Þjóðviljinn - 23.10.1982, Page 9
i
1
Einar Bragi skrifar:
'M’ W- f? VV7,'.Ji7.W.<l — ,-7i? ■■
Helgin 23.-24. október 1982 þjöÐVILJINN — SÍÐA 9
Friðjón Þórðarson
dómsmálaráðherra
í dáðustu og elstu
ríkisstjórn Vestur-Evrópu
Stjórnarráðinu
Reykjavik.
í dómi Hæstaréttar nr 49/1977 í
máli VL-manna gegn mér út af
lúsmeinlausu greinartötri frá árinu
1974 var mér gert að greiða sekt að
fjárhæð 15000 krónur gamlar eða
150 nýkrónur. Vararefsing var
ákveðin varðhald í tvo daga og
þættu bágborin daglaun í dóms-
málaráðuneytinu, grunar mig.
Dómur þessi lá í salti í dóms-
málaráðuneytinu á þriðja ár, án
þess hann kæmi til fullnustu, uns
árvakur maður og orðvar Vil-
mundur Gylfason nefndur settist
þar í húsbóndasæti um skeið. Hann
stýrði dómsmálum íslands ekki
lengi, en auðnaðist þó að geta sér
þann orðstír sem ekki deyr. Eitt af
frægðarverkum hans var að siga
lögreglustjóranum í Reykjavík á
undirritaðan delinkvent á aðventu
1979, og voru mér gerðir tveir kost-
ir: greiða sektina eða fara í tugthús,
„Skuluð þér þá mæta í Hegningar-
húsinu, Skólavörðustíg 9, mánu-
daginn 7. janúar kl. 10.00 til þess
þar og þá að afplána fyrrgreinda
vararefsingu“ segir í bréfi lögreglu-
stjóra til mín 14. des. 1979. Skýr
orð og skilmerkileg. Sama dag og
greiðslufrestur rann út (3. jan.
1980) skrifaði ég Vilmundi orðvara
opið bréf, og sagði þar meðal
annars:
„Sektin er ekki há, enda hyggst
ég ekki hlífa léttri pyngju minni við
fjárútlátum, en hef í dag greitt
sömu upphæð af fúsum vilja í Mál-
frelsissjóð. Þessa kúgunarsekt mun
í
Einar Bragi í káetu sinni með ritvélina ásamt vitnunum Thor Vilhjálmssyni og Ása í Bæ. — Ljósm.: eik.
Bréf til dómsmálaráðherra
ég aftur á móti aldrei borga og vil
ekki láta undir höfuð leggjast að
tilkynna þér það opinberlega, um
leið og gjaldfrestur rennur út. Ég
| hef verið dæmdur alsaklaus pólit-
ískum dómi fyrir að segja sannfær-
ingu mína og standa við hana opin-
berlega. Ef ég greiddi sektina, væri
ég með óbeinum hætti að gera sekt-
arjátningu, sem aldrei hefur í hug
mér komið. Þú telur sýnilega
happaminnst fyrir mig að hreyta í;
þig þessum krónum og vera þar
með laus allra mála. En slíkt væru
svik við samvisku mína. Það væru
svik við 12 þjóðkunna rithöfunda,
sem létu í ljós það einróma álit
þrátt fyrir mjög ólíkar lífsskoðanir,
að málatilbúningurinn gegn mér
væri aðför að tjáningarfrelsi lands-
manna. Það væri svik við þá landa
mína, sem síðar munu eiga í höggi
við þau miðaldalegu meiðyrðaó-
lög, sem dómurinn byggist á.
Þér sjálfum kæmi auðvitað best,
að ég borgaði þegjandi og hljóða-
laust, því svo greipilega hafa
hefndarvopnin snúist í höndum
þér og þinna, að löngu eftir að póli-
tískur ferill þinn er að öllu öðru
leyti grafinn og gleymdur, mun
langminnug þjóð okkar þó geyma
nafn Vilmundar Gylfasonar dóms-
málaráðherra fyrir það, að hann
sem hæst galaði á torgum neytti
fyrsta færis sem honum gafst til að
fangelsa andstæðinga sína fyrir að
segja hug sinn“.
