Þjóðviljinn - 12.06.1982, Blaðsíða 13
Helgin 12.-13. júni 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
HvalskarOsáin rennur niOur brekkurnar i ótal fossum og flúöum.
Aö i grenjandi rigningu á Leggjabrjóti.
ás. Gamla þjóOleiöin er viöast
hvar skýr og viö reynum aö fylgja
henni eftir bestu getu. Leiöin er
vöröuö svo aö litil hætta er á aö
villast langt af leiö. Regnskýin
hafa þyngst á nýjan leik og nil
tekur aö rigna hægt og stööugt.
Einnig fer mæöin aö segja til sin
enda stoppum viö oft og gælum
jafnvel upphátt viö þá hugsun aö
snúa til baka. En engin alvara
liggur á bak viö enda eigum viö i
vændum dýrlega steik meö rauö-
vini I Valhöll á Þingvöllum og
visa gistingu i góöum herbergj-
um. Viö dáumst lika að þvi hvaö
viö erum komin hátt og langt og
gerum litiö úr þeim spotta sem
eftir er. Hann er aö visu langtum
lengri en þaö sem aö baki er en
viö lokum augunum fyrir þvl.
Nú taka viö löng og drjúg holt
og enn stefnum viö upp I móti.
Brátt blasir viö dalur meö all-
stóru stööuvatni I botninum. Þaö
heitir Sandvatn. Handan þess er
grlðarmikill háls sem viö finnum
út — okkur til sárrar ar-
mæöu —aö viö veröum aö klifa.
Hér er kominn sjálfur Leggja-
brjótur, grýttur og illur yfirferöar
eins og nafniö bendir til. Meöfram
vatninu er talsverður spölur og
stundum sökkvum viö á kaf i vor-
drulluna. Viö höfum þaö samt af
og áöur en varir höfum viö klifiö
Leggjabrjót — óbrotin. Efst á
honum i 467 metra hæö yfir
sjávarmáli æjum viö undir vöröu
og fáum okkur i svanginn. Viö
erum oröin töluvert blaut og
þreytan er aðeins farin aö segja
til sin. En viö þaö aö háma i okkur
brauö meö kæfu og annaö góö-
meti fáum viö endurnýjaöan þrótt
i kroppinn og leggjum galvösk af
staö á nýjan leik.
Héöan hallar stööugt undan fæti
og einhvers staöar i nánd viö
Biskupskeldu eru sýslumörk
Kjósasýslu og Arnessýslu. Við
Biskupskeldu er bundin fræg visa
eftir Jón Þorláksson frá Bægisá:
Tunna valt og úr henni allt
ofan I djúpa keldui
skulfu lönd en brustu bönd,
botngjaröirnar héidu.
LISTAHATIÐ I REYKJAVIK
1982
Miðasala í Gimli
við Lækjargötu
kl. 14.00 tilkl. 19.30.
Sími 29055
Leggjabrjótur er orö aö sönnu. 1
fjarska má sjá þverhnipta
Syöstusúlu f þokuslæöingi.
Tildrög visunnar voru þau aö
hryssa sem Tunna hét, lenti i
keldunni i alþingisreiö frá Leirá.
Brjóstgjörö og afturgjörö héldu
en öll önnur bönd brustu.
Viö komum á nýjan leik aö
ruddum jeppavegi og höldum
okkur siöan aö mestu leyti viö
hann. Vegurinn liggur á barmi
gils sem Súlnaá eöa Súlá fellur
um og eru ennþá viöa snjóbrýr
yfir hana. Skyndilega birtist
Þingvallavatn I fjarska og okkur
veröur ljóst aö enn er langur
vegur að þráöri Valhöll. Syösta-
súla, sem er yfir 1000 metrar á
hæö gnæfir yfir okkur, dulúöug og
mögnuö, þverhnipt aö noröan-
veröu. Súlnaá rennur út i öxnará.
Viö förum yfir hana á snjóbrú og
nú er fyrir höndum endalaus
ganga niöur öxarárdal, milli
Súlna og Búrfells. Stundum
lokum viö augunum og sjáum
fyrir okkur heitt baö i Valhöll.
Viö sveigjum fyrir Orustuhól og
veröum aö taka á okkur krók
fýrir Hrútagil sem öxará rennur
um. Svartagil er á vinstri hönd.
Ennþá er Þingvallavatn I tölu-
verðum fjarska en nú er ekki um
annaö aö ræöa en taka stefnuna
Rajatabla-leikhúsiö frá Venezuela
sýnir
Forseti lýðveldisins
í Þjóðleikhúsinu
mánudaginn 14. júní kl. 20.00.
Vordrulian lætur ekki aö sér hæöa,
beint á Almannagjá og greikka
sporiö. Þaö er hætt að rigna og
komin kvöldbliöa. Ég er oröinn
sárfættur og dálitiö stirður.
Stundum er gott aö fleygja sér i
mosann og láta liöa úr sér i
nokkrar minútur.
Viö göngum niöur i Almanna-
gjá þar sem nýi vegurinn liggur
niöur I hana en erum hreint ekki
komin ennþá i hina langþráöu
Valhöll. Enn eru 3 km eftir. Mal-
bikaöi vegurinn er haröur undir il
og reynist okkur drjúgur. Klukk-
an er nákvæmlega 7 þegar viö
göngum inn i hóteliö og höfum viö
þá verið hálfan niunda tima á
leiöinni. Okkur finnst viö sannar-
lega hafa þénaö fyrir heitu baöi
lambasteik og léttu róli á hinum
helga þingstaö.
— GFr