Þjóðviljinn - 23.10.1982, Síða 21
Helgin 23.-24. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 21
bridge
Skemmtilegu Olympíumóti lokið
Nýlokið er í Frakklandi OL 1982,
sem jafnframt er heimsmeistara-
mót í bridge. Mótinu er skipt í fjór-
ar keppnir, sem eru: opinn flokkur
(þeir bestu), kvennaflokkur,
blandaður flokkur (maður/kona)
og sveitakeppni (Rosenblum).
Þetta mót sem haldið var í Biarr-
itz í Frakklandi var hið viðamesta
hingað til. 360 pör tóku þátt í opn-
um flokki, en til samanburðar spil-
uðu aðeins 192 pör 1978 í USA og
einnig 1974 á Kanarí.
Frá íslandi fóru 2 pör til keppni,
Hermann Lárusson og Ólafur Lár-
usson og Jakob R.Möller og Guð-
mundur S. Hermannsson. Þessi
pör spiluðu í opna flokknum og
sveitakeppninni.
Keppni í opna flokknum var
þannig háttað, að af þessum 360
pörum komust 224 í milliúrslit.
Hvorugu parinu frá íslandi tókst
það. Jakob og Guðmundur voru
aldrei nærri þeim áfanga og end-
uðu í 315 sæti, eftir hörmulega
byrjun. Bræðurnir Hermann og
Ólafur voru allaf með annan fótinn
inni í milliriðli, en er upp var staðið
voru þeir í 242. sæti, og skorti
aðeins rúm 100 stig (toppurinn var
334 stig) til að ná inn. Mestu muna-
ði í síðustu lotunni, þegar undirrit-
aður spilaði niður alslemmu á móti
Garozzo með beinharða 13 slagi á
borðinu. En það spil er jú víst efni í
aðra frásögn.
Þetta mót unnu bandarískir spil-
arar, nánast óþekktir utan heima-
lands síns, að nafni Martell-
Stansby. Þeir koma frá San Frans-
isco, Martell tæplega þrítugur stær-
ðfræðilektor og Stansby fertugur
verðbréfasali eða álíka (atvinnuve-
ðmangari). Lokaröð efstu para: 1.
Martell-Stansby USA, 2. Maas-
Rebattu Hollandi, 3. Chagas-De
Mello Brasilíu.
Aðrir sigurverarar urðu: I
kvennaflokki: Jo Ann Kennedy og
Betty Sanders frá USA. í blöndu-
ðum flokki: Diana Gördon og Ge-
orge Mittelman, Kanada.
Síðasta keppnin var svo Rosen-
blum sveitakeppnin með þátttöku
yfir 150 sveita, allar þær bestu í
heimi, t.d. voru 16 sveitir frá USA
aðeins. Við íslendingarnir myndu-
ðum sveit, sem skipt var í Ame-
ríkuriðilinn í undanrásum. Þar
lentum við í partíi með nýbökuðum
heimsmeisturum, sveit Martells frá
USA og hollenska unglingalands-
liðinu.
Til að skýra gang mála í Rosen-
blum þarf að geta þess að þátttöku-
sveitum var skipt í 3 riðla, Evróp-
uriðil, Ameríkuriðil og Afgang
(Rest of world). Yfirleitt voru 4
sveitir saman í hópi, nema í 3 tilvik-
um og var okkar hópur einn af
þeim. Spiluð voru 16 spil milli
sveita með hálfleik á milli, allir við
alla. Það er skemmst að segja frá
því að við spiluðum vel þessa tvo
leiki, unnum hollensku strákana
með 7 stigum en töpuðum fyrir
Martell með 2 stigum, en það dugði
ekki fyrir þá svo þeir duttu í Swill-
fyrirkomulagið eftir þessa undan-
rás. Eftir stóðu í hópnum við og
Martell og þurftum að útkljá okkar
viðskipti þar til annar stóð uppi
sem sigurvegari. Með Martell í
sveit voru: Pender-Ross og
Woolsey-Manfield. Þannig að við
spiluðum 32 spila leik við þá daginn
eftir. Þeir tóku með sér þessi 7 stig
sem þeir áttu úr fyrsta leiknum, og
fyrri hálfleikinn í seinni leiknum
unnu þeir með 11 stigum (23-34) og
áttu þá 18 stig fyrir síðustu 16 spil-
in. Þeir juku svo þann mun nokkuð
og unnu okkur sannfærandi. Þar
með vorum við komnir í Swiss-
fyrirkomulagið, sem var þannig að
allar sveitir sem töpuðu leik í út-
sláttarkeppninni fóru þangað. Hin-
ar sem eftir stóðu héldu áfram þar
til ein sveit stóð eftir í hverjum
riðli, alls 3 sveitir, auk þess 1 sveit
til viðbótar úr Swiss, alls 4 sveitir
sem kepptu andanlega til úrsltia. í
Evrópuriðli sigraði sveit Schmeil
frá Frakklandi, í Ameríkuriðli
sveit Zimmermann frá USA og í
þriðja riðlinum sveit Luca De Tena
frá Spáni.
