Þjóðviljinn - 06.03.1982, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 06.03.1982, Blaðsíða 20
20 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 6. — 7. mars 1982. [Unnið ivið i stæði sem jekki ! hefur jverið [ greitt jfyrir i Tvö ár síðan ! íbúar fjölbýlis- húss greiddu öll j sín gjöld! Samkvæmt upplýsing- | um sem Þjóöviljinn hefur aflað sér hafa fyrirtækin I Broadway og Bíóhöllin ' ekki enn greitt eina ein- I ustu krónu til borgarsjóðs I fyrir bifreiðastæði, sem • starfsmenn borgarinnar I vinna nú við að leggja ■ fyrir utan húsið. Hins , vegar eru nú liðin | rúmlega 2 ár síðan íbúar í f jölbýlíshúsinu Þang- ' bakki 8 greiddu sín gjöld | og voru á sínum tíma 450.000 g.kr. á hverja ibúð i húsinu. Allar götur siðan | hafa íbúar mátt leggja bifreiðum sinum út og | suður og öslað forarvilp- • una að híbýlum sínum. Starfsmenn borgarinnar vinna af fullum krafti viö bifreiöastæöi skemmtistaöanna l Suöurmjódd, enda þótt eigendur hafi enn engin gjöld greitt. Ljósm. — eik — Svona litur aökeyrslan aö fjölbýlishúsinu við Þangbakka út. Ibúar greiddu öll sin gjöld fyrir 5 árum. Hvaöa embættismaður borgarinnar ber ábyrgö á þessari framkvæmdaröö? Hvers eiga hinir 130 ibúar þessa húss aö gjalda? Ljósm. — gel. Hringt var i Helga Samúels- son, annan fulltrúa Alþýöu- bandalagsins i Framkvæmda- ráöi borgarinnar og gaf hann þær upplýsingar aö skrifstofu- stjóri borgarverkfræöings heföi undanfariö unnið að innheimtu bifreiðastæöisgjalda i Suöur- mjódd. Samkvæmt yfirliti hans i gær heföu eftirtalin fyrirtæki á þessu svæöi ekki enn greitt sin gjöld: Bókaverslun Sigfúsar Eymund- sonar. Áfengis- og tóbaksverslun rikis- ins Verslunin Viðir Útgáfufyrirtækið Árvakur h/f Brauöbær Árni Samúelsson og Ólafur Laufdal Af þessu yfirliti sést að eig- endur skemmtistaðanna tveggja eru i hópi þeirra sem engin bifreiöastæöisgjöld hafa greitt. Þrátt fyrir þaö vinna nú starfsmenn borgarinnar, að skipun gatnamálastjóra, við að fullvinna bifreiðastæöin þar. Hins vegar hafa ibúar Þang- bakka 8 mátt biöa á 3ja ár eftir samskonar þjónustu, þrátt fyrir að hafa veriö búnir að greiöa sin gjöld fyrir löngu. Hvað veldur. Hver ræður? Ýtarlega veröur fjallaöum málin i Þjóðviljanum eftir helgi. Ráðstefna um sveitarstjórnarmál á Siglufirði: Upphaf kosningabaráttu — segir Sigurður //Það var ákveðið á kjör- dæmisráðsfundi síðastliðið haust að halda ráðstefnu um sveitarstjórnarmál og er ætlunin að hún verði haldin dagana 13. og 14. mars", sagði Sigurður Hlöðversson formaður kjördæmisráðs Alþýðu- bandalagsins í Norður- landskjördæmi vestra í samtali við blaðið. Ráöstefnan veröur haldin hér á Siglufiröi og hún hefst kl. 10 á laugardeginum og stendur fram á miðjan sunnudag. Viö munum fá hingaö Svavar Gestsson formann Alþýöubandalagsins og Ragnar Hlöðversson Arnalds fjármálaráöherra og munu þeir flytja erindi. Þá er von á Baldri óskarssyni fram- kvæmdastjóra flokksins og ef til vill Alfheiði Ingadóttur. Þórður Skúlason sveitarstjóri á Hvammstanga, Gunnar Rafn Sigurbjörnsson og Kolbeinn Friö- bjarnarson bæjarfulltrúar Al- þýðubandalagsins á Siglufiröi munu einnig flytja erindi. Erindaflutningurinn er á laugar- deginum en á sunnudegi veröur hópstarf, þar sem unniö verður aö ályktunum um málaflokka þá, sem fjallað veröur um i er- indunum. A laugardagskvöld er ætlunin að halda kvöldvöku með skemmtiatriöum og einnig hefur komið