Þjóðviljinn - 12.06.1982, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 12.06.1982, Blaðsíða 22
26 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 12.-13. júní 1982 Hunthausen biskup (til vinstri): þessi nauösyn Þetta plakat er notað í barnafræöslu í ýmsum kaþólskum kirkjum og souri nvaö brýtur lög landsins. kemur þér i hug þegar þu serð þessa mynd. Kirkjan og kjarnavopn Raymond G. Hunthausen erkibiskup í Seattle i Bandaríkjunum er meðal æðstu tignarmanna kaþólsku kirkjunnar sem hafa gengið til liðs við friðarhreyfinguna þar i landi. Ekki bara i orði heldur og á borði. A s.l. sumri tilkynnti hann yf- irvöldum aö í framtíöinni myndi hann í mót- mælaskyni við kjarnorkuvopnavæðinguna i Bandarík junum halda eftir helmingi þess tekjuskatts/ sem honum bæri að greiða. Fjöl- margir geistlegir menn innan margra kirkju- deilda fylgdu fordæmi hans. „Hin endanlega krossfesting” Sp.Til aö mótmæla vopnavæö- ingu Reagan-stjórnarinnar heldur þú eftir helmingi skattsins sem þér ber aö greiöa. Hvers vegna 50% ? Hunthausen Þaö hefur veriö reiknaö út aö helmingur þjóöar- tekna lendi i vopnavæöingu. Hins vegar ógnar upphæöin sem ég held eftir ekki varnarmála- áætlunum Bandarikjanna þvi ég íer ekki tekjuhár. Sp. En pú hvetur til óhlýðni. H. Þaö er hægt aö leggja hegö- un mina þannig út. Hins vegar lit ég svo á, aö ég sé aö hlýöa guöi. Sp.Borgaraleg óhlýöni af þessu tagi hefur hingaö til veriö bundin viö litla minnihlutahópa. Hvers vegna velur einn æösti yfirmaöur 50 miljón manna kirkju þessa aö- ferö? H.Vegna þess aö ég held að af- vopnun á sviöi kjarnorkuvopna sé mikilvægasta viöfangsefni heimsins i dag. Mistök okkar i öörum þáttum mannlifsins geta auöveldlega verið leiðrétt siöar- meir. En kjarnorkustyrjöld myndi tortima heiminum. Hvað get ég gert? Sp. Hvernig komst þú aö þess- ari niöurstööu? | H. Vopnakapphlaupið og út- breiösla kjarnorkuvopna haföi lengi þjakaö huga minn. Ég komst aö raun um aö hérna i grendinni i Puget-Sound flóa væri veriö aö byggja stöö fyrir Trident kjarnorkukafbáta. Þegar ég frétti þetta varð ég hræddur. Fyrst vonaöist ég til aö þetta yröi stööv- |að fyrir einhverja tilviljun. En 'þar sem ekkt slikt geröist fór ég aö hugsa: Hvað getur ein- staklingurinn gert? Hvað get ég [gert? Einn möguleikinn til aö sýna andspyrnu er aö neita aö greiöa skattinn. Nauðsyn brýtur lög Sp. En ber ekki hverjum borg- ara aö viröa lög i þjóöfélaginu samkvæmt kenningum kirkj- unnar? H.Jú þaö ber honum aö gera i grundvallaratriöum. Lög eru nauösynleg til almannaheilla i samfélaginu. En lögin eru ekki einhlít. Við sérstakar alvarlegar aðstæöur megum viö andæfa gegn lögunum meö friösamlegum hætti. Fyrstu þrjár aldir okkar timatals brutu kristnir menn rómversk lög og voru reiðubúnir aö fórna lifinu I þágu málstaöar- ins. Fólk einsog Martin Luther King brutu lög til þess að vekja athygli á óréttlæti. Ég hefi ákveöið aö brjóta lög eftir langa umhugsun vegna þess aö aö ég held aö svo skelfilegur hlutur sem kjarnorkuvopnavæðing krefjist gagnaögeröa. Likami Krists Sp.Þér hafiö kallaö kjarnorku- vopnavæöinguna „hina endan- legu krossfestingu Jesú” Hvernig á að skilja þaö? H. Ef viö litum á mannfólkiö, okkur sjálf.sem likama Krists, ef viö sjáum i okkur nærveru Jesú á jöröu, einsog heilög ritning kennir, þá myndum viö uppræta frelsara okkar i kjarnorkustriöi. Þvi miljónir og tugmiljónir manna myndu farast i sliku striöi. Jesús Kristur og mann- fólkiö eru eitt. Kjarnorkuvopna- væöingin getur umsnúiö tugþús- und ára ofbeldi I takmarkalaust eyöileggjandi kraft. Kjarnorku- kapphlaupiö getur umbreytt lifs- krafti sköpunarinnar i djöfullega mynd eyðileggingarinnar. Sp. Ættu allir kristnir menn i Bandarikjunum aö þinu áliti aö neita aö greiöa skattana? H.