Þjóðviljinn - 12.06.1982, Qupperneq 9
H'eígin 12.-13. jiinl 1982 ÞJÓÐVILJINN — Sií)A 9
Hverjir hafa
fengiðNóbels-
verðlaunin?
492 einstaklingar frá 36 löndum —
Þar af eru 143 Bandaríkjamenn
Hin virtu Nóbelsverðlaun hafa
nú verið veitt i 80 ár eða allt frá
árinu 1901. Þau hafa verið veitt
frá upphafi i bókmenntum, eðlis-
fræði, efnafræði, læknisfræði á-
samt friðarverðlaununum. Hin
siðari ár hafa þau einnig verið
veitt i hagfræði. A þessum tima
hafa alls 492 einstaklingar frá 36
þjóðlöndum fengið Nóbelsverð-
launin,en einnig hafa stofnanir 12
sinnum fengið friðarverðlaunin.
Langflestir verðlaunahafarnir
hafa komið frá Bandarikjunum,
alls 143 eða um 29% þeirra. Næsti
röðinni kemur Bretland með 77
verðlaunahafa.
Allur obbi Nóbelsverðlauna-
hafa kemur frá N-Ameriku og
Evrópu. Aðeins 8 hafa komið frá
S-Ameriku, 2 frá Afriku, 12 frá
Asiu og 4 frá Astraliu. Þess skal
getið að um 150 sjálfstæð riki eru
nú til en eins og áður gat hafa hin
eftirsóttu verðlaun aðeins runnið
til 36 þeirra. Þeirra á meðal er Is-
land.
Svona skiptast verðlaunahafar
eftir rikjum:
Bandarikin 143, Bretland 77,
Þýskaland 59, Frakkland 42, Svi-
þjóö 25, Sovétrikin 16, Sviss 14,
Holland 12, Austurriki 11, Italia
11, Danmörk 10, Belgia 9, Noreg-
ur 7, Japan 6, Spánn 5, Irland 4,
Argentina 4, Astralia 4, Kanada 4,
Ungverjaland 3, Pólland 3, Kina
2, Indland 2, Finnland 2, S-Afrika
2, Chile 2, Grikkland 2, ísrael 2,
Júgóslavia 2, tsland 1, Pakistan 1,
Tékkóslóvakia 1, Portúgal 1,
Guatemala 1, Egyptaland 1 og
Vestur-Indiur 1.
Bókmenntaverðlaun Nóbels
—SSSwp;-----—
Fyrir 10 árum
Bandarikjaher hefur eytt ein-
um áttunda alls skóglendis i Suð-
ur-Vietnam og unnið óhemju
spjöll á akurlendi. Risasprengjur
af gerðinni „Daisy Cutter” eru
sérlega áhrifamiklar viö eyðingu
skóga. Ein slik sprengja vegur sjö
og hálft tonn og drepur allt kvikt
sem er innan kilómetra fjarlægð-
ar frá sprengistaönum. I skýrsl-
um bandarisku herstjórnarinnar
er talið að einum tólfta alls gróð-
urlendis I Suður-Vietnam hafi
verið eytt. Þessi tala er alltof lág
og þvi fer fjarri að hún gefi rétta
mynd af eyöileggingunni. En
jafnvel þótt reiknað sé með að-
eins 12 af hundraði þá samsvarar
það hlutfallslega þvl, ef boriö er
saman að Bandarikin, að Flór-
ida, Georgia, Alabama, Missi-
sippi, Suður Carólina, Norður
Carólina, Tennessee, Kentucky
og Arkansasfylki hafði verið lög i
auön.
(1. júnl).
A að giska þúsund stúdentar i
Frankfurt hlýddu I gær á áskorun
Ulriku Meinhof um aö hefja vopn-
aða baráttu gegn bandariskum
herstöðvum I Vestur-Þýskalandi.
Ávarp Ulriku Meinhof var leikiö
af segulbandi I hátiöarsal háskól-
ans en hún fer sjálf huldu höföi,
enda verið eftirlýst af lögreglunni
um árabil fyrir skæruhernað
gegn rikjandi þjóðskipulagi i
landinu.
(2. júni).
A meðan islenska Olympíu-
nefndin er að basla við aö ná
saman einni til tveimur miljón-
um króna til að geta sent fáeina
keppendur á Olympiuleikana i
Mönchen i sumar eyða Banda-
rikjamenn 10 milj. dollara til
þátttöku i Olympiuleikunum i ár
eða tæpum 900 miljónum is-
lenskra króna.
