Þjóðviljinn - 12.06.1982, Page 6

Þjóðviljinn - 12.06.1982, Page 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 12.-13. júni 1982 NOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis (Jtgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eióur Bergmann. Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Olafsson. ritstjórnargrcin Auðlindanýting • Eitt mikilvægasta atriðið er varðar f ramtíðarþró- un í þjóðmálum okkar fslendinga er það, hvernig til tekst um mörkun auðlindastefnu fyrir komandi ár og áratugi. • Þeir sem veljast til forystu í stjórnmálum hafa m.a. þeirri skyldu að gegna að vísa leið til sem hag- kvæmastrar nýtingar auðlindanna i bráð og lengd. f þessum efnum verða menn að horfa f ram á veginn og marka stefnu, þótt sú stef na skili máske ekki árangri fyrr en að nokkrum árum liðnum. Þótt stjórnmála- menn, sem valdir eru til forystu geti aldrei vikið sér undan erfiðri glímu við aðkallandi dægurmál, þá verða þeir jafnframt að horfa lengra fram, og gefa sér tíma til vinnu að stefnumörkun út f rá f ramtíðar- hagsmunum. Án þess færir dægurþrasið menn í kaf. • ísland er ríkt land, sem býr yf ir miklum auðlind- um á landi og í sjó, en því aðeins auðnast okkur að nýta þessar miklu auðlindir þjóðinni til farsældar f bráð og lengd, að stjórnvöld haf i burði til að marka og fylgja fram skynsamlegri stefnu hvað varðar nýtingu auðlindanna. • Okkar helstu auðlindir eru Iff ið í haf inu umhverf- is landið, gróðurmoldin og orka f allvatnanna og hitans í iðrum jarðar. Ásamt náttúruauðlindunum, er það svo þekkingin sem allt nútímamannlíf byggist á, og býður upp á margvíslega nýtingu auðlindanna, sem áður gat ekki verið á dagskrá. Sú þekking er dýrmæt, ekki síður en sjálfar náttúruauðlindirnar. • Þegar við tölum um auðlindastefnu og nauðsyn stefnumörkunar í þeim efnum, þá hlýtur sú stefnu- mörkun að verða við það miðuð, að sérhverri auðlind sé ætlað að skila hámarksaf rakstri með sem minnst- um tilkostnaði, en þó án allrar rányrkju og með sem minnstri röskun á því mannlíf i sem f yrir er. — Hér er ekki verið að boða nein heljarstökk í þessum efnum, heldur hitt að við fetum okkur áf ram traustum og ör- uggum skref um. • Eins og málum er nú háttað, þá er ákaflega mörgu ábótavant í þessum efnum hjá okkur íslend- ingum og þróunin býsna tilviljanakennd í okkar at- vinnulíf i með allri þeirri sóun sem slíku fylgir. • Hér þarf að marka og fylgja f ram auðlindastefnu ísjávarútvegsmálum, stefnu sem byggir á þeim meg- insjónarmiðum, sem nefnd voru hér að framan. I þessum efnum hæfir hvorki offors né aðgerðarleysi, heldur hittaðmenn komi sér niður á nokkur byrjunar- skref og meginlínur varðandi framtíðarþróun. Frá þjóðhagslegu sjónarmiði þá er það að sjálfsögðu ekki bara af lamagnið, sem dregið er úr sjó, er skiptir máli, heldur ekki sfður tilkostnaðurinn á bak við hvert tonn af fiski, og nýting aflans, sem á land berst. Þótt full ástæða sé til að vara við fullyrðingum um að meiri- háttar niðurskurður á okkar f iskiskipaf lota geta orðíð til þess að leysa okkar efnahagsvandamál, þá er hitt engu að síður rétt að hér þurfa menn m.a. að leita íeiða til þess að draga verulega úr tilkostnaði í okkar fiskveiðum. Sú nauðsyn verður enn brýnni nú, þegar horf ur eru á, að af lamagn muni tæplega f ara vaxandi á næstu árum. I þessum efnum hafa ráðamenn verið of sinnulausir á undanförnum árum og vandamálin því stærri en ella. Mörkun auðlindastefnu í sjávarút- vegi með góðri samræmingu veiða og vinnslu er eitt allra brýnasta nauðsynjamál okkar (slendinga. • Hvað varðar nýtingu gróðurmoldarinnar og okkar landbúnað er einnig þörf skýrari auðlindastef nu, þótt út í þá sálma verði ekki f arið hér nánar að sinni. • í iðnaðar- og orkumálum skiptir stefnumörkun um auðlindanýtingu einnig ákaflega miklu máli. Að þeim málum hefur verið kappsamlega unnið hin síð- ustu ár með verulegum árangri, þótt margt sé enn óljóstog á könnunarstigi hvað orkunýtinguna varðar. Sú stefnumörkun í iðnaðarmálum sem samþykkt var á Alþingi í vor að forgöngu iðnaðarráðherra ásamt ákvörðunum fyrir ári síðan um stórátak í virkjunar- málum á næstu árum marka hins vegar leið í þessum efnum. k. Fréttastjóri: Þórunn Siguröarddttir. Umsjónarmaöur sunnudagsblaös: Guöjón Friöriksson'. Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir. Afgreiöslustjóri: Filip W. Franksson. Blaöamenn: Auöur Styrkársdóttir, Helgi Ölafsson, Magnús H Glslason, ölafur Gislason, Óskai Guömundsson, Sigurdór Sig urdórsson, Sveinn Kristinsson, Valþór Hlööversson. tþróttafréttaritari: Viöir Sigurösson Ctlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir, Guöjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elisson. Handrita- og prófarkalestur: Elias Mar, Trausti Einarsson. Auglýsingar: Hildur Ragnars, Sigriöur H. Sigurbjörnsdóttir. Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jóhannes Haröarson. Afgreiðsla: Bára Siguröardóttir, Kristin Pétursdóttir. Slmavarsla: Sigriöur Kristjánsdóttir, Sæunn óladóttir. Húsmóöir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir Innheimtumenn:Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmunds- son. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns- dóttir. Útkeyrsla, afgreiösla og auglýsingar: Slðumúla 6, Reykjavlk, simi: 8 13 33 Prentun: Blaöaprent hf. Enginn getur verið hlutlaus Mér skilst, að likt hafi verið komið á með okkur Jónasi Dag- blaðsritstjóra nú að undan- förnu, að þvi leyti, að báðir höf- um við verið i nokkurri fjarlægð frá borgarstjórnarkosningunum nýafstöðnu. Fregnir herma, að ritstjórinn hafi haldiðsig „fjarri fósturjarðarströndum” og þá væntanlega, trúr fyrra ferli, — sötrað þar vin „i margri ljótri krá” og etið útlendar kássur á meðanblaðiðhans, þetta frjálsa og óháða, sveittist blóðinu við að berjastfyrir ihaldið hér heima á Fróni. Sjálfur lagði ég leið mina norður i Skagafjörð, eins og jafnan i minum sumarleyfum, og sinnti þar lambfé. Ég býst við að þeim störfum hafi fylgt meiri erill og vökur en „at- vinnu” Jónasar. Fimm tima svefn i rúmar þrjár vikur verð- ur vist varla talinn til munaðar. Og þó dreg ég það i efa, að þegar Jónaskom heim frá kráarsetum sinum, eigi hann þaðan ánægju- legri minningar en sá, sem eyð- ir nokkrum vornóttum norður i Skagafirði. En hvað sem um það er þá verður ekki um hitt deilt, að undanfarnar vikur hafa ótvirætt leitt I ljós, að ihaldið hefur eignast „frjálst og óháð” dagblað. Já, borgarstjórnarkosning- arnar. Þegar ég yfirgaf höfuð- staðinn, að morgni hins 8. mai sl„ var hann enn undir stjórn „vinstri” flokkanna, sem svo eru gjarnan nefndir. Er það þó dálitið vafasöm nafngift sé litið á þessa flokka i heild. En þegar ég kom til baka hafði Ihaldið náð borginni á ný. Menn velta fyrir sér ástæðunum og tina ýmislegt til. Mér sýnist þær ýmsar auð- sæjar, þótt ekki verði raktar að ráði i þessari stuttu grein. örfá atkvæði skildu á milli feigs og ófeigs við kosningarnar 1978. Ihaldið hlaut að beita öll- um sinum gifurlega áróðurs- mætti og aðstöðu til þess að vinna þennanmun upp. Völdin i Reykjavik eru lifakkeri þess. Landsstjórnaraðstaða skiptir þar mun minna máli. Næðust þau ekki nú mátti búast við að biðin eftir þvi gæti orðið nokkuð löng. Til þess að standast árás ihaldsins var alger samstaða meiri hluta flokkanna nauðsyn- leg. Með þvi á ég þó ekki við sameiginlegt framboð þeirra, þótt auðvitað væri það sigur- stranglegast, ef fullkomin heil- indi byggju á bak við. En viss samstaða flokkanna var óhjá- kvæmileg ef tefla átti til sigurs. Hún brást og þar með var skarð rofið i múrinn. Alþýðublaðið tal- aðitveim tungum. Timinn einn- ig. Talsmenn Alþýðu- og Fram- sóknarflokksins lýstu þvi yfir i fjölmiðlum, að flokkar þeirra gengju „óbundnir” til kosning- anna. A venjulegu máli þýddi það að þeir væru á engan hátt reiðubúnir til þess að halda áfram vinstra samstarfinu eftir kosningarnar, þótt til þess feng- ist fylgi. Af máli sumra formæl- enda Alþýðuflokksins varð ekki annað ráðið en þeir teldu sig fyrst og fremst eiga i höggi við Alþýðubandalagið, ekki ihaldið. Eðlilegt var að kjósendur hugs- uðu sem svo, að þarna væri hver höndin upp á móti annarri. Skárra væri að kjósa yfir sig Magnús H.Gislason skrifar einlita