Þjóðviljinn - 23.10.1982, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 23.10.1982, Blaðsíða 5
Helgin 23.-24. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 5 auðjöfranna, sem eiga Alusuisse og hérlent dótturfyrirtæki þess auðhrings. Og nú er ríkissjóður farinn að greiða niður innlenda orku til hús- hitunar úti um landið, þar sem ork- uverðið er og hefur verið hærra en nokkru tali tekur. En hver hirðir þessa niðurgreiðslupeninga úr ríkissjóði? Það er í raun auðhring- urinn Alusuisse, - ríkissjóður er aðeins að hjálpa íslenskum al- menningi að greiða svolítinn hluta af þeim skatti, sem þessi sami al- menningur verður að standa skil á til Alusuisse, í hvert skipti, sem orkureikningar eru greiddir. Því væri verðið til Alusuisse hækkað, svo sem öll rök standa til, þá þyrfti engar niðurgreiðslur á innlendri raforku til almenningsnota. Þá væri ósköp einfaldlega hægt að lækka verðið á þessari orku til al- mennings. Sú tillaga skal sett fram hér, að meðan orkuverðið til álversins í Straumsvík hefur ekki verið hækk- að, þá verði skráð sérstaklega á alla orkureikninga, sem almenningi er gert að greiða, hversu stór hluti reikningsins sé skattgreiðsla til Alusuisse. Samkvæmt núgildandi samningum á meðal orkuverðið til Alusuisse svo enn að lækka að raungildi á því 32ja ára tímabil til ársins 2014, sem samningurinn nær yfir. Einhliða aðgerðir - Pólitísk samstaða Að undanförnu hefur allt sem unnt er verið reynt til þess að knýja ráðamenn auðhringsins til samn- inga um sanngjarna hækkun orku- verðs nú þegar allar aðstæður hafa gjörbreyst frá því samningar voru gerðir. f þeim samningaviðræðum hafa fuiltrúar íslenskra stjórnvalda og þar með íslensku þjóðarinnar mætt stakri óbilgirni og öllum kröf- um verið þverneitað. Á s.l. vori slitnaði svo upp úr þessum samn- ingum. Alþýðubandalagið hefur markað þá stefnu, að fáist ekki sanngjörn hækkun á raforkuverðinu til ál - versins með samningum, þá beri hiklaust að grípa til einhliða að- gerða af íslands hálfu og ákveða hækkun orkuverðisins með löggjöf í samræmi við rétt okkar sem full- valda ríkis. Að því hefur verið unnið að skapa pólitíska samstöðu um þessa stefnu, og á miklu veltur að sú sam- staða geti tekist nú á næstu vikum. Sameiginlegt álit helstu sérfræðinga í ágústmánuði s.l. var skilað til iðnaðarráðherra skýrslu starfs- hóps, sem skipaður var til athugun- ar á raforkuverði til dótturfyrir- tækis Alusuisse hér á landi. í þessum starfshóp áttu sæti: Finnbogi Jónssön, deildarstjóri í iðnaðarráðuneytinu, Gunnlaugur Jónsson, deildarstjóri hjá Orku- stofnun, Jóhann Már Maríusson, yfirverkfræðingur hjá Landsvirkj- un og Kristján Jónsson, rafmagns- veitustjóri ríkisins. Þessir menn eru allir tvímælalaust í hópi okkar færustu sérfræðinga á þessu sviði, og enginn getur vænt þá um að láta ein eða önnur flokkspólitísk sjón- armið hafa áhrif á niðurstöður fag- legra rannsókna. Þeir skiluðu allir sameiginlegu áliti með svo ótvíræð um niðurstöðum að vart getur nokkur lengur um það efast, að tímabært sé að fylgja fram til sigurs kröfu okkar á hendur Alusuisse um stórhækkað raforkuverð. Við birtum hér fyrirneðan orð- rétt 12 höfuðatriði úr niðurstöðum þeirra fjórmenninganna. Orð þeirra skýra sig sjálf. Hvert og eitt þessara 12 atriða og þau öll sameig- inlega renna hinum styrkustu stoð- um undir kröfuna um þreföldun raforkuverðsins til álversins í Straumsvík. Iðnaðarráðherra hefur undirbú- ið málið af vandvirkni og lagt allt kapp á að tryggja sem breiðasta pólitíska samstöðu um nauðsynleg- ar aðgerðir af okkar hálfu. Á næstu vikum mun á það reyna hvort sú samstaða tekst. Hann bruar kynslóðabilið með krafti sinum, orðsnilld og glæsileik. Hópurinn sem var að störfum við undirbúning sýningarinnar á laugardag. Þetta er aðallega fólkið bak við tjöldin. F.v.: Okkar maður, Jón S. Þórðar- son, Ijósameistari, Þorvaldur S. Þorvaldsson sviðsmeistari, Sveinn Krist- insson leikari, Sigrún Valbergsdóttir leikstjóri, Ólafur Gísli Baldursson hljóðmeistari, Guðbjörg Árnadóttir formaður, Haraldur Helgason mál- arameistari, Lárus Guttormsson aðstoðarmálarameistari, Guðjón Guð- mundsson þúsundþjalasmiður, og Hlynur Eggertsson Ijósameistari. - (Ljósm.: GFr.) OKKAR 55 MAÐUR á Akranesi Sveinn Kristinsson