til tals aö halda almennan Siguröur Hlööversson formaöur kjördæmisráös Alþýöubanda- lagsins I Noröuriandi vestra. opinn fund á laugardeginum, þá seinni partinn. Ráðstefnan verður haldin i hús- næði okkar á Suöurgötu og einnig i Alþýöuhúsinu. Ráöstefnugestir, sem að koma gista i heima- húsum, eöa fá svefnpláss annars staðar eftir atvikum. Við vonumst eftir mikilli þátttöku i þessari ráðstefnu, þvi mikill hugur er i mönnum. Ráðstefnan er nokkurs konar upphaf á mikilli og öflugri kosningabaráttu Al- þýðubandalagsins hér i kjördæm- inu og það veröur ekkert gefið eftir. Um annaö starf flokksins hér á Siglufirði er þaö aö segja að i bi- gerð er að halda námskeið i blaöaútgáfu meö liku sniði og var haldið á Selfossi i haust og þaö ætlað fyrir Siglfirðinga og þá sem hér búa i næsta nágrenni,” sagði Sigurður aö lokum. Svkr. 16,3% lækkun árið 1981 Frá ársbyrjun til ársloka 1981 hækkaöi gengi erlendra gjald- miöla um 19,5% gagnvart islenskri krónu, en þaö þýöir 16,3% lækkun krónunnar frá upp- hafi til loka árs. Á árinu 1980 hækkaöi hins vegar gengi erlendra gjaldmiðla um 54,3% gagnvart krónunni. Þetta kemur fram i fréttatilkynningu, sem Seðlabankinn sendi fjöl- miðlum i gær. Sé hinsvegar litið á meðalgengi yfir árið, þá lækkaöi gengi krón- unnar um 27,1% gagnvart er- lendum gjaldmiölum milli áranna 1980 og 1981, sem jafn- gildir 37,2% hækkun á erlendum gjaldmiölum gagnvart islenskri krónu. Markús B. Þorgeirsson: Sýnlr flot- búniiiga Markús B. Þorgcirsson hönn- uður og umboösmaöur norska fyrirtækisins Seifur h/f efnir til sýningar á björgunarbúning i Sundlaug Hafnarfjaröar i dag kl. 11.00. Hér er um nýstárlegan björgunarbúning að ræöa og hefur hann vakiö mikla athygli allra sjómanna og þeirra sem aö björgunarvörnum vinna. Markús sagði i samtali viö blaðið að allir áhugamenn um þessi mál á Stór-Reykjavikur- svæðinu væru sérstaklega vel- komnir á sýninguna i dag. Norsk stjórnvöld hafa sýnt björgunarnetum Markúsar sérstakan áhuga og fyrir milli- göngu norska sendiráðsins i Reykjavik, hefur honum veriö út- vegaður 25 fm. sýningarbás á björgunartækjasýningu i Þránd- heimi i sumar. Markús hefur framleitt fjölda björgunarneta undanfarið og selt net fyrir 117.000 krónur á sl. þremur vikum. — v. Ársþing F.Í.I.: V íglundur Þorsteinsson iormaður Davið Sch. Thorsteinsson, sem hefur verið formaöur Félags is- lenskra iönrekenda s.l. 8 ár hefur nú látiö af formennsku og á árs- þingi F.Í.I. i gær var kosinn nýr formaður, Viglundur Þorsteins- son. Þingið hófst með ræðu fráfar- andi formanns i gærmorgun og þá ávarpaði iönaöarráöherra, Hjör- leifur Guttormsson þingiö. Aöal- umræðuefni á þinginu var skýrsla starfsskily rðanefndar um „starfsskilyröi atvinnuveganna”. Flutti dr. Jóhannes Nordal, for- maður nefndarinnar ræöu um efni og niðurstööur skýrslunnar. Þá fóru fram umræður um efni hennar. Arsþinginu lauk siðdegis i gær. Guðmundur G. hjáMFÍK Menningar-og friðarsamtök is- lenskra kvenna halda i tilefni kvennadagsins 8. mars fund um friðarmáli Norræna húsinu kl. 14 á sunnudag. Sýnd verður banda- risk kvikmynd um viðhorf tii kjarnorkuvopna. Þá talar Guðmundur G. Þórarinsson, alþm., um efnið: „Frumkvæði Islands aö frið- lýsingu Norður-Atlantshafs”, en að siöustu veröa fyrirspumir og almennarumræður. Þetta er i 31. sinn sem MFIK heldur hátiðlegan áttunda mars.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.