Þjóðviljinn - 23.10.1982, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJfóÐVILJINN Helgin 23.-24. október 1982
ritstjornargrcin úr aimanakinu
Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Sigríöur H. Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bilstjóri: Sigrún Bárðardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6 Reykjavík, sími 8 13 33
Umbrot og setning: Prent.
Prentun: Blaðaprent h.f.
Átak gegn
krabbameini
•Það var haldinn blaðamannafundur í vikunni þar sem
Landsráðið gegn krabbameini gerði grein fyrir söfnun
sem efnt verður til um næstu helgi og ber heitið „þjóð-
arátak gegn krabbameini“. Pá verður gengið milli
húsa og reynt að safna þeim 15 miljónum sem þarf til að
reisa fyrsta áfanga nýbyggingar sem fyrirhugað er að
reisa yfir starfsemi Krabbameinsfélags íslands. Til að
bæta möguleika félagsins á því að sinna verkefnum
sínum og taka á nýjum.
• Það hefur komið fram í fréttaflutningi, að íslendingar
hafa staðið sig um margt vel í baráttunni við þann
sjúkdóm sem banvænastur er, að minnsta kosti í okkar
heimshluta. Innlendir menn sérfróðir sem og fulltrúi
Alþjóða krabbameinsstofnunarinnar, sem hingað kom
fyrir skömmu, hafa tíundað mikilvægi þess leitarstarfs
sem hér hefur farið fram og lofað þá krabbameinsskrá
sem hér hefur verið komið upp og talin er hin fullkomn-
asta í heimi. Fulltrúi hinnar alþjóðlegu stofnunar, sem
áðan var nefndur, hefur sagt á þá leið, að hér væri
heilbrgiðiskerfi vel skipulagt og að íslendingar ættu
færa sérfræðinga sem kynnu að nýta sér kosti þess starfs
sem unnið er. En hann sagði einnig, að hann væri
hingað kominn til að hvetja íslendinga til að vinna
meira og taka að sér fleiri verkefni. Félagsleg og land -
fræðileg sérstaða okkar gerði okkur að ýmsu leyti
auðveldara en öðrum þjóðum að vinna að ýtarlegri og
nákvæmri skrásetningu krabbameina og eftir því að
fyrirbyggjandi starfi. Við gætum síðan miðlað niður-
stöðum til annarra sem verr eru settir, t.d. þróunar-
landa, til að síður kæmi til tvíverknaðar í þessari styrj-
öld um heilsu mannfólksins.
•Þá hefur það einnig komið fram í blaðaskrifum, að
þeir möguleikar, sem íslenska heilbrigðiskerfið hefur
komið upp til leitarstarfs nýtast ekki sem skyldi vegna
of dræmra undirtekta hjá almenningi. Til dæmis að
taka hefur nær helmingur allra kvenna á aldrinum 25 -
69 ára ekki mætt í reglulega krabbameinsskoðun á síð-
astliðnum fjórum árum. Þetta er harla sorgleg stað-
reynd í ljósi þess, að vitað er að skoðun á tveggja-
þriggja ára fresti veitir mikið öryggi gegn vissum teg-
undum krabbameins.
• Af því sem að framan er sagt skulu dregnar svofelldar
niðurstöður:
•Almenningur hefur að sjálfsögðu ástæðu til að fagna
því, sem vel er gert í baráttu gegn krabbameini. Um
leið er ástæða til að minna á að hér er um margþætta
baráttu að ræða og að allir hlutar varnarlínunnar verða
að vera í besta lagi. Þeir, sem þjóna skal, verða að
muna sinn vitjunartíma ekki síður en þeir sem starfa að
leit, rannsóknum og lækningum, ekki síður en þeir sem
fara með fjármál heilsugæslunnar. Og sú staðreynd, a,ð
hér er um starf að ræða, þar sem við getum um leið og
við gerum gagn heima fyrir ef til vill orðið mörgum
öðrum að liði, ætti að verða öllum sem spurðir verða
um liðsinni til hvatningar. Og þá á þessari stundu til að
hvetja þá til góðs stuðnings við landsátak gegn krabb-
ameini um næstu helgi. -áb.
...sem sagður
er blaðamaður...
„Einhver Valþór Hlöðversson
sem sagður er blaðamaður
Þjóðviljans...” Eitthvað á þessa
ieið hófst annar hluti leiðara
Morgunblaðsins síðastliðinn
þriðjudag. Hrokagikkur í
ritstjórastóli (gæti jafnvel verið
ritstjórnarfulltrúi, fréttastjóri
eða guð má vita hvað) skrifar svo.
Síðan kemur heil demba yfir
Valþór og aðrir blaðamenn fá
sinn skammt. Röksemdarfærslu
vantar en það kemur ekki á óvart.
