Þjóðviljinn - 12.06.1982, Síða 3

Þjóðviljinn - 12.06.1982, Síða 3
Helgin 12.-13. júnl 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 SILKITROMMAN, ópera byggð japönsku Nó-leikriti. Tónlist: AtliHeimir Sveinsson Texti: örnólfur Arnason Hljóms veitarst jóri: Gilbert Levine Danshreyfingar: Nanna ólafsdóttir Lýsing: Arni Baldvinsson Leikmynd: Sigurjón Jóhannesson Búningar-.Helga Björnsson Leikstjóri: Sveinn Einarsson Hlutverk og flytjendur: Gamli maðurinn: Guömundur Jónsson Stúlkan-.ólöf Kolbrún Harðardóttirog Helena Jóhannsdóttir Tiskumaður: Sigurður Björnsson Flnn Maður: Jón Sigurbjörnsson Ungur Maður: Kristinn Sig- mundsson Kona:Rut Magnússon Ginur, þjónar, menn ofl. Brynja Sif Björnsdóttir, Soffla Marteinsdóttir, Jódls Pétursdóttir, Jón F. Benónýsson, Gunnar Richardsson Jón Sigurðsson. Hljómsveit: 22hljóðfæra- leikarar úr Sinfóniu- hljómsveit tslands. Hún Leifur Þórarinsson skrifar Silkltromman l. Guðmundur Jónsson var stjarna kvöldsins. Ljósm.:eik var stórkostleg Það þarf varla að orð- engja, að frumsýning óperunnar „Silkitromm- an", eftir Atla Heimi Sveinsson og örnólf Árna- son, er mestur viðburður á íeirri Listahátíð, sem nú stendur yfir. Ekki aðeins vegna þess að verkið stendur fyllilega undir Deim góðu viðtökum, sem Dað hefur fengið jafnt hjá áhorfendum sem gagnrýn- endum, heldur er flutn- ingur nýrrar óperu jafnan heimsviðburður og hlýtur því að stela „sjóinu" við okkar aðstæður. Heimsmælikvarðinn Nú segja mér fróðari menn og konur, að með sýningu „Silki- trommunnar” hafi verið brotiö blað I islenskri leiklistarsögu — að með sviðssetningu Sveins Einarssonar hafi loksins verið sýnt og sannað hvers okkar til- tölulega unga leikhús er I raun- inni megnugt — á heimsmæli- kvarða. Heimsmælikvarðinn er nú að vlsu dálitiö vafasamur kvarði á þessu stigi málsins og sýnist eflaust sitt hverjum eftir hvar hann hefur tekið land og best aö láta hann liggja milli hluta i bili. En vist er að sjaldan hefur maður verið glaðari og áhuga- samari en á frumsýningu I Þjóö- leikhúsinu á laugardaginn var — hún var stórkostleg. Óeigingjörn ástin Efnisþráður Silkitrommunnar er einfaldur og beinskeyttur og tekinn úr japönsku Nó-leikriti. Gamall, þreyttur maöur, glugga- pússari, veröur ástfanginn af tál- sýn, tiskudrós, sem hann sér innan við glerin sem hann fægir. Tiskufólkið, svo sem homma jlegur sýningarstjóri, ungur gæi finn peningamaður og uppáfærð Imellumamma, gerir sér mat úr Iþessu — hann má snerta stúlk una, nái hann tóni úr silki- trommu, sem hann auðvitaö getur ekki — það hæðir hann og spottar svo niöurlægingin knýr hann til sjálfsmorös. En tviskipt tlskudrósin (hún er bæði söng- og danshlutverk) verður snortin af óeigingjarnri ást gamlingjans og fylgir honum I Helheima, þar sem silkitromman, eöa ástin, gæti öðl- ast hljóm. Áhrifamikil tónlist Það má vel vera, að það „libretto”, sem örnolfur Árnason gerir upp úr þessu leyni á sér. En fljótt á litið viröist það hálfgerður hnoðleir og ekki sérlega músik- alskt i orðalagi. En það hefur þó dugað Atla Heimi til að gera viö býsna áhrifamikla tónlist, sem er allt að þvi „genlal” á köflum og meira er varla hægt að heimata af nokkurri sanngirni. Tónlstin er fjölbreytt og áhrifa- mikil. Söngstillinn er oft svifandi á milli tals og söngs og gæti verið einskonar endurómur af texta- flutningi sem tlðkast I „nóinu” japanska, þótt fyrirmyndirnar séu auðvitað augljósar I expressjónisma tónskálda I þýskum löndum, frá 1912 og upp- úr. Hvað sem þvl llður, þá er hann fullkomlega