Þjóðviljinn - 06.11.1982, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 06.11.1982, Blaðsíða 5
Helgin 6. - 7. nóvember 1982 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 5 Líf sjúklingsins er í ykkar hendi, sagði Penny Prophit í lok tveggja daga fyrirlestrar síns hjá Hjúkrunarfélagi íslands. - Ljósm. -ÁI. . Góðir hjúkrunarfræðingar „brenna upp” með tímanum Tveggja daga fyrirlestur yflr hjúkrunarfrædingum HELO-SAUNA Höfum ávallt fyrirliggjandi saunaofna og klefa á mjög hag- stæöu verði. Helo I stærð 162x205x201 cm. Innifalið í verði er klefi með ofni, bekkjum, lofti; grindum a gólfi, höfuðpúða, Ijósi og full eingangaður. Verð 24.000,- Helo III. Stærð 205x205x201 cm. Innifalið í verði sama og með Helo 1. Verð kr. 27.500.- Stakir ofnar 4.5 kw ofn kr., 5.573.- 6,0 kw kw ofn kr. 5.793.- 7.5 kw ofn kr., 6.315.- BENCO, Boiholti 4, sími 21945 Hjúkrunarfélag íslands fékk góðan gestafyrirlesara í síðustu viku, Penny Prophit, prófessor í hjúkrunarfræðum við Louvail háskólann í Belgíu. Penny, sem er bandarísk og tilheyrir reglu St. Ranciskussystra, hefur starfað í Evrópu í 6 ár og tekur við prófessorsstöðu við háskólann í Edinborg 1. janúar á næsta ári. Blaðamanni gafst færi á að spjalla stutt- lega við Penny og hlýða á lokaorð hennar á fyrirlestrinum, sem tók hcila tvo daga í flutningi. Ekki voru þreytumerki á henni að sjá og reyndar heldur ekki á þeim stóra hópi hjúkrunarfræðinga sem hlýddi á fyrirlestur- inn 1. og 2. nóvember s.l. Efni hans var „Rannsóknir og gildi þeirra fyrir hjúkrunarfræðina sem vísindagrein.“ Rannsóknir eru kerfisbundin leið til þess að afla þekkingar, sagði Penny, ogþær eru undirstaða allra framfara. I hjúkrunarfræðum, sem Hjúkrun má ekki byggjast á happa og glappaaðferðinni. Hún verður að byggjast á þekkingu og reynslu. -Ljósm. ÁI. fást við lifandi fólk er ekki hægt að nota happa og glappa aðferðina. Hjúkrunin verður að byggja á þekkingu og reynslu. Penny leggur áherslu á að reynsla almennra hjúkr- unarfræðinga, hugmyndir fræði- manna í greininni og niðurstöður rannsóknarmanna verði að haldast í hendur. Aðeins þannig náist ár- angur. Hún segir að í Bandaríkjun- um hafi rannsóknir því miður slitn- að úr tengslum við þau vandamál sem við er að fást í greininni, þeir sem stundi rannsóknir tali sitt eigið tungumál og líti jafnvel niður á al- menna hjúkrunarfræðinga. Þetta vona ég að íslendingar forðist, sagði Penny. Til þess að ná árangri verða þessir aðilar að viðurkenna og meta störf hver annars. Rannsóknarvinna á að vera eðli- legur hluti af námi hjúkrunarfræð- inga, rannsóknir eru ekki eitthvað ALVEG SKÍNANDI |JUMFERÐAR sem aðeins fáir útvaldir geta stund- að. Og rannsóknir verða að ganga út frá reynslu og þekkingu hjúkrunarfræðinganna sjálfra. En hvað með Penny sjálfa, prófessorinn og kennarann, - fer hún sjálf eftir þeim kenningum sem hún boðar? Já. Á hverju ári fer ég til Banda- ríkjanna og starfa þar við almenn hjúkrunarstörf á sjúkrahúsi í a.m.k. einn máriuð, segir Penny. Á þann hátt er ég í beinum tengslunr við dagleg vandamál starfsins, ég fylgist betur með tækniframförum, ég fæ tækifæri til þess að reyna kenningar mínar í starfi og fæ einn- ig hugmyndir að rannsóknar- verkefnum. Ekkert eftir nerna askan í lok fyrirlestrar síns fjallaði Penny urn það sem hún nefndi „Burnout-syndrome“ og kalla mætti „Búinn að vera-einkenni“ á íslensku. Hún sagði sorglega al- gengt að horfa upp á bestu hjúkrunarfræðingana ntissa áhug- ann á starfi sínu, verða ópersónu- lega og kaldhæðna. Þetta væru af- leiðingar álags sem væru mjög mik- ið rneðal allra hjúkrunar- og ráðgjafastétta sent tækju starf sitt alvarlega. Líkti hún þeim við log- andi eldspýtu, þar sem að lokum verður ekkert annað eftir en út- brunnin aska. Vandamál tækju að hrannast upp, streitusjúkdómar gerðu vart við sig, sjálfsmorð væru tíð meðal þessara stétta, svo og misnotkun á áfengi og lyfjunt. Þessi einkenni má hindra og lækna, sagði Penny. Leiðin er ekki endi- lega sú að minnka vinnuna, þvert á móti getur reynst nauðsyniegt að auka hana. Aðalatriðið er að haga verkaskiptingu þannig að álaginu sé reglulega létt af t.d. hjúkrunar- fræðingi sem hjúkrar stöðugt langt leiddum krabbameinssjúklingum. Hjúkrunarfræðingar á slíkum deildum þurfa að hafa möguleika á því að fara á léttari og „árangurs- ríkári“ deildir til þess að fylla sig aftur orku og vinnugleði. Einnig væri nauðsyniegt að ræða þessi mál á vinnustaðnum, því þessi þreytu- og álagseinkenni bitnuðu fyrst og fremst á sjúklingunum. í hjúkrun er tæknin ekki allt, sagði Penny, það verður einnig að vera tilfinning og þekking. Það dugir t.d. ekki að beita sama við-' móti gagnvart öllum „botn- löngum“. Hver og einn er sérstök persóna og hjúkrunarfræðingurinn verður að læra að þekkja hann. ef hjúkrun á að bera árangur. -Ál. «pnBiw<»p m 2 BMW315 2 BUICKSKYLARK 3 ESCORTGL 2SAAB900GL 3SUZUKIF0X HAPPDRÆTTI ÓLYMPÍUNEFNDAR (SLANDS Leööjum öóðumálilið Cuðmundur Gíslaso Róm 1960,iœm. skriðsun Tokyo 1964,400m. fjórsun I00m.fl' Mexíkó 1968,200m.c fjórsund, 100m. 200m. og Jónsson. lOOm. lústa Þorsteinsdóttir. irn 1960, m. skriðsurld. Ellen Ingvadótti Mexíkó19 I00m. skriðsu 200m. bringusu 200m. fjórs Ouðmundsdóttir. . 100m. skriðsund 100m. skriðsund, m. fjórsund. VÍÖ Öll. n úndirbúning. Leggjumst á eitt og styöjum þátttöku íslenskra ung- menna á næstu Ölympíuleikum".

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.