Ég hef ekki hvatt fólk til aö fylgja minu fordæmi. Ég hef ein- ungis hvatt alla til þess að setja sig inn i vandamálin i sambandi viö kjarnorkustriö. Og hver sem aö þaö gerir, mun lika taka sér eitthvaö fyrir hendur: Þaö getur veriö aö viökomandi skrifi þing- manninum sinum eöa taki þátt i mótmælaaögerðum. Mér er auö- vitaö ljóst aö þaö er erfiöara fyrir fjölskyldufööur en mig aö halda aftur af skattinum sinum. Mestu skiptir aö glæöa vitundina, hvetja aöra til þess aö hugsa um málin og ræöa málin viö nágranna og Viðtal við Hunt- hausen erkibiskup í Seattle í Banda- ríkjunum félaga. Þaö vildi ég aö min skref hjálpuðu til viö. Þaö getur ekki nægt biskupi aö gera almenn grundvallarviðhorf sin ljós. Sér- fræðingar segja aö viö eigum eftir aö upplifa stórslysiö kjarnorku- striö, ef viö höldum áfram á sömu braut. Fyrir mig sem kristinn mann er kjarnorkustriö siölaust. Þaö er nefnilega engin hugsanleg ástæöa sem réttlætt getur aöra eins gjöreyöingu á mönnum og mannvirkjum og kjarnorkustriö myndi óhjákvæmilega valda. Hvers konar afvopnun? Sp. Þess vegna ertu jafnvel, hlynntur einhliða afvopnun? H. Ég er fylgjandi tvfhliöa af- vopnun. En ég tala fyrir einhliða afvopnun vegna þess aö ég vil vekja af doöanum okkar sam- borgara, okkar stjórnmálamenn. Hins vegar sé ég engan mögu- leika á að hafa áhrif á ráðamenn I Kreml. Aö minni hyggju veröum viö að byrja á afvopnun i þessu landi. Og viö veröum aö halda áfram aö afvopnast á jöröunni, jafnvel þó Rússar ætluöu sér aö skorast undan. Sp. Margir telja svona viöhorf barnaleg. H.AÖ minu áliti er barnalegra aö halda aö áframhaldandi vopnakapphlaup leiöi ekki aö lokum til hræöilegrar kjarnorku- styrjaldar. Sp.En margir stjórnmálamenn þó þeir séu ekki þátttakandi i kalda striöinu halda aö einhliöa afvopnun sé of áhættusöm. H.Mér sýnist hún vera áhættu- minni en takmarkalaus vopna- væöing. Mér er ljóst aö viö mynd- um gefa á okkur höggstaö, En ég fæ ekki séð aö einhliöa afvopnun myndi endilega leiöa til striös. Ég segi við kristiö samfélag, aö viö getum ekki sætt okkur viö hin hræöilegu vopn; viö getum ekki fundiö sjálfsimynd okkar meö þeim. Þaö heföi Kristur lika sagt einsog ég skii heilaga kenningu. Hvað segir Biblían? Sp.Þú skýrir viöhorf þin gjarna meö bibliunni. En einmitt hér i Ameriku eru margir sem komast aö annarri niöurstööu meö hjálp bibliunnar. Þeir vitna t.d. til Mattheusar 10. 34. vers. ,,Ég er ekki kominn til aö færa yður frið, ég er kominn til aö færa yöur sverö”. , H.Að minni hyggju er hægt að rifa einstakar setningar úr sam- hengi og draga almennar álykt- anir af þeim. Þaö veröur aö lita á | lif Krists sem heild — það er skýr j sönnun fyrir friðsamlegum að- 1 feröum við aö leysa vandamál. Jesús kaus krossinn en ekki brugöið sverö til varnar sér. Þetta er yfirlýsing hinnar helgu bókar um einhliöa afvopnun. öryggi okkar trúaöra byggir ekki á tilvist djöfullegra vopna sem ógna öllu lifi á jöröu. öryggi okkar byggir á elskandi guöi. Viö veröum aö eyöileggja vopn óttans ! og treysta á guö. Krossfesting og dauði Sp. Og ef Rússarnir koma veröur þá orötakið „heldur rauður en dauöur” fyrir valinu? H.Ef það versta af öllu geröist. Ef viö yröum hernumin af Rúss- um og yrðum gislar þeirra þá yrði þaö áreiöanlega — það hef ég oft sagt i predikunum — krossfesting okkar. Sp.Þaö er semsagt kristilegra aö láta krossfesta sig en ógna öör- um meö gjöreyöingu? H. Tvimælalaust. Þaö er ekki’ skelfilegasta tilhugsunin aö við veröum upprætt. Þaö ömurleg- asta er sú hugmynd okkar aö vera reiöubúin til aö gjöreyöa miljón- um manna. Jesús kennir okkur að vera reiöubúin að fórna llfinu fyr- ir aöra. Hann hefur ekki kennt: verjist meö þvi aö deyöa svo marga sem nauðsynlegt viröist.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.