(20. mai)
A glæsilegum borgarafundi
um herstöðvamálið i fyrrakvöld
var kjörið 25 manna ráð til að
vera miöstöð baráttunnar gegn
herstöövum á tslandi og knýja
fram efnd fyrirheitanna i
stjórnarsamningnum um brott-
för hersins. Þessi fjölsótti fund-
ur sem haldinn var i framhaldi
af baráttufundi til minningar
um Jóhannes úr Kötlum,
sameinaði til baráttu fyrir
brottför hersins annars ólika
hópa sem hafa það sameiginlegt
að vilja að erlendur her hverfi
af islenskri grund.
(Leiöari 18. mai)
Fyrir einu ári eða svo var
mikið skrifað um fjölþætt störf
Jóhannesar Nordals. I blöðun-
um voru birtar myndir af Jó-
hannesi jafnmargar hinum að-
skiljanlegu störfum hans. Upp
úr þessu hófst umræða um Is-
landsmet i bitlingum. Komust
menn aö þeirri niöurstööu að
methafinn væri Óskar Hall-
grimsson nú bankastjóri Al-
þýðubankans. Ekki treystust
blöðin til þess að birta af honum
jafnmargar myndir og störf
hans eru. Til þess hefði þurft
mikið rúm i litlum blöðum.
(Fjalar, 20. mai).
•
Loksins hefur það gerst að við
eigum orðið tvo kúluvarpara,
sem berjast munu um fyrsta sæt-
ið á frjálsiþróttamótum hér i
sumar. Hreinn Halldórsson, hinn
ungi og stórefnilegi kúluvarpari,
gerði sér litið fyrir á EÓP-mótinu
og kastaði 17.39 m, og storkaði
þar með Guömundi Hermanns-
syni, sem veriö hefur ósigrandi og
raunar aldrei fengið keppni s.l. 4
ár.
(3. júni).
Nóbelsverðlaunahafar árið 1981. Sitjandi frá vinstri eru David H. Hub-
el, Bandarikjunum (Læknisfræði), Elias Canetti Bretlandi (bókmennt-
ir) og Robert Sperry Bandarikjunum (læknisfræði). Standandi eru:
Kai Siegbahn Sviþjóð (eðlisfræði), Torsten N. Wiesel Sviþjóð (læknis-
fræði), Arthur L. Schawlow Bandarikjunum (eðlisfræði), Kenichi Fu-
kui Japan (efnafræði), Ronald Hoffman Bandarikjunum (efnafræði),
Nicolaas Bloembergen Bandarikjunum (eðlisfræði), og James Tobin
Bandarikjunum (hagfræði).
hafa runnið til einstaklinga i 24
löndum, oftast til Frakklands, 11
sinnum; næst koma Bandarikin,
Bretland, Þýskaland og Sviþjóð.
Þess skal að lokum getið að
ekki er öll sagan sögð þó að við-
komandi verðlaunahafi sé rikis-
borgari ákveðins lands. Þannig
fékk Canetti siðast verðlaun i
bókmenntum en hann er breskur
rikisborgari, og teljast verðlaun-
in þvi renna til Bretlands. Hann
er hins vegar gyðingur, fæddur i
Búlgariu, alinn upp i Austurriki
og skrifar á þýsku. Auk þess
dvelur hann mjög gjarnan á
Italiu.
Einnig má segja að tslendingar
hafi fengið hálf önnur verðlaun
þvi að Niels R. Finsen sem fékk
verðlaunin i læknisfræði árið 1903
var tslendingur i aðra ættina og
tók t.d. stúdentspróf frá Mennta-
skólanum i Reykjavik.
— GFr.
IGONGUDAGUR
JÓLSKYLDUNNAR
MJOLKURDAGURINN
VERÐUR SUNNUDAGINN 13. JÚNÍ
Undanfarin ár hafa ungmennafélögin á landinu gengist
fyrir sérstökum göngudegi sem nefndur hefur verið
Göngudagur fjölskyldunnar.
Að þessu sinni verður Göngudagur fjölskyldunnar
jafnframt Mjólkurdagurinn ’82.
Ungmennafélögin hafa skipulagt gönguleiðir, hvert í sínu
umdæmi, sem nánar verða auglýstar á hverjum stað
með veggspjöldum.
Mjólkurdagsnefnd sér þátttakendum fyrir hressingu á
leiðinni og fá þeir allir barmmerki sem
jafnframt er lukkumiði.
LUKKUNÚMERIN ERU 75 ALLS:
1. FULLKOMINN GÖNGUÚTBÚNAÐUR: tjald,
svefndýna, gönguskór og allur fatnaður sem til þarf
að verðmæti alls kr. 10.000.-
2-75. ÝMISKONAR MJÓLKURAFURÐIR s.s. ístertur,
ostar, mjólkur- og mysudrykkir í kössum.
Úrslit verða birt í dagblöðum sunnudaginn 20. júní.
Allir krakkar, pabbar og mömmur, afar og ömmur!
Göngum saman - gleðjumst saman - öll saman
8.15
U M F í