sannfærandi og það sem meira er: sönvararnir, sem varla eru þessu vanir neitt aö ráöi, fluttu hann eölilega og vand- ræöalaust.Samaimáisegja um þaö ! sem frá hljómsveitinni kemur, en hún er skipuð rúmlega tuttugu sinfóniskum hljóöfæraleikurum-, það er ekki sérlega frumlegt og ættað úr smiðjum margra góöra manna I sæmilegum „radius” um Darmstadt I Þýskalandi siöustu áratugina. En það er jafngott fyrir þvl, heldur athygli manns allan tlmann og byggir upp harm- I leikinn svo hann verður sterkur ! og spennandi. ótrúlegt en satt Tvö atriði skera sig þó úr hvaö snertir mátt og fegurð og eru raunar hverfipúnktar verksins: annars vegar niðurlægingar- senan, þar sem söngvararnir „mlma” hæönishlátrana, sem hljómsveitin sendir frá sér, og hins vegar lokaatriöið, með gamla manninum og stúlkunni, sem er undursamlegt I einfald- leika sinum. Það er ótrúlegt, en satt, að flutningur söngvaranna sex, þeirra Guðmundar Jónssonar, Ólafar Kolbrúnar Haröardóttur, Siguröar Björnssonar, Jóns Sigurbjörnssonar, Kristins Sig- mundssonar og Rutar Magnús- sonar var með slikum ágætum, að halda mætti að þau væru öll hag- vön i nútimaóperu. Svo er auö- vitað ekki, aö undanskildum Sigurði Björnssyni, sem söng hlutverk Andrésar i Vozzeck Alban Bergs þegar hann starfaöi I Þýskalandi og þá eflaust eitthvað fleira I þeim dúr — en þau hafa vilja og getu til að tileinka sér og syngja hin undarlegustu tónferli. Til hamingju Þvl varð flutningur „Silki- trommunnar” mikið kraftaverk undir drifandi tónsprota Gilberts Levine, i flottri leikmynd og Sigurður Björnsson, Kristinn Sigmundsson, Jón Sigurbjörnsson og Rut Magnússon ihlutverkum sinum Ljósm,:eik. parisarlegum búningum þeirra Sigurjóns Jóhannssonar og Helgu Björnssonar, meö eðlilegum danshreyfingum, sömdum af Nönnu ólafsdóttur, geðslegri lýsingu Arna Baldvinssonar og undir góöri og ekta óperuleik- stórn Sveins Einarssonar. Til hamingju. Leifur Þórarinsson Háskólafyrirlestur: Sartre um Flaubert Laugardaginn 12. júni flytur William Leon McBride, prófessor í heimspeki viö Purdueháskóla I Bandarikjunum opinberan fyrir- lestur I boðið heimspekideildar Hi. Hefst fyrirlesturinn kl. 16 I stofu 1011 Lögbergi, og fjallar um rit Sartres um Flaubert: L’idiot de la famille. Láttu m.s. Ðaldur ferja þig og bílinn yfir Breiðafjörð. Það sparar bensíniö og styttir leiöina vestur á Firði. Þú stígur óþreyttur á land á Brjánslæk, eftir ánægjulega ferð með viðkomu í Flatey, sem er sannkölluö perla Vesturlands. Sumaráætlun m.s. Baldurs: Mánudaga: 1. júní til 30. sept. Frá Stykkishólml kl. 9.00 árdegis. Frá Brjánslæk kl. 14.00 siódegis. Áætlaður komútími til Stykkishólms kl. 18.00. Þriðjudaga: 1. júlí til 31. ágúst. Frá Stykkishólmi kl. 14.00 síðdegis. Frá Brjánslæk kl. 18.00 síðdegis. Áætlaður komutími til Stykkishólms kl. 21.30. Mlðvikudaga: 1. júlí til 31. ágúst. Frá Stykkishólmi kl. 9.00 árdegis. Frá Brjánslæk kl. 14.00 síödegls. Áætlaður komutími til Stykkishólms kl. 18.00. Flmmtudaga: 1. júní til 30. sept. Frá Stykkishólmi kl. 9.00 árdegis. Frá Brjánslæk kl. 14.00 síðdegis. Áætlaður komutími til Stykkishólms kl. 19.00. Föstudaga: 1. júní til 30. sept. Frá Stykkishólmi kl. 14.00 síödegis. Frá Brjánslæk kl. 18.00 síödegis. Siglt um inneyjar. Áætlaður komutími til Stykkishólms kl. 21.30. Laugardaga: 1. júlí til 31. ágúst. Frá Stykkishólmi kl. 9.00 árdegis. Siglt um Suðureyjar. Frá Brjánslæk kl. 15.00 síödegis. Áætlaður komutími til Stykkishólms kl. 19.00.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.