðubandalagið efnir til al- mennra stjórnmálafunda i Bol- ungavik og á Isafirði um næstu helgi. Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins og Kjartan Ólafsson, ritstjóri mæta á fund- unum. Fundurinn i Bolungavik verður haldinn i Verkalýðshúsinu þar laugardaginn 13. febrúar og hefst klukkan fjögur siðdegis. Fundurinn á ísafirði verður haldinn á Hótel tsafirði sunnudaginn febrúar og hefst klukkan fjögur siðdegis. — Alþýðubandalagiö Alþýðubandalagsfélagar á Selfossi Fyrri umferð forvals fer fram laugardaginn 13. febrúar og seinni umferð fer fram laugardaginn 20. febrúar. Kjörtimi er frá kl. 13.00—20.00 báða dagana. Forvaliö fer fram að Kirkjuvegi 7, Selfossi. Utankjörstaðaatkvæöagreiðslan fer fram að Lambhaga 19, hjá Kolbrúnu Guðnadóttur og Sigurði R. Sigurðssyni, til fyrri umferðarfrá 7.—12. febr. kl.9—12 og 18—22.00. 13. febrúar frá kl. 9—12.00. Til siðari umferðar frá 17.-19. tebr. kl. 9—12.00 og 18—22.00. 20. febr. kl. 9—12.00. Félagar eru hvattir til að neyta atkvæðisréttar sins. — Uppstillinga- nefnd. Alþýðubandalagið á Seyðisfirði Aðalfundur Alþýðubandalagsfélags Seyðisfjarðar verður haldinn i barnaskólanum, sunnudaginn 14. febrúar nk. kl. 2. Dagskrá: 1) Inntaka nýrra félaga, 2) venjuleg aðalfundarstörf, 3) komandi bæjarstjórnar- kosningar. — Stjórnin. Alþýðubandalagið i Kópavogi FyrriumferðFORVALS fer fram þessa viku. Allir félagar hafa feng- iðheimsend gögn, sem skila skal inn á skrifstofu félagsins i Þinghól kl. 17 - 19 virka daga vikunnar. A laugardeginum 13. febrúar verður opið kl. 14 - 21 og siðan verður talið að viðstöddu fjölmenni. Þeir félagar sem ekki hafa fengið gögn i póstinum eru beðnir að hafa samband við skrifstofuna á þessum tima og afla gagna. I fyrri umferðinni eru vaidir 12 einstaklingar af þeim 18 sem taka þátt i prófkjörinu fyrir hönd féiagsins. Ekki skal nefna starfandi bæjar- fulltrúa i þessariumferð. — Félagatal liggur frammi á skrifstofunniog siminn er 41746. Stjórnoguppstillinganefndhvetja allafélaga til að skila kjörgögnum og taka þannig þátt i að velja einstaklinga til starfa fyrir félagið. Kjörgögn eru sótt ef óskað er. stjórn og UppStiiiinganefnd Alþýðubandalagið á Akranesi Vinnufundur i Rein, mánudaginn 15. febrúar kl. 20.30 A þessum vinnufundi munu starfshópar skila af sér tillögum að stefnuskrá Al- þýðubandalagsins fyrir næsta kjörtimabil. Jafnframt verður gengið frá stofnun Bæjarmálaráös AB. Aliir vinstri menn, fjölmennið og leggið ykkar af mörkum til umræð- unnar um bætt bæjarfélag! Stjórnin Alþýðubandalagsfélagar Akureyri Munið seinni hluta forvals ABA til bæjarstjórnarkosninganna sem fer fram i Lárusarhúsi Eiðsvallagötu 18 Akureyri, laugardaginn 13. febrúar kl. 14 -18 og sunnudaginn 14. febrúar kl. 14 -18. Kaffiveitingar á staðnum. Bilasimar 21875 og 25875. Uppstillingarnefnd VlÐTALSTtMl ADDA BÁRA Á LAUGARDAG Laugardaginn 13. febrúar verður Adda Bára Sigfúsdóttir borgarfulltrúi til viðtals fyrir borg- arbúa að Grettisgötu 3 milli kl. 10 og 12 f .h. Eru borgarbuar hvattir til að nota þennan viðtals- tima. — Stjórn ABR. Alþýðubandalagið á Akureyri Starfshópar um stefnuskrá.— Vinnukvöld Allir hóparnir eru boðaðir tii funda i Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, næstkomandi mánudagskvöld 15. febrúar kl. 20.30. Hóparnir eru opnir og er hér með skorað á alla félaga ABA að mæta og láta til sin taka við mótun stefnuskrár fyrir bæjarstjórnarkosningarnar i vor. Alþýðubandalagsfélag Keflavikur Félagar, munið starfs- og rabbfundinn i Tjarnarlundi n.k. mánudags- kvöld kl. 20.30. Mætið stundvislega! Stjórnin Alúðarþakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför systur, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Sigfriðar Sigurðardóttur frá Patreksfirði, Torfufelli 29, Reykjavik. Sérstakar þakkir færum við læknum, hjúkrunarliði og öðru starfsfólki á Vifilsstaðaspitala, fyrir góða umönnun i veikindum hennar. Jóhanna Sigurðardóttir Erla Jennadóttir Wiium Kristján Wiium Vilhelm G. Kristinsson Asgerður Agústsdóttir Sigriður Inga Wiium Kjartan Bjarnason Margrét Sigrún Wiium Alexandro Harrera Jenný Hugrún Wiium Þorsteinn Hansen Stefanla Gunnlaug Wiium Elin ósk Wiium og barnabarnabörn hinnar látnu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.