Ihaldsstjórn, jafnvel þótt sum ummæli borgarstjóraefnis- ins bentu til þess, að það hefði meira utan á höfðinu en innan i þvi, en að styðja flokka, sem ekki gátu einu sinni staðið sam- an á úrslitastundu. Slik fylking gat naumast sýnst sigurstrang- leg. Inn i þetta kom svo kvenna- framboðið, auðvitað „óháð”, en engum duldist þó af samsetn- ingu framboðslistans, að hann mundi fyrst og fremst draga at- kvæði frá meirihlutaflokkunum, einkum Alþýðubandalaginu. Og þvi fleiri listar, sem kepptu um fylgi við sameinað ihald, þeim mun meiri likur fyrir „dauð- um” atkvæðum. Alþýðubanda- lagið eitt gekk til þessara kosn- inga sem eindreginn og alger andstæðingur ihaldsaflanna. Meirihlutaflokkarnir hafa margt vel gert i Reykjavik á liðnu kjörtimabili og gæti nú- verandi meiri hluti notið góðs af, ef skynsemin lyti ekki i lægra haldi fyrir ofstækinu. Enginn þurfti að búast við ein- hverri stórkostlegri byltingu á einum fjórum árum eftir ára- tuga einveldisstjðrn ihaldsins. En á skorti, að það, sem áunnist hefur, væri nógu vel kynnt fyrir kjósendum. Vonlaust er með öllu að það sé unnt að gera á fá- einum dögum fyrir kosningar. Skrif I blöð með ónóga út- breiðslu. koma að takmörkuöu gagni. Hið eina, sem dugar, er linnulaus kynning á þvi, sem gert hefur verið, verið er að gera og áformað er að gera á þeim vettvangi, þar sem hægt er að ná til fólks almennt, vinnustöðunum. Almennir, op- inberir fundir, þar sem menn frá hinum ýmsu flokkum rök- ræddu og leiddu saman hesta sina og sem áttu stóran þátt I að viðhalda og efla pólitiskan áhuga almennings, eru dauðir. Og það eru flokkarnir sjálfir, sem hafa gengið af þeim dauð- um. Nú pukrast bara hver fyrir sig og nær naumast til annarra en þeirra, sem fyrirfram eru sannfærðir. Enginn vafi er á þvi, að þátt- taka almennings i starfi stjórn- málaflokkanna fer minnkandi. Pólitiskur áhugi er á undan- haldi. Æ oftar heyrist fólk mæla eitthvað á þessa leið: „Blessað- ur vertu, þessir stjórnmála- fiokkar eru allir eins. Það skipt- ir engu máli hvort þessi eða hinn er við völd, niðurstaðan verður alltaf sú sama”. Sá hóp- ur sem þannig hugsar, er stór og fer stækkandi. Þessvegna voru ákaflega margir óráðnir i þvi fram á siðasta dag hvernig þeir kysu. Sú hætta er alltaf fyrir hendi, að einmitt þetta fólk hall- istað endingu á sveif með þeim, sem sterkasta hefur áróðursað- stöðuna. Og vist er þessum kjós- endum nokkur vorkunn. Sifelld- ar sambræðslur og málamiðl- anir, sem eru fylgifiskar fjöl- flokkakerfis, deyfa skilin milli stjórnmálaflokkanna. 1 fleir- flokkasamstarfi getur verið óhjákvæmilegt að flokkur fallist á að eitthvað sé gert, sem hann er ekki samþykkur, gegn þvi að fá annað fram i staðinn. Einn fær þessu framgengt, annar hinu? greiði kemur á móti greiða. Enginn fær allt en allir nokkuð. Þetta slævir pólitiska vitund fólks og ruglar marga i riminu. Flokkur, sem er i sam- starfi við aðra, þarf sifellt að benda fólki á, hvað hann mundi gera ef hann réði einn og hvers- vegna hann kann að telja skyn- samlegt að taka þátt í samstarfi þar sem aðeins er amlað i átt- ina. Auðvitað eiga flokkar á vinstri væng margt sameigin- legt þótt á milli beri um annað. En ef við berum saman hinar raunverulegu stefnur ihaldsins og Alþýðubandalagsins, höfuð andstæðnanna i islenskum stjórnmálum, þá má hverjum ( vera ljóst, að þær eru eins ólikar ‘ og islenskar nætur um sólstöður og sólhvörf. Mér sýnist, að af þessum sið- ustu bæja- og sveitarstjórnar kosningum ættuislenskir vinstri menn ýmislegt að geta lært. Það eru raunar þær lexiur einar, sem þeir áttu áður að kunna ut- anbókar. En menn verða löng- um misjafnlega næmir. Grunur minn er sá, að fram- undan séu þau átök i islenskum stjórnmálum, sem likleg eru til þess að hafa djúpstæð áhrif á framtiö þessarar þjóðar. Þar verður tekist á um tvær megin- stefnur. Annarsvegar stefnu samhjálpar og félagshyggju, • hinsvegar þá stefnu, sem leiða vill til öndvegis i islensku sam- félagi siðalögmál frumskógar- ins. 1 svo afdrifarikri orrahrið getur enginn verið hlutlaus. — mhg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.