Eftir tapið fyrir Martell fórum
við beint yfir í Swiss-
fyrirkomulagið. Þar spiluðum við
23 x 8 spila leiki, og er óhætt að
segja að meiriparturinn af and-
stæðingum okkar voru vel þekkt
nöfn í bridgeheiminum. Þessi urðu
úrslit okkar í leikjunum: (Þess skal
getið að vegna frammistöðu okkar
í útsláttarkeppninni, komum við
inn í Swiss með 60 stig til góða og
hófum keppni í 4. umferð Swiss).
4. untferð: gegn Minot Frakk-
landi: 4-16, 5. umferð: gegn
Kvennalandsliði Astralíu: 20-0, 6.
Umsjón
Ólafur
Lárusson
umferð: gegn Landsliði Belgíu
(Engel): 11-9, 7. umferð: gegn
Rozier Frakklandi: 1-19, 8. um-
ferð: gegn Landsliði Monaco: 28-2,
9. umferð: gegn Kvennalandsliði
Frakklands: 30-0,10. umferð: gegn
Unglingalandsliði Ítalíu: 16-14,11.
umferð: gegn Manoppo Indónesíu:
1-29, 12. umferð: gegn Landsliði
Formósu (Tsai): 22-18, 13. um-
ferð: gegn Seres Ástralíu: 17-23,
14. umferð: gegn Delmouly-
Roudinesco co. Frakkl: 29-11, 15.
umferð: gegn Landsliði Kína
(Tang og co.): 40-0.
Þarna höfðum við 279 stig eftir
15 umferðir, eða 5 lotur í Swiss og
vorum komnir ansi hátt og ekki
minnkaði flugið í næstu lotum: 16.
umferð: gegn Echmann Frakk-
landi: 39-21, 17. umferð: gegn
Landsliði Argentínu (Camperos):
16-44, 18. umferð: gegn Landsliði
Pakistan (Zia Mahomued): 46-14,
19. umferð: gegn Abate Ítalíu: 46-
14.
Þarna höfðum við 426 stig eftir
19 umferðir og vorum komnir í 14.
sæti, sem er glæsilegur árangur. Þá
höfðu þó nokkrar sveitir hætt kep-
pni, vegna slælegrar frammistöðu,
en slíkt hvarflaði ekki að okkur á
þessari stundu, þó það ætti eftir að
breytast í næstu leikjum, þegar
heilladísirnar sneru baki við okkur.
20. umferð: gegn Unglingalandsli-
ði Italíu (á ný): 10-50, 21. umferð:
gegn Coyle Bretlandi: 10-50, 22.
umferð: gegn Svarc-Chemla og co.
Frakkl.: 16-44, 23. umferð: gegn
Tossot Frakklandi: 0-60.
í 20. umferð fórum við í eina
skiptið í sérherbergi þar sem notast
var við skerma. Mjög viðkunnan-
legt, alla vega fyrir annað parið í
sveitinni, en því miður rýr árangur.
Eftir þessa útreið sáu menn ekki
frant á nauðsyn þess að halda
áfram keppni, enda langt komið
spilamennsku í Swiss. Menn orðnir
þreyttir á þessu, enda hófst spila-
mennska kl. 12.30 ög stóð til kl. 3
e.m., með stuttu matarhléi...