leikur Okkar mann. Hér er hann við logagyllta styttu af sjálfum sér sem kemur við sögu í farsanum. þið ekki að sýna víðar en hér á Skaganum? - Á 8 ára ferli Skagaleikflokks- ins hefur hann lítið ferðast en þar sem hér er um frumflutning á nýju íslensku verki að ræða væri náttúr- lega full ástæða til þess. Frumsýning er í Bíóhöllinni í kvöld, laugardag, og er rétt að birta hér texta af flugumiða sem dreift hefur verið um Akranes: „Okkar maður er í Bíóhöllinni í fyrsta sinn á laugardagskvöld. Komið, sjáið og sannfærist um ágæti hans. Hann hefur aðeins stutta viðdvöl á Skaganum að sinni. Söngur og dans. Allt úrvals listafólk. Öllum hleypt inn meðan húsrúm leyfir. Hér er ekkert kyn- slóðabil - það er brúað í eitt skipti fyrir öll. - Hann brúar það með krafti sínum, orðsnilld og glæsileik. - GFr. BARNASYNING Þegar blaðamaður Þjóðviljans gekk inn í Bíóhöllina á Akranesi laust eftir hádegið s.l. laugardag var mikið um að vera á sviðinu og í salnum. Þar var galvaskt lið að mála, smíða og velta fyrir sér aðskiljanlegum tæknimálum. Þarna var „verklegi“ hluti Skagaleik- flokksins að störfum, enda bara ein vika í frumsýningu á nýjum söngvafarsa eftir Jónas Árnason rithöfund. Farsinn heitir Okkar maður. Blaðamanninum var umsvifalaust vísað niður í kjallara en þar sat leikstjórinn, Sigrún Valbergsdóttir, á ráðstefnu með Ijósamönnunum, Jóni og Hlyni, og þar var líka formaðurinn, Guðbjörg Árnadóttir, á þönum. Sigrún og Guðbjörg voru truflaðar í miðjum klíðum og þær spurðar spjörunum úr. - Er þetta meiri háttar verkefni? - Já, þetta er mikið fyrirtæki. Við vorunt að reyna að telja laus- lega þá sem vinna að sýningunni og það munu vera um 50 manns. Leikendurnir eru 20, þar af 7 manna söng- og danshópur. Þá er þriggja manna „big-band“ og hóp- urinn sem vinnur bak við tjöldin er mun stærri en í fyrri sýningum okkar. Sigrún: Já, það er geysilega spennandi að setja upp svona nýtt verk sem er eins og óskrifað blað. Það er ekki neitt áhlaupaverk, enda krefjast hlutverkin eins mikils af hverjum leikanda eins og fram- ast er hægt að hugsa sér. Þeir þurfa Nýr farsi eftir Jónas Árnason frumsýndur að geta leikið, sungið, dansað og fylgt hljómsveit. Og ég tek það fram að þetta er úrvalsfólk sem vinnur rnjög fagmannlega. - Skipar tónlistin veglegt sæti í sýningunni? -'Þesi farsi er mjög í stíl gömlu dansa- og söngvamyndanna. Fólk er kannski í háalvarlegum samræð- um inni á skrifstofu og byrjar þá eins og upp úr þurru að syngja og dansa. Skagamenn renna sér á þessa hugmynd og leika af hjartans list. Söngtextarnir eru mjög í Jón- asarstíl, en þeir eru ortir við lög frá gullöld djass-blús-tímabilsins. - Syngja allir leikararnir? - í nokkrum atriðum syngja allir með, en mikið er um tveggja til þriggja manna söngatriði, svo sem ástardúetta, hvernig á að bjarga málum, sigursöngva og svo fram- vegis. Til dæmis um lögin má nefna „Dont fence me in“ sem Bing Cros- by gerði frægt á sínum tíma, en að sjálfsögðu er það sungið við ís- lenskan texta Jónasar. - Og um hvað fjallar svo leikrit- ið? - Það fjallar eiginlega um það hvernig frambjóðandi er gerður og snikkaður til og búin til sú ntynd af honum sem fólki er talið trú um að það vilji. Þráðurinn í farsanum er eiginlega um það hvaða brögðum eigi að beita til að ná sem hæstri atkvæðaprósentu. M.a. fjallarfars- inn um sjónvarpsdagskrá og úti- fund. Þar gegnir eiginkonan ekki síst hlutverki, enda skiptir miklu máli hvernig hún kemur fram út á við. Að sjálfsögðu kemur svo í ljós að Okkar maður er allt öðru vísi persóna heldur en búin er til af honum. - Hverjir leika aðalhlutverkin? - Stærstu hlutverkin eru í hönd- um Valgeirs Skagfjörð, Sveins Kristinssonar, Þorsteins Ragnars- sonar, Ingunnar ívarsdóttur og Ingimars Garðarssonar. Þess skal svo getið að leikmyndin ir gerð af þeim Bjarna Þór Bjarnasyni og Guðjóni Þ. Kristjánssyni, tónlist- inni er stjórnað af Bjarka Sveinbjörnssyni og dansa hefur samið Kristinn Reimarsson. - Segðu mér, Guðbjörg, ætlið Pepsí dagur ÍREGNÉOGANUM snnudaginn 24. október n.k. Miðaafhending hefst kl. 13:00 Sýning hefst kl. 13:30 PEPSI ÓKEYPIS í HLÉI Gjöf frá Pepsi að lokinni sýningu Ny títíl Pepsí ÍSKALT PiPSt A ALLRA VÖRUM!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.