Nú fóru að renna tvær grímur á
kappann Vilmund, og daginn eftir
breytir hann fyrirskipun sinni í
mestu skýndingu. Um hughvarf
hans segir í bréfi lögreglustjóra til
mín 5. janúar 1980:
„í gær barst embættinu bréf frá
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu
þar sem þess er óskað að reynt.
verði til hlítar að innheimta hjá
yður sektina til fullnustu á framan-
greindum dómi Hæstaréttar, án
þess að til afplánunar á vararefs-
ingu komi. Því er hér með aftur-
kölluð tilkynning embættisins frá
14. des. 1979 um að þér skuluð
mæta í Hegningarhúsinu 7. janúar
n.k.“ etc.
Svo mikið lá við að afturkalla
gestaboð ráðherrans í tæka tíð að
valinkunnur sundkappi Eyjólfur
Jónsson, sem öll þjóðin þekkir að
prúðmennsku og vaskleik, var
sendur í fullum embættisskrúða
heim til mín að kvöldi dags með
bréf í hendi, sem ekki mátti af-
henda öðrum en mér sjálfum, svo
tryggt væri að ég færi ekki fyrir
handvömm að álpast í fangelsi í
banni Vilmundar. Þetta eru veðra-
brigði sem segja sex.
Nú líður hálftannað ár eða svo,
án þess til frekari tíðinda dragi. Þá
fara mér að berast „áskoranir" frá
fógeta um að greiða títtnefndar 150
krónur. Þeim ansaði ég að sjálf-
sögðu ekki, því ég þóttist hafa
kveðið nógu skýrt að orði um það
efni áður.
Hinn 21. júlí 1981 er ég með
hraðbréfi boðaður á fógetakontór-
inn daginn eftir. Ég mætti rétt-
stundis, enda tilefnis ekki getið í
boðuninni, svo ég ímyndaði mér
hér væri um kokteilboð að ræða.
Þar sátu fyrir fulltrúar lögreglu-
stjóra og fógeta. Nöfn þeirra hirði
ég ekki að nefna. Eftir kurteislegar
kynningar á báða bóga var mér
boðið sæti. „Ég kýs að standa
uppréttur“, svaraði ég,lagði í rétt-
inn ljósrit af bréfi mínu til Vil-
mundar og lét getið, að ég hefði
ekki breytt skoðun, síðan það var
ritað.
Fógetafulltrúinn tilkynnti þá, að
úr því ég neitaði að borga, yrði gert
fjárnám í eigum mínum og bað mig
„benda á“ eitthvað sem ég ætti. Ég
nefndi rafmagnsritvél sem ég á
með öllum guðsbarnarétti, því hún
er gjöf frá mínum nánustu á góðu
dægri. Fulltrúinn skrifaði hana nið-
ur (eða upp?) og negldi um leið
ástmögu Nató á íslandi svo ræki-
lega við smán sína, að þeir munu
ekki losna í bráð. Mér var sagt að
vörslukrafa hefði ekki komið fram
og því mætti ég hafa vélina, uns
hún yrði sótt til að setja hana undir
hamarinn.
Enn líður á annað ár, svo ekkert
heyrist frá fógeta, enda máttu þeir
vita þar á bæ, að vélin var í góðum
höndum. Á þriðjudag í fyrri viku
átti ég ómerkilegt þinglýsingarer-
indi í skrifstofu embættisins. Gaf
sig þá á tal við mig fulltrúinn góði
og kvaðst hafa legið undir ámæli í
ár eða meira fyrir að sækja ekki
ritvélina mína. Ég sárkenndi í
brjósti um blessaðan drenginn og
bað hann sjálfan ákveða tímann,
þegar hann vildi vitja hennar.
Hann tiltók laugardag 16. október
kl. 13.00 og ég hét að vera í káetu
minni að Skólavörðustíg 33 á
greindum tíma til að afhenda hon-
um gripinn. Þetta skrifaði hann
skilmerkilega hjá sér. Kvöddumst
við svo með virktum í fyllsta trausti
hvor á annars orðheldni.
Hálftíma fyrr en stefnumóts-
stundin rynni upp var ég mættur á
umsömdum stað, lét útidyr standa
opnar og einnig dyrnar að vinnu-
kompu minni, eins og títt er á
gestrisnum heimilum þegar au-
fúsugesta er von. Að því hef ég næg
vitni sannorðra manna sem gengu
hér um gáttir á nefndum tíma.