Af hinum keppinautum er það
að segja, að sveit Martells (sem sló
okkur út í upphafi) gerði sér lítið
fyrir og sigraði Swiss keppnina. Þar
með komst hún í hóp liinna fjóru
útvöldu. Þar áttust svo við Fra-
kkarnir gegn Spánverjunum, sem
komu rækilega á óvart og stóðu
lengi vel í Frökkunum. En franska
B-landsliðið sigraði naumt í þeim
leik. í hinum áttust við sveitir USA
mannanna, þeirra Martells og
Zimmermanns, en með Zimmerm-
ann voru m.a. Hamman-Wolff
o.fl. Sveit Zimmermanns hafði
áður slegið út sveit Martells, en nú
sneri Martell leiknum sér í hag og
sigraði örugglega. Til úrslita
kepptu því sveitir Schmeil Frakk-
landi og Martells USA.
Var það ansi jafn og spennandi
leikur sem sýndur var á sýningar-
tjaldi í stórum sal að viðstöddum
miklurn fjölda áhorfenda. Sveit
Schmeil (sem er vanalega fyrirliði
franska landsliðsins, án spila-
ntennsku) sigraði að lokum, við
mikinn fögnuð heimamanna, að
sjálfsögðu. Martell og Stansy tókst
því ekki að vinna það einstæða
afrek að sigra bæði mótin, en jöfn-
uðu árangur Branco og Cintra frá
því ’78, er þeir unnu opna tvímenn-
inginn og urðu í 2. sæti í sveitakep-
pninni, næstir á eftir Pólverjum,
sem komu sömu leið í úrslitin og
sveit Martells að þessu sinni, bak-
dyramegin eins og menn töluðu
um.
Frakkarnir töpuðu ekki leik í
mótinu og voru vel að sigri sínum
komnir. Sveitina skipuðu: Lebel-
Soulet-Pilon-Feigenbaum. Ásamt
fyrirliða án spilamennsku,
Schmeil. Maður mótsins var tví-
mælalaust talinn Lebel, sem aldrei
feilpústaði ailt mótið.
Oll aðstaða á mótsstað var til
mikillarfyrirmyndar, allt tölvuvætt
sem hægt var, nema í Rosenblum
keppninni leið ansi langur tími
milli skiptinga. í mótslok var hald-
ið mikið matarhóf, enda Frakkar
rómaðir matargerðarmenn. Það
eitt ásamt verðlaunaafhendingu
tók um 5 tíma. Geri aðrir betur...
í heildina verður að segja að
ferðin var vel heppnuð, nema veð-
urguðir voru ansi snúnir og frekar
ósparir á rigningarsýnishorn.
Raunar rigndi í 14 daga stanslaust.
En bjórinn var góður og maturinn
frábær.
Meira síðar.
Tölvuskólinn
Arkimedes
Raunhæf tölvustjórn -
Opiö hús í dag kl. 10-17
Námskeið:
Forritun I og II
Skráavinnsla I og II
Kerfisfræði I og II
Ath.:
Ný ísl. kennsluforrit
Tölvur m/litastýringu
Diskettustöð með
hverri vél
Byrjenda- og framhaldsnámskeiö.
Ný námskeiö hefjast 1. nóvember 1982
Kennari Steinþór Diljar Kristjánsson
Innritun á laugardag að Laugavegi 97, 2h. sími 17040
og í síma 50615 á kvvöldin.
- Þú getur haldið áfram hjá Arkimedes.
Arkimedes sími 17040
Laugavegi 97, Reykjavík
■•"Álö? 1 *»
C ' *> r
íf.c */5\ 'r.’yj
, 8» ' +,**. x
■v»ls. f*
<.í
Siálfstætt fölk
les Þjódvíljann
Enda óþarfi að aðrir segi þér hvernig við erum.
í Þjóðviljanum finnur þú fréttir, fréttaskýringar og greinar eftir
góðan hóp manna um verkalýðsmál og vinstristefnu, um
skóla og jafnréttismál, um stóriðju og bókmenntir, um stór-
veldapólitík og íþróttir, um skák og kvikmyndir, um alvörumál
og gamanmál.
Þú kynnist öðrum viðhorfum en þeim sem ráða ferðinni í
hinum blöðunum.
Þú hefur oft litið í Þjóðviljann - því ekki að kaupa hann?
Þjóðfélagið fær óholla slagsíðu án vinstri dagblaðs.
VINNUM GEGN SLAGSÍÐUNNI- BJÓDDU ÞJÓÐVILJANUM í BÆINN
sssass Sp -
mmmm vtáíísnrVumnx™ •*'
OM/SSAND/ IUMRÆÐUNNI
Áskriftarsimi 81333