Þjóðviljinn - 23.10.1982, Síða 11
;'<íVi ••stM.’tei M- .% /•>,» 'a»•*?«•.<» <•* — /ota Oi
Fjölbreytt
efni í Sögu
SÖGUFÉLAG
1902
Saga, tímarit Sögufélags, 20. ár-
gangur, er komið út. Þetta hefti er
mikið að vöxtum og að vanda fjöl-
breytt að efni.
Að þessu sinni birtir Saga rit-
gerðir eftirtalinna höfunda:
Guðrún Ása Grímsdóttir, cand.
mag. fjallar um afskipti erkibisk-
upa af íslenskum málum á 12. og
13. öld. Helgi Þorláksson, cand.
mag., á í þessu hefti ritgerðina
Stéttir, auður og völd á 12. og 13.
öld, sem er nýtt innlegg frá hans
hendi í þá umræðu, sem verið hefur
í gangi um þetta efni í Sögu milli
hans og Gunnars Karlssonar próf-
essors.
Sigurjón Sigtryggsson fræðimað-
ur á Siglufirði birtir ritgerð, sem
hann nefnir Gjörningaveðrið 1884.
Rit-
höfunda-
kynning
Héraðsbókasafn Kjósarsýslu og
bókasafn Mosfellssveitar gangast
fyrir rithöfundakynningu mánu-
daginn 25. október kl. 20.30 í
bókasafninu í Mosfellssveit. Að
þessu sinni verða þeir Anton Helgi
Jónsson og Jón Ormur Halldórs-
son kynntir og lesið verður úr nýj-
um skáldsögum þeirra.
Kemur fram í ritgerð hans, að trú
almennings á að einstakir menn
kynnu ýmislegt fyrir sér, virðist
hafa verið ótrúlega lífseig. Gunnar
Karlsson prófessor ritar athyglis-
verða grein um sögukennslu í skól-
um.
Mikil gróska hefur verið í
franskri sagnfræði hin síðari ár.
Einar Már Jónsson, sendikennari
við Sorbonneháskóla, greinir les-
endum Sögu frá þessum hræring-
um í grein, sem hann nefnir Nýjar
stefnur í franskri sagnfræði.
Þjóðskjalasafn íslands á aldaraf-
mæli á þessu ári,en íslenskir sagn-
fræðingar eiga þeirri stofnun mikla
skuld að gjalda. Sigfús Haukur
Andrésson skrifar greinina Þjóð-
skjalasafn Islands. Aldarminning.
Þar rekur hann sögu safnsins, að-
stæður þess um þessar mundir, og
þau miklu verkefni, sem bíða úr-
lausnar á þessum vettvangi.
Saga Sjálfstæðisflokksins var
mjög til umræðu á s.l. ári vegna
þriggja bóka um það efni, sem þá
komu út. Svanur Kristjánsson pró-
fessor fjallar nú ýtarlega um þessar
bækur í Sögu.
Aðrir höfundar ritgerða og
greina í Sögu 1982 eru Sveinbjörn
Rafnsson prófessor, sem ritar um
Þorláksskriftir og hjúskap á 12. og
13. öld, Bergsteinn Jónsson dósent,
sem fjallar um sr. Pál Þorláksson
og prestsþjónustubók hans og Loft-
ur Guttormsson lektor, sem greinir
frá samstarfi norrænna sagnfræð-
inga.
Saga flytur að þessu sinni minn-
ingargreinar um þá Ólaf Hansson
prófessor, Jón Helgason ritstjóra
og Pétur Sæmundsen banka-
stjóra.
Ritfregnir og ritdómar skipa að
vanda veglegan sess í- tímaritinu.
Síðast en ekki síst hefur Saga
1982 að geyma Efnisskrá Sögu 1,-
20. bindis 1949-1982 í samantekt
Steingríms Jónssonar, cand.mag.,
og er að henni mikill fengur fyrir
notendur Sögu, sem þarna fá hand-
hægan lykil að efni ritsins frá upp-
hafi.
Ritstjórar Sögu eru þeir Jón
^Guðnason dósent og Sigurður
‘Ragnarsson, cand.philol.
Helgin 23.-24. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
Nýju
vasamyndavélarnar frá
Caiion
35 mm / auto compací
mmm I Wm
ekki sambærílegar
við venjulegar vasamyndavélar
AFSMELLARI
LJÓSMÆLISSTILLIR
SJONGLUGGI
AUTQ-FOCUSGLUGGI
INNBVGGT FLASH
LJOSMÆLIR GLUGGI
4RA GLERJA
35 MM CANON-LINSA
AUTO-FOCUS GLUGGI
Athugiö eftirfarandi eíginleíka
Snappy-vasam ynda vélarinnar:
SnfiPPy vasamyndavélarnar nota 35 mm filmu sem skilar ávallt skarp-
ari og skýrari Ijósmyndum, heldur en venjuleg vasamyndafilma.
SnRPPy vasamyndavélamar eru meö sjálfvirka filmuþræöingu.
SnflPPV vasamyndavélar eru meö sjálfvirka filmufærslu áfram og aftur-
ábak.
SnRPPV vasamyndavélar eru meö innbyggt sjálfvirkt flash.
vasamyndavélar eru einfaldar og handhægar en nákvæmar.
vasamyndavélarnar sjá um allar stillingar fyrir þig svo aö þú
náir rétta augnablikinu áöur en þaö er orðið um seinan.
Lítið inn hjá okkur og skoðið Snappy-vélarnar, þá sannfærist þið
um að Snappy er vélin fyrir ykkur.
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI.
'týli
Sérverzlun með Ijósmyndavörur.
Auslurstræti 7.
Símar: 10966, 26499
Póstsendum
UTSOLUSTAÐIR:
Filmuhúsið, Akureyri,
Fókus, Reykjavík,
Ljósmyndaþjónusta Mats,
Reykjavík,
Týli, Reykjavík,
Verslun Einars Guðfinnssonar,
Bolungarvík,
Verslunin Eyjabær,
Vestmannaeyjum.
OPID UM HELGINA
íslensk úrvals húsgögn