Ég skal játa að Morgunblaðið,
sem hefur komið fyrir augu mín
svo lengi sem ég man, hefur verið
mér heilmikil ráðgáta. Morgun-
blaðið er nefnilega að því leytinu
ómissandi blað, að vilji maður
t.a.m. fylgjast með hvað sé að
gerast á fasteignamarkaðinum
hefur maður aungvan valkost;
leiðin liggur á síður Mbl. og
unnendur teiknimyndasagna fá
þar sitt.
Þá kann jafnvel að leynast upp-
spretta hótfyndni blaðafulltrúa
ASÍ í formi Tomma og Jenna. í
íþróttaskrifum er Mbl. flestum
fremri, þar leitar maður svara við
þeirri spurningu hvort Ásgeiri
Siguvinssyni sé nokkuð að batna í
náranum, hvort hann þurfi upp-
skurð og ef svo þá hvenær? Ég get
nefnt fjölmargt annað sem Mbl.
hefur uppá að bjóða, en svo kem-
ur maður að andliti blaðsins,
forsíðunni - hinni óumbreytan-
legu. Vilji menn tala um þjónust-
ulund einstakra blaðamanna, þá
hlýtur sálarlíf þeirra sem skrifa
erlendu fréttir Mbl. að vera fróð-
legt rannsóknarefni. Mesta
atvinnuleysi í manna minnum í
blessaður sé hlutlaus fréttaflutn-
ingur) var lykill með í förinni og
skipti síðan hin nýja stjórn um
skrár.”
Einhliða fréttir Mbl. af þessu
þingi INSÍ komu mér til að rifja
upp þá atburði sem gerðust í fyrra
þegar Heimdellingar í Sjálfstæð-
isflokknum ætluðu að taka
Skáksambandið með ihlaupi. Til
þess að auka fulltrúatölu á þingi
Skáksambandsins svo hægt væri
að koma Haraldi nokkrum Blön-
dal að, var valin sú einfalda
leið að skrá stóran part sjálfstæð-
ismanna á félagaskrá taflfélag-
anna. Það var aldrei fullkannað
hvort þetta lið kynni mann-
ganginn, sumir töldu sig nú
reyndar aldrei hafa gengið í nein
taflfélög eins og t.a.m. Matthías
Johannessen en mikið var nú
samt skemmtilegt að sjá á félaga
skránum ný nöfn eins og: Ingu
Jónu Þórðardóttur, Þór White-
head, Anders Hansen, Hrein
Loftsson, Árna Sigfússon, Jón
Magnússon, Ásgeir Hannes
Eiríksson, Benedikt Blöndal,
Sighvat Blöndal, Þráin Eggerts-
son, o.s.frv..
Þessi atlaga mistókst herfilega
og var reyndar hlegið út um allan
bæ að þessu sama liði. Áhlaupið á
INSÍ var e.t.v. betur skipulagt
svo sem sjá mátti á síðum Mbl. í
vikunni. Én starfsaðferðirnar eru
í grundvallaratriðum þær sömu.
Smalað er á mikilvæga fundi og
gildir einu hvort menn hafi starf-
að fyrir viðkomandi félagsskap
eða ekki.
Félagasamtök í landinu mega
fara að vara sig.
Umsjón
Helgi
Ólafsson
Bretlandi lítur út í fyrirsögn á
forsíðunni sem minnkandi verð-
bólga, og þykir ráðlegt að hafa
þessa sömu frétt með taktföstu
millibili. Um ágæti íhaldsstjórnar
skal enginn efast hversu vond
sem hún er. í þessari sömu „verð-
bólgufrétt” sem áreiðanlega á
eftir að birtast aftur er svo hnýtt
aftan í að tala atvinnuleysingja sé
nú komin upp í þetta og þetta yfir
3 miljónir, sú mesta síðan í
heimskreppunni. Hitt verður að
fýrirsögn, enda vita þeir hvað
fólk les fyrst; fyrirsagnir. Þannig
er hægt að hagræða texta til og frá
til þjónkunar við ákveðinn mál-
stað, sem þó e.t.v. er enginn mál-
staður.
Blaðamenn sem hafa sann-
leiksástina að leiðarljósi og þeir
eru margir, gætu ekki skrifað
frétt eins og þá sem birtist í
þriðjudagsblaði Mbl. eftir þing-
INSÍ. Þar segir: „... Hin nýja
stjórn fór í dag (samkvæmt þessu
má nú reyndar skilja að hin nýja
stjórn hafi farið í skjóli myrkurs
rétt áður en Mbl. fór í prentun) í
húsnæði Iðnnemasambandsins til
að taka við húsnæði þess en þar
var þá enginn til að afhenda þeim
lyklavöldin. Sem betur fer (marg-
DJOÐVIÍIINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis.
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann.
i Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson.
■ Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson.
Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, HelgiÓlafsson, LúðvíkGeirsson, Magnús
H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson,
Þórunn Sigurðardóttir, Valþór Hlöðversson.
íþróttafréttaritari: Viðir Sigurðsson.
Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elísson.
Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Gísli Sigurðsson, Guðmundur Andri
Thorsson.