Á næstu mínútum bar að garði
góðvini mína og kollega Ása í Bæ
og Thor Vilhjálmsson til að vera
vitni að þeim sögulega atburði, er
armur réttvísinnar legði í fyrsta
sinn frá upphafi landsbyggðar hald
á atvinnutæki íslensks rithöfundar
tjáningarfrelsinu til dýrðar. Einnig
voru hér mættir fulltrúar innlendra
og erlendra fjölmiðla sem höfðu
haft veður af málinu og þótt frétt-
næmt.
En nú brá svo við, að sá sem í
fyrra hótaði að láta lögreglu færa
mig á sinn fund ef ég kæmi ekki
sjálfviljugur, lét ekki á sér bóla. Ég
gaf honum akademískt korter og
rúmlega það, en fékk að því loknu
fjóra menn hvern öðrum óljúg-
fróðari til að undirrita svo-
fellt vottorð:
„Við undirritaðir vottum hér með
að hafa verið staddir í vinnustofu
Einars Braga að Skólavörðustíg 33
laugardaginn 16. okt. 1982 kl.
12.45—13.22. Fulltrúar borgarfóg-
eta, sem boðað höfðu komu sína
kl. 13.00 til að sækja ritvél hans,
létu ekki sjá sig á umræddum tíma.
Reykjavík 16. okt. 1982 kl. 13.23.
Staðfest og undirskrifað:“
ÁUndirskriftir)
Vottorð þetta er vel geymt og
fylgir í ljósriti. Að svo búnu gerð-
um við okkur glaðan dag til að
fagna nýútkominni bók Ása, Þjóf-
ur í seðlabanka, sem ég hvet þig og
aðra landsmenn til að lesa, því hún
lumar á þörfum fróðleik um sið-
gæði íslensks samfélags í skiptum
við þegna sína ekki síður en elt-
ingarleikurinn við ritvél mína. Er
þá komið að lokum þessa bréfs og
meginerindi: að tilkynna þér, að nú
nenni ég þessu ekki öllu lengur.
Mér var í bernsku kennt: sá sem
ekki vill þegar hann má, hann á
ekki að fá þegar hann vill. Úr því
að undirsátar þítnr sóttu ekki rit-
vélinamínaáþeim tíma, sem þeir
höfðu sjálfir valið og sett, tel ég þið
eigið ekkert tilkall til hennar
framar.
Þó setur að mér áhyggjur af
einu. Fjármálaráðherra sem er
gamall kunningi minn og samherji í
baráttu gegn hernurn hefur marg-
lýst einlægum áhuga sínum á halla-
lausum ríkisbúskap. Ég finn mér
skylt að styrkja hann í þeirri þjóð-
hollu viðleitni. Því vil ég gera þér
tilboð. Ég skal árita eitthvert fá-
gætt eintak af bókum mínum þess-
um orðum: „Niður með þjóðníð
inga! Lifi málfrelsið!" Síðan skal
ég biðja Guðmund í Klausturhól-
um að selja það á næsta bókaupp-
boði, og renni andvirðið óskipt í
ríkissjóð. Væri þessum hráskinns-
leik þar með lokið. Hafnir þú góðu
boði áskiljum við ofannefndir rit-
höfundar okkur rétt til að leggja
fram til skuldajöfnunar reikning á
ríkissjóð fyrir truflun og tafir, sem
undirmenn þínir ollu okkur með
atferli sínu.
Með kærum kveðjum til ríkis-
stjórnarinnar ástsælu og ósk um
góðan árangur í viðræðum við
stjórnarandstöðuna.
Reykjavík 19. okt. 1982.
Einar Bragi
p.s.
Bréf þetta er skrifað á þránefnda
ritvél, sem biður að heilsa dóms-
málaráðherra, borgarfógeta og
lögreglustjóra með þökk fyrir góð
kynni — EB.
Viö undirritaðir vottum h5r með aö hafa veriö staddir
í vinnustofu Einars Braga aö SkSlavöröustíg 33 laugar-
daginn 16. okt. 1982 kl 12.45-13.22. Fulltrúar borgar-
fógeta, sem boöaö höföu komu sína kl 13.00 til aö aekja
ritvól hans, létu ekki sjé sig & umræddum tíma.
Vottorðið