Þjóðviljinn - 23.10.1982, Blaðsíða 3
rl/J! J’ faftw ••• i-Qti *
Starfsmenn Pólaris ferðaskrifstofunnar í Bankastræti eru þau Ulla Bert-
elsen og Pjetur Már Helgason. Mynd - eik
Pólaris ferðaskrifstofan
Hnattferð eftir
eigin óskum
Nýlega opnaði ferðaskrifstofan Póiaris h/f í stærra og endur-
bættu húsnæði að Bankastræti 8.
Pólaris er með söluumboð fyrir Pan American flugfélagið og
hefur aðallega annast sölu á farseðlum með Pan Am og aðra tengda
þjónustu. í vor var ákveðið að breyta rekstri söluumboðsins yfir í
almenna ferðaskrifstofu. Pólaris annast nú alla almenna ferða-
iþjónustu en aðaláherslan er lögð á sérstakt samband við Pan Am
!um allan heim.
Ferðaskrifstofan selur allar ferð-
ir flugleiða h/f auk þess sem í boði
eru sérstakar Pólaris ferðir.
Hnattferð fyrir kr. 29.980 miðað
við gengi 20. okt. sl. er einn af ferð-
, amöguleikunum. Fyrirkomulag
, hnattreisunnar er einfalt. Farþeg-
| arnir ákveða sjálfir hvaða lönd og
í borgir þeir heimsækja og hve lengi
Met í Guiness-
heimsmetum:
Heims-
meistarar
í maga-
lendingum
og reið-
hjólaáti
Við lifum á tímum
undarlegra móta: Eitt slíkt var í
fyrsta skipti haldið í Kárnten í
Austurríki fyrir skömmu. Þar
sýndu sig og listir sínar fimmtíu
menn sem hafa fullnægt
þrálátri frægðarhneigð
mannsins með því að koma sér á
blað í Heimsmetabók Guiness.
Don Aldolfo frá Flensburg var
einn þeirra. Hann er heimsins
mesti magalendingamaður. Hann
hoppar yfir borð og kemur niður á
vömbina (sem er giska þykk). Því
er hann í Heimsmetabókinni sem
heintsins fræknasti maður á sínu
sviði, „Flensborgarinn fljúgandi“.
Þarna var Norman Johnson frá
Blackpool í Englandi sem er mesti
afreksmaður heimsins í því að
skera agúrkur. Einnig John Ke-
ogh, sem étur ítalskar ravíólur
hraðar en nokkur annar maður,
sem og Frakkinn Michel Lotito,
sem ekki aðeins bryður í sig kam-
pavínsflöskur, heldur hefur hann
og étið heilt karlmannsreiðhjól
(En lystin, kaupmaður!).
Þessir afreksmenn voru saman
komnir á fyrstu „Guiness-
heimsmetaviku" sem efnt hefur
verið til. Ferðamálaráðið á staðn-
er dvalið á hverjum stað. Ferðin
getur tekið frá 14 - 180 dögum.
Þá býður Pólaris einnig ótak-
markað flug með Pan American
innan Ameríku. Farþegar ákveða
sjálfir hvaða borgir þeir
heimsækja, og hve lengi er dvalið á
hverjum stað.
um notaði að sjálfsögðu tækifærið
til að reyna að setja nýtt met. Safn-
að var 18766 manns í sumarleyfi og
reynt að mynda úr þeim eina röð
kringum Faakervatn. Þetta hefur
víst átt að verða lengsta manna-
keðja íheimi.Enþað lókst ekki að
loka keðjunm alveg, og fulltrúar
Guinessbókarinnar sögðu: Því
miður, tilraunin tókst ekki.
Sjálfboðaliði á staðnum ætlaði
að setja Guinessmet í klósettset-
um, en ekki er víst hvort bókin vill
líta við slíkum manni, nema þá
með allra smæsta letri.
Sagt er að einn hafi sá afreks-
maður verið, sem er orðinn
þreyttur á frægð sinni. Það er
Christopher Greener og er víst
hæsti maður heims, 2,29 m. Hann
vildi gjarna vera skroppinn saman í
miðlungsstærð.
JLSPí i»dí»á«; .Ef r.«ghK ,
Helgin 23.-24. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Mðskiptaferdiniar med
Arnarflugi
rétti tónninn strax
íflugtakinu
Vel heppnaðir samningar í við-
skiptaferð krefjast útsjónarsemi
og rökréttra ákvarðana. Með því
að notfæra þér Amsterdamflugið
og sértilboð Arnarflugs fyrir fólk
í viðskiptaerindum leikurðu
skynsamlega strax í byrjun og
gefur um leið hárrétta tóninn
fyrir ferðina alla.
Áætlunarflugið til Amsterdam
opnar viðskiptamönnum ótal nýjar
leiðir til annarra landa, jafnt í
Evrópu sem öðrum heimsálfum.
Flugvöllurinn sjálfur, Schiphol,
hefur verið kjörinn besti flug-
völlur heims af lesendum hins
virta tímarits „Business
Traveller", og var þá bæði tekið
tillit til aðbúnaðar og fram-
haldsflugs. Og engan skyldi undra
þessa niðurstöðu því á Schiphol
er m.a. stærsta flugvallarfríhöfn
veraldar og frá flugvellinum er
flogið reglulega til 175 borga í
83 löndum.
Amsterdam er ekki síður heppi-
legur áfangastaður. Þetta ósvikna
„Evrópuhjarta" tekur í æ ríkara
mæli á sig hlutverk miðpunkts
alþjóðlegrar verslunar og við-
skipta og staðsetning borgarinnar
gerir ferðir til nálægra staða í
bílaleigubíl eða lest tilvaldar.
Og Arnarflug býður meira en frá-
bæran flugvöll og heppilega borg.
Innifalið í farmiðaverði
fólks í viðskiptaerindum er m.a.:
• Tvær gistinætur með morgun-
verði á Hilton Airport
hótelinu.
• Símtöl eða telexsendingar úr
flugvéiinni á báðum
flugleiðum.
• Öll aðstoð við skipulagningu
og pantanir framhaldsflugs,
hótela, bílaleigubíla, lestar-
ferða o.s.frv.
Brottför til Amsterdam er alla
þriðjudaga og föstudaga. Við
minnum sérstaklega á að brott-
farartími er kl. 14.00 og tíminn
fyrir hádegi er oft kærkominn til
síðustu útréttinga og undir-
búnings.
Schiphol og Amsterdam - vel þegin nýjung í viðskiptaheiminum
Flugfélag með ferskan blæ
ARNARFLUG
Lágmúla 7, sími 84477
it
Opið hÚS 1. deild Abr.
í Sóknarsalnum að Freyjugötu 27 þriðjudaginn 26. okt. kl. 21.
Á þessari samkomu mun Kristín Ölafsdóttir syngja við undirleik Guðmundar
Hallvarðssonar og Pétur Gunnarsson les upp úr óútkominni bók sinni.
Leynigestur kvöldsins verður umdeildur og þekktur maður í þjóðfélaginu.
Ýmislegt fleira
verður til
skemmtunar.
Kaffi og kökur
á boðstólnum.
jf
Pétur
Fjölmennið og
takið með ykkur
gesti.
Undirbúnings-
nefndin