Þjóðviljinn - 23.10.1982, Qupperneq 26
A,w' _ w.V*V nipjbl*
26 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 23.-24. október 1982
■ Hvað er
ég líka að
flœkjast hérna
í Washigton?...
" og skilja
Andrés eftir
einan heima
með útvarpið?
Alþýðubandalagið Sauðárkróki - bæjarmál-
aráð
Fundur verður haldinn mánudaginn 25. október kl. 20.30. Fundarefni:
Rætt um félagsmálaráð og fleira.
Félagar og stuðningsmenn eru hvattir til að mæta. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Garðabæ - Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Garðabæ verður haldinn mánudaginn
25. október kl. 20.30 í Flataskóla.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf, 2) kosning fulltrúa á flokks-
ráðsfund, 3) kosning fulltrúa í kjördæmisráð, 4) önnur mál. Alþingis-
mennirnir Geir Gunnarsson og Ólafur Ragnar Grímsson koma á fundinn
og ræða stjórnmálaviðhorfið.
Alþýðubandalagið Hveragerði
Félagsfundur verður haldinn í Ölfusborgum næstkomandi mánudag, 25.
október, kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Skýrt frá aðalfundi kjördæmisráðs. 2. Iðnaðar-, orku- og
atvinnumál. Umræður, og skipt niður í vinnuhópa. 3. Önnur mál.
Ymsir góðir gestir kunna að mæta. Félagsmenn eru hvattir til að fjöl-
menna. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið uppsveitum Arnessýslu
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í uppsveitum Árnessýslu verður haldinn
á Flúðum fimmtudaginn 28. október
og hefst kl. 21.00
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Kosning fulltrúa á flokksráðsfund.
3) Kosning í kjördæmisráð.
4) Önnur mál.
Garðar Sigurðsson og Baldur Óskarsson mæta á fundinn. - Félagar fjöl-
mennið. - Stjórnin
Alþýðubandalagið á Akureyri - Ráðstefna um
flokkana og jafnréttismál
Alþýðubandalagið á Akureyri efnir til ráðstefnu laugardaginn og sunn-
udaginn 30. og 31. október. Dagskrá:
1. Avarp: Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins.
2. Stjórnmálaflokkarnir, staða þeirra og starfshættir. Framsaga: Soffía
Guðmundsdóttir.
3. Afstaða Alþýðubandalagsins til kvennahreyfínga og annarra félags-
legra hreyfinga. Framsaga: Helgi Guðmundsson.
4. Jafnréttisbarátta, kvennahreyfing-markmið og leiðir. Framsaga: Sig-
ríður Stefánsdóttir.
Ráðstefnan hefst kl. 13.30 á
laugardag og lýkur síðdegis á sunn-
udag. Á laugardagskvöldið verður
efnt til kvöldvöku.
Þeir félagar sem hyggja á þátt-
töku í ráðstefnunni eru vinsamlega
beðnir að tilkynna það sem fyrst á
flokksskrifstofuna í Reykjavík,
sími 91-17500. Nánari upplýsingar
eru veittar í síma 96-24270.
Stjórn Alþýðubandalagsins á Ak-
ureyri
Útvarpslyndi
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði
Gönguferð um Búrfellsgjá
Göngustjóri Kristján Bersi Ólqfsson
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði efnir til gönguferðar um Búrfellsgjá,
laugardaginn 23. október. Safnast verður saman kl. 13.00 að Strandgötu
41 (Skálanum.)
Þaðan verður ekið í rútu upp í Heiðmörk, ogsíðan gengið eftir Búrfellsgjá
að eldstöðvunum við Búrfell. Þar verður snætt nesti; síðan verður gengið
að Kaldárseli og hópurinn sóttur þangað.
Hafnfirðingar, fjölmennið. Munið að koma vel skóuð í hentugum göng-
uklæðnaði, með nesti og söngbók MFA.
Þátttaka tilkynnist í síma 51734 (Hallgrímur) 52941 (Dröfn) og 53172
(Bergþór). - Þátttökugjald 50-100 kr. - Stjórnin.